Morgunblaðið - 18.09.1993, Side 28

Morgunblaðið - 18.09.1993, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. SEPTEMBER 1993 Minning Jónas Björns- son, Siglufirði Fæddur 25. október 1916 Dáinn 9. september 1993 Okkur langar að minnast elsku- legs tengdaföður okkar í fáum orð- um. Við erum þakklátar fyrir þann tíma sem við fengum að vera honum samferða. Þau kynni hafa kennt okkur hvað jákvætt hugarfar og ei- líf bjartsýni hefur mikið að segja, því að hin seinni ár var það bjartsýn- in sem bar Jónas áfram. Betri vin en Jónas er varla hægt að hugsa sér. Hann kallaði það besta fram hjá okkur hveiju og einu og við fundum að við vorum mikils virði. Traustur og tryggur var hann enda átti hann marga vini stóra og smáa. Yngstu vinirnir voru jafnir þeim eldri. Bamabömin vom ljósin hans. Hann kynnti þau fyrir snjótittlingun- um, vinum sínum sem komu til hans á vetuma og fengu í svanginn. Hann skipti þeim á milli barnabarnanna eftir því sem þau urðu fleiri, sú elsta átti flesta og svo koll og kolli. Minn- ingar okkar frá Hverfísgötunni em margar og ljúfar, en ljúfust er minn- ing um góðan mann. Nú opnar fangið fóstran góða og faðmar þreytta bamið sitt, hún býr þar hlýtt um brjóstið móða og blessar lokað augað þitt. Hún veit, hve bjartur bjarminn var, þótt brosin glöðu sofi þar. (Þ.E.) Asdís og Ingibjörg. Það ríkti mikil sorg á heimili okk- ar í Bollagörðum fimmtudaginn 9. september sl. þegar við fengum þær fréttir að Jónas afi væri dáinn. Við systumar vomm allar staddar heima hjá foreldmm okkar, en það er ekki oft sem við emm öll saman- komin í einu. Við höfðum varla átt- að okkur á hversu alvarleg veikindi hans væra, þegar Bjöm frændi hringdi í okkur og sagði okkur að pabbi hans væri dáinn. Okkur varð mikið um, enda ekki langt frá því að elskulegur afi okkar, bróðir Jón- asar, kvaddi þennan heim og varð það okkur systmnum mikið áfall. Þegar maður fær svona sorgarfrétt- ir er gott að vera staddur hjá sínum nánustu og geta deilt líðan sinni með þeim. Það er erfitt að hugsa til þess að hann Jónas sé farinn, því hann hefur alltaf verið til staðar fyrir okkur. Við systumar höfum alltaf litið á hann sem afa okkar því hann hefur alltaf komið fram við okkur sem slíkur. Hans mun verða saknað í hvert sinn er við heimsækjum Siglufjörð. Ferðir okkar þangað hafa verið árvissar og stundum oft á ári og alltaf var jafn gott að koma til Hrefnu og Jónasar. Það var hluti af því að koma á Norðurlandið og líta_ inn hjá þeim. Ófáar vom ferðimar á „Stúdent- inum“ til okkar í sumarbústaðinn í Fljótunum. Sambandið milli bræðranna og fjölskyldna þeirra var sérstaklega gott. Við systumar emm sannfærð- ar um að Jónas og Þórhallur afi munu fylgjast vel með okkur í gegn- um lífið. Það er erfitt að sjá á eftir slíkum manni sem Jónas afi var og söknuð- urinn er mikill. Sorgin varir ekki lengi en minningar um góðan mann munu ávallt vera til staðar. í september á síðasta ári fluttust Jónas og Hrefna úr húsi sínu á Hverfisgötunni á Dvalarheimilið Skálarhlíð. Okkur þykir vænt um að Hrefna skyldi geta haft Jónas heima fram undir það síðasta. Elsku Hrefna, Bjöm, Ásdís, Rak- el, Guðrún, Jóna Hrefna, Dóra, Gunni, Edda Rósa, Bettý, Hemmi, Ingibjörg, Helga og Halldór, það er sárt að missa ástvin og við biðjum guð almáttugan að blessa ykkur öll og styðja yfir mestu erfíðleikana. Nú er við fýlgjum honum til grafar minnumst