Morgunblaðið - 19.08.1993, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDA.GUR 19. ÁGÚST 1993
25
Forystugreinar í norskum dagblöðum
Semja verður
um veiðamar
í Barentshafi
TVO AF helstu dagblöðum Noregs, Verdens Gang og Aftenposten,
fjalla um veiðar íslenskra togara í Barentshafi í forystugreinum í
gær. Eru leiðarahöfundar blaðanna sammála um að Norðmenn verði
að tryggja að samið sé um nýtingu fiskistofna á svæðinu.
í leiðara Verdens Gang segir að
mörg íslensk fiskip séu nú við veið-
ar eða á leið til veiða í Smugunni,
sem sé alþjóðlegt hafsvæði þar sem
hver sem er geti veitt án þess að
taka tillit til kvóta eða samninga.
„Þrátt fyrir að Alþjóða hafréttar-
sáttmálinn frá 1982 hafi ekki enn
tekið gildi eru margar af megin-
reglum hans þegar almennt viður-
kenndar í þjóðarrétti. Það á ekki
síst við rétt strandríkja til að að
vernda fiskistofna innan 200 mílna
efnahagslögsögu. Var það mat
Hafréttarráðstefnunnar að strand-
ríki væru þeir aðilar sem líklegast-
ir væru til að vernda þessa stofna
á skynsamlegan hátt.
Á Hafréttarráðstefnunni var
hins vegar ekki mikið rætt um
„smuguvandamálið" það er þegar
landhelgi eins eða fleiri ríkja þekur
heilt haf að undanskildu litlu gati
í miðjunni. í þessu „gati“ gætu
utanaðkomandi sjómenn kastað út
netum sínum og unnið alvarlegt
tjón á öllum fískistofnum á svæð-
inu. Það er þetta svæði, sem lög
ná ekki til, sem íslenskir sjómenn
vilja nú nýta sér á miskunnarlausan
hátt. Árið 1981 létu Norðmenn ís-
lendingum eftir stórt hafsvæði við
Jan Mayen vegna þess hve háðir
þeir væru fiskveiðum. Nú kapp-
sigla íslenskir sjómenn til „Smug-
unnar“ til að stunda í raun rá-
nyrkju á fískístofnum annarra
ríkja.
Norðmenn og Rússar eiga að
mótmæla þessu sameiginlega. Það
kemur þó ekki til greina að grípa
til ofbeldisaðgerða gegn íslending-
unum líkt og norskir sjómenn og
útgerðarmenn hóta að gera. Norð-
menn hafa engan rétt á að beita
valdi á þessu svæði. Við erum hins
vegar ekki alveg ósjálfbjarga. Sam-
kvæmt hafréttarsáttmálanum eiga
þau ríki, sem aðild eiga að málinu,
að semja um nýtingu svæða utan
200 mílnanna til að vemda fiski-
stofna. Norðmenn geta krafist þess
að íslendingar komi að samninga-
borðinu þegar í stað og að menn
komist að bindandi samkomulag
um hvernig binda eigi enda á
stjómleysið í „Smuguni“. íslend-
ingar eru mjög háðir þeirri reglu
að það sé strandríkið sem ber
ábyrgðina á nýtingu fískistofna.
Þeir geta ekki leyft sér að vera
með slíkan tvískinnung að ýta
þeirri reglu til hliðar þegar það
hentar þeim og sjávarútvegi þeirra.
Eða geta þeir það?“
Dagblaðið Aftenposten segir í
leiðara um sama mál sem ber yfir-
skriftina „Hættuleg „Smuga““:
„Norskir stjórnmálamenn jafnt sem
sjómenn hafa talað digurbarklega
um framferði annarra í „Smug-
uni“. Það þjónar varla hagsmunum
Norðmanna nú. Við verðum að
gera okkur grein fyrir því að það
sem er í húfi er ekki eitthvert
magn af þorskafla heldur líkurnar
á að breiðri alþjóðlegri samstöðu
um þau mál sem enn á eftir að
leysa á norðurslóðum. Staða Nor-
egs sem strandríkis er þegar mjög
sterk í Barentshafi þökk sé þeim
hafréttarreglum sem þróast hafa
fram á undanfömum tuttugu árum.
