Morgunblaðið - 18.09.1993, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. SEPTEMBER 1993
.
Vinnslustöðin í V estmannaeyjum
Bankafrí verð-
ur lagt niður
Krafa um útborgun í peningum?
VINNSLUSTÖÐIN hf. í Vestmannaeyjum hefur tilkynnt starfsfólki
að 20 mínútna bankafrí, sem veitt hefur verið á föstudögum, verði
lagt niður. Forsendur fyrir bankafriinu eru sagðar brostnar þar sem
bankar eru opnir í hádeginu. Formaður Verkalýðsfélags Vestmanna-
eyja segir að til greina komi að starfsfólk krefjist þess að fá útborgað
í peningum verði bankafriið lagt niður.
Úlfar Steindórsson, fjármála-
stjóri Vinnslustöðvarinnar, sagði að
starfsfólkinu hefði verið tilkynnt í
ágúst að bankafríið yrði lagt niður
1. nóvember. Forsendur fyrir því
væru löngu brostnar þar sem bank-
ar væru farnir að hafa opið í hádeg-
inu og önnur fyrirtæki veittu heldur
ekki slík frí. Úlfar sagði að engin
viðbrögð hefðu komið frá starfs-
fólkinu vegna þessa og sagði að
engar kröfur hefðu verið gerðar um
að borgað yrði út í peningum. Hann
sagðist að vísu hafa heyrt á slíkt
minnst en haldið að um grín væri
að ræða.
Bankafríið nauðsynlegt
Jón Kjartansson, formaður
Borgarís
að Stein-
grímsfírði
Laugarhóli.
UNDANFARNA daga hefur
sífellt orðið meira vart við
ísrek á Húnaflóa. Yfirborðs-
hröngl hefur verið nyög lítið
en stærri borgarísjaka hefur
rekið inn á flóann og var
þannig mjög stór jaki kominn
inn á móts við Asparvík á
Bölunum í Kaldrananes-
hreppi 15. sept. Þá voru þrír
jakar komnir í mynni Stein-
grímsfjarðar, á rækjubáta-
slóð, 16. september en þá lón-
aði stærsti jakinn í mynni
Bjarnarfjarðar syðri.
Þó nokkuð hefur borið á ís-
reki í Húnaflóa undanfamar
vikur, en jakarnir bráðnað í
hlýrri sjó í Húnaflóa. í síðustu
viku rak stóran borgarísjaka á
móts við bæinn Asparvík í
Kaldrananeshreppi en síðar
færðist hann enn innar, allt að
mynni Bjarnarfjarðar syðri. Þá
hefur nokkra jaka rekið dýpra
í flóanum inn að mynni Stein-
grímsfjarðar.
Jakar þeir sem þarna hafa
verið á reki hafa verið um það
bil tvær til þijár sjómílur frá
landi.
- S.H.Þ.
Verkalýðsfélags Vestmannaeyja,
sagði að forsendur hefðu verið fyrir
bankafríinu á sínum tíma og þær
væru óbreyttar. Starfsfólkið ætti
fyllsta rétt á að fá útborgað í pen-
ingum og yrði það tekið til athugun-
ar ef fyrirtækið legði bankafríið
niður. Jón sagði að samkvæmt lög-
um ætti að borga fólki út í pening-
um og hefði unnist mál um það
fyrir Hæstarétti fyrir þremur ára-
tugum eftir að byijað var að greiða
laun inn á bankareikninga. Þá hefðu
fiskvinnslufyrirtækin í Vestmanna-
eyjum gengist inná að veita 20
mínútna bankafrí á launum á föstu-
dögum. Þegar ísfélagið og Hrað-
frystistöðin sameinuðust datt þetta
frí uppfyrir þar sem stutt var í
bankann og opið var í hádeginu.
Jón sagði að íjölmargar skrifstof-
ur, bæði opinberar og óopinberar,
væru lokaðar í hádeginu og væri
bankafríið nauðsynlegt til að fólk
næði að reka erindi sín.
Gluggaþvottur
Morgunblaðið/Kri8tinn
Eftirlits-
maður á
miðinum
helgina
ÁKVEÐIÐ hefur verið að starfs-
maður Landhelgisgæslunnar fari
á fiskimiðin í Smugunni til eftir-
Iits með afla íslensku skipanna
sem þar eru að veiðum. Maðurinn
fer til Óslóar í dag og þaðan
áfram til Norður-Noregs, þar
sem Norðmenn taka á móti hon-
um, en hann mun fara með
norsku eftirlitsskipi á miðin.
Gera má ráð fyrir hann geti ver-
ið kominn þangað á morgun,
sunnudag, eða á mánudag.
Jón B. Jónasson, skrifstofustjóri
sjávarútvegsráðuneytisins, sagði
um þessa ákvörðun að ástæða þætti
til þess að sannreyna hvað væri að
gerast á miðunum þar sem um það
væru skiptar skoðanir. Norðmenn
segðu eitt en skipstjórar.á miðunum
mótmæltu niðurstöðu þeirra. Því
væri best að láta hlutlausan aðila
kanna málið og þetta væri ódýrasta
og fljótvirkasta leiðin að koma því
til leiðar.
