Morgunblaðið - 07.10.1993, Page 17
MMORGIÍMBM. ÐIÐ! PIM'Ma* UMGH 17 C i OK,T0BBR( MS93
ðl7
Lionshreyfingin aðstoðar Blindrafélagið
Menntun o g útivist
efst á verkefnalista
BLINDRAFÉLAGIÐ hefur nú efst á stefnuskrá sinni að auka mögu-
leika blindra til menntunar og útivistar. Það á að gera með því að
styrkja námssjóð blindra og sjónskertra og með því að koma upp
aðstöðu á útivistarsvæðum sem blindir geta nýtt sér. Lionshreyfing-
in ætlar að aðstoða félagið við að afla fjár til þessara verkefna með
söfnun 3.000 styrktarfélaga. Söfnunarátakið fer fram 14.-16. októ-
ber næstkomandi. 15. október, á degi hvíta stafsins, ætla blindir að
vekja athygli á sérstöðu sinni með göngu niður Laugaveginn.
Samstarfsverkefni Blindrafélags-
ins og Lionshreyfingarinnar var
kynnt á blaðamannafundi sl. mánu-
dag. Þar rakti Kristján Kristjánsson,
fjölumdæmisstjóri Lionshreyfingar-
innar, í stuttu máli hvernig hreyfing-
in hefur beitt sér í þágu blindra.
Hún hefur m.a. staðið að uppbygg-
ingu á Landakotsspítala með tækja-
kaupum frá 1951 og 1972 var seld
rauð fjöður til styrktar blindum.
3.000 nýir styrktarfélagar
Dagana 14.-16. október nk. ætla
Lionsmenn að finna 3.000 styrktar-
aðila sem borgi 1.500 króna gjald
árlega.til Blindrafélagsins. í Lions-
hreyfingunni starfa um 3.000 karl-
ar, konur og unglingar og er ætlun-
in að biðja hvert þeirra að leggja
Blindrafélaginu til einn styrktarfé-
laga. Auk þess munu fulltrúar Lions-
hreyfingarinnar og Blindrafélagsins
verða við símann á degi hvíta stafs-
ins, 15. október, og skrá nýja félaga.
Göngustígar fyrir blinda
Halldór S. Rafnar, framkvæmda-
stjóri Blindrafélagsins, sagði mikil-
vægt fyrir blinda að geta notið úti-
veru og farið um einir með aðstoð
hvíta stafsins en án fylgdar. Þeim
fjármunum sem safnast í átaki Li-
onshreyfingarinnar verður annars
vegar varið til að útbúa göngustíga
fyrir blinda. Hugmyndin er að breyta
núverandi göngustígum, t.d. í Öskju-
hlið og Elliðaárdal í samvinnu við
Reykjavíkurborg. Til að blindir geti
notfært sér þá þarf að breyta undir-
lagi þeirra og koma fyrir sérstökum
steinum og hljóðmerkjum sem blind-
ir geti notað sem kennileiti. Hins
vegar á að styrkja námssjóð blindra
og sjónskertra en æ fleira ungt fólk
leitar aðstoðar til að geta stundað
nám. Halldór sagði að ef þetta gengi
eftir þá yrði starf Lionsmanna að
ómetanlegu gagni fyrir blinda.
Dagur hvíta stafsins
Brynja Arthúrsdóttir kynnti al-
þjóðlegan dag hvíta stafsins. Hann
hefur verið notaður frá 1981 til að
vekja athygli á því hversu mikilvæg-
ur hvíti stafurinn er til að merkja
blinda og fyrir þá til að komast leið-
ar sinnar. Undanfarin ár hefur
Umferðarráð og lögreglan átt sam-
vinnu við blinda á degi hvíta stafs-
ins. Umferðarráð hefur auglýst í
útvarpi og látið prenta áróðursmiða
til að setja undir rúðuþurrkur á bílum
sem hefur verið lagt upp á gang-
stéttir en það getur verið verulega
óþægilegt fyrir blinda og þar að
auki stórhættulegt.
Að þessu sinni ætla blindir að
efna til hópgöngu niður Laugaveg-
inn kl. 16 á degi hvíta stafsins.
