Morgunblaðið - 07.10.1993, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 07.10.1993, Blaðsíða 48
48 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 1993 IÞROTTIR UNGLINGA Morgunblaðið/Frosti Þjálfari drengjalandsliðsins, Axel Nikulásson hafði nóg að gera við að leiðbeina áhugasömum drengjum á námskeiði í Vogaskólanum. Mikil gróska er í körfuknattleiknum hér á landi sem sjá má á því að æ fleiri félög hafa það á stefnu- skránni og æfingar hafa verið mjög vel sóttar hjá flestum félögum. Rúmlega fimmtíu mættu á námskeið í körfuknattleik Þróttur, Stjarnan og Fjölnir af stað með körfuknattleik MIKIL gróska er í körfuknattleiknum og áhuginn er geysilega mikill, sérstaklega hjá börnum og unglingum. Þeim fjölgar alltaf félögum sem bjóða upp á körfuknattleik og Þróttur úr Reykjavík, Stjarnan og Fjölnir eru nýjust í þeirra hópi. Rúmlega fimmtíu drengir og ein stúlka mætti á námskeið sem Þróttarar gengust fyrir í samvinnu við Körfuknattleikssambandið og haldið var í íþróttasal Vogaskólans um síðustu helgi. Litlu færri mættu á námskeið sem Stjarnan hélt fyrir skömmu. Þjálfari drengjalandsliðsins, Axel Nikulásson hafði umsjón með námskeiðinu sem Þróttarar gengust fyrir í Vogaskóla og Torfi Magnússon þjálfari Leiknis sá um að leiðbeina á námskeiðinu sem Stjarnan hélt. Þróttarar voru til margra ára með handknattleiksdeild og lið sem lék í fyrstu deildinni og það vekur því athygli þegar forráða- menn félagsins velja körfuknatt- leik framyfir. „Við töldum meiri grundvöll fyrir körfuknattleiknum en handknattleik. Við finnum fyrir miklum áhuga á körfuknattleik og áhuginn á þessari íþrótt er ekki nein tískubóla," sagði Kristján Þorvaldsson, sem er í undirbún- ingsnefnd fyrir stofnun körfu- knattleiksdeildar hjá Þrótti. „Þá virðist staðið vel að körfuknatt- leiknum hér á landi og þetta er íþrótt sem er vinsæl í sjónvarpi. Það spilaði einnig inn í myndina að fá félög í næsta nágrenni hafa körfuknattleik á boðsstólum,“ sagði Kristján. Þróttarar fara af stað með þijá aldursflokka til að byrja með. Minnibolta tíu ára og yngri og minnibolta ellefu ára. Þá verður féiagið jafnframt með í sjöunda flokki sem er fyrir tólf ára krakka en æfingar í þessum flokkum hefj- ast um næstu helgi í Vogaskóla. Körfuboltahátíð hjá Leikni Körfuknattleiksdeild Leiknis gekkst fyrir Körfuknattleikshátíð í verslunarmiðstöðinni Hólagarði í Breiðholti um síðustu helgi. Boðið var upp á skotkeppni og skipti- myndamarkað á körfuknattleiks- myndum. Úrvalsdeildarleikmenn- irnir Franc Booker hjá Val og John Rhodes úr Haukum komu og heils- uðu upp á viðstadda og mæltist það vel fyrir. Þá gekkst Leiknir fyrir götuboltamóti, sem vegna slæms veður var flutt inn í Fella- skóla. Margir lögðu leið sína í Hólagarð til að taka þátt í þessari hátíð og ljóst er að körfuknattleik- ur er vinsæll í Breiðholtinu. Þess má geta að meistaraflokkur Leikn- is leiku» í fyrstu deild í vetur en þetta er annar veturinn sem félag- ið starfrækir yngri flokka í körfu- knattleik. Meistarar með tveimur flokkum Viðburðaríkt sumar hjá Þorbirni og Val SUMARIÐ var happadrjúgt fyrir Framara, - að minnsta kosti hvað varðar yngri aldursflokkana. Valur F. Gíslason og Þor- björn