Morgunblaðið - 07.10.1993, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 1993
Skipstjóra- og stýrimanna-
félagrð Aldan 100 ára
eftir Lýð Björnsson
Veruleg breyting varð á menntun
og réttarstöðu skipstjórnarmanna á
síðasta tug 19. aldar, Stýrimanna-
skólinn tók til starfa árið 1891 og
Alþingi setti lög um atvinnu við
siglingar’tveimur árum síðar, en
þau lögvernduðu störf skipstjórnar-
.n manna. Lagasetningin mun hafa
ýtt við skipstjórnarmönnum í
Reykjavík. Asgeir Þorsteinsson
skipstjóri hvatti til félagsstofnunar
með þeim árangri að 26 skipstjórar
og stýrimenn stofnuðu Ölduna hinn
26. október 1893. Félagsmenn gátu
þeir einir orðið sem hföðu réttindi
til að stjóma skipi. Aldan er elstu
starfandi samtök sjómanna á ís-
landi og raunar einnig elsta eða að
minnsta kosti eitt elsta starfandi
félag manna með tiltekín lögvernd-
uð réttindi. Öldumenn hafa verið
trúir upprunanum. Varðstaðan um
réttindin og barátta gegn hvers
konar undanslætti á því sviði hefur
verið rauði þráðurinn í starfi félags-
> ins allt frá stofnun þess. Það hefur
oft þurft að mótmæla undanþágum
frá lögbundnum menntunarkröfum
og stundum harkalega.
Sjóslys voru tíð á árum áður og
áttu margir um sárt að binda af
þeim sökum. Öldumenn stofnuðu
Styrktarsjóð árið 1984, og átti hann
að létta félögum og ekki síður að-
standendum látinna félaga róðurinn
á erfiðleikatímum. Margir styrkir
voru veittir úr sjónum árlega fram
yfir heimsstyijöldina síðari, en þá
/y tók að halla undan fæti. Sjóðurinn
var í upphafi vistaður í Söfnunar-
sjóði íslands og átti þaðan ekki
afturkvæmt. Hann hlaut sömu ör-
lög og margir sjóðir aðrir og rýrn-
aði mjög í verðbólgubálinu á stríðs-
árunum og síðar. Margar tilraunir
voru gerðar til að ná Styrktarsjóði
Öldunnar út úr Söfnunarsjóði, en
þær voru allar árangurslausar.
Styrktarsjóðurinn var svo veikburða
orðinn á 7. áratugnum, að fé úr
honum var einungis nægilegt til að
greiða jólagjafir til ekkna fyrrver-
andi félagsmanna. Öldumenn stofn-
uðu þá annan sjóð, Styrktar- og
sjúkrasjóð, sem hefur síðan gegnt
hinu upphaflega hlutverki eldri
sjóðsins.
Aldan markaði sér félagssvæði
með stofnun Styrktarsjóðsins 1893,
félagsmenn skyldu búa við Faxa-
flóa. Þetta breyttist árið 1943, en
þá var mönnum utan Faxaflóa-
svæðisins heimilað að ganga í Öld-
Stofnendur skipstjóra- og stýrimannafélagsins Aldan árið 1893
Hér sjást myndir flcstra þcirra scm voru í frcmstu röð skipsstjórnarmanna
frá Rcykjavík fyrir síðustu aldamót. Þctta cru skipstjórar frá skútuöldinni
trsiAm rssnr
Bergur Sigurðsson Þorsteinn Þorsteinsson Markus F. Bjarnason Þorvaldur Jónsson Þorlákur Teitsson Petur Þorðarson Bergur Jónsson Marteinn Teitsson
Kir-Aor rr* vinsth:
Guðmundur Steíansson Páll Hafliðason Guðmundur Kristjansson Hannes Haíliðason Jens Nyborg Pétur Þórðarson Sigurður Simonarson
ÚjpriW. úipritaft uipiiit.v úiputoti úipuiori
HtDSTA »05 r»A TMTT.
Finnur Finnsson Sigurður Jónsson Jón Þórðarson
u.pwiw úipWiO'i liio Coifciml ^fiipúoii »0 Ciofyi
una, ef ekkert skipstjóra- og stýri-
mannafélag starfaði í heimabyggð
þeirra eða slíkt félag óskaði eftir
að sameinast Öldunni. Afleiðing
þessa varð sú, að margir skipstjórar
og stýrimenn í öllum útgerðarbæj-
um á Snæfellsnesi, Þorlákshöfn og
Höfn í Homarfirði gengu í Ölduna
á næstu árum, einkum þó um og
eftir 1960. Sérstakar félagsdeildir
voru stofnaðar í sumum þessara
þéttbýlisstaða, en síðar reyndi fé-
lagsstjórnin að efla tengslin við
þessa félagsmenn með heimsóknum
formanns og framkvæmdastjóra og
fundarhöldum.
Lítið kveður að kjarmálum innan
Öldunnar fyrstu hálfa öldina að
fyrsta starfsárinu undanskildu. Or-
sökin mun sú, að obbinn af félags-
mönnum var yfirmenn á þilskipum
og þar miðuðust laun við fornar
Stefán Pálsson Ásgeir Þorsteinsson Magnus Magnusson
ÚipWIMI UlptllOI, kolMtl
hlutaskiptareglur. Yfirmenn á tog-
urum virðast hafa erft þessar regl-
ur. Föst laun hafa raunar ætíð ver-
ið óverulegur hluti af Iaunum þeirra
yfirmanna sem fiskað hafa. Á
stríðsárunum síðari börðust Öldu-
menn við hlið annarra samtaka sjó-
manna fyrir sanngjarnri áhættu-
tryggingu til handa sjómönnum í
siglingum til Bretlands og Banda-
ríkjanna og með verulegum árangri.
