Morgunblaðið - 19.08.1993, Page 50
50
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 1993
KNATTSPYRNA / NOREGUR
Teiti boðið að gerast
framkvæmdastjóri Lyn
TEITUR Þórðarson, knatt-
spyrnuþjálfari, hefur boðist
framkvæmdastjórastarf hjá
norska úrvalsdeildarliðinu Lyn
í Oslo. Teitur er ekki ókunnur
Lyn þvíhann þjáifaði liðið 1991
og 1992. „Þetta eráhugavert
■~A starf og ég er að hugsa málið
þessa dagana. Viðræður eru
aðeins á byrjunarstigi enn,“
sagði Teitur í samtali við Morg-
unblaðið í gær.
Lyn hefur ekki gengið vel í norsk-
ur úrvalsdeildinni í sumar og
er nú í fallhættu — í þriðja neðsta
sæti þegar sex umferðir eru eftir,
en tvö neðstu liðin falla. „Það skipt-
ir miklu máli í þessu sambandi hvort
Lyn nái að halda sér í deildinni.
Ef liðið fellur er framkvæmda-
stjórastarfið ekki eins spennandi.
Teltur Þórðarson
Ég reikna með að bíða með að
ákveða mig þar til það verður ljóst
hvar liðið endar,“ sagði Teitur.
Teitur sagðist hafa verið hálf
undrandi á þessu boði frá Lyn því
hann hefði nánast verið rekinn frá
félaginu fyrir einu ári. Hann sagði
skýringuna þá að nú væri ný stjórn
tekin við og formaður félagasins
væri maður sem hafi verið í stjórn
þegar hann tók við þjálfun liðsins
1991.
Að sögn Teits skuldaði Lyn 83
milljónir króna eftir síðasta keppn-
istíambil. Nú væri búið að greiða
þessa skuld niður og félagið stæði
á núlli. Hlutverk Teits verður að
byggja félagið upp fjarhagslega og
hafa með stjómun liðsins að gera
að einhvetju leyti, þó ekki þjálfari.
„Lyn er eina liðið frá Oslo sem er
í úrvalsdeildinni og ætti að vera
hægt að byggja upp öflugt lið í svo
fjölmennri borg. Það er mikill upp-
gangur í knattspyrnunni hér í Nor-
egi — mikið að gerast. Nokkur lið,
eins og Rosenborg, Viking og Brann
eru nú með þrjá til fimm leikmenn
sem hafa knattspyrnuna að fullu
starfi, en hjá Lyn er aðeins um
hálfatvinnumennsku að ræða. Það
verður sjálfsagt ekki langt að bíða
að flest úrvalsdeildarliðin verða
skipuð atvinnumönnum."
Teitur, sem er 41s árs, byijaði
þjálfaraferilinn hjá Skövde í Svíþjóð
1987. Hann fór síðan til Brann í
Noregi 1988 til 1990 og gerðist
síðan þjálfari Lyn 1991 til 1992.
Hann er nú í hlutastarfi sem þjálf-
ari Grei, sem er um miðja 3. deild.
Segist vera með Grei til að halda
sér við.
ÚRSLIT
KORFUKNATTLEIKUR
Nemeth og Nikolic
komnir til KR-inga
Morgunblaðið/Kristinn
Mættir til leiksl Laszlo Nemeth, sem aftur er kominn í herbúðir KR (t.h.)
og Serbinn Mirko Nikolic bregða á leik á blaðamannafundi hjá körfuknattleiks-
deild KR í gær.
Knattspyrna
Forkeppni Evrópumótanna
EVRÓPUKEPPNI MEISTARALIÐA
Nikosía, Kýpur:
Omonia - Aarau (Sviss).........2:1
David Kizilasvili 2 (15., 61.) - Ratinho Ever-
son (62.) 18.000
Þórshöfn, Færeyjum:
B68 Tóftum - Króatía (Zagreb)...0:5
Igor Cvitanovic (16.), Damir Lesjak (32.),
Goran Vlaovic (44.), Dzevad Turkovic (85.),
Zeljko Adzic (89.) Áhorfendur: 313
- Helsinki:
HJK - Norma Tallin (Eistiandi).1:1
Antti Heinola (15.) - Andrei Borissov (16.)
Panavezys, Litháen:
Ekranas - Floriana (Möitu).........0:1
- Butike (43.) 7.500
Tbiiisi, Georgíu:
Dynamo Tbilisi - Linfieid (N-írl.).2:1
Arveladze (7.), Inalishvili (66.) - Johnston
(56.) 60.000
Kishinyov, Moldóvu:
Zimbru - Beitar Jerusalem (ísreal).1:1
Rebeja (88.) - Harazi (11.) 16.000
Cwmbran, Wales:
Cwmbran - Cork City (írlandi)......3:2
King (vsp. 4.), Ford (25. og 27.) - Caulfi-
eld (62.), Buckley (75.) 2.000
Beggen, Lúxemborg:
Avenir - Rosenborg (Noregi)........0:2
Bjöm Bragstad (9.), Karl Lökken (54.)
