Morgunblaðið - 19.08.1993, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 1993
I
I
\
I
I
I
I
I
,
I
I
Svavar, má maðurinn
ekki vera saklaus?
Frá Baldri Hermannssyni:
JÓSEF Stalín var með þeim ósköpum
gerður, að honum nægði ekki að
drepa menn sem hann var orðinn
ieiður á, hann þurfti fyrst að niður-
lægja þá með því að láta þá játa á
sig herfílegar sakir. Ég veit ekki
hvernig á þessari áráttu stóð, en þar
sem menn þessir höfðu að jafnaði
ekkert til saka unnið, skipaði Jósef
sérstökum fólum, sem hann hafði í
þjónustu sinni, að pynta þá í dýfiiss-
um, uns þeir voru orðnir svo meyrir,
að þeir játuðu á sig næstum hvað
sem var. Þá voru þeir leiddir fram
fyrir almenning og gengust við svo
ægilegum glæpum, að heimsbyggð-
ina hryllti við. Þá var Jósef skemmt
og lét fólin taka þá af lífi.
Svavar Gestsson er að skapferli
eins og lærifaðirinn, má ekki til þess
hugsa að menn séu saklausir.
I vor fór hann hamförum á Al-
þingi, jós rógsyrðum yfir mætan
kvikmyndaleikstjóra, sem gegnir um
stundarsakir virðulegu starfí uppi í
Sjónvarpi, og bar á hann ægilegar
sakir. Alþingismenn hryllti að vonum
við þessum ótíðindum, skipuðu hin-
um fróma Ríkisendurskoðanda að
fylkja liði sínu og fara í gegnum
starfsferil Hrafns Gunnlaugssonar,
fletta þar hveijum snepli, kíkja und-
ir hvem bleðil, ígrunda hveija undir-
skrift og draga glæpina fram í dags-
ljósið.
Afrakstur þeirrar makalausu
rannsóknar liggur nú fyrir: Hrafn
Gunnlaugsson er blásaklaus af öllum
ákærum Svavars.
í stað þess að biðjast afsökunar á
framferði sínu rauk Svavar upp með
svívirðingum, það var eins og hann
hrykki upp af standinum þegar Ríkis-
endurskoðun kvað upp dóm sinn.
Hann ræðst á Hrafn í grein eftir
grein, spinnur lopann, veður elginn
og getur alls ekki sætt sig við þá
einföldu staðreynd að maðurinn hef-
ur ekkert af sér brotið, hann er sak-
laus.
Nú er það svo með Hrafn Gunn-
laugsson, að hann er kempa, hnúsk-
óttur mjög og yrði víst seint tajinn
hvers manns hugljúfí. Sem betur fer
leyfíst hveijum Islendingi að hafa
þá skoðun á Hrafni, sem honum er
skapfelldust, en menn verða að gera
greinarmun á réttu og röngu; það
má ekki ljúga upp á fólk og það
gengur ekki að Svavar Gestsson
haldi áfram þessari óþverra iðju, að
rógbera saklausan mann, og ganga
af göflunum í óhróðri og hugaræs-
ingu þegar sakleysi hans er staðfest
af frómu fólki.
Nú hef ég engan áhuga á ævi
Svavars Gestssonar (hann hefur allt-
af komið mér fyrir sjónir sem hálf-
gerður ónytjungur, sem aldrei hefur
glatt mannlegt hjarta), og vil helst
ekki ræða hans persónu, en ég held
ég verði að minnast þess, sem flestir
vita, að ævi sinni hefur þessi lán-
lausi maður varið til þess að rægja
aðra, flá æruna af fólki sem hefur
það eitt til saka unnið að hafa aðrar
hugmyndir um tilveruna en hann.
Jósef hafði pyntingartól til að eyði-
leggja fólk en Svavar hafði Þjóðvilj-
ann, viðbjóðslegan sorasnepil, og þar
gat hann ausið úr sér óhroðanum
dag eftir dag, ár eftir ár.
Þannig hefur Svavar Gestsson
varið ævi sinni, ekki eitt einasta
ærlegt þarfaverk í þágu lands og
þjóðar, ekkert nema óhróður, og
mannvonska. Nú hefur hann ekki
lengur Þjóðviljann til að hjálpa sér,
því Þjóðviljinn er dauður, en hann
er ennþá haldinn þessari óslökkvandi
þörf að tala illa um aðra menn, og
þó að þessir menn séu svo ósvífnir
að vera saklausir, mun það ekki hefta
gömlu rógtunguna, hún mun skrolla
liðugt milli góma enn um stund.
BALDUR HERMANNSSON,
Krummahólum 8,
Reykjavík.
Fyrirspurn
til Guðmund-
ar Magnús-
sonar þjóð-
minjavarðar
Frá Sigurjóni Sigurðssyni:
Séra Magnús Jónsson segir í for-
mála að bók sinni um Alþingishátíð-
ina 1930, sem út kom hér í Reykja-
vík á vegum Leifturs hf. árið 1943:
„Þetta sjálfsagða verk var ekki
unnið meðan aðstæður vóru beztar,
en ekki þýðir um að sakast. Mikii
bót er þó að því, að nefndin fól fram-
kvæmdastjóra Alþingishátíðarinnar
að safna og koma í geymslu í Þjóð-
minjasafninu sem allra flestu af því,
er Álþingishátíðina varðaði, bæði rit-
uðu máli og prentuðu, myndum, grip-
um o.s.frv."
