Morgunblaðið - 07.10.1993, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 1993
25
Reuter.
Fundað í Kaíró
YITZHAK Rabin, forsætisráðherra ísrael og Yasser
Arafat, leiðtogi Frelsissamtaka Palestínu (PLO) hitt-
ust í gær á fyrsta vinnufundi sínum í Kaíró. Var
þar ákveðið að formlegar samningaviðræður vegna
sjálfsstjórnar Palestínumanna myndu hefjast 13.
október. Arafat sagði þá einnig hafa samþykkt að
útnefna sérstaka fulltrúa til að ræða um framtíð
borgarinnar Jerúsalem. Rabin og Arafat sögðust
báðir vera ánægðir með fundinn en hins vegar neit-
uðu þeir að takast í hendur er teknar voru myndir
af þeim ásamt Hosni Mubarak, forseta Egypta-
lands, fyrir fundinn. Þá héldu þeir sitt hvorn blaða-
mannafundinn að loknum viðræðunum. Múslimsku
öfgasamtökin Hamas gagnrýndu Arafat harðlega
fyrir að hafa átt fund með Rabin.
Endurminningar varpa skugga á flokksþing íhaldsmanna
Thatcher sögð lýsa Major sem
barnalegum og óákveðnum
Blackpool. Reuter, The Daily Telegraph.
BRESKA síðdegisblaðið Daily
Mirror hélt í gær áfram að birta
meintar tilvitnanir í væntanlegar
endurminningar Margaretar
Thatcher, fyrrum forsætisráð-
herra Bretlands, þar sem hún
gagnrýnir arftaka sinn John
Major. Hefur þetta valdið bresk-
um íhaldsmönnum miklum erfið-
leikum en þeir halda nú árlegt
þing sitt í borginni Blackpool.
Með þinginu ætiuðu íhaldsmenn
að sýna fram á hversu sameinað-
ir þeir væru en tilvitnanirnar í
Mirror, . sem er vinstrisinnað
blað, hafa beint kastljósinu að
innanflokksdeilunum.
Ef trúa má Daily Mirror verður
harkalega gagnrýni að finna á per-
sónu Majors og stjórnarhætti hans
í bókinni. Talið er að hún hafi frest-
að útgáfunni og birtingu kafla úr
henni fram yfír flokksþingið til að
koma í veg fyrir að það færi alfarið
undir umræður um framtíð Majors.
Breskir fjölmiðlar telja margir að
Thatcher ætli með endurminningum
sínum að hefna sín á íhaldsflokknum
fyrir að hafa rekið hana úr embætti
flokksleiðtoga og forsætisráðherra
og hefur því jafnvel verið haldið fram
að hún' hafi bætt við kafla vegna
óánægju með frammistöðu Majors.
í Daiiy Mirror segir að hún segi
Major vera pólitískt barnalegan,
vitsmunalega óákveðinn og ekki
hafa hæfni til að gera sér grein fyr-
ir öllum þáttum margslunginna
málaflokka.
í yfirlýsingu sem hún gaf út vegna
skrifa ' síðdegisblaðsins sagðist
Thatcher hafa stutt Major sem arf-
taka sinn fyrir þremur árum og að
hún myndi gera það sama í dag.
Nánir vinir hennar sögðu einnig að
hún bæri hlýjan hug til flokksleið-
togans og að þær lýsingar sem
mætti lesa í Mirror væri ekki að
finna í bókinni.
Flestir leiðtoga íhaldsflokksins
lýstu í gær yfir fullum stuðningi við
Major og Michael Howard innanrík-
isráðherra kynnti nýja stefnu í lög-
gæslumálum. Ætlar ríkisstjórnin að
leggja mikla áherslu á lög og reglu
Sendiherrann sagðist ungur hafa
gerst kennari á vegum Friðarsveit-
anna á Filippseyjum 1961, ef til vill
hefði sama ævintýraþráin rekið sig
af stað og norrænu könnuðina. Síðar
hefði hann gerst starfsmaður utan-
ríkisráðuneytisins. Hann hefði unnið
þar margvísleg störf, m.a. verið
sendiherra í Afríkuríkinu Mali árin
1981-1984.
Borg minnti á að íslenska lýðveld-
ið ætti 50 ára afmæli á næsta ári.
á næstunni tii að draga úr glæpum
í Bretlandi. Meðal annars stendur
til að byggja sex ný fangelsi, herða
reglur um lausn gegn tryggingu og
slaka á reglum um notkun litninga-
rannsókna til að finna glæpamenn.
Þá fær lögreglan aukið svigrúm í
baráttu sinni gegn hryðjuverka-
mönnum. „í dag kynni ég umfangs-
mesta átak gegn glæpum sem nokk-
ur innanríkisráðherra hefur kynnt,“
sagði Howard í ræðu á þinginu.
Hann rakti sögu samskipta Banda-
ríkjanna og íslands, einkum í varnar-
málum, tengdafaðir sinn hefði á
unga aldri gegnt herþjónustu á ís-
landi og sagt sér frá landinu. Mikil-
væg lega íslands á Norður-Atlants-
hafi hefði skipt sköpum fyrir varnir
Atlantshafsbandalagsins. „í sögu
Toms Clancys, Red Storm Rising,
er því lýst á sannfærandi hátt hve
mikilvægt ísland hefði orðið í átök-
um við Sovétríkin."
