Morgunblaðið - 07.10.1993, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 1993
Utandagskrárumræða um heimilið að Gunnarsholti
Uppsagnír jafngilda 3%
ársverka í hreppnum
FJÓRIR þingmenn Suðurlandskjördæmis tóku til máls við utandag-
skrárumræðu um lokun vistheimilisins að Gunnarshoiti á Alþingi í
gær. Uppsagnir tólf starfsmanna jafngilda 3% ársverka í Rangár-
vallahreppi að því er fram kom hjá Margréti Frímannsdóttur, Alþýðu-
bandalagi, sem hafði framsögu í umræðunni. Ætlunin væri að spara
40 milljónir en hún fullyrti að þegar til lengri tíma væri litið myndi
þessi niðurskurður leiða til aukinna útgjalda.
Guðmundur Árni Stefánsson
heilbrigðisráðherra, bar saman
kostnað af vistun á einstökum með-
ferðarheimilum, en um 450 vistun-
arrými vegna áfengismeðferðar á
mismunandi stigum væru í landinu.
Kom fram að vistun á Vogi kostaði
5.896 krónur á dag, á Gunnarsholti
4.800 krónur og í Víðinesi 3.300
krónur. Á einu ári kostaði hvert
vistunarrými 1.600 þúsund krónur
á Gunnarsholti, 1.100 þúsund krón-
ur í Víðinesi og 1.200 þúsund krón-
ur á Staðarfelli. Einn vistmaður í
Gunnarsholti hefði verið 13 ár þar
og athugun sérfróðra á þörfum vist-
manna sýndi að þarfir þeirra fyrir
meðferð væru mjög mismunandi.
Tölum ber ekki saman
Jón Helgason, Framsóknarflokki,
sagði útilokað fyrir ráðherra að telja
fólki trú um að það væri til að
bæta möguleika fólks að loka heim-
ilinu. Pálmi Jónsson, Sjálfstæðis-
flokki, sagðist hafa aflað sér upp-
lýsinga hjá Ríkisendurskoðun um
kostnað af rekstri Gunnarsholts og
bæri þeim tölum ekki saman við
þær tölur sem ráðherra hefði kynnt.
Kostnaðurinn á dag væri 3.800
krónur en ekki 4.800 eins og komið
hefði fram hjá ráðherra. Rekstrar-
kostnaður nettó í fyrra hefði verið
29 milljónir króna. Hvatti hann ráð-
herra til þess að kynna sér vel upp-
lýsingar um spamað af því að loka
Gunnarsholti.
Guðni Ágústsson, Framsóknar-
flokki, sagði að fyrrum heilbrigðis-
ráðherra hefði veitt peningum til
að endurbyggja heimilið. Hann
skoraði á ráðherra að endurskoða
ákvörðun sína og kynna sér alla
vega hvað hefði orðið til þess að
fyrrum heilbrigðisráðherra hefði
skipt um skoðun á því að loka heim-
ilinu. Eggert Haukdal, Sjálfstæðis-
flokki, sagði að Gunnarsholt hefði
verið ein ódýrasta heilbrigðisstofn-
un landsins í gegnum tíðina.
VEÐUR
/ DAG kl. 12.00
HeimiW: Veðurstofa Í9lands
(Byggt é veðurspá kl. 16.15 í gær)
VEÐURHORFUR I DAG, 7. OKTOBER
YFIRLIT: Um 500 km suðvestur af landinu er 1033 mb hæð og frá henni
hæðarhryggur norðaustur yfir austanvert ísland. Á Grænlandssundi er
lægðardrag sem þokast austur.
SPA: Á morgun verður fremur hæg vestlæg átt á landinu. Skýjað að-
mestu og súldarvottur á stöku stað norðan- og vestanlands, en að
mestu bjart veður austanlands. Hiti víðast 2 til 8 stig er líður á daginn,
en allvíða frost, einkum austanlands í nótt og fram eftir morgni.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FÖSTUDAG: Suðvestlæg átt á Vestfjörðum og á annesjum
norðanlands en hægviðri annars staðar. Skýjað með köflum norðan-
lands og vestan en annars bjartviðri. Fremur svalt og víða næturfrost.
