Morgunblaðið - 18.09.1993, Page 23
1
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. SEPTEMBER 1993
23
V etrarstarfið í
Laugarneskirkju
eftir Jón D.
Hróbjartsson
Inngangur
Um þessar mundir er vetrarstarf
Laugarnessafnaðar að hefjast. í
vetur verður safnaðarstarfið í svip-
uðum skorðum og undanfarin ár
og munum við enn reyna að gera
betur og bjóða safnaðarfólki upp á
fjölbreyttara starf en nokkru sinni.
Guðsþjónustur
Eins og eðlilegt er í hveijum söfn-
uði er guðsþjónustan á sunnudegi
hápunktur starfsins, þar sem allir
eru boðnir velkomnir og við getum
í sameiningu tilbeðið Guð og átt
samfélag hvert við annað.
Við höldum áfram með það form
sem verið hefur, þ.e. að hafa guðs-
þjónustur kl. 11 árdegis alla sunnu-
daga. Börn og fullorðnir eru saman
við upphaf guðsþjónustu en fyrir
prédikun fara bömin niður í safnað-
arheimilið og fá fræðslu við sitt
hæfí, söng og leiki. Eftir hveija
guðsþjónustu er boðið upp á kaffi
og ávaxtasafa og skapast því oft
samfélag í safnaðarheimilinu og
fólk ræðir saman og kynnist hvert
öðm. Annan hvem sunnudag er
altarisganga.
Einu sinni í mánuði verður einnig
boðið upp á guðsþjónustu kl. 14 og
verður það auglýst sérstaklega, en
þá verður einnig boðið upp á akstur
til og frá kirkju og þjónustuhópur
kirkjunnar tekur á móti kirkjugest-
um og sér um kaffiveitingar eftir
guðsþjónustuna.
Kyrrðarstundir í hádegi
Á hveijum fimmtudegi er kyrrð-
arstund í hádeginu. Nú eru 5 ár frá
því við byrjuðum með þetta helgi-
hald í miðri viku og er þátttakan
mjög góð, venjulega um 30-40
manns. Kyrrðarstundin í kirkjunni
tekur um 30 mínútur, en þar er
tónlist, ritningarlestur, altaris-
ganga og fyrirbænir. Eftir stundina
í kirkjunni er hægt að fá súpu og
brauð á vægu verði. Hægt er að
koma fyrirbænaefnum til sóknar-
prestsins fyrirfram ef óskað er. Það
hefur verið ánægjulegt að sjá hve
góður hópur hefur sótt þessar
kyrrðarstundir, fólk á öllum aldri.
Biblíulestrar
í nóvember verða Biblíulestrar á
þriðjudagskvöldum. Sóknarprestur-
inn mun annast fræðsluna, en hann
mun lesa Fjallræðuna að þessu
sinni. Fyrst er textinn lesinn og
útskýrður, en svo er gefinn kostur
á að spyija spurninga og ræða efni
textans. Fjallræðan er skráð í
Mattheusarguðspjalli 5. til 7. kapít-
ula, að báðum meðtöldum.
Barna- og unglingastarf
Á sunnudögum verður bama-
starfið í tengslum við messu dags-
Skráning er hafin á
sýningu Kynjakatta
ÚTLIT er fyrir að fleiri kettir
taki þátt í sýningu Kynjakatta,
kattaræktarfélags Islands, í ár
en nokkru sinni fyrr. Skráning á
sýninguna er hafin og þurfa eig-
endur katta að skrá ketti sína
fyrir 25. september næstkom-
andi.
Sýningin verður tvískipt að þessu
sinni og í fréttatilkynningu frá
Kynjaköttum kemur fram að dóm-
arar á sýningunni verði hugsanlega
þrír, en ákveðið sé að þeir verði
a.m.k. tveir, annar frá Danmörku
og hinn frá Tékklandi. Sýningin
verður haldin dagana 16. og 17.
október í íþróttahúsi fatlaðra. Fyrri
daginn skoða dómarar ketti sem
ekki hafa áður tekið þátt í sýningu
þar sem erlendir dómarar dæma.