Kjarmál háfa sett vaxandi svip á
félagsstarfið frá stríðslokum, ekki
síst mál annarra stýrimanna á tog-
urum, sem áttu ekki jafn fastan
sess í hlutaskiptakerfinu og aðrir
yfirmenn. Aldan tók þá einnig að
semja um kjör skipstjóra og stýri-
manna á hvalveiðibátum, skipum
Hafrannsóknastofnunar og sand-
dæluskipum, en þeir hafa verið fé-
lagar síðan á 6. áratugnum eða um
Ellerl Schram Stelán Snorrason Bjom Sveinsson
úipoiion úipoiMi
það bil. Kjaramál hafa sett vaxandi
svip á félagsstarfið síðastliðna hálfa
öld, ákvæði um aflatryggingu,
kauptryggingu, greiðslur í veik-
indatilvikum og vegna legu inni á
höfnum umfram tiltekinn tíma hafa
einnig sett vaxandi svip á samn-
inga.
Sú breyting hefur orðið á kjara-
baráttu Óldumanna síðustu áratugi
að „mjúku málin“ hafa sett vaxandi
svip á hana líkt og hjá öðrum félög-
um. Styrktar- og sjúkrasjóðsins var
áður getið. Lífeyrismál Öldumanna
komust í nokkurn vegin viðunandi
horf á tímabilinu 1957 og fram
yfir 1970. Orlofsmál hafa einnig
sett svip á starfsemina. Aldan hefur
tekið sumarhús á leigu fyrir félags-
menn erlendis og félagið á sumar-
hús í Brekkuskógi og eru þau eftir-
sótt. Félagið hefur rekið skrifstofu
.*
-tynr goltauka
ÍSLENSKAR
LEIÐBEININGAR
GÓLFHIRÐULÍNAN
l . FRÁ
-fyrír parket
ÍSLENSKAR
LEIÐBEININGAR
-fyrírJsU gólf
nema trégðlf
ÍSLENSKAR
LEIÐBEININGAR
GÓLFHIRÐULÍNAN
, FRA
ohnson
NYTT!
!ð
bónuð gó/f
ÍSLENSKAR
LEIÐBEININGAR
Lýður Björnsson
„Aldan markaði sér fé-
lagssvæði með stofnun
Styrktarsjóðsins 1893,
félagsmenn skyldu búa
við Faxaflóa. Þetta
bryttist árið 1943, en
þá var mönnum utan
Faxaflóasvæðisins
heimilað að ganga í
Olduna, ef ekkert skip-
stjóra- og stýrimanna-
félag starfaði í heima-
byggð þeirra eða slíkt
félag óskaði eftir að
sameinast Öldunni.“
síðan árið 1944, en fyrst var hún
aðeins opin stuttan tíma dag hvern.
Skrifstofuhald komst í fastara form
er Aldan keypti húsnæði á Báru-
götu 11 árið 1959. Skrifstofan flutt-
ist í Borgartún 18 árið 1978 og er
þar enn til húsa.
Fyrirlestrar um ýmis efni hafa
verið fluttir á Öldufundum, einkum
á fýrri árum. Aldan styrkti Jóhann-
es Kjarval myndarlega til myndlist-
arnáms árið 1912. Þá er félagið
elsti ævifélagi Slysavarnafélags Is-
lands.
Kvenfélagði Aldan, samtök eigin-
kvenna Öldumanna, var stofnað
árið 1959. Aldan og Kvenfélagið.
Aldan hafa átt með sér mikið sam-
starf, einkum í tengslum við árshá-
tíðir og jólatésskemmtanir, en síð-
arnefndu samkomurnar voru fyrst
haldnar fyrir síðustu aldamót.
Þessari grein er ætlað að minna
á merkisafmæli eins af elstu og
virðulegustu félögum landsins. Hún
gefur skiljanlega engan veginn við-
unandi mynd af félagsstarfinu í eina
öld, rými leyfði slíkt ekki. Öldu-
mönnum skal að lokum óskað til
hamingju með daginn.
Höfundur er sagnfræðingur.
----» ♦ ♦-
Félag íslenskra
náttúrufræðinga
Lokun
barna-
heimila
mótmælt
STJÓRN og kjararáð Félags ís-
lenskra náttúrufræðinga mót-
mælir einarðlega hugmyndum
heilbrigðisráðherra um lokun
barnaheimila spítalanna, segir í
fréttatilkynningu.
Einnig segir: „Margir félags-
menn eiga börn á þessum heimilum.
Lokun þeirra er kjaraskerðing og
brot á ráðningakjörum sem gengið
var út frá er fólk réði sig til starfa
Og hlýtur að kalla á viðeigandi við-
brögð af hálfu félagsins. Sparnaður
af lokunaraðgerðum þessum er
minni en enginn. í raun er hér á
ferð tilraun til að ýta fólki út af
vinnumarkaði og með því tapast
bæði fagþekking og starfsreynsla."