Sveinsson, fimmtán ára piltar i félaginu fögnuðu þó fleiri sigrum á knattspyrnuvellinum en aðrir því þeir voru fastamenn í bæði öðrum og þriðja aldursflokki. Báðir flokkarnir sigruðu tvöfalt í sumar, - í deild og bikar og piltarnir eru því fjórfaldir meistarar i knattspyrnu. Sumarið hefur óneitanlega ver- ið viðburðaríkt en ætli fyrri úrslitaleikurinn í bikarkeppni 2. flokks gegn KA hafí eklri verið minnistæðastur," sagði Valur. „Við vorum um tíma þremur mörk- um undir en leikurinn endaði síðan 4:4 eftir framlengingu." Valur og Þorbjörn hófu báðir að leika knattspymu með öðrum félögum. Valur sem er miðvallar- leikmaður er frá Eskifirði og lék með Austra en Þorbjörn sem er framlínumaður lék með Víkingi Reykjavík. Þeir gengu báðir yfir í Fram fyrir tveimur árum og aðal- ástæðan var að þeirra sögn vitn- eskjan um gott unglingastarf hjá félaginu. - En er mikill munur á því að leika í 2. og 3. flokki? „Jú, munurinn er mikill og það var erfítt að byija að leika í öðrum flokki þar sem harkan er miklu meiri. Það má segja að leikirnir í öðrum flokki séu meiri karlafót- bolti og það tók sinn tíma að venj- ast því,“ sagði Valur. Báðir léku þeir með drengja- landsliðinu í sumar og hafa verið á skýrslum hjá meistaraflokki. Þorbjörn hefur einnig gert gott betur því hann hefur oft komið inná í meistaraflokksleikjum í sumar og hann var einnig í U-18 ára hópnum sem lék í Wales í vik- unni. En hvað léku þeir marga leiki í sumar. „Við vitum það ekki en leikirnir eru örugglega ekki undir sextíu talsins, með landsleikjum og leikj- um í haustmótinu. í einni vikunni lékum við fimm eða sex leiki og það er ekki hægt að neita því að stundum hefur maður verið búinn að fá nóg af knattspyrnu,“ segir Þorbjöm. Framararnir Valur F. Gíslason og Þorbjörn Sveinsson stóðu í ströngu í knatt- spyrnunni í sumar. Báðir léku þeir rúmlega sextíu leiki. SPURT ER / Hvaða íþróttamaður er í mestu uppáhaldi hjá þér? SpurtíGarðabæ Hreggviður Hauksson Michael Jordan hjá Chicago Bulls er besti körfuknattleiksmaðurinn í NBA-deildinni og þess vegna er hann í mestu uppáhaldi hjá mér. Mér fínnst hins vegar enginn neitt sérstakur hér á landi. Katrín Karlsdóttir Sigurbjörg Ólafsdóttir fím- leikakona í Stjörnunni, af því að hún er svo góð í gólfæfingum. Svo held ég svolítið uppá Anthony Karl Gregory, framheija hjá Val í fótboltanum. Tryggvi Sveinsson Shaquille O’Neal körfu- boltamaður hjá Orlando Magic af því að hann er bestur. Af íslenskum íþróttamönnum held ég mest upp á Ólaf Þórðarson, knattspyrnumann hjá Skaganum. Stella Ósk Sigurðard. Siggi Sveins, handbolta- maður hjá Selfossi er æðis- lega góður og líklega besti íþróttamaðurinn hérlendis. Áf erlendum íþróttamönn- um er Michael Jordan á toppnum. Loftur Gunnarsson Stacey Augmon, körfu- knattleiksmaður hjá Atl- anta Hawks en leikmenn NBA-deildarinnar eni bestu íþróttamenn heims- ins. Hér á landi er Jón Arnar Ingvarsson hjá Haukum bestur. Ragnheiður Sigurðard. Það eru margir sem koma til greina. Ætli Sigurður Sveinsson handboltamaður úr Selfossi sé ekki í uppá- haldi. Ég fylgist lítið með erlendum íþróttamönnum en Michael Jordan er best- ur í körfuboltanum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.