Er það gert til að unnt sé að stað-
festa hverrar tegundar kötturinn
er og hvert litaafbrigði hans er.
Síðari daginn verður aðalýsingin
og verður hún opin almenningi.
Skráning fer fram á skrifstofu
Kynjakatta, Sigtúni 7 á miðviku-
Starfsþjálfun fatlaðra
Kynning á
starfsemi
STARFSÞJÁLFUN fatlaðra og
Tölvumiðstöð fatlaðra verður
með kynningu á starfsemi sinni
og tölvubúnaði fyrir fatlaða í
Geysishúsinu laugardaginn 18.
september kl. 16.
Kynningin er liður í dagskrá sýn-
ingar SKYRR um sögu tölvunnar
sem haldin er í tilefni 25 ára afmæl-
is félagsins.
Meðal tölvubúnaðar sem sýndur
verður á laugardaginn er íslenskt
tölvutal (talgervill) og blindraskjár.
...: .' : " ■ 1 ■ —
I3IOMIEGA
vítamín og kalk
fæst í apótekinu
ins eins og fyrr segir, en umsjónar-
maður barnastarfsins er Þórarinn
Björnsson guðfræðingur sem hefur
stjórnað þessum þætti undanfarin
ár. Með honum eru fjölmargir sjálf-
boðaliðar, sem fræða börnin í þrem-
ur hópum eftir aldri.
10-12 ára starf
10-12 ára starf verður á fimmtu-
dögum kl. 17 í umsjá sr. Þórhalls
Heimissonar, en með honum verða
einnig sjálfboðaliðar. í vetur verður
tekist á við mjög áhugavert verk-
efni, en það er söngleikur sem færð-
ur verður upp og sýndur á aðventu.
Unglingastarf
Unglingastarf verður á sunnu-
dagskvöldum kl. 20 og verður sr.
Þórhallur Heimisson einnig umsjón-
armaður þess og hefur sér við hlið
kraftmikið lið leiðtoga.
Fermingarbörn
Í vetur verður fermingarfræðslan
á laugardögum kl. 12-14 eins og
í fyrra, en sú tilraun tókst vel, enda
eru börnin mun upplagðari á laug-
ardegi en í lok skóladags. Mikil
áhersla verður lögð á að fermingar-
börnin taki þátt í helgihaldi kirkj-
unnar og einnig er gert ráð fyrir
að hópurinn fari í fermingarbúðir í
Vatnaskógi í október. í vetur mun
Halla Jónsdóttir kennari aðstoða
sóknarprestinn við fræðsluna. Inn-
ritun fermingarbarna nk. vors verð-
ur 21. september kl. 16-17.
Feðra- og mæðramorgnar
Foreldramorgnar hafa fest rætur
í safnaðarstarfinu og er oft líf og
fjör á föstudagsmorgnum í safnað-
arheimili kirkjunnar. Samveran
byggist upp á því að ræða málin
yfir kaffíbolla. Áf og til koma gest-
ir til að halda fyrirlestra og alltaf
er helgistund fyrir allan hópinn sem
sóknarpresturinn annast. Ég hvet
mæður og feður sem eru með börn
heima á morgnana að kynna sér
þetta starf.
Hjónaklúbbur
Á sl. vori var haldið hjónakvöld
á vegum Foreldramorgnanna og
komu um 30 manns. Sóknarprest-
urinn hafði erindi um hjónabandið
og urðu góðar umræður. í lok
kvöldsins var stungið upp á því að
stofna hjónaklúbb sem kæmi reglu-
lega saman í kirkjunni. Var þetta
samþykkt og verður fyrsta samvera
hjónaklúbbsins mánudaginn 27.
september kl. 20.30. Gestur fyrsta
Jón D. Hróbjartsson
„A hverjum fimmtudegi
er kyrrðarstund í há-
deginu. Nú eru 5 ár frá
því við byrjuðum með
þetta helgihald í miðri
viku og er þátttakan
mjög góð, venjulega um
30-40 manns.“
kvöldsins verður sr. Þorvaldur Karl
Helgason forstöðumaður Fjöl-
skylduþjónustu kirkjunnar.