við allra góðu stundanna er við áttum með honum, og þökkum fyrir að hafa átt hann að. Við reyn- um að hugga okkur með því að nú er hann kominn á góðan stað, hann er kominn til afa. Fríða, Hanna, Halla. Umburðarlyndi, seigla og góð orð í annarra garð var það sem ein- kenni tengdaföður minn öðm frem- ur. Við kynni okkar tók hann þess- um róttæka strákhvolpi með stóísku umburðarlyndi þegar undirritaður raddist formálalítið inn í líf þeirra Jónasar og Hrefnu. Hann hlustaði með athygli á kæmleysislegt tal og patentlausnir æskunnar og for- dæmdi aldrei heldur kenndi og benti til þess að menn hefðu flöt til að mætast á. Ég ímynda mér að oft hafí nú tekið í sjálfstæðishjartað þegar yfírlýsingabunan stóð út úr tengdasyninum í fjölskylduboðum. En aldrei lét hann á því bera heldur ræddi við mig eins og jafningja. Sem unglingur varð Jónas fyrir því að fatlast á fæti og hélt það honum rúmföstum í heilt ár. Á þess- um ámm kviknaði áhugi hans á bókum og bókasöfnun og átti hann glæsilegt safn áður en yfír lauk. Þegar heilsu Jónasar fór að hraka og þau hjón fluttust búferlum í hið glæsilega dvalarheimili Siglfirðinga, Skálarhlið, var úr vöndu að ráða vegna plássfrektar bókasafnsins. Var ég þá fenginn í það með Jónasi að skera niður og þótti vini mínum það harður kostur að geta ekki tek- ið allt með. Mér þótti með ólíkindum hve vel hann þekkti allar sinar bæk- ur og vissi jafnan hvar hver bók var í tvöföldum og þreföldum röðunum. Aldrei varð ég var við fötlun hans nema þegar athygli var dregin að henni. Ég held að Jónas hafí alls ekki litið á sig sem fatlaðan mann, heldur aðeins mann sem fór aðeins hægar yfír en samferðamenn hans en komst þó. Aldrei bað hann um að beðið væri eftir sér heldur kom hann hljóðlaust aðeins seinna og vissi að þeir síðustu verða fyrstir. Jónas var sáttur við sjálfan sig og tilvemna sem hann trúði að Guð hefði skapað, en hann var sterktrú- aður maður og kirkjurækinn með afbrigðum og söng um langt árabil með Kirkjukór Siglufjarðar. Ég er nokkuð viss um að hér hefði Jónas viljað að ég setti eitthvað um ætt hans og uppmna í ljósi þess hve hann reyndi árangurslítið að efla áhuga minn á ættfræði og hafði ávallt við höndina í sínu bókasafni allt sem þarf til að slá upp ætt hvers og eins. Jónas var kvæntur Hrefnu Hermannsdóttur frá Ysta-Mói í Fljótum. Þeirra böm em: Björn, sparjsjóðsstjóri á Siglufírði, kvænt- ur Ásdísi Kjartansdóttur kennara, Guðrún, bankastarfsmaður á Siglu- firði, ógift, Halldóra, ráðgjafí í Garðabæ, gift Gunnari Trausta Guðbjömssyni prentara, og Her- mann, framkvæmdastjóri á Siglu- fírði, kvæntur Ingibjörgu Halldórs- dóttur læknaritara. Bamaböm Jón- asar og Hrefnu em sex talsins: Rakel, Jóna Hrefna, Edda Rósa, Bettý, Helga og Halldór. Þau sjá nú á bak ástkæmm afa sem alltaf hafði tíma fyrir þau. Mínar dætur muna það alltaf þegar Jónas afí var að skipta snjótittlingunum á milli þeirra þar sem þær stóðu við gluggann á Hverfísgötu 8 og horfðu á fuglana þyrpast að brauðmolunum sem afí þeirra hafði sett út. Ég kveð Jónas Björnsson með söknuði og geymi í minningunni mann sem aldrei sá nokkra ástæðu til að kvarta yfír hlutskipti sínu og kenndi mér að allt hefst þetta að lokum. Blessuð sé minningin um góðan mann. Gunnar Trausti. Mig langar að minnast hans afa í nokkmm orðum. Hann afí var al- veg einstakur maður, hann vildi öjl- um það beta og meira en það. Ég