Morgunblaðið - 19.08.1993, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 1993
41
Morgunblaðið/Brynjólfur Gíslason
Gestgjafarnir Kristleifur og Sigrún.
HUSAFELL
Afmælisveisla við
rætur Langjökuls
Kristleifur Þorsteinsson, ferða-
bóndi á Húsafelli, varð sjötug-
ur 13. ágúst sl. Eins og hans var
von og vísa var enginn venjubund-
inn bragur á því afmælishaldi.
Veislugestum var fyrst boðið í
búðir Langjökuls hf. við rætur
Langjökuls í Goðalandi en þar hefur
í sumar verið rekin vélsleðaleiga
og farnar snjóbílsferðir á jökulinn.
Og að sjálfsögðu er Kristleifur pott-
urinn og pannan í því fyrirtæki. Þar
nutu menn rausnarlegra veitinga í
boði Kristleifs og konu hans Sigrún-
ar. Að því loknu var haldið á jök-
ul, langleiðina á Geitlandsjökul. Þar
var stansað og söng -karlakórinn
Söngbræður nokkur ættjarðarlög
undir stjórn Sigurðar Guðmunds-
LEIKLIST
Hefði kosið annað
Leikkonan Sharon Stone er nú einhver eftirsóttasta
leikkonan í Hollywood og ekki er spuming að
frammistaða hennar í kvikmyndinni „Ógnareðli" á
sínum tíma gerði gæfumuninn, en þar kom í ljós að
stúlkan er annað og meira en bara kynbomba. Hún
þykir einnig vera afbragðsleikkona og góðum gáfum
gædd. Hún sagði hins vegar nýlega í viðtali að hún
hefði kosið að ná jafn langt í bransanum án þess að
þurfa að kasta klæðum og leika í hressilegum kynlífs-
atriðum. Bendir hún á að viðurkenndar stórleikkonur
á borð við Meryl Streep og Michelle Pfeiffer þurfi
aldrei að fækka fötum, en hún fari hins vegar aldrei
í viðtal vegna hlutverks án þess að vera spurð hvort
hún hafi nokkuð á móti því að sýna sig bera eða leika
í ástarsenum.
„Ég var búin að vera lengi í þessu og þegar hlut-
verkið í „Ógnareðli" kom til tals, fann ég að ég var
á krossgötum. Hlutverkið hafði velkst lengi og nokkr-
ar frægar leikkonur höfðu hafnað því vegna þess hve
nektarinnar og kynlífsatriðanna. Það var því orðið
umdeilt og ég þurfti að gera það upp við mig hvort
vogandi væri að taka hlutverkinu því brugðið gat til
beggja vona með frama minn eftir slíkt hlutverk. Ég
var heppin að frami minn jókst, en hefði myndin ekki
lukkast hefði hlutverkið trúlega rústað ferli mínum,“
segir ungfrú Stone.
Hún segir enn fremur, -að starf við kvikmyndir sé
mjög lærdómsríkt og þannig hafi hún kynnst hliðum
á fólki sem hún hefði aldrei trúað að það ætti til. „Ég
hef t.d. unnið með leikurum sem reyndust vera svo
kvikindislegir að ég trúði því varla. Frama er hægt
að ná með tvennum hætti í þessu starfi, að vinna af
sannfæringu og heilindum eða að selja sál sína djöflin-
um og ná frama með því að stíga ofan á tærnar á fólki
í kringum sig.“
★ ★★72 HK. DV.
Nú er 65 milljóna ára bið á enda.
Vinsælasta mynd allra tíma.
STEllEi SPIELBERG m
Bönnuð börnum innan 10 ára en getur valdið ótta hjá bömum upp að 12 ára aldri.
HASKOLABIO
Sýndkl. 5,7,9 og 11.10.
SAMUti
B í Ó B 0 R G I N
Sýndkl. 4,6.30,9 og 11.20.
A4A/BÍ
B í Ó H Ö L L I N
Sýnd kl. 5,7,9 og 11.15.
BORGARKRINGLUNNI, SÍMI 677230
Konungur sveiflunnar
mætir ásamt fjörugu tyigdarliði sínu
í Súlnasal laugardagskvöld!
'C/(/Z/}/a/' r Í/JC'/VVA'A'O// A'Ze/?//?////'
OPIÐ FRÁ KLUKKAN 1 9:00 - 03:00