Morgunblaðið - 07.10.1993, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 1993
Vöruhús KEA
Skósöfnun
af hefjast
Verða sendir til
þróunarlandanna
VÖRUHÚS KEA er að hefja
skósöfnun í samstarfi við Skó-
verslun Steinars Waage í
Reykjavík undir nafninu
„Láttu skóna ganga aftur“.
Tilgangur söfnunarinnar er að
gefa fólki tækifæri að koma notuð-
um skóm sem það er hætt að nota
í umferð aftur í þróunarlöndunum,
en þar er þörfín mikil. Bæði getur
verið um að ræða skó sem vörn
gegn kulda, en einnig eru skór
mikilvægir til að vemda fætur
gegn sýkingum ýmiss konar, sem
geta verið banvænar þar sem
nauðsynleg sýklalyf eru ekki við
höndina.
Skófatnaður af ýmsu tagi kem-
ur til greina, en einkum er mikil
þörf fyrir bamaskó. Skómir þurfa
ekki að vera óslitnir.
Markmiðið er að fylla einn gám
af skóm héðan af svæðinu og
senda utan og eins að stuðla að
því að Norðlendingar taki til í
skápum sínum fyrir jólin.
(Úr fréttatilkynningu.)
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Pakkhúsið á Möðruvöllum endurbyggi
SVERRIR Hermannsson smiður og félagar hans eru
að gera upp pakkhúsið á Möðruvöllum í Hörgárdal.
Hús þetta tilheyrði Möðruvallaskóla og var byggt 1880.
Þar var kennd leikfimi og skólapiltar sýndu leikrit.
Þegar Möðruvallaskóli var fluttur til Akureyrar var
hluti hússins rifinn og endurbyggður við Menntaskól-
ann. Húsið var síðan notað sem pakkhús á Möðruvöll-
um. Það var friðlýst á síðastliðnu ári. Pakkhúsið verð-
ur gert upp á 3-4 árum. í sumar er suðurhliðin tekin
í gegn. Sverrir, Krisján Pétursson og Birkir Björnsson
voru búnir að lyfta húsinu af grunni og unnu við að
rífa suðurhliðina þegar myndinn var tekin í gærdag.
Málþing
umbreytt
hlutverk
safna
Menningarmálanefnd Akur-
eyrar stendur fyrir málþingi um
breytt hlutverk safna í Safnað-
arheimili Akureyrarkirkju
næstkomandi laugardag, 9.
október, og hefst það kl. 14.
Hús og söfn skálda og rithöf-
unda á Akureyri verða í brenni-
depli. Þröstur Ásmundsson for-
maður menningarmálanefndar
flytur ávarp, að því loknu ræðir
Erlingur Sigurðarson kennari um
söfn skáldanna á Akureyri og hlut-
verk þeirra. Hjörtur Pálsson stjórn-
armaður í Rithöfundasambandi ís-
lands ræðir um þjónustu safna við
skáld og rithöfunda og Rakel Pét-
ursdóttir safnakennari við Lista-
safn íslands ræðir um safna-
kennslu.
Þátttakendum á málþinginu
gefst síðan kostur á að koma skoð-
unum sínum á framfæri í umræðu-
hópum og munu forsvarsmenn
safnanna á Akureyri sitja fyrir
svörum.
(Fréttatilkynning.)
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Fulltrúi í umferðarfræðslu
VALGERÐUR Hrólfsdóttir hefur tekið við starfi svæðisfulltrúa í
umferðarfræðslu á Norðurlandi eystra.
Svæðisfulltrúi í umferðarfræðslu
Atak sem vænst er
að skili árangri
VALGERÐUR Hrólfsdóttir tók fyrir skömmu við starfi svæðisfulltrúa
í umferðarfræðslu á Norðurlandi eystra, en starfið felst m.a. í því að
hafa umsjón með umferðarfræðslu í umdæminu og aðstoða við útveg-
un kennslugagna. Um tilraunaverkefni er að ræða og greiðir trygginga-
félagið Sjóvá-Almennar laun svæðisfulltrúans.
Valgerður sagði að áður hefðu
samskonar tilraunir verið gerðar
bæði á Austur- og Vesturlandi og
tekist vel. I aðalnámskrá grunnskóla
er rætt um ógreinabundið nám, m.a.
umferðarfræðslu en ekki hefur fyrr
en nú verið markvisst unnið með
þessi mál. Umferðarráð samþykkti
árið 1990 að ráða svæðisfulltrúa í
hveiju fræðsluumdæmi í hálfa stöðu,
en þar sem ráðið var fjárvana var
leitað til tryggingafélaganna og féll-
ust Sjóvá-Álmennar á að greiða laun
svæðisfulltrúanna og fylgist félagið
með starfseminni.
