Morgunblaðið - 07.10.1993, Blaðsíða 41
tudögum
PAULLIAC
/ kvöld bjóöum við rauðleita
og höfuga landbúnaðarafurð
frá Paulliac-héraði á kostnaðar-
verði fyrir matargesti.
Fimmtudagskvöld eru kvöld
hinna vínrauöu guðaveiga.
Boröapantanir í síma 25700
Snmkvœmt {slenskum lögum má ekki uuglysa borðvín iJJölmiðlum.
PlMMTimPW, 7f, pftTOjj.ER, 1;^3
Morgunblaðið/Hólmfríður
Aðalsteinn Bergdal hjólaði á einhjóli yfir heimskautsbaug í Grímsey og ætlar hann að fá atburðinn
skráðan í heimsmetabók Guinnes. Aðalsteinn var í hlutverki trúðsins Skralla og fór á milli húsa í eyj-
unni, sótti börnin og smalaði í félagsheimilið þar sem hann skemmti þeim.
GRÍMSEY
Frumsýning atvinnuleikhúss
Leikarar Leikfélags Akureyrar
sem heimsóttu Grímseyinga
fyrir skömmu fengu góðar viðtökur
þegar þeir sýndu ævintýraleikinn
Ferðina til Panama eftir Þjóðverj-
ann Janosch. Var sýningin mjög vel
sótt. Það var mikið um að vera í
eyjunni í tilefni sýningarinnar, trúð-
urinn Skralli hitaði upp og skemmti
börnunum.
Leikfélag Akureyrar frumsýndi
fyrsta verk sitt á leikárinu í Gríms-
ey og voru fjórir landar J anosch sem
starfa í þýska sendiráðinu hér á
landi viðstaddir. Voru þeir komnir
út í eyju tímanlega. Á frumsýning-
ardaginn var ekki hægt að fljúga
frá Akureyri, en í tilefni frumsýn-
ingarinnar var von á leikhússtjóran-
um, Viðari Eggertssyni þjóðleikhús-
stjóra, Stefáni Baldurssyni og fleiri
góðum gestum.
Kristín Bára Bjarnadóttir for-
maður kvenfélagsins Baugs sem
annaðist móttöku leikhópsins sagði
að Grímseyingar væru ánægðir með
að eyjan varð fyrir valinu sem frum-
sýningarstaður og óskaði hún leik-
hópnum alls hins besta á leikferð
um Norðurland.
„Leikhópurinn fékk sérlega góð-
ar móttökur í Grímsey," sagði Viðar
Eggertsson leikhússtjóri, en hann
sat á flugvellinum á Akureyri á
meðan á frumsýningu stóð. „Þetta
er góð sýning og hún var komin í
höfn. Vissulega fann ég fyrir tóm-
leikatilfinningu að komast ekki á
frumsýninguna en þetta minnti
mann á að enginn er ómissandi,“
sagði Viðar.
Hann sagði að Þjóðverjarnir sem
viðstaddir voru frumsýninguna
þekktu höfund verksins og vildu
endilega fylgjast með þessum við-
burði. Þeir hefðu verið yfir sig
ánægðir með sýninguna og veitt
leikurum kampavín í leikslok.
Morgunblaðið/HSH
Konráð Gylfason og Jón Oli Helgason fóru á frumsýninguna og
fannst mjög gaman. Þeir voru að skoða leikmyndina, grímurnar og
allt sem notað var í sýningunni að henni lokinni og leist vel á.
Dinner oij jass
i Gyilta sal
f KVÖLD
og önnur fimmtudagskvöld í október býður
Hótel Borg upp á jazzhljómleika með
kvöldverðinum í gyllta sal.
Það er hljómsveit Þóris Baldurssonar ásamt
söngvaranum Bergþóri Pálssyni sem flytur létt
jazzlög í hæsta gæðaflokki.
Boðið er upp á þriggja rétta matseðil
Forréttir
Blandað salat með appelsínu „^ous-cous" og avocado
Ferskmarineraður lax í heitri kryddjurtasósu
Osta „QUESADILLA" m/ salati, avocado og tómötum
Aðalréttir
OÉnbakaður lax með safransósu og sykurbaunum
GriUuð kalkúnabringa m/ rauðvínsperum og fennelsósu
Sveppahjúpaður lambahryggur með zucchini
Eftirréttir
Súkkulaði mousse með appelsínu- og ávaxtasósu.
Heitar súkkulaði pecanhnetu bökur með vanillusósu.
Appelsínu ostakaka með sólberjasósu og ferskum berjum.
Verð kr. 2.490.
Húsið opnað kl. 19.30, hljómleikar byrja kl. 21.00.
Borðapantanir í símum 11247 og 11440 .
Húsið opið til kl. 1.00.
Er ekki kominn tími til að skreppa til Reykjavíkur og gera eitthvað
fyrir sjálfan sig. Kíkja í búðir, fara í leikhús, koma við á krá, njóta
frábærrar skemmtunar á Hótel íslandi og fullkomna feróina með
dvöl á fyrsta flokks hóteh.
Gisting, matur og rokkskemmtun:
6.400,- kr. á mann fyrir eina nótt, eða
8.700,- kr. á mann fyrir tvær nœtur
ítveggja manna herbergi.
Morgunmatur er innifalinn.
ér, þú áttþaðskilið.
W
Pantanasími 688999 ISLAND
ÁRMÚLA 9, 108 REYKJAVÍK,