Morgunblaðið - 07.10.1993, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 1993
Morgunblaðið/Þorkell
Birgir Jónsson eigandi Gullna hanans býður fólki nú í slátur og
annan haustmat af hlaðborði fyrir rúmar 1.200 krónur á manninn.
Tóku 100 slátur
og prófuðu sig áfram
með alls kyns uppskriftir
Á VEITINGAHÚSINU Gullna hananum verður hausthlaðborð fjóra
daga vikunnar frá og með morgundeginum. Er þar boðið upp á
margvíslegar útgáfur af slátri og innmat, auk þess sem ýmsar gerð-
ir af ostum og skyri verða á boðstólnum.
Hlaðborðið verður á kvöldin, frá
miðvikudegi til laugardags og kostar
1.260 krónur á mann. Birgir Jónsson
eigandi Gullna hanans sagði í sam-
tali við Daglegt líf að hann hefði
byrjað að bjóða hausthlaðborð í fyrra
og undirtektir hefðu verið betri en
vonir stóðu til. „Við tókum því 100
slátur í haust og prófuðum okkur
áfram með fleiri afbrigði. Ímyndun-
arafl og hugmyndaflug var notað og
þó nokkrar tilraunir hafi endað í
ruslinu voru margar vel þess virði.“
Hann gaf Daglegu lífi nokkra rétti
að smakka og reyndist lifrarpylsa
með hvítlauk til dæmis hið mesta
lostæti og jafnframt blóðmör með
íslenskum villijurtum. Þá var lifrar-
pylsa með sölum prýðileg en önnur
með kryddsíld og lauk ekki jafn
bragðgóð. Ennfremur verður á hlað-
borðinu slátur með kanel eða aprí-
kósum, íslensk kjötsúpa, lambalifur
með engifer, nýru í skógarbeijasósu
og léttsteiktir hrútspungar svo eitt-
hvað sé nefnt.
Birgir sagði að grunnuppskrift að
slátrinu væri hefðbundin og vambir
saumaðar utan um. „Þó við breytum
bragðinu með alls kyns kryddum og
ávöxtum, verður slátur að vera í
vömbum. Við höfum prófað að nota
grisjur, en fannst munurinn eins og
ef fiskur er steiktur roðlaus. Það
vantar eitthvað sem ég veit ekki
nákvæmlega hvað er.“ ■
Nýjar pakkningar
á markaðinn frá Kjörís
Kjörís hefur sett á markað fjórar nýjar pakkningar af íspinnum og
frostpinnum í sérstökum heimilispakkningum. í pökkunum eru græn-
ir og gulir frostpinnar, vanillu íspinnar og grænir hlunkar. Leikir
og föndur er á bakhlið pakkninganna. Einnig býður Kjörís upp á
fjóra Lúxus íspinna I heimilispakkningum. ■
HJÁ ANDRÉSI
Skólavörðustíg 22A - sími 18250
Ný sending af jakkafötum.Verð kr. 14.900,-
Herravesti..........Verðfrákr. 1.800,-
Danskar buxur nýkomnar.Verð kr. 5.400,-
Stakar buxur í úrvafi.Verð frá kr. 1000-5.600,-
■Rauels-vögjgaUabuxur íúrvali ..Verðfrákr. 1.790,-
í SLÁTURTÍÐ er ekki úr vegi
að nýta innmatinn. Matreiðslu-
menn á Gullna hananum gáfu
okkur tvær nýstárlegar
■■ uppskriftir að þessu sinni.
f^* Guðrún Jónsdóttir matreiðslu-
SS meistari á heiðurinn að upp-
CC skriftunum, en Albert Ingi-
^ mundarson eldaði hrútspunga
og lifur svo Daglegt líf gæti
bragðað á, en eigandi stað-
Aa arins, Birgir Jónsson, setti
SD saman eftirfarandi vísu:
Gott fyrir gamla sem unga
að gæla við nýsteikta punga.
Við kokkana kunnum að meta
sem gefa okkur þetta að eta.
Verð á máltíðum eins og hér eru
kynntar er í lægri kantinum og
reiknast okkur til að hvor réttur
kosti um 65 krónur á mann. Báðar
uppskriftir eru miðaðar við fjóra.
Nýir hafrasteiktír hrútspungar
með Grand Marnier-sósu
4 hrúfspungar
2 dl vatn
1 dl edik
6 piparkorn
2 lárviðarlauf
'Amsk. salt
1 -2 msk. olía
salt, pipar og engiferduft á
hnífsoddi
> egg
‘Abolli haframjöl
tóbolli rúgmjöl
1. Hrútspungarnir eru settir í sjóð-
andi vatn ásamt ediki, piparkorn-
um, lárviðarlaufí og ‘Amsk. salti.