Valgerður sagði að þó nokkuð
kennsluefni væri til, sem hún gæti
útvegað skólunum, en hægt væri að
koma fræðslu um umferðarmál að f
ýmsum tímum. „Við lítum svo á að
um sé að ræða átak sem standi þetta
skólaár í þessu kjördæmi og því er
að okkar mati mikilvægt að forsvars-
menn skólanna verði jákvæðir og
taki þátt í þessu með okkur, en við
væntum þess að átakið muni skila
góðum árangri," sagði Valgerður.
Hún hefur gert grófa áætiun um
vetrarstarfið og í september og októ-
ber verður lögð áherslaá endurskins-
merki og notkun þeirra, auk þess sem
farið verður yfir leiðina til og frá
skóla og ijallað um útivistarmál. í
októbermánuði verður fjallað um
reiðhjólin í umferðinni og þegar
skammdegið skellur á verður lögð
áhersla á auknar hættur í umferð-
inni.
i janúar verður einkanlega fjallað
um notkun hjálma við ástundun vetr-
aríþrótta. Næstu tvo mánuði ætlar
Valgerður að nota til að heimsækja
skólana og kanna hvernig hefur
gengið. í vor er síðan aftur komið
að reiðhjólunum, að búa þau undir
skoðun og þá verður ítrekuð notkun
hjálma.
Um 2.000 manns hafa séð Ferðina til Panama hjá Leikfélagi Akureyrar
Leikför austur á land og
síðan sýnt á Akureyri
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Leikmyndin skoðuð
KRAKKARNIR í Þelamerkurskóla fengu að skoða leikmyndina
eftir sýningu á Ferðinni til Panama og leikararnir Arna María,
Dofri og Sigurþór, sem eru á myndinni með börnunum, upplýstu
þau um leyndardóma baksviðsins.
TUTTUGASTA sýning Leikfé-
lags Akureyrar á ævintýra-
leiknum Ferðinni til Panama
eftir Þjóðverjann Janosch var
I Þelamerkurskóla í gær. Leik-
urinn hefur verið sýndur víða
um Norðurland frá því hann
var frumsýndur í Grímsey 19.
september síðastliðinn og hafa
að jafnaði um 100 manns verið
á hverri sýningu þannig að um
2.000 manns hafa séð þetta
fyrsta verkefni Leikfélags
Ákureyrar á þessu leikári.
Leikhópurinn heldur austur á
land eftir helgina og þá er
röðin komin að Akureyring-
um.
Ferðin til Panama er ævintýra-
sýning fyrir börn á öllum aldri,
sem leikhópurinn hefur unnið upp
úr sögum Janosch, en hann er
einn kunnasti höfundur barna-
bóka í Þýskalandi um þessar
mundir. I sögunni segir frá litla
birninum og tigrísdýrinu, sem
finna kassa fljótandi í ánni sem
lyktar af banönum, en kassinn
reynist vera frá Panama og verð-
ur landið umsvifalaust drauma-
Iand þeirra félaga. Þeir leggja
upp í ferðalag í leit að landinu,
lenda í ýmsum ævintýrum á leið-
inni og hitta ýmsa sem skemmti-
legt er að kynnast.
Sjö sýningar á Austurlandi
Þegar er búið að sýna leikritið
á 21 sýningu, eftir sýninguna í
Þelamerkurskóla var sýnt í Ólafs-
firði og á morgun verður sýnt í
Laugaborg. Um helgina verða
sýningar á Dalvík og síðan legg-
ur leikhópurinn leið sína austur
á land þar sem verða 7 sýning-
ar, tvær á Egilsstöðum mánudag-
inn 11. október, þá á Seyðisfírði
og Fáskrúðsfírði á þriðjudag og
á miðvikudag verður sýnt í Nes-
kaupstað og Eskifirði og síðasta
sýningin verður á Vopnafirði á
fimmtudag í næstu viku.
Eftir frumsýningu á Aftur-
göngum Henriks Ibsens um miðj-
an mánuðinn gefst Akureyring-
um loks kostur á að sjá sýning-
una og verður verkið á fjölum
Samkomuhússins á sunnudögum
eftir það. Fyrsta sýningin á Akur-
eyri verður 17. október næstkom-
andi.
Með hlutverk í sýningunni fara
Dofri Hermannsson, Sigurþór
Albert Heimisson, Árna María
Gunnarsdóttir og Aðalsteinn
Bergdal. Leikstjóri er Ingunn
Jensdóttir og Anna G. Torfadótt-
ir gerði leikmynd, búninga og
dýragervi.