HORFUR Á LAUGARDAG OG SUNNUDAG: Austlæg eða norðaustlæg
átt, sums staðar strekkingur á sunnudag. Skýjað suðaustanlands en
bjartviðri norðanfands og vestan. Fremur svalt áfram.
Nýir veðurfregnatímar: 1.30. 4.30, 7.30, 10.45, 12,45, 16.30, 10.30,
22.30. Svarsími Veðurstofu fslands — Veðurfregnir: 900800.
o
Heidskírt
r r r
r r
r r r
Rigning
<k
Léttskýjað
* r *
* /
r * r
SJydda
& &
Hátfskýjað Skýjað
V $
* * *
* *
* * *
Snjókoma
Alskýjað
*
V
Skúrir Slydduél Él
Sunnen, 4 vindstig.
Vmdðrin 6ýnirvtndstefáu
og fjaMrftar vmdstyrk,
fieil fjéður er 2 vindstig.^
10° Hitastig
V Súld
= Þoka
sög-|
FÆRÐA VBGUM: (Kf. 17.30 ígær)
Þjóövegir landsins eru flestir í góðu ásigkomulagi og greiðfærir. Víða
er þó unniö að vegagerð og þurfa vegfarendur að haga akstri sam-
kvæmt merkingum þar. Hálendisvegir eru færir fjallabílum, Gæsavatna-
leið er fær til austurs frá Sprengisandi.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og
ígrænniiínu 99-6315. Vegagerðin.
VEÐUR VIÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tfma
hiti veður
Akurgyri 0 iéttskýjað
ReykjavA 3 skýjað
Bergan 10
Hefáinkl 10
Keapmsnnahðfn 14
NersMtMitaq 15
Nuuk 4
0*6 11
Otokkhólmur 18
WNWI0 6
alskýjað
þokumóða
alskýjað
rignlnr
rignint
rigning
Ainsterdam
Boriín
Chtcago
Frankfurt
Hamborg
London
Loe Angeles
Lúxemborg
Madrid
Malaga
Mallorca
Montreal
NewYork
Oriando
París
Madeira
Róm
Vín
Wsshington
Winnlpeg
20
16
17
11
18
16
10
16
16
16
15
15
21
23
6
9
21
14
22
25
22
38»I
tetxsky
iéttský
skýjeö
ckýjað
þokumóða
skýjað
rigning
rigning
skúr
hoiðskirt
skýjað
skýjað
skýjað
léttskýjað
skýjað
heiðskírt
alskýjað
skúr
skýjað
skýjað
léttskýjað
léttskýjað
skýjað
Skór á leið til fátækra
STARFSMAÐUR hjá Jónum hf. sem geyma þann tuttugu þúsund
skópör sem safnast hafa í skósöfnun Steinars Waage stendur
hjá hluta söfnunarinnar. Skórnir munu í náinni framtíð hlífa
fótum fátæklinga I Suður-Ameríku eða á Grænhöfðaeyjum.
Skósöfnun Steinars Waage
20 tonn hafa safn-
ast á einum mánuði
SKÓSÖFNUN skóverslana Steinars Waage hefur nú staðið í um
mánuð og er búið að safna í hálfan annan gám, en hvor gámur
er tuttugu fet að lengd. Að sögn Steinars eru um 13-14 þúsund
skópör í gámi þannig að ætla má að um 20 þúsund pör hafi
safnast, og kveðst hann reikna með að hvert par vegi eitt kíló
og því hafi íslendingar skilað um 20 tonnum af skóm á einum
mánuði.
Skósöfnunin mun halda áfram
enn um sinn og í samtali við Morg-
unblaðið kvaðst Steinar vonast til
að henni ljúki ekki fyrr en þörfina
þryti. Hann segir undirtektir við
söfnuninni vera framar björtustu
vonum og að henni hafi bæst liðs-
auki, þar sem Kaupfélag Eyfirð-
inga á Akureyri hyggist einnig
hefja skósöfnun á næstunni.
