Morgunblaðið - 19.08.1993, Side 48
48
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 1993
IÞRÓTTIR UNGLINGA / KNATTSPYRNA
Valsstúlkur sigur-
sælar í Hafnarfírði
TVÖ fjölmenn knattspyrnumót
voru haldin fyrir stúlkur af yngri
kynslóðinni um síðustu helgi. Á
Tungubökkum í Mosfellsbæ
tóku um 200 stúlkur þátt í
Nóatúnsmótinu sem haldið var
fyrir stúlkur í fimmta og sjötta
flokki. Þá var íslandsbankamót
FH fyrir 3. og 4. flokk haldið í
Kaplakrika.
Valsstúlkur voru sigursælar á
mótinu í Hafnarfirði og sigr-
uðu í báðum flokkum. Valsarar
lögðu Stjörnuna að velli í úrslitaleik
4. flokksins 6:1. UMFA varð í þriðja
sæti með sigri á Víði 6:0. Valur
sigraði einnig í B-liðakeppninni í
þessum flokki. Liðið lagði Fjölnis-
stúlkur að velli 2:0 í úrslitaleik.
Stjarnan sigraði Fylki-2 5:0 í leikn-
um um þriðja sætið.
Fjögur lið tóku þátt í keppninni
í þriðja flokki en úrslitakeppni Ís-
landsmótsins var haldin á sama
tíma. Eins og í fjórða flokknum
voru Valsstúlkur sigursælar en þær
sigruðu alla leiki sínu. Aðeins tvö
B-lið mættu til leiks og sigraði
Valur FH örugglega í báðum leikj-
um liðanna.
Víðir sigraði í keppni 6. flokks á
Nóatúnsmótinu í Mosfellsbæ en lið
UMFA varð í öðru sæti. Haukar
sigruðu í 5. flokki hjá bæði A- og
B-liðum. UMFA varð í öðru sæti
A-liða og Breiðablik í þriðja.
Inga Lára Jónsdóttir úr Víði var
valin besti leikmaður 6. flokks, Þór-
unn Helga Jónsdóttir KR var valin
best í fimmta flokki.
Veitt voru verðlaun fyrir árangur
í knattþrautum. í fimmta fiokki
urðu þær Rakel Þormarsdóttir úr
Val og Sigurlaug Sigurðardóttir úr
UBK efstar en báðar hlutu þær tíu
stig. Sex stúlkur fengu stigi minna
en það voru þær Guðrún N. Vil-
bergsdóttir Fjölni, Áslaug Ósk
Reynisdóttir Fjölni, Erna B. Einars-
dóttir UBK, Bryndís Bjarnadóttir
UBK, Amdís Atladóttir Þór og
Ásgerður Ragna Þráinsdóttir Aft-
ureldingu.
í sjötta flokki hlaut Inga Lára
Jónsdóttir úr Víði 7. stig í knatt-
þrautum og Svava Úlfarsdóttir
Haukum sex stig.
Frá leik Þórs og UBK í 5. flokki á Nóatúnsmótinu.
T0WTA
Morgunblaðið/Frosti
Breiðablik - íslandsmeistari í 3. flokki kvenna. Aftari röð frá vinstri: Kristrún Daðadóttir þjálfari, Tinna Ýr Jóhanns-
dóttir, Sandra Karlsdóttir, Birgitta Karen Guðjónsdóttir, Sigrún Auður Sigurðardóttir, Helga Þórunn Gunnlaugsdóttir
og Vanda Sigurgeirsdóttir þjálfari. Fremri röð frá vinstri: Gréta Rún Snorradóttir, Kolbrún Helgadóttir, Ólafía Jónsdótt-
ir, Sigurbjörg Júlíusdóttir, Ragnheiður Jónsdóttir. Linda Mjöll Ándrésdóttir og Sigrún Gunnarsdóttir. Á myndina vantar
Hjördísi Þorsteinsdóttur.
