Morgunblaðið - 19.08.1993, Qupperneq 49
IÞROTTIR UNGLINGA
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 1993
49
Morgunblaðið/Halldór
Verðlaunahafar á Pinseeker golfmótinu. Fremri röð frá vinstri: Svanþór Laxdal GR, Karl Þórðarson GOS, Jóhann
Hjaltason GK, Ólafur Már Signrðsson GK, Guðjón Rúnar Emilsson og Hlynur G. Ólafsson GK. Aftari röð frá vinstri:
Bjöm Magnússon umboðsmaður Pinseeker, Gylfi Georgsson GK, Ari Magnússon GK, Kári Jóhannsson GKJ, Friðbjöm
Oddsson GK, Jón Jóhannsson GS, Öm Hjartarson GS og Ingvar Ingvarsson GS. ‘
Sextán unglingar taka
þátt í móti í Englandi
SEXTÁN íslenskir unglingar á
aldrinum tólf til sextán ára eru
nú stödd í Englandi þar sem
hópurinn tekur þátt í tveimur
mótum.
Eftirtaldir keppendur fóru utan:
Amar Rúnarsdóttir, Guðrún
G. Stefánsdóttir, Hrafnhildur
Hannesdóttir, Iris Staub, Katrín
Atladóttir, Kristín Gunnarsdóttir og
Rakel Pétursdóttir. Níu piltar eru í
förinni en það eru Arnar Sigurðs-
son, Brynjar Sverrisson, Guðjón
Gústafsson, Hjalti Kristjánsson,
Hjörtur Hannesson, Jóhann Björg-
vinsson, Ragnar Ingi Gunnarsson,
Sigurður Andrésson og Teitur
Marshall.
Þróunarsjóður alþjóða tennis-
sambandsins styrkti förina. Þessi
sjóður sem fær hluta af ágóða úr
stærstu atvinnumannamótunum
var stofnaður 1985 og er ætlað að
breiða út íþróttina meðal annars
með því að hjálpa efnilegum spilur-
um til að taka þátt í mótum erlendis.
TENNIS
íslensku keppendurnir í tennis sem taka þátt í tveimur mótum í Bretlandi.
Morgunblaðið/frosti
Om og Hlynur
lékubestá
Hvaleyrinni
- á Pinseeker-mótinu í golfi sem fram fór
um síðustu helgi
ÖRN Hjartarson úr Golfklúbbi Suðurnesja og Hlynur G. Ólafsson
úr Golfklúbbnum Keili urðu hlutskarpastir i keppni án forgjafar
á Pinseeker-mótinu í golfi sem fram fór á Hvaleyrarholtsvellinum
í Hafnarfirði sl. laugardag.
Nokkur vindur setti mark sitt á
mótið en greinilegt að ungir
kylfingar- kunna vel að leika í vindi
þó að margir hafi leikið yfir forgjöf
sinni að þessu sinni.
Hlynur sigraði í flokki fjórtán ára
og yngri en hann lék átján holurnar
á 76 höggum eða átta höggum yfir
pari. Næstur kom Guðjón R. Emils-
son úr GR á 78 höggum en báðir
náðu þeir betra skori en sigurvegar-
inn í eldri flokki. Jón Jóhannsson
varð í þriðja sæti í yngri flokknum
með 81 högg og hann varð jafn-
framt efstur í keppni með forgjöf.
Örn Hjartarson úr GS sem sigr-
aði í flokki 15-18 ára fór hringinn
á 79 höggum, höggi minna en Keili-
spiltarnir Ari Magnússon og Frið-
björn Oddsson. Örn er með þijá í
forgjöf og hann sagði að mistök á
fimm síðustu holunum hefðu verið
sér minnistæðust. „Mér gekk illa
og gerði margar vitleysur enda fór
ég þær á sjö yfír pari,“ sagði Örn.
Fékk tvo golfpoka
Jóhann K. Hjaltason úr Keili
gleymir líklega ekki þessu móti í
bráð. Hann sigraði í keppni í eldri
flokki með forgjöf og lét mikið að
sér kveða í keppninni um aukaverð-
launin, vandaða golfpoka sem veitt-
ir voru fyrir að vera næstur holu á
öllum par þrjú holum vallarins en
þær eru fímm talsins í Hvaleyrar-
holtinu. Jóhann var næstu holu á
3. og 6. braut og hreppti því tvo
poka. Auk Jóhanns fengu þeir Ólaf-
ur Már Sigurðsson GK, Nökkvi
Gunnarsson NK, Kári Jóhannsson
GKJ, Svanþór Laxdal GR og Frið-
björn Oddsson GK aukaverðlaun en
veitt voru sömu verðlaun fyrir að
vera næstur holu eftir annað högg
á 16. og 18. holu.
