Morgunblaðið - 07.10.1993, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 07.10.1993, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 1993 15 Vistheimilið í Mannúðleg stofnun eftir Svein Óskar Sigurðsson Nýlega hefur komið í Ijós að áform eru um að leggja niður vistheimilið í Gunnarsholti og að þar verði ekki starfrækt lengur sú mannúðlega stofnun sem í um 39 ár hefur orðið alþýðufólki til hjálpar. Nú eru um 26 vistmenn á heimilinu, bæði ungir sem aldnir, og er þetta sjúkt fólk á sál og líkama. Hér er um að ræða einstakiinga, sem á einn eða annan hátt hafa ekki ratað réttan veg í líf- inu. Hinn 10. júlí 1954 hófst starfsemi vistheimilisins í Gunnarsholti og hef- ur þessi stofnun verið rekin með það að leiðarljósi að einstaklingar yrðu nýtari þjóðfélagsþegnar eftir dvölina þar. Það var Ingólfur Jónsson á Hellu, fyrrum ráðherra, er lét til skarar skríða og sá um að vistheimil- ið í Gunnarsholti varð að veruleika. Ég tel eðlilegt að núverandi heil- brigðisráðherra hefði kynnt sér vandlega starfsemi vistheimilisins í Gunnarsholti áður en hann tók ákvörðun sína um io'kun, t.u. með heimsókn, en það gerði hann ekki Lokum ekkí Gunnarsholti eftir Hönnu Kolbrúnu Jónsdóttur Á síðasta ári kom til umræðu að loka Gunnarsholti eða afhenda heim- ilið öðrum en þeim er standa að því nú. Aftur hafa komið upp sömu umræður og starfsfólki þar hafa verið send uppsagnarbréf eftir ára- tuga starf. Mér verður hugsað til þess sem sjúkdóma- og faraldsfræði kennir. Veirusjúkdómar geta virst læknaðir en blossa upp að nýju eða upp koma önnur sjúkdómseinkenni. í Morgunblaðinu segir prófessor Tómas Helgason lokunina í Gunn- arsholti vera eins og loka ætti tutt- ugu og sex plássum fyrir hjúkrunar- sjúklinga. Við sem vinnum við hjúkr- un og teljum okkur hafa hjúkrunar- þekkingu erum sammála. Vistmenn heimilisins hafa tjáð sig um hvað bíði þeirra. Vera á götunni og kvíða framtíðinni. Víst er svo að margir eru illa á vegi staddir ef til lokunar heimilisins kemur. Heilbrigðisráð- herra telur sig hafa lausn á málinu. Enginn útskrifast á götuna segir hann. Það hljóta að vakna spurningar. Hefur sá góði maður kynnt sér plássanýtingu á þessum ýmsu stöð- um sem hann hyggst vista fólkið á? Sparnaðurinn er enginn. Frá faglegu sjónarmiði passa ekki allir hópar saman. Hefur ráðherrann kynnt sér hvort fólki sem hann ætlar að vista á hin- um ýmsu stöðum passar inn í hina hópana sem fyrir eru? Þekkingu og fagleg vinnubrögð hlýtur hann að meta til árangursmeðferðar. Eigum við kannski bara að leggja niður menntun í geðheilbrigðis- og vímu- efnamálum, og afhenda það alfarið ófaglærðum hagsmuna- og félaga- hópum. Hveijir vistast á Gunnarsholti? Á heimilinu eru 26 pláss fýrir fólk sem verið hefur á hinum ýmsu meðferð- arstofnunum en ekki gengið eins og æskilegt væri. Við verðum að hjálpa þeim! Við viljum gjarnan hjálpa fólki af öðru þjóðerni en við megum ekki gleyma landanum. Það má líkja lok- un Gunnarsholtsheimilisins við sam- bærilegri lokun á öðrum myndarleg- um heimilum fatlaðra. Vímuefna og stjórnleysi áfengisneyslu er fötlun sem menn ráða ekki við og veldur heilaskaða. Ég fæ ekki séð að fólk með heilaskemmdir eigi ekki að fá jafnan aðgang að þjónustu hvort sem skaðinn er af völdum genitískra galla, fæðingaáfalia eða rangra heilastarfsemi vegna geðtruflana. Merkur ráðherra sagði fyrir stuttu síðan að við yrðum að fara vel með atvinnutækifærin á samdráttartím- um. Við þurfum líka að nýta vel þjálfað fólk með faglega þekkingu og reynslu til starfa í okkar þjóðfé- lagi. Starfsfólkið í Gunnarsholti hef- ur báða kosti. Vistmenn treysta þeim. í Gunnarsholti er heimilislegt og notalegt. Heimilið er rekið með sparnað og hagkvæmni að leiðar- ljósi. Stærsta atriðið er þó að vist- mönnum líður vel þar og eru ánægð- Hanna Kolbrún Jónsdóttir „Við viljum gjarnan hjálpa fólki af öðru þjóðerni en við megum ekki gleyma landanum. Það má líkja lokun Gunnarsholtsheimilis- ins við sambærilegri lokun á öðrum myndar- legum heimilum fatl- aðra.“ ir. Ég skora á þá sem ráða málum að endurskoða málin og draga upp- sagnir starfsmanna til baka. Höfundur er hjúkrunurfræðingur. 7.10. 