var mikið með afa þegar ég var yngri, hann hafði alltaf tíma og þolinmæði fyrir mig og áhuga á öllu sem ég var að gera. Oft bauð hann mér á rúntinn í Volgunni sinni og var þá gjarnan komið við í sjoppu og keypt Hubba Bubba tyggjó sem ég hafði mikið dálæti á. Við brölluðum margt sam- an, ég og hann afí. Hann var mér alltaf mjög góður og mér þótti svo innilega vænt um hann. Ég veit að afa líður vel núna, en ég á eftir að sakna hans mikið. Allar þær minn- ingar sem ég á um hann em svo ljúfar og góðar. í spámanninum stendur: „Þegar þú ert sorgmæddur skoðaðu þá aftur huga þinn og þú munt sjá að þú grætur vegna þess sem var gleði þín.“ Ég bið Guð að geyma afa fyrir mig. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þðkk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fýlgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Helga Hermannsdóttir. í dag, laugardaginn 18. septem- ber, verður til moldar borinn Sigl- fírðingurinn og sómamaðurinn Jón- as Bjömsson, eftir langa og harða veikindabaráttu. Allir Siglfírðingar þekktu Jónas og alla þekkti hann. Margir verða því þeir er sakna hans, því að tvímælalaust var Jónas mág- ur minn mjög vinsæll og sérstaklega hjálpfús öllum sem á þurftu að halda og til hans leituðu og því ófáir sem nutu hans greiðasemi. Ekki mun það ofmælt, að ef Jónas gat ekki leyst vanda samferðamanna sinna, á svo mörgum sviðum, þá vom það færri sem það gátu. Þá og líka sér- staklega gagnvart kristilegum og kirkjulegum málefnum. Því þar starfaði hann af alhug í tómstunda- vinnu sem meðhjálpari og söng í kirkjukór Siglfírðinga um §ölda ára. Ekki mun ég ætla mér í stuttri minningargrein að skrifa alla ævi- sögu Jónasar, sem bæði var löng og stundum ströng, en það var bæði hollt og happadijúgt að eiga hann að vini. Lengst mun ég muna hann í heimsóknum hjá tengdafor- eldmm sínum, Elínu og Hermanni á Ysta-Mói, en þar á því heimili var oft margt af hressilegu ungu fólki samankomið. Og þar og þá var ekki alltaf farið dult með skoðanir á mönnum og málefnum. Jónas Bjömsson hafði ákveðnar lífsskoð- anir og hélt fast við þær alla tíð. Þær vom þó dálítið á skjön við ýmsar skoðanir okkar í sveitinni og gátu á stundum spunnist harðar umræður, sem kannski mætti kalla pólitískar, eða e.t.v. bara eitthvert unglingamgl. Allir á því heimili vissu þá, að karl tengdafaðir Jónas- ar hafði ákveðnar skoðanir sem fáir tóku að sér að andmæla. Því fannst mér strax eftirtektarvert, hvað Jón- as gat verið ljúfur og tillitssamur gagnvart skoðunum Hermanns á Mói. Enda man ég ekki eftir að það skærist nokkum tíma í odda með þeim. Jónas hafði eftir setningu, sem hann tileinkaði Hermanni: „Ykkur hveiju og einu er frjálst að hafa ákveðnar skoðanir á málefnun- um hveiju sinni, aðeins beijast mál- efna- og drengilega, aldrei beita persónulegum hnútum, eða ósann- indum.“ Og það var sá lífsstíll sem Jónas tileinkaði sér og lifði eftir. Eins og ég gat um í upphafí, mun ég ekki gera tilraun til þess að skrifa ævisögu Jónasar að neinu leyti, enda margir sem til þess yrðu fær- ari. En segja má eins og stendur í fomsögunum: Ung var Hrefna syst- ir mín gefín Jónasi — og alla sína tíð bjuggu þau á Siglufírði og undu hag sínum vel þar. Jónas var mikill og góður heimil- isfaðir og var jafnan vakandi fyrir velferð fjölskyldu sinnar. Þau hjónin eignuðust fjögur mannvænleg börn, sem öll em á lífí og hafa