2. Soðnir í u.þ.b. 3 mínútur.
3. Pungamir kældir og himnan tek-
in af.
4. Pungamir skomir f 'h sm. þykk-
ar sneiðar.
5. Sneiðum velt upp úr pískuðu
eggi og síðan mjölblöndu.
6. Salti, pipar og engiferdufti stráð
yfir sneiðarnar og þær steiktar þar
til þær ná gullnum lit.
Grand Marnier-sósa
3 dl sterkt kjötsoð (vatn m.
kjötkrafti)
2 msk. Grand Marnier (eða
appelsínuþykkni)
1 tsk. sojasósa
maisenamjöl til að jafna sósu
Albert Ingimundarson matreiðslumaður
Moríneruð lambalifur
Suðan látin koma upp á vökvan-
um og sósan þykkt eftir smekk með
maisenamjöli.
Mælt er með því að ferskt salat
sé borið fram með þessum rétti.
Kryddlegin lambalifur f engifer
og soja
Dálítið lengri tíma tekur að
undirbúa þennan rétt en hrúts-
pungana, þar sem gert er ráð fyrir
að lifrin sé látin liggja í kryddlegi
í 3-4 klukkustundir áður en eiginleg
matreiðsla hefst.
400 g lambalifur
Kryddlögur
3 msk. sojasósa
3 msk. hunang
1 msk. engiferduft
Morgunblaðið/Þorkell
Ferskir hrútspungar í Grand
Marnier-sósu
4 msk. hvítvín
4 msk. sítrónusafi
1 tsk. hvitlauksduft
1 tsk. sítrónupipar
V2-I fíntsöxuð paprika
3-4 msk. fínt saxaður blaðlaukur
2 fínt saxaðar gulrætur
Lifur er skorin í strimla og látin
liggja í kryddlegi í 3-4 klukkustund-
ir. Þá er hún steikt í svolítilli olíu,
í 2-3 mín. á hvorri hlið. Borin fram
með hrísgijónum og fersku salati.
Matreiðslumenn mæltu með La
Choy súrsætri sósu með þessum
rétti og er hún þá hituð upp. Þeir
gaukuðu að okkur að hún væri enn
betri ef svolítill blaðlaukur eða lauk-
ur væri saxaður út í hana. ■
BT
Eitraðar jurtir
á heimilum og í garði
BLOÐ AF rabarbara eru eitruð og geta valdið uppköstum og jafn-
vel dauða, segir dr. Penny Stanway í bók sinni, Græn böm, sem út
kom í íslenskri þýðingu 1991.
Höfundur mælir með því að fólk
losi sig við eitraðar jurtir eða hafi
þær þar sem ekki næst til þeirra.
Séu eitraðar garðjurtir til staðar,
ráðleggur hann að þær séu girtar
af og útskýrt sé fyrir börnum, sem
hafa aldur til, hvaða hluti jurtarinn-
ar sé eitraður.
1. Jólakirsuber segir hann að sé
eitruð jurt og allir hlutar hennar
geti valdið ógleði, magaverkjum og
syfyu séu þeir borðaðir.
Islenskt
ú vera án þess?
ISLENSKIR BÆNDUR
2. Kalla, sem einnig er innijurt hef-
ur eitraðan stöngul sem hann segir
að geti valdið sviða og ertingu í
munni, á vörum og tungu ef bitið
er í hann.
8. Jólastjarna hefur eitruð blöð og
safa sem að sögn Stanways er eitr-
aður og veldur blöðrum á hörundi
og magaverkjum ef hún kemst í
8nertingu við munninn.
4. Þá er algenga matjurtin rabar-
bari með eitruð blöð, sem geta vald-
ið uppköstum og að sögn Stanways
jafnvel 4auða þó þau séu borðuð í
litlu magni.
5. Hinir fallegu belgir guliregns eru
einnig eitraðir og sömuleiðis fræin.
Eituráhrif lýsa sér í uppköstum og
krampaflogum og segir Stanway
að jafnvel geti eitrun af þeirra völd-
um valdið dauða.
6. Páskaliljulaukar, sem ýmist eru
hafðir inni eða úti, geta valdið
magaverkjum, skjálfta og krampa-
flogum sé þeim kyngt.
í bókinni er sagt frá öðrum eitr-
uðum jurtum, til dæmis venusar-
vagni, arumlilju, gullsópi, beijum
af töfratré, fingurbjargarblómum,
kristþyrnibeijum, geitatoppsbeij-
um, bergfléttubeijum, reynibeijum
og alparósablöðum. ■
Haustmáltíð fyrir
65 krónur á manninn