Morgunblaðið - 19.08.1993, Side 49

Morgunblaðið - 19.08.1993, Side 49
IÞROTTIR UNGLINGA MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 1993 49 Morgunblaðið/Halldór Verðlaunahafar á Pinseeker golfmótinu. Fremri röð frá vinstri: Svanþór Laxdal GR, Karl Þórðarson GOS, Jóhann Hjaltason GK, Ólafur Már Signrðsson GK, Guðjón Rúnar Emilsson og Hlynur G. Ólafsson GK. Aftari röð frá vinstri: Bjöm Magnússon umboðsmaður Pinseeker, Gylfi Georgsson GK, Ari Magnússon GK, Kári Jóhannsson GKJ, Friðbjöm Oddsson GK, Jón Jóhannsson GS, Öm Hjartarson GS og Ingvar Ingvarsson GS. ‘ Sextán unglingar taka þátt í móti í Englandi SEXTÁN íslenskir unglingar á aldrinum tólf til sextán ára eru nú stödd í Englandi þar sem hópurinn tekur þátt í tveimur mótum. Eftirtaldir keppendur fóru utan: Amar Rúnarsdóttir, Guðrún G. Stefánsdóttir, Hrafnhildur Hannesdóttir, Iris Staub, Katrín Atladóttir, Kristín Gunnarsdóttir og Rakel Pétursdóttir. Níu piltar eru í förinni en það eru Arnar Sigurðs- son, Brynjar Sverrisson, Guðjón Gústafsson, Hjalti Kristjánsson, Hjörtur Hannesson, Jóhann Björg- vinsson, Ragnar Ingi Gunnarsson, Sigurður Andrésson og Teitur Marshall. Þróunarsjóður alþjóða tennis- sambandsins styrkti förina. Þessi sjóður sem fær hluta af ágóða úr stærstu atvinnumannamótunum var stofnaður 1985 og er ætlað að breiða út íþróttina meðal annars með því að hjálpa efnilegum spilur- um til að taka þátt í mótum erlendis. TENNIS íslensku keppendurnir í tennis sem taka þátt í tveimur mótum í Bretlandi. Morgunblaðið/frosti Om og Hlynur lékubestá Hvaleyrinni - á Pinseeker-mótinu í golfi sem fram fór um síðustu helgi ÖRN Hjartarson úr Golfklúbbi Suðurnesja og Hlynur G. Ólafsson úr Golfklúbbnum Keili urðu hlutskarpastir i keppni án forgjafar á Pinseeker-mótinu í golfi sem fram fór á Hvaleyrarholtsvellinum í Hafnarfirði sl. laugardag. Nokkur vindur setti mark sitt á mótið en greinilegt að ungir kylfingar- kunna vel að leika í vindi þó að margir hafi leikið yfir forgjöf sinni að þessu sinni. Hlynur sigraði í flokki fjórtán ára og yngri en hann lék átján holurnar á 76 höggum eða átta höggum yfir pari. Næstur kom Guðjón R. Emils- son úr GR á 78 höggum en báðir náðu þeir betra skori en sigurvegar- inn í eldri flokki. Jón Jóhannsson varð í þriðja sæti í yngri flokknum með 81 högg og hann varð jafn- framt efstur í keppni með forgjöf. Örn Hjartarson úr GS sem sigr- aði í flokki 15-18 ára fór hringinn á 79 höggum, höggi minna en Keili- spiltarnir Ari Magnússon og Frið- björn Oddsson. Örn er með þijá í forgjöf og hann sagði að mistök á fimm síðustu holunum hefðu verið sér minnistæðust. „Mér gekk illa og gerði margar vitleysur enda fór ég þær á sjö yfír pari,“ sagði Örn. Fékk tvo golfpoka Jóhann K. Hjaltason úr Keili gleymir líklega ekki þessu móti í bráð. Hann sigraði í keppni í eldri flokki með forgjöf og lét mikið að sér kveða í keppninni um aukaverð- launin, vandaða golfpoka sem veitt- ir voru fyrir að vera næstur holu á öllum par þrjú holum vallarins en þær eru fímm talsins í Hvaleyrar- holtinu. Jóhann var næstu holu á 3. og 6. braut og hreppti því tvo poka. Auk Jóhanns fengu þeir Ólaf- ur Már Sigurðsson GK, Nökkvi Gunnarsson NK, Kári Jóhannsson GKJ, Svanþór