Morgunblaðið - 19.08.1993, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 19.08.1993, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 1993 39 Ingimundur G. Stein- dórsson - Minning Fæddur 25. desember 1920 Dáinn 10. ágúst 1993 í dag kveðjum við Ingimund afa okkar sem svo skyndilega var hrif- inn á brott frá okkur. Aðeins er tæpur mánuður síðan við vorum öll saman komin í sumarbústað austur í Landbroti og var afi þá hress og kátur að vanda. Síðan fóru þau amma j heimsókn til ættingja henn- ar í Ólafsvík og þar veiktist afi skyndilega og lést rúmum sólar- hring síðar á Landspítalanum. Afi var fæddur í Reykjavík 25. desember 1920, sonur hjónanna Oddnýjar Hjartardóttur frá Borð- eyri og Steindórs Ingimundarsonar frá Sogni í Ölfusi. Þau bjuggu á Teigi á Seltjarnarnesi og eignuðust fjórtán börn, en fjögur dóu ung. Eftirlifandi eru Friðrik, Gyða, Hreinn, Lilja, Jón og ívar. Árið 1942 giftist hann ömmu okkar, Stefaníu Guðmundsdóttur frá Litla-Kambi í Breiðuvík á Snæ- fellsnesi. Hún er dóttir hjónanna Sigurlaugar Sigurðardóttur og Guðmundar Guðmundssonar er þar bjuggu. Amma og afi hófu búskap á Téigi hjá foreldrum hans en fluttu fljót- lega að Bygggarði á Seltjarnarnesi og bjuggu þar í 18 ár en síðan hafa þau búið í Reykjavík. Þau eign- uðust sex börn, en einn son misstu þau á fyrsta ári. Börnin eru: Inga Marta, fædd 1943, gift Sigurði Stefánssyni; Steindór, fæddur 1945, giftur Maríu Ásmundsdóttur; Oddný, fædd 1946, gift Jónasi Hannessyni; Eyjólfur, fæddur 1949, giftur Ingibjörgu Helgadóttur, og Guðmundur, fæddur 1953, giftur Guðrúnu Þorbjörnsdóttur. Barna- börnin eru sautján og barnabarna- börnin sex. Lengst af stundaði hann sjó- mennsku og var mörg ár matsveinn á bátum og togurum, en árið 1977 veiktist hann og varð að gangast undir hjartaaðgerð í London og eft- ir það gat hann ekki unnið lengur til sjós. Hann náði sér þó vel eftir þessa aðgerð og vann þá ýmis létt störf í landi, var meðal annars nokk- ur ár umsjónarmaður á Hlemmi. Afí var mikill fjölskyldumaður og hann og amma voru mjög sam- rýnd. Frá því við munum eftir okk- ur var alltaf farið til þeirra á afmæl- isdag afa, jóladag, og var þá oft Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stn'ð. (V. Briem.) Mig setti hljóðan við þau hörmu- legu tíðindi að vinur minn, Þór Árnason, hefði látist 22. júní síðast- liðinn. Síðan þá hafa sótt á hugann ótal minningar tengdar Þór, þessum eld- huga og góða dreng, tilfinningarík- ur og viðkvæmur, en um leið svo sterkur og veitull. Hans er sárt saknað. Mig langar í örfáum orðum að minnast vinar míns. Minningin um góðan dreng spannar yfir mörg ár, frá því að við vorum í Austurbæjarbarnaskól- anum til dagsins í dag. Upphaf vin- áttu okkar byggðist á gagnkvæmu trausti og virðingu, sem fljótlega leiddi til þess að við urðum heima- gangar hvor hjá öðrum. Þór sá allt- af spaugilegu hliðarnar á öllum málum og með sinni hressilegu framkomu, og skemmtilegu frá- sagnargáfu, varð hann hrókur alls fagnaðar hvar sem hann kom, enda var vinahópurinn stór. Eftir að Þór fluttist með fjöl- skyldu sína, Ingu Rós og dæturnar glatt á hjalla þegar öll börnin og barnabörnin voru samankomin í litlu íbúðinni þeirra á Vesturgötunni og nú síðustu ár í Fannarfelli. Við eigum margar dýrmætar minningar um hann afa okkar og kveðjum hann nú með söknuði með þessum bænarorðum: Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Guð blessi Stefaníu