Morgunblaðið - 19.08.1993, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 19.08.1993, Blaðsíða 40
40 'tóÓRÖÚtofíLAÖIÉí PMltWÍÖÍ&ÍGÍJlí1 'ÁfeÚSÍt í 1^3 ffclk í fréttum BANDARIKIN OHEFÐBUNDNAR LÆKNINGAR Heilari í heimsókn Isex ár hefur það verið draumur Bandaríkjamannsins Ken Co- hen að heimsækja Island en hann er nú hingað kominn til nám- skeiðahalds. Um helgina kennir hann íslendingum um heilunarað- ferðir indjána og ber þær saman við aðrar heilunaraðferðir. Þá mun Cohen halda hefðbundna heilunar- athöfn indjána með trommuslætti og söng. Cohen hefur lært hjá seiðmönn- um indjána og vinnur nú sem seið- maður og heilari, m.a. á sjúkrahús- um, í fangelsum og háskólum víðs vegar um Bandaríkin og Kanada. Hann segir ferðina hingað til ís- lands tengjast draumsýn sinni um norðrið. „Ég lít á norðrið sem heimili alls kyns þrekrauna og krefjandi verkefna sem styrkja okkur en jafnframt þann stað sem við deyjum og endurfæðumst á. ísland er eitt af yngstu löndum heims sökum eldvirkni sinnar og virðist sífellt vera að endurnýja sig. Cree-indjánar telja norðrið vera heimkynni eldsins sem gerir Island enn táknrænna fýrir mig. Ég held að kraftur íslands muni gegna lykilhlutverki í því að við öðlumst á ný virðingu fyrir jörð- inni. Þar að auki tel ég að seið- menning hafi verið hér lengi við lýði, ekki aðeins í íbúum landsins heldur einnig í landinu sjálfu,“ segir Cohen. Cohen á óvenjulegan lífsferil að baki. Sautján ára gamall var hann farinn að læra kínversku, leggja stund á taoisma, heilunaraðferðir Kínveija og tai-chi, sem hann hef- ur meistaragráðu í. Er hann var Heilarinn og seiðmaðurinn Ken Cohen hefur kynnt sér starf töfralækna í Afríku, Asíu og meðal indjána. 25 ára hóf hann að kenna við Berkley-háskólann. Einn nemenda hans þar var kona af Hopi-þjóð- flokkinum og hún kynnti Cohen fyrir Keetoowah, barnabarni eins af töfralæknum Cherokee-indjána. Þau kynni urðu til þess að Cohen fór í læri til margra af helstu töfra- læknum indjána og starfar í dag sem heilari og seiðmaður. Cohen hefur einnig komist í læri hjá seið- manni frá Nígeríu og er innvígður í starf heilara á Filippseyjum. Menninger-stofnunin í Banda- ríkjunum gerði fyrir nokkru at- hugun á fjórtán heilurum og var Cohen einn þeirra. í mælingum, sem gerðar voru þegar þeir voru í hugleiðsluástandi, urðu breýting- ar á heilabylgjum þeirra. „Þá mældist einnig aukið hitaút- streymi frá líkama okkar og um 90% þátttakenda virtust framleiða rafmagnaða hnykki sem voru allt frá 20 voltum og upp í 250 volt. Hægðist verulega á starfsemi heilabylgjanna. Þegar við unnum síðan að heilun með handayfir- lagningu, án þess að snerta sjúk- linginn, jókst kraftur þessa raf- magnaða útstreymis enn meira. Við sams konar rannsókn á þijá- tíu einstaklingum sem ekki höfðu komið nálægt heilun, komu engar óvenjulegar breytingar i líkams- starfseminni fram,“ segir Cohen. Eftir því sem hróður Cohens sem heilara jókst, fékk hann með- al annars boð frá kandíska heil- brigðisráðuneytinu um að að vinna með indjánum í norðurhluta Saskatchewan en áfengissýki hijáir um 85% íbúanna. Hann held- ur einnig fyrirlestra og þrátt fyrir að hann hafi enga læknisfræði- menntun, hefur honum alloft verið boðið að halda fyrirlestra við læknadeildir við fjölmarga banda- rískra háskóla. Aðallega er um að ræða deildir í geðlæknisfræði og fjallar Cohen um geðlækningar mismunandi menningarstiga. Þá vinnur Cohen í samvinnu við lækna í Boulder i Colorado en þeir vísa til hans sjúklingum, m.a. þeim sem lent hafa í bílslysum. „Ég trúi því að engin ein lækning- aðferð sé svo fullkomin að hún geti læknað allt. Með því að vinna saman með mismunandi aðferðir náum við árangri." UTGAFA Enn hneykslar Vanity Fair -t- t ’orsíður bandaríska tímaritsins Van- ity Fair hafa ósjaldan verið fréttaefni á síð- ustu árum