Hemmi Gunn ætlar að slást í hópinn
með göngumönnum með bundið fyr-
ir augun og segja frá uppiifun sinni
eftir á. Öllum, sem styðja vilja mál-
stað blindra, er boðið að taka þátt
í göngunni.
Morgunblaðið/Þorkell
Prófað að vera blindur
Á blaðamannafundi Blindrafélagsins og Lionshreyfingarinnar fengu
blaðamenn tækifæri til að setja sig örlítið i spor þeirra sem eru
blindir. Þeir fengu dökk gleraugu sem byrgðu þeim algjörlega sýn,
gengu úr húsi Blindrafélagsins og út á Hamrahlíð þar sem eru göngu-
ljós. Síðan fóru þeir yfir götuna undir eftirliti og með aðstoð hvíta
stafsins. Á myndinni er Guðrún Eyjólfsdóttir frá Ríkisútvarpinu að
fara yfir götuna. Guðrún Guðjónsdóttir umferliskennari fylgist með.
Steingrímur Hermannsson víkur úr stjórn Mótvægis
Leigusamningur á nafni
Tímans endurskoðaður
STEINGRIMUR Hermannson, formaður Framsóknarflokksins,
kveðst ekki hafa viljað liggja undir ámæli um að standa í vegi fyrir
að stofnun Mótvægis tækist, og því sagt sig úr stjórn fyrirtækisins.
Steingrímur segist áreiðanlega eiga einn stærstan þátt í því að ýta
Mótvægi á flot, en þar sem hann hafi orðið var við að stjórnendur
blaðsins leggi mikla áherslu á að bein tengsl við Framsóknarflokk-
inn verði sem minnst og hafi sérstaklega bent á að sú staðreynd
að formaður Framsóknarflokksins sat í sljórn Mótvægis verki sem
mjög bein tengsl við flokkinn, hafi hann ákveðið að víkja. Mótvægi
hefur óskað eftir formlegum viðræðum við Framsóknarflokkinn um
endurskoðun á leigusamningi á nafni Tímans.
Steingrímur segir að uppsögn sín um um leigu á nafni Tímans.
úr stjórn Mótvægis tengist ekki
leigu Framsóknarflokksins á nafni
Tímans til Mótvægis, og kveðst
hafa átt sáralítinn þátt í samningn-
Hrafn Magnússon, fram-
kvæmdastjóri Sambands almennra
lífeyrissjóða, tekur sæti Steingríms
í stjórninni.
Mótvægi hefur óskað eftir form-
legum viðræðum við Framsóknar-
flokkinn um endurskoðun á leigu-
samningi á nafni Tímans, að sögn
Bryndísar Hlöðversdóttur, stjórnar-
manns í Mótvægi, og segir hún það
forgangsatriði nú að ákveða hvort
Mótvægi hyggist nota nafn Tímans
á blað sitt. Blaðið mun á næstu
vikum flytja starfsemi sína niður á
Hverfisgötu 33 í húsnæði sem er í
eigu Olíufélagsins, og að sögn Þórs
Jónssonar, ritstjóra Tímans, munu
breytingar á útliti og efni blaðsins
koma til framkvæmda á sama tíma
og flutningurinn.
FERÐATILBOÐ í VIKU # FERÐATILBOÐ í VIKU # FERÐATILBOÐ í VIKU # FERÐATILBOÐ í VIKU
Taktu
Dömubolir
VetíLáámO^W,-
Ferðatilboð
Pólóbolur herra
VetíLá5u^r«5,-
Ferðatilboð
Barnagallabuxur
Yrrff iíflur l.ftyj,
Ferðatilboð
Herraskór
Verð á/iiig-2r£95.
Ferðatilboð
Steikarsteinn
Vferð^ðor7395,-
Ferðatilboð
Nú færðu ofangreindar vörur á einstöku ferðatilboði í viku, 7,-13. okt.
Lyftu þér nú upp og nýttu þér ferðatilboð í verslunum Hagkaups
í vikunni. Ef Hagkaup er ekki í byggðarlaginu þá er ^
hægt að notfæra sér þjónustu Póstverslunar
Hagkaups, grænt símanúmer 99 66 80. Æ
Tilboðið gildir á meðan birgðir endast.