Jón sagði að ekki væri ákveðið
hvert framhaldið yrði þegar upplýs-
ingar um afla og aflasamsetningu
lægju fyrir. Hann sagði að Norð-
menn hefðu strax tekið því vel að
maður héðan kæmi og hann efaðist
ekki um að þeir myndu standa vel
að því að aðstoða hann.
Hrönn á ísafirði lætur smíða nýjan togara hjá Flekkefjord í Noregi
Smíðaverð 1.275 milljónir að
teknu tilliti til niðurgreiðslna
Skipið nær helmingi stærra en Guðbjörg ÍS og verður afhent í september að ári
HRÖNN HF. á ísafirði hefur
gert samning við skipasmíðastöð-
ina Flekkefjord í Noregi um
smíði á nýjum frystitogara fyrir
fyrirtækið í stað ísfisktogarans
Guðbjargar ÍS-46. Skipið, sem
er um 2.100 tonn að stærð, verð-
ur afhent í september á næsta
ári og kostar 147 millj. norskra
króna. Það jafngildir um 1.440
milljónum íslenskra króna, en
þegar tekið er tillit til 11,5% nið-
urgreiðslna á smíðaverði skips-
ins er endalegt verð 1.275 miHj-
ónir íslenskra króna miðað við
gengi norsku krónunnar í gær.
Ásgeir Guðbjartsson, skipstjóri,
segir að aðalástæðan fyrir þessari
ákvörðun sé eðlileg endurnýjun á
skipinu sem sé orðið tólf ára gam-
alt. Þá sé enginn rekstrargrundvöll-
ur fyrir ísfisktogara í dag, auk þess
í dag
Nýtt hús MS félagsins____________
MS félagið á íslandi hefur ráðist í
byggingu nýs húss á 25. afmælis-
ári félagsins 12
Endurreisa skinnaiðnað___________
Akureyrarbær leggur 22,5 millj. til
stofnunar nýs uUariðnaðarfyrir-
tækis 16
Fallbarátta i 1. deild___________
Fjögur lið eru tölfræðilega enn í
fallhættu í 1. deild 38
Leiðari__________________________
Átak gegn skattsvikum 20
GULLIÐ
AUGNABUK
.‘xffyHvri- ^pzrrSii 1
"
Lesbók
► Konur Braga - Af skáldskap
tveggja systra - Ólafur lög-
sagnari - Söguleg hús - Ma-
treiddar ímyndir - Vandi þýð-
andans.
Menning/Listir
þ Verk Gunnlaugs Blöndal á
Kjarvalsstöðum - Ferðalok í
Þjóðleikhúsinu - Vetrarstarf
Kammermúsíkklúbbsins - Sýn-
ingar ungra myndlistarmanna.
sem nýja skipið verði útbúið til
rækjuveiða jafnhliða veiðum á bol-
físki.
Frystitogarar fá svimandi
hátt verð
„Þegar þeir sverfa svona að kvót-
anum eins og allir vita, þá verður
maður að vera á skipi sem maður
getur sótt á út fyrir 200 mílurnar
og snúið sér eitthvað að rækju
með. Það hefur gefist vel hjá mörg-
um. Við verðum að reyna að lengja
úthald skipsins. Það gefur miklu
meiri möguleika þegar maður er
kominn á svona frystiskip og svo
er náttúrlega ekki hægt að líkja
saman verðinu sem fæst fyrir afurð-
irnar. Það er svo svimandi hátt
verð hjá þeim miðað við það sem
við fáum fyrir að leggja okkar fisk
í land,“ sagði Ásgeir.
Guðbjörgin verður tekin upp í
kaupverð nýja skipsins fyrir 38
milljónir norskra. króna eða rúmar
370 milljónir íslenskra króna og um
60% af kaupverði skipsins verða
fjármögnuð með erlendum lánum
með ábyrgð norska ríkisins. Auk
Guðbjargarinnar verður annar tog-
ari tekinn af skrá vegna stærðar
hins nýja skips, en ekki var hægt
að fá upplýsingar um hvaða togari.
Skipið er hannað af Bárði Haf-
steinssyni, skipaverkfræðingi, og
samstarfsmönnum hans hjá Skipa-
tækni hf. Það er 68,31 metri að
lengd og 14 metrar að breidd og
ber um það bil 2.100 tonn eins og
áður sagði. Frystilestin tekur yfir
400 tonn af frystum afurðum og
frystigeta verður um 70 tonn á
sólarhring. Fiskimjölsverksmiðja
verður um borð sem afkastar um
25 tonnum á sólarhring og einnig
verður ækjuvinnslubúnaður af full-
komnustu gerð. Aðalvélin verður
um 5 þúsund hestöfl, skrúfa um
3,9 metrar í þvermál og áætlaður
ganghraði í kringum 15 sjómílur.
Skipið verður útbúið fyir flottroll
og botntroll og getur togað á allt
að 2 þúsund metra dýpi. íbúðir
verða fyrir 37 manna áhöfn í eins
og tveggja manna klefum og hefur
hver klefi sér snyrtingu og sturtu.
Sjá bls. 14: „Þaðer...“
i
i
l