Sjávarútvegshagsmunum okkar er
best borgið með því að við veljum
að þróa áfram þann þjóðarrétt í
stað þess að taka lögin í eigin hend-
ur gagnvart öðrum ríkjum og sjó-
mönnum þeirra. Það á jafnt við þó
að hinir norrænu nágrannar okkar
Islendingar hafí ákveðið að sanna
inntak orðanna „frændur eru
frændum verstir".
í aðildarviðræðunum við Evr-
ópubandalagið mun spurningin um
nýtingu fískistofna verða lykilatriði
þegar fundir hefjast í haust. Af
hálfu Norðmanna verðum við að
gera okkur grein fyrir því að við
erum jafnt með umdeilda miðlínu
gagnvart Rússum í Barentshafí og
vemdarsvæði í kringum Svalbarða
sem enginn (ef frá em skildir
Finnar) hefur viðurkennt opinber-
lega þó að menn fallist á að Norð-
menn stýri veiðunum á meðan þeir
mismuna ekki. í Ijósi þessara deilna
og þessarar óvissu er það Norð-
mönnum fyrir bestu að gera bind-
andi samninga við önnur ríki. Til
að slíka samninga sé hægt að gera
verðum við að fallast á málamiðlan-
ir og vera sanngjarnir á meðan
aðrar þjóðir em það líka.“
Segir Aftenposten að ef Norð-
mönnum takist að fá EB-ríkin til
að fallast á lausn í aðildarviðræð-
unum, sem tekur mið af hagsmun-
um Norðmanna, muni samnings-
staða þeirra styrkjast verulega
gagnvart öðmm þjóðum s.s. íslend-
ingum og Rússum.
í lok leiðarans segir: „Johan
Jorgen Holst utanríkisráðherra
reyndi á meðan á íslandsheimsókn
hans stóð að fá íslenska utanríkis-
ráðherrann Jón Baldvin Hannibals-
son til að stöðva veiðar íslensku
sjómannanna. Það ætti ekki að
koma á óvart að það hafí ekki tek-
ist. En þau orð [Jóns Baldvins]
Hannibalssonar að íslensk stjórn-
völd geti reynt að takmarka veið-
arnar sýna að ákveðinn skilningur
á sjónarmiðum Norðmanna er til
staðar. Viðræðunum hefur ekki
verið slitið. Norðmönnum ber að
halda þeim áfram og hafa heildar-
myndina í huga. Við megum ekki
hegða okkur þannig að „Smugan"
verði að blindgötu án þess að hægt
sé að smjúga út aftur.“
NÁMSKEIÐAPAKKI á einstökum kjörum!
Viltu margfalda lestrarhraðann og auka ánægju af öllum lestri?
Viltu auka afköst í starfi og námi?
Hraðlestrarskólinn býður nú tvö vinsæl námskeið, hraðlestr-
arnámskeið sem kostar kr. 15.800 og námstækninámskeið
sem kostar kr. 5.900, saman í „pakka" á frábærum kjörum,
einungis kr. 15.800. Þú sparar kr. 5.900! Betra tilboð færðu
ekki, enda skila námskeiðin þér auknum afköstum í námi og
starfi alla ævi!
Næsta námskeið hefst 25. ágúst.
Skráning alla daga í síma 641091.
HRAÐLESTRARSKOLINN
...við ábyrgjumst að þú nærð árangri!
5 1978- 1993 L!..
Bruni aldagamallar brúar áfall fyrir Svisslendinga
> Reuter.
Ometanlegt tjón
HLAÐINN vatnsturn frá fjórtándu öld er nánast það eina sem
stendur eftir í kjölfar þess að Kapellubrúin í Luzern í Sviss
brann í fyrrinótt. Slökkvilið kom fljótt á staðinn. Það gat
ekki bjargað nema hluta brúarinnar og einbeitti sér að því
að bjarga 660 ára vatnsturninum sem stendur við hana.
íkveikja er
ekki útílokuð
Luzcm. Frá Önnu Bjarnadóttur, fréttaritara Morg-
unblaðsins.