1.000
EVRÓPUKEPPNI BIKARHAFA
Valletta, Möltu:
Sliema Wanderers - Degerfors.......1:3
Martin Gregory (67.) - Ulf Ottosson (6.,
30.), Dan Froberg (51.)
Lvov, Úkraínu:
Karpaty - Shelbourne (írlandi)......1:0
Olexander Yevtushok (85.) 25.000
Bangor, Norður írlandi:
Bangor - Apoel Nikósíu (Kýpur)......1:1
McEvoy (24.) - Soteriou (45.) 2.000
Lugano, Sviss:
Lugano - Neman (Hvíta Rússl.).......5:0
Christian Andrioli (35. og 83.), Nestor Sub-
iat (60.), Martin Fink (66.), Danielle Penza-
valli (85.) 6.000
ENGLAIMD
Úrvalsdeild I gærkvöldi:
Blackburn - Norwich.............2:3
Atkins 7., Wilcox 54. - Sutton 44. og 65.,
Newmari 63. 14.236
Coventry - Newcastle...........2:1
—**Ndlovu 58., Harford 85. - Atherton sjálfs-
mark 22. 15.760
Manchester United - Sheff. Utd..3:0
Roy Keane 16. og 43., Mark Hughes 85.
41.949
QPR - Liverpool................1:3
Ray Wilkins 24. - Ian Rush 18., Steve Nic-
ol 38., Nigel Clough 41. 19.635
Sheff. Wednesday - Aston Villa.0:0
28.450
Swindon - Oldham...............0:1
- Bemard 89. 11.970.
VINÁTTULEIKUR
Lissabon:
Benfica - Barcelona............2:1
Rui Aguas (48.), Ailton (73.) - Romario
(55.) 50.000
Leikir í fyrrakvöld:
4. deild D
KBS - Einheiji.......................0:2
- Bjöm Heiðar Sigurbjömsson, Sigurjón
Birgisson
2. deild kvenna
A-riðill:
Fjölnir - BÍ..........................1:0
FH - Reynir S.........................0:3
B-riðill:
Leiftur - Dalvik......................1:4
V ölsungur -Leiftur...................1:0
Ungveijinn dr. Laszlo Nemeth
hefur tekið til starfa sem
yfirþjálfari hjá körfuknattleiks-
deild KR, og einnig hefur félagið
fengið til sín erlendan leikmann;
Serbann Mirko Nikolic.
Dr. Lazlo Nemeth hefur gert
tveggja ára samning við deildina;
þjálfar meistaraflokk og unglinga-
flokk (18-20 ára) karla og dren-
gjaflokk (16-17 ára) og verður
ráðgjafi um þjálfun annarra
flokka. Nemeth er að koma til KR
í annað skipti; hann þjálfaði lið
félagsins er það varð íslandsmeist-
ari veturinn 1989-90 og þjálfaði
einnig landslið íslands 1988-1990.
í millitíðinni starfaði Nemeth sem
þjálfari í Sameinuðu Arabísku fur-
stadæmunum við góðan orðstír.
Mirko Nikolic er 26 ára, 203
sentímetrar og 95 kg. Hann er
fæddur í Belgrað og lék á sínum
tíma með liði í júgóslavnesku 1.
deildinni. Sl. vetur lék hann í Belg-
íu; lék þá að meðaltali 32 mín. í
leik, skoraði 19 stig og tók 9 frá-
köst að meðaltali, skv. upplýsing-
um KR.
Þær breytingar hafa aðrar orðið
á leikmannahópi KR frá því sl.
vetur að Davíð Grissom er kominn
frá Breiðabliki og famir eru Frið-
rik Ragnarsson, aftur til Njarðvík-
ur, og Matthías Einarsson er hætt-
ur. Hann var leikjahæstur þeirra
sem vom í herbúðum félagsins sl.
leiktíð, með yfir 300 leiki.
OLYMPIUNEFND
Fundur Ólympíunefnda
Evrópu í Reykjavík 1994
Framkvæmdastjórafundur
Ólympíunefnda Evrópu, sá
fímmtándi í röðinni, verður hald-
inn á Hótel Loftleiðum í Reykjavík
f maí á næsta ári. Þetta kom fram
á framkvæmdastjórafundi ólymp-
íunefndar íslands í gær, þar sem
lagt var fram bréf þessa efnis frá
Evrópusambandi Ólympíunefnda.