Kvenfélag
Kvenfélag Laugarnessóknar hef-
ur félagsfundi sína fyrsta mánudag
hvers mánaðar yfir vetrarmánuð-
ina. Kvenfélagið er elsta félags-
starfíð í kirkjunni og á félagið
merkilega sögu hér i hverfinu. Það
er von mín að sem flestar konur-
leggi leið sína í félagið og taki þann-
ig virkan þátt safnaðarstarfinu.
Tónlistarstarf
Tónlistarstarf Laugarneskirkju
er afar fjölbreytt og viðamikið. Kór
Laugameskirkju er fjölmennt söng-
félag með um 50 meðlimum og er
dagskrá vetrarins spennandi og
metnaðarfull. Drengjakór er starf-
andi og eru yfír 30 drengir í aðal-
kórnum en auk þess er undirbún-
ingsdeild með yngri drengjum.
Tvær bjöllusveitir eru starfandi með
eldri og yngri stúlkum. Æfingar
með börnunum eru tvisvar í viku,
auk þess er farið í æfíngarbúðir og
ferðalög bæði lengri og styttri.
Ráðgert er að fara bæði með
drengjakórinn og bjöllusveitina til
Bandaríkjanna síðar í vetur og taka
þátt í alþjóðlegum mótum. Söng-
stjóri og organisti er Ronald Turner.
Helgihald í Hátúns-húsunum
Eins og undanfarin ár verða
helgistundir í Sjálfsbjargarhúsinu
Hátúni 12 og húsum Öryrkjabanda-
lagsins Hátúni 10, lOa og lOb og
verða þær auglýstar hvetju sinni.
Ég hef nú drepið á helstu þætti
starfsins í vetur og hvet ég sóknar-,
fólk að kynna sér vel starfsemina
og taka þátt í henni.
Höfundur er sóknarprestur
Laugarnessafnaðar.
MVNDUSTRSKÓUNN
í HRFNRRFIRÐI
INNRITUN
Innritun á haustönn fer fram í síma 52440 og á
skrifstofu skólans á Strandgötu 50, Hafnarfirði frá
20. september, milli kl. 13 og 17. í boði verða
eftirtalin námskeið:
Barna- og unglingadeild:
Námskeið í fjöltækni.
Kennarar:
Ingibjörg Styrgerður Haraldsdóttir
Rósa Gísladóttir.
Framhaldsdeild:
Teiknun, kennari: Ingimar Ólafsson Waage.
Málun, Kennari: Júlía Kristmundsdóttir.
Vatnslitamálun, kennari: Jean Posocco.
(Öll námskeið sem kennd verða við framhaldsdeild Myndlista-
skólans eru viðurkennd og metin til eininga við Flensborgar-
skóla.)
Myndlistaskólinn I Hafnarfirói,
Strandgötu 50, sími 52440.
Síamsköttur
dögum kl. 20-22 og laugardögum
kl. 13-15. Jafnframt annast Svan-
hildur Rúnarsdóttir og Elísabet
Birgirsdóttir skráningu. í fréttatil-
kynningu Kynjakatta segir að til
að kettir geti tekið þátt í sýning-
unni, þurfi eigendur að láta bólu-
setja þá gegn kattafári og katta-
inflúensku a.m.k. 2 vikum fyrir
sýningu. Kettlingar yngri en
þriggja mánaða geta ekki tekið
þátt í sýningunni og heldur ekki
kettlingafullar læður. í tilkynning-
unni kemur einnig fram að há-
marksfjöldi katta á sýningunni sé
150 og og gert sé ráð fyrir að ekki
muni allir komast að sem vilji.
Aukin framleiðni er forsenda aukins
hagvaxtar. (framleiðsluiðnaði fæst aukin
hagræðing með vel hönnuðum lager- og
flutningskerfum.
Interroll hefur í áratugi fréimleitt og þróað
íæribandamótora, flutningsrúllur,
flutningskerfi og lagerkerfi sem eru
viðurkennd gæðavara.
Auktu framleiðnina með INTERROLL.
= HÉÐINN
SELJAVEGI 2, SlMI 624260
VERSLUN - RAÐGJÖF