ALLT bendir til að bruninn í Kapellu-
brúnni í Luzern í fyrrinótt hafi orðið af
mannavöldum. Ekki er ljóst hvort um slys
eða íkveikju var að ræða en talsmaður
brunaeftirlitsins telur ekki útilokað að
kviknað hafi í út frá sígarettu sem vegfar-
andi kann að hafa hent frá sér og lent í
báti, sem bundinn var við brúna. Rann-
sókn á upptökum eldsins stendur yfir en
ekki er vitað hvenær henni lýkur.
„Hörmulegt“ var viðkvæði Svisslendinga i
gærmorgun þegar þeir heyrðu að stór hluti
Kapellubrúarinnar i Luzem væri brunninn til
kaldra kola. Sorgmæddir Luzem-búar gerðu
sér sérstaka ferð i miðbæinn til að sjá brun-
arústimar og fylgjast með hreinsunarvinnu
sem hófst þegar i stað. Brúin verður endur-
byggð en fæstar yfír 300 ára gamalla mynda
innan á þaki brúarinnar verða endurheimtar.
Brúin var byggð um 1333. Hún er elsta tré-
brú Evrópu sem hefur stöðugt verið end-
urnýjuð og haldið við. Hún er um 200 metra
löng og liggur yfir ána Reuss i hjarta Luz-
ern. Þakmyndimar vom málaðar i upphafi
17. aldar. Þær röktu sögu Sviss og Luzern.
Brúin hefur svipaða þýðingu i Luzern og
Þingvallakirkjá á Þingvöllum eða Eiffel-turn-
inn i Paris.
Eldsins varð vart rétt fyrir klukkan eitt,
aðfaranótt miðvikudags. Eldur kom upp um
borð i mótorbáti sem var bundinn við brúna
og eldtungur læstust hratt um þurran við
gömlu brúarinnar. Það hefur nú verið stað-
fest að bmnan í bátnum má ekki rekja til
vélarbilunar.
Tuminn er kynningartákn Luzern og eng-
inn fer um borgina án þess að veita honum
og gömlu brúnni athygli. Um fjórar milljón-
ir ferðamenn fara um Luzern á ári. Þeir
munu geta gengið um Kapellubrúna vorið
1994 en ráðamenn reikna með að viðgerðum
á henni verði þá lokið.
1*11*11*11*11*1 l«l 1*11*11*1 l«l 1*1 l«l 1*11*11*11*11*11*1
Láttu OkkurÖvi Arshátíðina
~ Og ÞaðVerðurHátíðI Lagi
#
=cz>
Með því að nýta þér Veisluþjónustu Naustsins
í Fóstbræðraheimilinu geturðu verið viss um
að árshátíðin — eða veislan af hvaða tagi sem
hún er — verður í góðum höndum hjá okkur.
t er fyrir hendi til a5 fullkomna auoiablikið:
• Fallegur og notalegur veisjúsalur fyrir 20 - 140 manna hópa.
• Fyrsta flokks matur frá Naustinu sem slær alltaf í gegn.
• Liprir þjónar sem njóta þess að snúast í kringum veislugesti.
• Matföng við allra hæfi — möguleikarnir eru fjölmargir.
• Odýrari matarveisla en gengur og gerist: Þríréttaður
kvöldverður frá 1.950 kr. á manninn — gerf aðrir betur!
• Aratuga reynsla í teisluhöldum. Þeir Hörður Sigur-
jónsson og Hafsteinn Egilsson, eigendur Naustsins,
vita hvað veisla á að standa fyrir.
0<?
<g
eisluþjónusta Naustsins
- hvert sem tilefnið er:
• Árshátíð.
• Brúðkaup.
• Fermingarveislur.
• Utskriftarafmæli.
• Stórafmæli.
• Móttökur.
• Erfidrykkjur.
• Kokkteilveislur.
LJitt símtal: 17759*685206
og þú átt fyrirmyndarveislu í vændum!
^eVsVultjólu^^
^ós
^sibr«ru)i
e>-
' «t, ■»
>•
% %
V, V
% -
oA'ouifí^ — ifct/ur tneð iá/
1*11*11*11*11*11*11*11*1 !•! 1*11*11*11*1 !•! 1*11*11*1 !•!