Ég leyfi mér nú að biðja Guðmund
Magnússon þjóðminjavörð um að
birta til fróðleiks skýrslu í Morg-
unblaðinu yfír alla gripina sem nú
eru í eigu Þjóðminjasafnsins, fjölda
þeirra o.s.frv. Einnig vildi ég óska
þess að hann héldi minningarsýningu
á þessum gripum í Bogasal Þjóð-
minjasafnsins á komandi vetri al-
menningi til fróðleiks.
Ps. Ekki skaðaði að G.M. birti
einnig skýrslu Magnúsar Kjaran yfír
gripina, sem hann skilaði af sér til
Þjóðminjasafnsins árið 1930 — til
samanburðar.
SIGURJÓN SIGURÐSSON,
Bólstaðarhlíð 68,
Reykjavík.
í Kaupmannahöfn
C/COT
í BLAOASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTA-
STÖÐINNI,
KASTRUPFLUGVELLI
OGÁRÁOHÚSTORGI
DISBvDBNŒRAMICA
r 14 UT
r:
ZE XI
StórhöfOa 17 vlö GuHinbní, «ími 67 48 44
VELVAKANDI
MIG LANGAR að gera athuga-
semd við grein Péturs Pétursson-
ar, Davíð og Úría, í Morgunblað-
inu sl. þriðjudag, þar sem hann
er að skjóta á Davíð fyrir þá
ákvörðun að styðja loftárásir á
Serba. Hann segir að „íslending-
ar neituðu að segja þjóðunum
stríð á hendur til að kaupa sér
inngöngu í Sameinuðu þjóðirn-
ar“. En þjóðin stóð nú ekki ein-
huga að þessu því hans eigin
flokkur, Sameiningarflokkur al-
þýðu, Sósíalistaflokkurinn,
krafðist þess á alþingi að við
segðum Þjóðveijum stríð á hend-
ur á sínum tíma. Pétur er víst
búinn að gleyma þessum flokki
eins og aðrir gamlir kommar.
Þorsteinn Kristjánsson,
Skólavörðustíg 14,
Reykjavík.
TAPAÐ/FUNDIÐ
Týnd myndavél
UM verslunarmannahelgina,
nánar tiltekið á mánudaginn,
tapaði ungur drengur myndavél-
inni sinni annaðhvort við Jökuls-
árlón, í Skaftafelli eða í sjopp-
unni gegnt tjaldstæðinu í Vík í
Mýrdal. Myndavélin er merkt.
Ef einhver hefur fundið hana er
sá hinn sami vinsamlega beðinn
um að hringja í síma 673874.
Myndar saknað
TEIKNUÐ mynd eftir Örlyg Sig-
urðsson af Lárusi Rist glataðist
frá sundlauginni í Hveragerði
nýverið. Þeir sem kynnu að geta
gefíð upplýsingar um myndina
hafí samband í síma 98-34113.
Gleraugu fundust
GLERAUGU í fremur illa farinni
álumgjörð með þykkum glerum
fundust í Furugrundinni. Upplýs-
ingar i síma 40454.
Gleraugu týndust
GLERAUGU týndust sl. sunnu-
dag á bílastæðinu við Jörva-
bakka. Finnandi vinsamlega
hringi í síma 671090 eða 77586.
Týnd kápa
RAUÐ, munstruð kápa með
hettu og gulu fóðri var skilin
eftir í strætisvagnabiðskýlinu á
Hringbraut fyrir neðan Landspít-
alann sl. fimmtudag. Finnandi
vinsamlega hringi í síma 44680.
Rúna.
Gullhringur tapaðist
GULLHRINGUR með þremur
steinum tapaðist á leiðinni frá
Laugardalslaug að Pjölskyldu-
garðinum í Laugardal 24. júlí sl.
Finnandi vinsamlega hringi í
síma 676727. Rúna. Fundarlaun.
GÆLUDÝR
Týndur köttur
SNÚLLI, sem týndist frá heimili
sínu, Sólvallagötu 28, 7. ágúst
er enn ófundinn. Snúlli er
svart/hvítur og auðþekktur, með
kolsvartan nebba og hvítar kinn-
ar. Vesturbæingar, vinsamlega
athugið kjallara ykkar og bíl-
skúra og hringið í Einar í síma
25149 ef þið verðið hans varir.
Týnd læða
FJÖGURRA til sex mánaða læða,
svört með hvíta bringu, loppur
og trýni, hefur villst að heiman.
Er mjög ljúf og virðist vön börn-
um. Dvelur nú á Tómasarhaga.
Síminn þar er 21056.
47
——<
Reimaður rúskinnsskór með gúmmísóla.
Litur: Svartur. ^^É
Stærðir: pwmian FM
w-46. EjLuTni 41
Reimaður leðurskór frá
með gúmmísóla.
Litir: Svartur og brúnn.
Staerðir:
40-46. CWITÍT
Óreimaður skór með gúmmísóla.
Litur: Svartur. -e
Staerðir: jaH
40-46. LViTIU
Reimaður skór með gúmmísóla.
Litur: Svartur.
Stærðir: É
40-46. iWllfil ■ 43
STEINAR WAAGE
POSTSENDUM SAMDÆGURS • 5% STAÐGREIÐSLUAFSLATTUR
Domus Medica,
Egilsgötu 3,
sími 18519
Kringlunni,
Kringlunni 8-12,
sími 689212
Nú magnast markaðsstemmningin meö
hverri helginni... enda ekki nema 36
Kolaportsdagar til jóla.
Lausir básar laugardag og sunnudag -
og nú tökum við niöur pantanir á
sölubásum alveg til jóla.
Tryggðu þér sölubás í tíma.
Pantanasími sölubása er 625030.
KOLAPORTIÐ
MARKAÐSTORG
...undir Sedlabunkanum!
M 9308