Laxdal GR og Frið- björn Oddsson GK aukaverðlaun en veitt voru sömu verðlaun fyrir að vera næstur holu eftir annað högg á 16. og 18. holu. Notaði aðeins 24 pútt Veitt voru verðlaun fyrir lengsta teighögg á 1. braut en það átti Ingvar Ingvarsson úr Golfklúbbi Suðurnesja. Fæst púttin notaði Ari Magnússon GK, aðeins 24 talsins eða 1,33 pútt að meðaltali sem verð- ur að teljast frábær árangur. Ari vildi þakka þennan árangur góðum flötum á vellinum og stífum æfing- um að undanförnu en Ari náði að klára tvær brautir án þess að taka upp pútterinn því hann vippaði tví- vegis I holuna fyrir utan flöt. ÚRSLIT Úrslit á Pinseeker-golfmótinu sem haldið var á Hvaieyrarholtsvelli í Hafnarfirði sl. laugardag. Tölurnar tákna högg á fyrri og síðari níu holum, þá heildarhöggafjöldi og höggafjöldi með forgjöf. 15-18 ára flokkur: Öm Hjartarson, GS.............36/43 79 (76) Ari Magnússon, GK.............35/45 80 (72) Friðbjörn Oddsson, GK........42/38 80 (72) Þórður Ágústsson, NK..........38/43 81 (74) Jóhann K. Hjaltas., GK.......41/41 82 (70) Ólafur M. Sigurðss., GK......40/42 82 (71) Kári Jóhannsson, GKJ.........41/43 84 (71) Nökkvi Gunnarss., NK.........38/46 84 (77) Brynjar Geirsson, GK.........44/41 85 (74) Bertel Amfinnss., NK.........48/40 88 (79) Sigtryggur Gíslas., GSG......46/44 90 (76) Guðni Sæmundss., GR..........47/44 91 (76) Óttar Rolfsson, GR..........47/49 96 (78) Birgir Björnsson, GK........45/51 96 (84) Guðjón Þorsteinss., GKJ.....47/50 97 (82) Elmar Eggertsson, GK.....50/51 101 (82) 14 ára og yngri: HlynurG. Ólafsson, GK.......37/39 76 (65) Guðjón Emilsson, GR.........41/37 78 (69) Jón Jóhannsson, GS..........41/40 81 (61) Ingvar Ingvarss., GS........40/42 82 (67) Bergur Sverrisson, GOS......37/46 83 (67) Einar K. Þórhallss., GOS ....44/42 86 (64) Svanþór Laxdal, GR...........43/43 86 (73) Kristinn Amarss., GR.........45/42 87 (65) PéturÓ. Sigurðss., GR........42/45 87 (76) Amar M. Elíass., GS..........43/45 88 (68) Pétur Þ. Ragnarss., GK......44/47 91 (67) Ólafur Steinarss., GR.......49/44 93 (71) Tómas P. Salmon, GR.........50/44 94 (71) Gestur Siguijónss., GSS.....48/48 96 (72) Atli Þ. Gunnarss., GK.......60/49 99 (75) Hannes Sigurðss., GR.....51/50 101 (77) GOLF Fóru holu ihoggi Kári Jóhannsson úr Golf- klúbbnum Kili í Mos- felisbæ var á meðal keppenda á unglingamóti á Hvaleyrar- holtsvellinum í Hafnarfirði á laugardag. í æfíngahring sín- um á föstudag fór hann holu í höggi á níundu brautinni. Kári var í mótvindi og notaði tré- kylfu númer þrjú á holuna sem er um 150 metrar. Fyrstur Eins og sagt var frá í þriðju- dagsblaðinu þá fór ellefu ára drengur, Ólafur Steinarsson draumahögginu á velli Odd- fellowa sem er fyrir ofan Garðabæ. Ólafur sem fór holu í höggi á sjöttu brautinni er fyrsti kylfingurinn til að fara holu í höggi á vellinum sem tekin var í notkun sl. haust. BYKO-MOTIÐ Verður haldið á Kiðjabergsvelli, Grfmsnesi sunnudaginn 22. ágúst. Vegleg verðlaun - bæði með og án forgjafar Skráning fimmtud. 19. og föstud. 20. ágúst í síma 41000 og á mótsstað. Komið og spilið á'hinum nýja og glæsilega Kiðjabergsvelli. Allir kylfingar velkomnir. MEI^TARASAMBAND HUSASMIÐA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.