Steinar hefur einnig hafið söfnun
á handverkfærum til skóviðgerða,
þar sem skortur er á slíku hjá
móttökuaðilum, og er tekið á
móti slíkum verkfærum í búðum
hans.
Steinar er nýkominn frá Þýska-
landi þar sem hann ræddi við for-
stöðumenn kirkjunnar í Braun-
schweig, en þeir hafa milligöngu
um dreifingu skónna, sem sendir
verða til Ekvador og Chile eða
Grænhöfðaeyja að öðrum kosti,
þar sem þörfin er einnig mikil
fyrir þróunarhjálp, og segir Stein-
ar ákvörðunarstað ráða því hvort
skórnir leggi land undir fót á
næstu vikum eða um áramót.
Þingflokkur framsóknarmanna
Páll Pétursson end-
urkjörinn formaður
PÁLL Pétursson var endurkjör-
inn formaður þingflokks fram-
sóknarmanna á þingflokksfundi
í gær. Páll fékk níu atkvæði af
þrettán. Ingibjörg Pálmadóttir
var kosin varaformaður og Jón
Kristjánsson meðsljórnandi.
Páll Pétursson hefur verið for-
maður þingfiokksins samfellt frá
1980 og í fyrrahaust og sumar
hefur komið fram í fréttum að ein-
hverjir þingmenn vilji skipta þar
um. „Ég ætla ekki að einoka þetta
embætti til eilífðar og það er ekk-
ert óeðlilegt þó einhverjir hafi
áhuga á því. Það er heldur ekkert
óeðlilegt í svona starfi að einhverjir
finni að einhverju sem maður gerir,
þó maður reyni að gera það eftir
bestu samvisku. Menn getur alltaf
greint á um málefni,“ sagði Páll.
Hann sagðist vona að áfram yrði
góð samstaða I þingflokknum og
að honum takist að starfa vel í
vetur. „Það er óheppiiegt að ágrein-
ingur sé innan raða ókkur, við höf-
um verið blessunarlega lausir við
það framsóknarmenn," sagði Páll
Pétursson.
Drengurinn
ekki kom-
inn til með-
vitundar
LITLI drengurinn sem slasað-
ist í fyrrakvöld þegar bifhjóli
var ekið á barnavagn sem
amma hans ók var enn ekki
kominn til meðvitundar á gjör-
gæsludeild Borgarspítalans í
gær. Drengurinn, sem er 6
mánaða gamali, meiddist á
höfði. Samkvæmt upplýsing-
um lögreglunnar er hann tal-
inn úr bráðri lífshættu og var
líðan hans eftir atvikum.
Aituna hans slasaðist einnig i
óhappinu.
Níu ára gamail drengur eem
varð fyrir í bíl við Skjólvang í
Hafnarfirði í fyrrakvöid er mikið
mekWur en talinn á batavegi.
Hann brotnaði á mjöðm og við-
beini auk þess sem lungu hans
félki saman, að sögn lögreglu.
Vextir ríkisvíxla lækka
MEÐALÁVÖXTUN tekinna til-
boða ríkissjóðs í þriggja mánaða
ríkisvíxla var lægri í útboði sem
Iauk í gær en í síðasta útboði.
Meðalávöxtunin var 8,61% sem er
0,26% lækkun. Ávöxtunin hefur
lækkað við hvert útboð síðan í
byrjun júlí.
Margir vildu kaupa ríkisvíxla. Alls
bárust 17 gild tilboð, samtals að fjár-
hæð tæpar 4,5 milljarðar kr. Ríkið
hafði skuldbundið sig til að taka til-
boðum á bilinu 500 til 2.500 milljóna
kr. Þó heimildin væri nýtt til fulls
og keyptir víxlar fyrir 2.510 milljóna
kr. var aðeins hægt að taka fjórum
tilboðum. Þar af voru 400 milljónir
frá Seðlabankanum á meðalverði
samþykktra tilboða.
Meðalávöxtun tekinna tilboða var
8,61%, sem svarar til 8,17% for-
vaxta, samkvæmt fréttatilkynningu
Lánasýsiu ríkisins. Lægsta tilboðið
hljóðaði upp á 8,6% ávöxtun en það
hæsta upp á 8,7%.