eignast heimili og maka. Óhætt er að segja með sanni að þeirra heimili var annálað fyrir gestrisni og góðar veitingar sem við frændfólkið úr Fljótum og vinir og kunningjar ann- ars staðar frá nutum góðs af. Og nú þegar ég kveð vin minn Jónas Björnsson, hinn fjölhæfa og hugþekka mann, votta ég systur minni, Hrefnu, innilega samúð. Og veit ég að húri minnist manns síns með söknuði og sömuleiðis börn og barnaböm sem sakna föður og afa, eftir göfugt og' friðsælt líf og góða handleiðslu gegnum árin. Kveð mág minn og vin. í guðs friði. Lárus Hermannsson. Örfá kveðjuorð um vin minn Jón- as sem andaðist 9. september sl. á Sjúkrahúsi Siglufjarðar. Hann var búinn að reyna ýmis- legt um ævina - mikil veikindi á unga aldri, sjúkrahúsvist á ámnum 1929-1931 og svo aftur 1932- 1934. Veikindin leiddu til fötlunar á hægri mjöðm og orsökuðu helti á fæti er bagaði hann alla ævi. Aldrei kvartaði Jónas, fór allra sinna ferða, þó að hann hreyfði sig ekki með sama hraða og ófatlaður maður. Jónas bað ekki um neina með- aumkvun og talaði aldrei um fötlun sína og í því sambandi minnist ég atviks sem gerðist á unglingsárum okkar. Við höfðum ákveðið nokkrir félagar og var Jónas þar á meðal, að fara á skemmtun sem halda átti á Hótel Siglunesi. Við hlökkuðum mjög til þess fagnaðar og skálmuð- um því í athugunarleysi áfram án þess að hugsa um vin okkar, sem dróst aftur úr. Þegar við svo rönk- uðum við okkur, snémm við til baka hálfskömmustulegir, en þá sagði Jónas: „Allt í lagi strákar, ég kem bara á eftir ykkur." Enginn beiskja, engin gremja, engin ásökun. Þetta atvik festist mér í minni. Jónas stundaði nám í Héraðsskól- anum á Laugum 1936-1937. Hann vann svo í tug ára sem löggiltur vigtarmaður. Hann var einn af stofnendum Bifreiðastöðvar Siglu- fjarðar og vann þar á ámnum 1943- 1955, en það fyrirtæki var einnig með útgerð og fískvinnslu. Jónas vann við bókhald hjá bræðmm sín- um í Verslunarfélagi Siglufjarðar, en gerðist svo starfsmaður hjá Skattstofu Norðurlandkjördæmis vestra á Siglufirði frá 1963-1990. Hann vann öll sín verk af trú- mennsku og kostgæfni enda var hann mjög vandvirkur í eðli sínu. Jónas steig mikið gæfuspor er hann kvæntist sinni ágætu konu Hrefnu Hermannsdóttur Jónssonar og Elínar Lámsdóttur frá Ysta-Mói í Fljótum. Hrefna var stoð hans og stytta gegnum árin. Jónas og Hrefna eignuðust fjögur mannvæn- leg börn, en þau em: Bjöm, spari- sjóðsstjóri, Guðrún, bankastarfs- maður, Halldóra Ingunn, fjölskyldu- ráðgjafi, og Hermann, fram- kvæmdastjóri. Þau em öll búsett á Siglufirði nema Halldóra, sem býr í Reykjavík. Samheldni og einhugur hefur einkennt íjölskylduna frá fyrstu tíð. Jónas hafði mikið yndi af söng, hafði mjúka og góða bassarödd. Á yngri ámm sungum við í mörgum kvartettum, t.d. stjómaði vinur okk- ar Tommi Hallgríms einum þeirra. Jónas söng í Kirkjukór Siglufjarðar í tæp 40 ár. Þá söng hann í Karla- kórnum Vísi og Cantokvartettnum sem Sigurður Gunnlaugsson stjórn- aði. Oft tókum við félagar Jónasar lagið og var þá oft glatt á hjalla en hann var þá mjög í essinu sínu með gamanyrði á vömm, léttur og skemmtilegur. Hann var félagslynd- ur mjög og gerðist meðlimur i ýms- um félögum í bænum, jákvæður og tillögugóður. Hann var eindreginn sjálfstæðismaður og sinnti ýmsum stjórnunarstörfum fyrir flokkinn. Á tímabili var hann ábyrgðarmaður blaðsins „Siglfírðingur", málgagns siglfirskra sjálfstæðismanna. Aldrei heyrði ég hann segja hnjóðsyrði um nokkurn mann og aldrei heyrði ég hann rífast. Þegar við vinir hans vomm að hvetja hann til að mótmæla einhveijum, sem að okkar mati var ósanngjam í mál- flutningi sínum, svaraði Jónas: „Hví skyldi ég ergja manninn með því.