Fimm þjóðir sóttu um að fá að
halda fundinn 1994; Austurríki
(Vínarborg), Búlgaría (Sófía),
Lettland (Ríga), Spánn (Sevilla)
og ísland (Reykjavík). í atkvæða-
greiðslu, sem efna varð til póstleið-
is, varð ísland hlutskarpast eða
eins og 8egir í bréfi Evrópusam-
bandsins: „ísland vann með yfir-
gnæfandi meirihluta." Gert er ráð
fyrir að um 150 fulltrúar sitji fund-
inn frá Ólympíunefndum Evrópu,
Alþjóðaólympíunefndinni, Ólymp-
íusamhjálpinni auk áheymarfuil-
trúa gestgjafaborga næstu
ólympíuleika, Atlanta og Nagano.
Helstu mál á dagskrá fundarins
verða væntanlega; Staða nýrrar
Evrópu í alþjóðlegu samstarfí með
tilliti til þátttökutakmarkanna í
Ólympíuleikunum. Þá verður farið
yfir reynsluna frá Vetrarólympíu-
leikunum t Liilehammer, sem
verða nýafstaðnir og fjallað um
tilhögun Ólympíuieikarma ( Atl-
anta 1996.
Sérstök undirbúningsnefnd hef-
ur verið skipuð til þess að annast
undirbúning fundarins hér á iandi,
en í henni eiga sæti: Ari Berg-
mann Einarsson, sem jafnframt
er formaður, Júiius Hafstein og
Ágúst Ásgeirsson.
Michael Laudrup
FOLK
■ MICHAEL Laudrup, danski
knattspyrnumaðurinn snjalli sem
leikur með Barcelona á Spáni, var
í vikunni valinn í danska landsliðið
sem mætir Litháen í undankeppni
HM 25. ágúst nk. Hann hefur ekki
leikið með liðinu síðan í nóvember
1990, eða í tæp þijú ár. Ástæðan
fyrir því að hann hefur ekki leikið
var ágreiningur við þjálfarann Ric-
hard Möller Nielsen. Hvorki þjálf-
arinn né leikmaðurinn vildu tjá sig
um það hvort ágreiningurinn hefði
verið jafnaður.
■ JOHN Harkes, bandaríski
landsliðsmaðurinn í knattspyrnu,
hefur gengið til liðs við 1. deildarlið-
ið enska Derby County. Harkes
lék með Sheffield Wednesday og
varð sl. vor fyrsti Bandaríkjamað-
urinn til að leika til úrslita um
enska bikarinn. Hann er metinn á
rúmlega 100 milljónir króna.
■ ENSKI landsliðsmaðurinn
Andy Sinton fer að öllum líkindum
til Sheffield Wednesday frá Que-
ens Park Rangers, var haft eftir
stjórnarformanni Rangers í gær.
Kaupverðið er tæpar 300 milljónir
króna.
■ SINTON var keyptur til QPR
frá Brentford árið 1989 fyrir rúm-
ar 3,7 milljónir króna. Upphaflega
var búist við að hann færi til Arse-
nal, og var stjórn QPR búin að
samþykkja tilboð upp á tæpar 290
milljónir króna, en George Gra-
ham framkvæmdastjóri Arsenal
dró tilboðið til baka þar sem Sinton
virtist ekki hafa mikinn áhuga á
að fara til Arsenal.
■ GANGI allt upp hjá QPR og
Sheffield Wednesday í dag mun
Sinton leika með Wednesday á
laugardaginn, en þá tekur liðið á
móti Arsenal á heimavelli, sem
hlýtur að teljast skemmtileg tilvilj-
un.
■ QPR hefur keypt Trevor
Sinclair frá Blackpool fyrir rúmar
80 milljónir króna, og á hann að
taka við hlutverki Sintons.
■ ALEX Ferguson fram-
kvæmdastjóri Manchester United,
hefur ákveðið að selja son sinn
Darren Ferguson, sem leikið hefur
um 20 leiki með ensku meisturun-
um. „Honum finnst erfitt að vera
hér á Old Trafford þar sem ég er
faðir hans, og sem framkvæmda-
stjóri skil ég stöðu hans vel,“ sagði
Ferguson.
■ GARY Liniker sem leikur í
japönsku úrvalsdeildinni í knatt-
spyrnu með Nagoya Grampus
Eight, verður líklega ekki með fyrr
en í fyrsta lagi í byijun október.
Hann tábrotnaði fyrr í sumar og
það hijáir hann enn.
í kvöld
Knattspyrna 1. DEILD KARLA Kaplakriki, FH - ÍBV ..18.30 1
Akureyrarv., Þór - Víkingur.. 4. DEILD „18.30 I
Egilsst., Höttur - Huginn Frjálsar „18.30 I
Opið öldungamót í fijálsum verður 1 haldið á íþróttavellinum ( Keflavík, 1
og hefst það klukkan 18.