ömmu. Barnabörn. Mánudaginn 3. ágúst síðastliðinn hringdi síminn hjá mér og í síman- um var Ingi bróðir. Hann spurði mig hvemig gangi hjá mér, hvort það sé nóg að gera og hvernig heils- an sé hjá fyölskyldunni. Við töluðum um daginn og veginn. í lokin sagði Ingi bróðir hress í bragði að heilsan hjá Stebbu væri það góð að nú skyldi stefnan tekin vestur í Ólafs- vík. Það var fastur liður hjá þeim að fara þangað á hverju sumri. Það hvarflaði ekki að mér að þetta væri okkar síðasta samtal, því að Ingi hringdi í mig tvisvar til þrisvar í viku og vildi fylgjast með litla bróður. Með þessum orðum langar mig að minnast bróður míns, Inga, sem jarðsunginn er í dag frá dómkirkj- unni í Reykjavík, með honum er genginn þessi prúði og hógværi maður sem mun vera minnisstæður öllum sem kynntust honum. Ingi bróðir fæddist í Reykjavík á jóladag árið 1920 og var elstur af okkur fjórtán systkinunum. Foreldrar okkar voru Steindór Ingimundarson og Oddný Hjartardóttir sem bjuggu á Teigi, Seltjamarnesi, og eru bæði látin. Hann ólst upp við ást og umhyggju í foreldrahúsum. Hinn 27. júní 1942 steig Ingi bróðir hið mesta gæfuspor í lífi sínu er hann gekk í hjónaband með eftir- lifandi eiginkonu sinni, Stefaníu Guðmundsdóttur frá Litla-Kambi í Breiðuvík á Snæfellsnesi, mikil- hæfri og mætri konu sem var hans stoð og stytta allt hans líf og hefur hjónaband þeirra verið farsælt og barnalán mikið. Ingi og Stebba Elínu og Margréti, til Bandaríkj- anna heimsótti ég þau og var það eins og að koma heim. Og þegar ég flutti út sjálfur heimsótti ég hann og þá var rabbað um gömlu vinina og strákapörin, „gamla daga“ og „heima og geima“, já, alltaf var jafn gott að koma á heim- ili hans. Þótt fyarlægðin skildi okkur að rofnaði aldrei samband okkar því að þá var hringt eða skrifast á, þannig að báðir vissu hvað hinn var að gera. Það er mér mikil gæfa að hafa verið samferðamaður hans og mikill missir að jafn ástríkum og stórbrotnum persónuleika sem Þór var. Ungur að árum þroskann hann dreymdi, dreymdi um velgengni, það gerði hann. Þá hamingju fann hann, sem um æðar hans streymdi, streymdi um umhyggju, sem hann og fann. Guð þinn þig valdi til þjónustu sína, sumum til hr}-ggðar, en hvað þýðir það. Þakklátur bið ég um minningu þína, þörfin er núna, minn guð það ég bað. Með þessum fátæklegu orðum vil ég þakka honum trygga vináttu og yndislegar samverustundir, sem aldrei gleymast. Megi guð hjálpa honum við að átta sig á orðnum hlut, blessa og styrkja hann og Pat, börn þeirra, eignuðust sex börn, elsta barn þeirra, Vinur, lést á fyrsta ári, 1942. Eftirlifandi börn þeirra eru: Inga Marta, Steindór Kristinn, Sigur- laug, Eyjólfur og Guðmundur Svan- berg sem öll eru búsett og gift í Reykjavík og eru barnabörnin sautj- án. Ungur byijaði Ingi bróðir í verka- mannavinnu við hin ýmsu störf. Síðan lá leið hans á sjóinn og var hann lengst af sem matsveinn og vel var af honum látið af skipsfélög- um fyrir góðan mat og snyrti- mennsku sem var hans aðalsmerki alla tíð. Þegar Ingi hætti á sjó gerð- ist hann vaktmaður hjá Reykjavík- urborg við gæslu hjá SVR við Hlemm. Naut hann þar mikillar virðingar þó einkum hjá unga fólk- inu. Fyrir nokkrum árum hætti Ingi bróðir að vinna vegna aldurs og heilsan var farin að segja til sín, en aldrei kvartaði hann þótt lasinn væri, því að umhyggjan fyrir nán- ustu ættingjum var númer eitt. Og vil ég biðja guð að styrkja þau í sorg sinni. Megi minningin