“ Jónas átti allgott safn bóka og undi sér vel í návist þeirra. Síðustu árin átti hann við heilsuleysi að stríða og var hvað eftir annað lagð- ur inn á sjúkrahús, en viljastyrkur- inn og óbugandi kjarkur komu hon- um alltaf á fætur aftur. En fyrstu vikuna í september sl. varð hann alvarlega veikur, öll vörn var brost- in, þrekið búið og nú var komið að leiðarlokum og undan þeim fær eng- inn vikist. Öllum sem þekktu Jónas þóttti vænt um hann, enda var hann hvers manns hugljúfi. Nú er Sigluijörður einum syninum fátækari og sam- borgarar hans sakna þessa elsku- lega manns sem vermdi alla er nærri voru með hlýju sinni og léttu geði. Við hjónin og fjölskylda okkar sendum innilegar samúðarkveðjur til Hrefnu, barna þeirra og annarra ástvina. Guð blessi minningu hans. Óli J. Blöndal. Hjónin Guðrún Jónsdóttir frá Gröf í Kaupangssveit og Jónas Ein- arsson frá Geirbjamarstöðum í Ljósavatnshreppi fluttust til Siglu- Qarðar árið 1914. Synir þeirra, Björn, Einar, Njáll, Hólmkell, Jónas, Garðar og Ámi, komu allir við sögu Sigiufjarðar og störfuðu þar ævina á enda, nema Einar, sem bjó á Hjalt- eyri, og Jónas, sem bjó á Húsavík. Frá þeim er mikill ættbogi sem Sigl- firðingar þekkja að góðu einu. í dag verður borinn til grafar norður í Siglfirði einn af þessum ættarmeiði, Jónas Bergsveinn Bjömsson, Jónas- sonar, lengi starfsmaður Sigluflarð- arhafnar og Skattstofu Norður- landsumdæmis vestra í Siglufírði. Jónas fæddist á Siglufirði 25. október 1916 og var því á 77. ald- ursári er hann lézt. Foreldrar hans vom heiðurshjónin Guðrún Jónas- dóttir og Bjöm Jónasson keyrari og verktaki á Siglufírði. Jónas nam við Héraðsskólann á Laugarvatni og starfaði síðan lengst af sem vigt- armaður hjá Sigluijarðarhöfn og sem skrifstofumaður hjá Skattstofu Norðurlandsumdæmis vestra. Jónas sinnti og ýmsum trúnaðar- störfum fyrir félagasamtök á Siglu- firði og var lengi virkur þátttakandi í flokksstarfí sjálfstæðisfólks norður þar, sem og í starfí Karlakórsins Vísis, Leikfélags Siglufjarðar og Kirkjukórs Sigluíjarðar. Jónas kvæntist árið 1945 Hrefnu Hermannsdóttur, Jónssonar, hrepp- stjóra, og konu hans, Elínar Láms- dóttur, sem lengi bjuggu að Yzta- Mói í Fljótum. Böm þeirra em Björn Jónasson bæjarfulltrúi og spari- sjóðsstjóri á Siglufirði, kvæntur Ásdísi Kjartansdóttur kennara; Guðrún starfsmaður sparisjóðsins; Halldóra Ingunn ijölskylduráðgjafi, gift Gunnari Trausta Guðbjömssyni prentara og auglýsingateiknara; og Hermann framkvæmdastjóri, kvæntur Ingibjörgu Halldórsdóttur læknaritara. Jónas Björnsson sinnti öllum störfum, sem hann tók að sér, af alúð og samvizkusemi. Hann var mannasættir og einstakt ljúfmenni sem lét hvarvetna gott af sér leiða. Hann var fljótur að átta sig á kjama mála og tillögugóður. Hann var því góður félagi og samstarfsmaður í þeim samtökum sem hann lagði lið. Ég votta aðstandendum Jónasar innilega samúð mína og þakka þess- um gengna vini mínum góðvild hans og samfylgd á liðnum árum. Megi hann hafa góða heimkomu svo sem hann hefur til unnið. Stefán Friðbjarnarson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.