enda fer ritstjórn blaðsins ekki troðnar slóðir í uppsetningu þeirra. Leikkon- an Demi Moore sat í tvígang nakin fyrir á forsíðunni og vakti það gríðarlegt umtal. Að þessu sinni er það fyrirsætan Cindy Crawford sem prýðir forsíðu ágúst- heftisins ásamt kanadísku söngkonunni K.D. Lang. Lang er yfirlýst lesbía og var lengi í sambúð með tékknesku tennisstjörnunni Martinu Navratilovu. Situr Lang klædd karlmannsfötum í rakarastól og Crawford rakar söngkonuna. Vísar forsíðumyndin til viðtals við K.D. Lang, þar sem hún ræðir m.a. samkynhneigð sína. Forsíðumynd þessi hefur ýtt mjög undir þær sögu- sagnir að Cindy Crawford sé einnig lesbía og að eiginmaður hennar, Richard Gere, hneigist til karla. Þessar sögusagnir þykja þó með ólíkindum og eru líklega ættaðar úr slúðurritinu National Enquirer, en ímyndunaraflið á þeim bænum á sér engin tak- mörk. Morgunblaðið/Þorkell Vinnufúsar hendur Þetta röska unga fólk hittum við fyrir skömmu, þar sem það var að raða steinum að ungum tijáplönt- um í brattri hlíð í Ölfusvatnslandi við Þingvallavatn. Þessi níu höfðu verið atvinnulaus, ekki fengið sumar- vinnu, svo að Hitaveitan bætti einum flokki við liðið sem ásamt krökkum úr Vinnuskólanum hefur starfað þama í sumar við gróðurbætur og lagfæringar. Og það var auðséð að þetta unga fólk, sem hefur líklega verið á aldrinum 16-19 ára, hefur ekki kært sig um að sitja auðum höndum ef marka má af hve mikilli alúð og iðni þau lögðu steina að þessum nýplöntuðu tijám, svo að þau rynnu ekki í brattanum og næðu að festa rætur. Þau eiga afmæli í dag Margir ætla að þeir sem eiga afmæli sama dag, eigi sitt- hvað sameiginlegt. Sú mun vera raunin með Bill Clinton Bandaríkja- forseta og Tipper Gore, varafor- setafrú, en þau halda upp á af- mæli sitt í dag. „Bill og ég erum býsna lík, og A1 og Hillary eiga margt sameiginlegt,“ segir Tipper Gore og bætir því við að það sé sívinsælt umræðuefni hjá hjón-; unum tveimur. Meðal þess sem 4 M sameinar Tipper og Bill er tónlistar- áhuginn en bæði spila á hljóðfæri, hann á saxófón og hún á trommur. Þá hafa bæði átt Mustang-bifreið. Hins vegar eru makarnir Hillary og A1 mun alvörugefnari og fræg fyrir að helga sig áhugamálunum af alhug. Hvort sem hér er um til- viljun að ræða eða ekki, er ekki að efa að afmælisbörnin eiga eftir að fagna afmæli sínu af þrótti enda fædd í ljónsmerkinu. Tipper Gore ætlar að halda upp á afmælið með stæl. Bill Clinton á líka afmæli og það fer tæpast fram í kyrrþey. STJORNUR Tillaga að erfingja Brúðkaupsdagar kvikmynda- leikkonunnar Juliu Roberts og tónlistarmannsins Lyle Lovett voru ekki fyrr liðnir en lúsiðnir blaðamenn vestan hafs voru farnir að velta fyrir sér hvort ekki væri erfingi á leiðinni. Engar fregnir hafa borist af því enn en þar sem Roberts tókst að leyna sambandi sínu við Lovett fram að brúð- kaupi, treysta blaðamennirnir því ekki að þeir verði látnir vita í tíma ef fjölgar í fjölskyldunni. Því tóku þeir sig til og létu útbúa mynd af því hvernig bam þeirra hjóna gæti mögulega litið út. Bamung- inn hefur munn móður sinnar og íhugul augu föðursins en þó er eins og eitthvað vanti... Eitthvað á þessa leið gæti erfing- inn litið út. Skyldu Lyle Lovett og Julia Robert eignast barn í bráð? STJORNMAL Fúll á mótí Bildt var ekki hlátur í hug yfir þriggja daga rign- ingu. Forsætisráðherra Svía, Carl Bildt, var óneitanlega stúrinn á svip þegar veðrið brást í langþráðu sumarfríi hans. Bildt hafði skráð sig til siglingakeppni ásamt nokkmm vinum sínum og ætlaði að slappa ærlega af eftir glímuna við bágt efnahagsástand. Fyrstu þijá dagana rigndi eins og hellt væri úr fötu og það var nóg til þess að Bildt setti upp skeifu. Hún sat sem fastast á andliti hans þrátt fyrir að sólin væri farin að skína er þessi mynd var tekin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.