lifa um góðan dreng. Elsku bróðir, ég vil þakka fyrir allt og kveð þig með bæn sem mamma kenndi okkur. Nú bið ég Drottinn bænir mínar sem bam ég krýp við fætur þína gef þú mér líf mitt vel að vanda og vera trúr til munns og handa vert þú minn faðir vinur bróðir, vert þú mín systir og ástrík móðir, veit mér að lifa í heimi hér að himna fái ég vist með þér. (O.H.) Guð blessi þig elskulegi bróðir. ívar Steindórsson. börnin hans, foreldra og aðra ætt- ingja, nú, sem og um ókomna fram- tíð. Minningin um góðan dreng sem hafði svo margt að gefa mun lifa áfram á meðal okkar sem kynnt- umst honum. Far þú (friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, . hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Kveðja frá vini. Þór Karlsson Wilcox. Birting af- mælis og minningar- greina MORGUNBLAÐIÐ tekur af- mælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit- stjórn blaðsins Kringlunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góð- um fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. Minning Þór Amason t GUÐMUNDUR ÓLAFSSON frá Hvítárvöllum, Egilsgötu 4, Borgarnesi, verður jarðsunginn frá Borgarneskirkju föstudaginn 20. ágúst kl. 14.00. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á björgunarsveitina Brák, Borgarnesi. Guðfinna Eirfksdóttir, Sigríður Brynjólfsdóttir, María Guðmundsdóttir, Guðmundur G. Vigfússon, Ágústa Guðmundsdóttir, Pétur Þorvaldsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær móðir okkar, tengamóðir, amma og langamma, ÞORBJÖRG ÞORVALDSDÓTTIR, Skúlagötu 40a, andaðist í Landspítalanum þriðjudaginn 17. ágúst. Guðmundur Ólafsson, Sigurrós Þorgrímsdóttir, Þorvaldur Ólafsson, Brynja Jóhannsdóttir, Kristín Á. Ólafsdóttir, Óskar Guðmundsson, Eggert Ólafsson, Sigrún Þorvarðardóttir, Snjólfur Ólafsson, Guðrún S. Eyjólfsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR GÍSLASON frá Lambhaga, Hjarðarholti 10, Akranesi, verður jarðsunginn frá Akraneskirkju föstudaginn 20. ágúst kl. 14.00. Hrefna Sigurðardóttir, Gísli Þór Sigurðsson, Petrína Bergvinsdóttir, Ármann Sigurðsson, Sigurjón Sigurðsson, Adda Marfusdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför ástkærrar móður okkar, ÞORBJARGAR GRÍMSDÓTTUR frá Litla-Seli, siðartil heimilis á Skólavörðustfg 24a. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á Droplaugarstöðum fyrir sérlega góða umönnun. Fyrir hönd aðstandenda, Aðalbjörn Aðalbjörnsson, Guðrún Aðalbjörnsdóttir. t Innilegar þakkir færum við öllum þeim, er sýndu okkur samúð og vinarhug vegna andláts og útfarar elskulegs eiginmanns míns, föður okkar, sonar og bróður, HELGA SIGURÐSSONAR, Hlíðarvegi 12, Grundarfirði. Patricia Ann Heggie, Sigurður Tómas Helgason, Adam Kári Helgason, Daníel Magnús Helgason, Áslaug Pétursdóttir, Sigurður Helgason, systkini og þeirra fjölskyldur. t Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og vinar- hug við andlát og útför INGIBJARGAR GUÐMUNDSDÓTTUR frá Efra-Núpi, Hraunbæ 42, Reykjavik. Starfsfólki Laugarskjóls og Skjóls eru færðar sérstakar þakkir fyrir góða umönnun. Pálina Ragnhildur Benediktsdóttir, Hjalti Jósefsson, Guðrún Benediktsdóttir, Aðalbjörn Benediktsson, Hjördís Benediktsdóttir, Jón Þ. Eggertsson, Brynhildur Benediktsdóttir, Elís Jónsson, Sigriður Benediktsdóttir, Sigurður Þórhallsson, Alda Benediktsdóttir, Ketilriður Benediktsdóttir, Sigbjörn Páisson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.