1993 VAKORT Eftirlýst kort nr.: 4543 3718 0006 3233 4546 3912 3256 0090 4842 0308 1995 3028 ÖLL ERLEND KORT SEM BYRJA Á: 4507 46** 4560 08** 4920 07** 4988 31** 4506 43** 4543 17** 4560 09** 4938 06** 4506 21** Afgreiöslufólk vinsamlegast takið otangreind kort úr umferð og sendið VISA Islandi sundurklippt. VERÐLAUN kr. 5000,- fyrir að klófesta kort og visa á vágest. VtSA Höfðabakka 9 • 112 Reykjavik Sfmi 91-671700 Gunnarsholti frekar en forveri hans í embætti. Hann hefði væntanlega hitt þar vist- menn og starfsmenn, rætt við þá um sparnaðarhugmyndir sínar, en þessir einstaklingar eiga rétt á að fá vitneskju um þessi mál og þá sérstaklega þegar um er að ræða kaflaskipti í lífi þeirra. Vistmenn í Gunnarsholti hafa frá upphafi unnið við margvísleg störf, s.s. uppgræðslu, girðingarvinnu, hellugerð, smíðavinnu og ótal margt fleira. Ráðherra ætti að kynna sér þessa starfsemi og æskilegt væri ef fyrrverandi heilbrigðisráðherra, Matthías Bjarnason, sæi sér Tært að vera honum til leiðbeiningar, en Matthías lét sér, í ráðherratíð sinni, annt um vistheimilið í Gunnarsholti. Vistfólkið í Gunnarsholti skapar sértekjur á móti þeim kostnaði er fer í rekstur heimilisins. Sértekjur þessar hafa numið um 10 milljónum króna á ári. Ef heimilið er lagt niður er líklegt að margir vistmanna fari á götuna og þar tekur sjúkdómur þeirra sig upp með viðeigandi böli og óhamingju. Þrátt fyrir yfirlýsing- ar ráðherra liggur ekkert fyrir um fyrirsjáanlega vistun þessa sjúka fólks annars staðar. Í dag eru 12 starfsmenn á Gunn- arsholti og missa þeir vinnuna og lenda því væntanlega á atvinnuleys- isbótum er slaga upp í 7 milljón krónur á ári. Ekki eru það skynsam- legar sparnaðarhugmyndir ef síðar kemur í Ijós að kostnaður við lokun vistheimilisins á Gunnarsholti hefur verið meiri en sem nam upphaflegum hugmyndum um sparnað. Vistheimilið á Gunnarsholti er þjóðhagslega hagkvæm stofnun. Stofnun sem þessi er ekki gróðafyr- irtæki, hún vinnur einfaldlega á mannúðlegum nótum og skapar þannig viðurværi fyrir einstaklinga, sem aðrar stofnanir geta ekki hýst. Rangæingar og aðrir Sunnlend- ingar spyrja sig nú hvers vegna ráð- herrann ráðist svo harkalega á Sunnlendinga með niðurskurði. Er hugsanlegt að ein ástæðan sé sú að flokksbræður ráðherrans hafa ekki notið fylgis í seinustu Alþingiskosn- ingum í Suðurlandskjördæmi og að Alþýðuflokkurinn njóti yfirleitt ekki fylgis Sunnlendinga? Ráðherra telur því afar hagstætt að beita þessum óréttláta niðurskurði á starfsmenn og vistmenn í Gunnarsholti. Svo vildi tii að hami fann þetta vistheimili er hýsir að hans mati afar hentug fórn- arlömb, alþýðufólk er ekki getur borið hönd fyrir höfuð sér. Skyldi ráðherranum hafa komið tii hugar að loka Jósefsspítala í Hafnarfirði og dreifa þaðan sjúku fólki út og suður um landið? Aldrei er að vita nema þar gæti hann, með tölfræði sinni, séð óhagstæðan rekstur er skilar engu í þjóðarbúið og að þar séu sjúklingar sem ekki geta varið sig. Vistheimilið í Gunnarsholti er heimili þeirra vistmanna er þar búa og þar líður þessu fólki vel og er eins og ein stór samhent fjölskylda. Hvers vegna að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur? Heilbrigðisráðherra er ekki einn í ríkisstjórn og ég vona að þingmenn Suðurlandskjördæmis taki sig sam- an og standi gegn áformum um að loka vistheimilinu í Gunnarsholti. Þeir eru fulltrúar síns kjördæmis á Alþingi og þeim ber að standa með kjósendum sínum og þeim sjúkling- Sveinn Óskar Sigurðsson „Skyldi ráöherranum hafa komið til hugar að loka Jósefsspítala í Hafnarfirði og dreifa þaðan sjúku fólki út og suður um landið?“ um og minnimáttar er þar eiga at- hvarf. Ég skora á heilbrigðisráðherra að draga til baka umræddar ákvarðanir um lokun vistheimilisins í Gunnars- holtí. Höfundur er nemi við H&skóla ísiands, formaður Fjölnis, FUS Rangárvallasýslu, og stjórnar- maður í SUS. Leikfimi: Fyrir byrjendur og iþróttafólk, eldri borgara, ófrískar konur og konur með barn á brjósti. Topp-tímar fyrir þá sem vilja grennast. Þoifimi. Funk. Brennslutímar. Vaxtamótun. Kvennatímar. Pallatímar. Þrekhringur. Kraftganga. Hlaupahópur. Skíöahópur. Kynningarverð: 3.000 kr., fyrsta mánuðinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.