Breiðablik sigraði tvöfalt
í þriðja fflokki kvenna
BREIÐABLIK varð á sunnudag
íslandsmeistari í þriðja flokki
kvenna en liðið lagði Hauka
að velli 3:0 í úrslitaleik liðanna
á Kópavogsvellinum. Blika-
stúlkur voru reyndar tvöfaldir
meistarar í þessum aldurs-
flokki því fyrr um daginn sigr-
aði UBK ÍA 3:0 í keppni B-lið-
anna.
Blikastúlkur voru sterkari aðilinn
framan af fyrri hálfleiknum í
úrslitaleik A-liðanna og Sigurbjörg
Júlíusdóttir, fyrirliði þeirra skoraði
mark með föstu skoti í fyrri hálfleik.
Haukar komust inn í leikinn eftir
markið og náðu ágætum sóknum. í
síðari hálfleiknum var Breiðablik
hins vegar mun betra liðið og þær
Gréta Rún Snorradóttir og Hjördís
Þorsteinsdóttir bættu við mörkum.
„Helsta vandamálið hjá okkur er
það að við nýtum ekki færin. Þá var
mikið um það að síðasta sending
mistækist í sókninni," sögðu fyrirlið-
ar Hauka, þær Anna María Leifs-
Barátta um knöttinn í leik UBK og Hauka.
dóttir og Hildur Svavarsdóttir.
Blikarnir höfðu nokkra yfirburði
í leiknum gegn ÍA í úrslitum b-lið-
anna en Kópavogsstúlkurnar voru
hins vegar miklir klaufar upp við
markið. Þeim tókst þó að koma
knettinum þrívegis í Skagamarkið.
Eyrún Oddsson skoraði eina mark
fyrri hálfleiksins og þær Ólöf Ingunn
Bjömsdóttir og Brynhildur Nikulás-
dóttir skoruðu í þeim síðari og voru
öll mörkin skomð af stuttu færi.
URSLIT
Meiriháttar
STÓK-ITSAIA
Bjóðum HANKOOK sumarhjólbarða
fyrir fólksbíla með 40% afslætti.
Frábærir hjólbarðar - einstakt tækifæri
Verðsýnishorn:
155R12 Kr. 2130,- 185/70R13 Kr. 2790,-
145R13 " 1990,- 175R14 " 2970,-
155R13 " 2260,- 185/70R14 " 2990,-
165R13 " 2370,- 195/70R14 " 3360,-
175/70R13 " 2570,- 165R15 " 2690,-
Barðinn hf.
Skútuvogi 2 - sími 683080
Úrslit í leikjum í úrslitakeppni 3. flokks
kvenna í knattspymu en leikið var á Kópa-
vogsvelli um síðustu helgi.
A-lið - Riðill 1:
UBK - Sindri...................4:0
Sindri-KA......................1:4
KA-UBK.........................2:3
A-lið - Riðill 2:
KR-KS..........................6:1
Haukar - KR....................2:0
KS-Haukar......................0:8
Leikir um sæti:
1-2. UBK - Haukar..............3:0
3-4.KR-KA......................4:0
5-6. Sindri-KS.................3:1
B-lið - Riðill 1:
UBK - Stjarnan.................2:1
Stjaman-KA.....................1:1
KA-UBK.........................0:4
B-lið - Riðill 2:
KR-ÍA..........................1:3
Haukar-KR......................5:1
ÍA-Haukar......................3:1
Leikir um sæti:
1-2. UBK-ÍA....................3:0
3-4. Haukar - Stjarnan.........2:1
5-6.KA-KR......................4:0
Úrslitakeppni
Úrslitakeppnin í 3. og 4. flokki karla í knatt-
spymu hófst í gær og lýkur á sunnudag
en leikið er um sæti í úrslitaleik íslands-
mótsins. í 3. flokki fer riðlakeppni fram á
KR-velli og Akranesvelli en leikir í fjögurra
og átta liða úrslitakeppninni fara fram á
Akranesi um helgina.
í fíórða flokki er leikið á völlum Fram
og ÍR en úrslitakeppnin fer fram á Fram-
vellinum og á Valbjarnarvelli um helgina.
Úrslitakeppnin í 5. flokki fer fram á
Valsvelli og Þórsvelli á Akureyri og hefst
á fdstudag. 'Leikið er í 4-liða úrslitum á
sömu völlum nk. sunnudag.