Morgunblaðið - 07.10.1993, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 1993
5
Áhrif aðgerða í skattamálum á tekjur
Skattbyrðin léttist 1994
FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ hefur reiknað út hvaða áhrif áformað-
ar breytingar í skattamálum koma til með að hafa á efnahag fjög-
urra manna fjölskyldna í nokkrum tekjuflokkum. Samkvæmt út-
reikningum ráðuneytisins léttist skattbyrðin og það mest hjá telqu-
lágum barnafjölskyldum.
Dæmi ráðuneytisins miðast við
hjón með tvö börn, þar af annað
yngra en 7 ára, og að annað hjóna
sé heimavinnandi. Dæmi voru
reiknuð út fyrir fjölskyldur þar sem
meðaltekjur á mánuði 1994 eru
100 þúsund, 150 þúsund, 250 þús-
und, og svo fyrir fjölskyldu sem
hefur 500 þúsund króna mánaðar-
laun. Samkvæmt skattframtölum
munu meðaltekjur fjölskylda af
þessari gerð liggja nálægt 200
þúsund krónum á mánuði.
20% tekna til matarkaupa
Helstu aðgerðir í skattamálum
eru lækkun virðisaukaskatts á
matvæli um næstu áramót, þ.e.a.s.
ef kjarasamningar halda. Sam-
kvæmt upplýsingum fjármálaráðu-
neytisins veija barnafjölskyldur að
jafnaði um fimmtungi tekna sinna
til kaupa á matvöru. Þetta hlutfall
Kveikt á 7
ný umferð-
arljósum
18 umferðarljós
sett upp á árinu
KVEIKT verður á 7 nýjum um-
ferðarljósum í Reykjavík á laug-
ardaginn. Umferðarljós hafa
verið sett upp á II stöðum það
sem af er árinu og hefur því
gatnamótum með umferðarljós-
um í borginni fjölgað um 18 á
árinu.
Að sögn Guðbjarts Sigfússonar
yfirverkfræðings rekstrardeildar
Gatnamálastjóra hafa umferðar-
ljósin verið sett upp vegna aukinn-
ar umferðar.
Minni slysahætta
Hann sagði að það hefði sýnt
sig að umferðarljós drægju úr
slysahættu á gatnamótum og hefði
þótt nauðsynlegt að fjölga umferð-
arljósum vegna aukins umferðar-
þunga. Ekki hafa verið sett upp
ný gangbrautarljós á árinu.
Umferðarljósin sem tekin verða
í notkun á laugardaginn eru á eftir-
töldum gatnamótum: Hringbraut
— Framnesvegur, Geirsgata —
Tryggvagata, Geirsgata — Póst-
hússtræti, Geirsgata — Kalkofns-
vegur, Grensásvegur — Ármúli —
Skeifan, Breiðholtsbraut — Norð-
urfell og Breiðholtsbraut — Jaðar-
sel.
Til að áminna ökumenn um hin
væntanlegu umferðarljós verða
þau látin blikka gulu ljósi í nokkra
daga áður en þau verða tekin í
notkun.
------» ,».+----
er heldur hærra hjá hinum tekju-
minni en hjá þeim fer allt að þriðj-
ungi tekna til matarkaupa. Þessar
upplýsingar eru byggðar á neyslu-
könnun Hagstofunnar sem gerð
var á neyslusamsetningu 300 fjöl-
skyldna í ýmsum tekjuflokkum.
Tæplega fjórðungur. lækkunar
matarskattsins er þegar kominn
fram eftir að niðurgreiðslur voru
hækkaðar á mjólkurvörum, svína-
kjöti, kjúklingum og eggjum í
tengslum við gerð kjarasamninga
síðastliðið vor.
Barnabótaauki verður hækkað-
ur og kemur það tekjulágu barna-
fólki til góða. Fyrirhugað 0,5%
atvinnutryggingagjald kemur hins
vegar þyngra niður á hinum tekju-
hærri. Þessar skattabreytingar
leiða til þess að fjölskylda með 100
þúsund króna mánaðartekjur hefur
33.600 krónum meira á ári til ráð-
stöfunar og sú tekjuhæsta, með
500 þúsund á mánuði, hefur
10.800 krónum meira til ráðstöf-
unar.
HeímikL' Efnaliagsskrifstofa fánnálaráduneytísins
Dæmi um skattbyrði fjölskyldna1994
Hjón með tvö börn,
annað yngra en sjö ára M á n a ð a r I a u n
Fjárhæðir i þús. kr. 100 150 250 500
1. Án aðgerða í skattamálum
Tekjuskattur (34,3% + 5% hátekjusk.) 34 51 85 177
Útsvar (7,04%) 7 11 18 35
Tekjuskattur og útsvar 41 62 103 212
- persónufrádráttur -41 -43 -43 -43
Tekjuskattur og útsvar - persónufrádráttur 0 19 60 169
Barnabætur 20 13 6 6
Tekjur - tekjuskattur og útsvar + barnabætur 120 144 196 337
2. Áhrif aðgerða í skattamálum á tekjur (fjárhæðir I krónum)
Lækkun VSK á matvælum, krónur 2.500 2.800 3.000 3.400
0,5% tryggingagjald -500 -750 -1.250 -2.500
Hækkun barnabóta 800 800 - -
Heildaráhrif, krónur á mánuði 2.800 2.850 1.750 900
Sem hlutfall af tekjum 2,8% 1,9% 0,7% 0,2%
Enn ineðvit-
undarlaus
eftir árás
STÚLKAN sem varð fyrir árás
í miðborg Reylgavíkur aðfara-
nótt laugardagsins var enn með-
vitundarlaus á Borgarspítalan-
um í gær, samkvæmt upplýsing-
um Rannsóknarlögreglunnar.
Tvær stúlkur, 14 og 16 ára,
hafa gengist við árásinni á stúlk-
una. Onnur er í gæsluvarðhaldi í
Síðumúlafangelsi, hin er í vistun á
vegum barnaverndaryfirvalda.
OPEL CORSA 94
YERÐ FRÁ KR. 899.000.-
REYNSLUAKIÐ OPEL OG ÞIÐ GETIÐ
UNNIÐ FERÐ TIL ÞÝSKALANDS
MEÐ FLUGLEIÐUM FYRIRTVO.
OPEL- MEST SELDU BÍLARÍ EVRÓPU
FLUGLEIDIR
Jiw
BÍLHEIMAR
Fosshálsi 1 Reykjavík
Sími 634000
OPEL