Clinton tilnefnir sendiherra á íslandi
Olst upp við sögur af
norrænum mönnum
PARKER Borg, sem Bill Clinton Bandaríkjaforseti hefur tilnefnt i
embætti sendiherra á íslandi, kom fyrir utanríkismálanefnd öldunga-
deildar Bandaríkjaþings fyrir skömmu. Borg er ættaður frá Minne-
sota, faðir hans lærði norsku í æsku. „Frá barnæsku ólst ég upp
við sögur af ferðum gömlu norrænu landkönnuðanna til meginlands
Ameríku og frásagnir af framlagi norrænna þjóða til bandarísks
samfélags".
Félagsmálagreiðsl-
um til Færeyja út-
hlutað eftirlitslaust
Kaupmannahöfn. Frá Sigrúnu Davíðsdóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
RÍKISENDURSKOÐUNIN danska hefur harðlega fordæmt af-
greiðslu Dana á félagsmálaframlagi til Færeyinga undanfarin
ár. Um leið er bent á að frá 1991 hafi verið reynt að taka á
vanda Færeyinga. Ávítunum er beint til fyrri stjórnar og félags-
málaráðherra hennar. Einnig liafa komið fram fréttir um að
Poul Schluter fyrrum forsætisráðherra hafi látið undir höfuð
leggjast að greina þinginu frá
Færeyjum.
Færeysk málefni heyra undir
forsætisráðuneytið, en færeyskar
félagsmálagreiðslur fara í gegnum
félagsmálaráðuneytið. Ríkisendur-
skoðunin gagnrýnir að ekki skuli
hafa verið fylgt gildandi reglum,
en einnig að á sumum sviðum
hafi ekki verið riSinar reglur og
ekki hafi verið gerð nein tilraun
til að koma þeim á. Afgreiðslan
hafi því verið handahófskennd, en
um leið sé ekki hægt að draga
neinn til ábyrgðar.
Skortur á eftirliti
Nú eru félagsmálagreiðslur til
skýrslum um slæmt ástand á
Færeyja hluti af heildarframlagi
Dana, sem Færeyingar ráðstafa
sjálfir. Kirsten Jaeobsen þingmað-
ur Framfaraflokksins gagnrýnir
þetta fyrirkomulag, því um leið
missi danska þingið einasta mögu-
leikann til að fylgjast með hvernig
dönsku fé sé ráðstafað á eyjunum.
Hún hefur einnig sagt að Schlúter
hafi fyrir löngu farið að fá skýrsl-
ur um skuggalegar horfur á Fær-
eyjum, án þess að sjá ástæðu til
að tilkynna þinginu um þær. Hún
hefur lagt til að komið verði upp
rannsóknarnefnd til að komast til
botns í málum Færeyinga og af-
skiptum Dana af þeim.
Skákeinvígi hald-
ið áfram í Jakarta
Jakarta. Reuter.
SKÁKEINVIGI Rússans Anatólíjs Karpovs og Hollendings-
ins Jans Timmans um heimsmeistaratitil Alþjóðaskáksam-
bandsins (FIDE) verður fram haldið í Jakarta í Indónesíu,
að því er Florencio Campomanes, forseti FIDE, skýrði frá
í gær.
Hlé var gert á einvíginu fyr-
ir tveimur vikum en Karpov og
Timman setjast að tafli á ný
16. október. Campomanes
sagði að tryggingar hefðu
fengist fyrir því að verðlaun í
einvíginu yrðu ekki undir einni
milljón svissneskra franka,
jafnvirði 48 milljóna króna.
Hins vegar neitaði hann að
segja hvaðan verðlaunaféð
kæmi en forseti indónesíska
skáksambandsins, Mohammed
Hasan, er einn helsti auðkýf-
ingur Malasíu.
Staðan í einvíginu eftir 12
fyrstu skákirnar, sem tefldar
voru í Amsterdam, er sú að
Karpov hefur hlotið sjö vinn-
inga en Timman fnnm.
Nú eru prestamir búnir á láta þig vita,
hvaða dag og klukkan hvað bamið
þitt fermÍSt. Pantaðu því myndatökuna
tímanlega, svo þú fáir hana
á þeim degi og tíma sem þér
passar best.
Fermingarmyndatökur frá
kr. 12.000,oo
* '
I öllum okkar myndatökum
er innifalið: Að þú færð
allar myndimar stækkaðar
fullunnar í stærðinni
13x18 cm, að auki tvær
stækkanir 20 x 25 cm og
eina 30 x 40 cm í ramma.
3 ÓDÝRASTIR
Ljósmyndastofan Mynd
sími: 65 42 07
Barna og fjölsk. myndir
sími: 677 644
Ljósmyndastofa Kópav.
sími: 4 30 20
Lystafjaóradýn u r
LystaJa tcxdýn u r
Lystasvampdýnur
DunlopiUo
Hcilsulzoddar
Rúmbotnar
m
Opió laugar-
daga UL 10~14
elliv
•ess
LYSTAO Ú N-SN ÆLAN D hf
Skútuvogi 11 • Sími 814Ó55