Notaði aðeins 24 pútt
Veitt voru verðlaun fyrir lengsta
teighögg á 1. braut en það átti
Ingvar Ingvarsson úr Golfklúbbi
Suðurnesja. Fæst púttin notaði Ari
Magnússon GK, aðeins 24 talsins
eða 1,33 pútt að meðaltali sem verð-
ur að teljast frábær árangur. Ari
vildi þakka þennan árangur góðum
flötum á vellinum og stífum æfing-
um að undanförnu en Ari náði að
klára tvær brautir án þess að taka
upp pútterinn því hann vippaði tví-
vegis I holuna fyrir utan flöt.
ÚRSLIT
Úrslit á Pinseeker-golfmótinu sem haldið
var á Hvaieyrarholtsvelli í Hafnarfirði sl.
laugardag. Tölurnar tákna högg á fyrri og
síðari níu holum, þá heildarhöggafjöldi og
höggafjöldi með forgjöf.
15-18 ára flokkur:
Öm Hjartarson, GS.............36/43 79 (76)
Ari Magnússon, GK.............35/45 80 (72)
Friðbjörn Oddsson, GK........42/38 80 (72)
Þórður Ágústsson, NK..........38/43 81 (74)
Jóhann K. Hjaltas., GK.......41/41 82 (70)
Ólafur M. Sigurðss., GK......40/42 82 (71)
Kári Jóhannsson, GKJ.........41/43 84 (71)
Nökkvi Gunnarss., NK.........38/46 84 (77)
Brynjar Geirsson, GK.........44/41 85 (74)
Bertel Amfinnss., NK.........48/40 88 (79)
Sigtryggur Gíslas., GSG......46/44 90 (76)
Guðni Sæmundss., GR..........47/44 91 (76)
Óttar Rolfsson, GR..........47/49 96 (78)
Birgir Björnsson, GK........45/51 96 (84)
Guðjón Þorsteinss., GKJ.....47/50 97 (82)
Elmar Eggertsson, GK.....50/51 101 (82)
14 ára og yngri:
HlynurG. Ólafsson, GK.......37/39 76 (65)
Guðjón Emilsson, GR.........41/37 78 (69)
Jón Jóhannsson, GS..........41/40 81 (61)
Ingvar Ingvarss., GS........40/42 82 (67)
Bergur Sverrisson, GOS......37/46 83 (67)
Einar K. Þórhallss., GOS ....44/42 86 (64)
Svanþór Laxdal, GR...........43/43 86 (73)
Kristinn Amarss., GR.........45/42 87 (65)
PéturÓ. Sigurðss., GR........42/45 87 (76)
Amar M. Elíass., GS..........43/45 88 (68)
Pétur Þ. Ragnarss., GK......44/47 91 (67)
Ólafur Steinarss., GR.......49/44 93 (71)
Tómas P. Salmon, GR.........50/44 94 (71)
Gestur Siguijónss., GSS.....48/48 96 (72)
Atli Þ. Gunnarss., GK.......60/49 99 (75)
Hannes Sigurðss., GR.....51/50 101 (77)
GOLF
Fóru holu
ihoggi
Kári Jóhannsson úr Golf-
klúbbnum Kili í Mos-
felisbæ var á meðal keppenda
á unglingamóti á Hvaleyrar-
holtsvellinum í Hafnarfirði á
laugardag. í æfíngahring sín-
um á föstudag fór hann holu í
höggi á níundu brautinni. Kári
var í mótvindi og notaði tré-
kylfu númer þrjú á holuna sem
er um 150 metrar.
Fyrstur
Eins og sagt var frá í þriðju-
dagsblaðinu þá fór ellefu ára
drengur, Ólafur Steinarsson
draumahögginu á velli Odd-
fellowa sem er fyrir ofan
Garðabæ. Ólafur sem fór holu
í höggi á sjöttu brautinni er
fyrsti kylfingurinn til að fara
holu í höggi á vellinum sem
tekin var í notkun sl. haust.
BYKO-MOTIÐ
Verður haldið á Kiðjabergsvelli,
Grfmsnesi sunnudaginn 22. ágúst.
Vegleg verðlaun - bæði með og án
forgjafar Skráning fimmtud. 19.
og föstud. 20. ágúst í síma 41000 og
á mótsstað. Komið og spilið á'hinum
nýja og glæsilega Kiðjabergsvelli.
Allir kylfingar velkomnir.
MEI^TARASAMBAND
HUSASMIÐA