Morgunblaðið - 07.10.1993, Síða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 1993
BOLA-
PRENTUN
Prentum á boli fyrir
einstaklinga, fyrirtæki,
félagasamtök og stofnanir.
Tökum viö tilbúnum
fyrirmyndum eða útfærum
texta og teikningar eftir
ykkar hugmyndum.
Föst verðtilboð, góð og
hröð þjónusta.
SÍÐUMÚLA33
SÍMI 9T -81 41 41
Græðandi lína
Heilsufæði húðarinnar
□ Græðandi Banana Boat ALOE VERA gel, 99,7%
hreint. Hreinasta 09 ódýrasta Aloe Vera gelið á
markaðnum. 6 túpu- og brúsastærðir frá kr.
295,-.
□ Græðandi Banana Boat E-gel. Fæst einnig hjá
Samtökum psoriasis- og exemsjúkiinga.
□ Græðandi Banana Boat BODY LOTION með
100% Aioe Vera, A, B, D og E-vítamíni.
□ Húðstinnandi Banana Boat collagen &
elastin-gel.
□ Mýkjandl og hrukkuhindrandi Banana Boat A-gel.
□ Næringarkremið Banana Boat Brún-Án-Sólar. 3
gerðlr: Fyrir andlit, fyrir viðkvæma og fyrir
venjulega húð,
□ Nærandi Banana Boat djúpsðlbrúnkugel fyrir
Ijósabðð.
□ Banana Boat sðlbrúnkufestir fyrlr Ijósaböð.
□ Húðnærandl og frfskandl Banana Boat sturtu- og
baðgelán sápu.
□ Naturica hrukkubanlnn GLA+, 24. tíma krem.
□ Naturlca kvefbaninn Akta Propolis.
□ Naturlca Sólbrún-lnnan-Frá Beta Karotin-hylki.
□ C-vítamln lorðatöflur Irá Naturica og GNC.
□ Alnáttúrulegi svitalyktareyðirinn Le Crystal
Natorel kristalsteinninn.
□ Mega Acídophilus 12 slnnum sterkari en
venjulegur.
□ Yfir 20 tegundir af sjampóiog hárnæringu. M.a.
Banana Boat llækjubaninn, upplýsandi Banana
Boat bárnæring, sem lýslr hárlð á náttúmlegan
hátt, djúphreinsandi Naturade Aloe Vera sjampó,
uppbyggjandi Naturada Aloe Vera sjampó fyrlr
borra og slitna hárenda og skaðað hár af völdum
hárliðunarefna eða hárlltunar.
Biddu um Banana Boat, heilsufæði
húðarinnar, í apótekinu eða
snyrtivöruversluninni. Fæst lika i
ÖLLUM heilsubúðum utan
Reykjavíkur, líkamsræktar- og
sólbaðsstofum og hjá Samtökum
psoriasis- og exemsjúklinga (Banana
Boat E-gelið).
Heilsuval,
Barónsstíg 20, ®11275 og 626275.
JAPAN
Á TÍMAMÓTUM
é
Japanska þjóðin
elskar hvalkj öt
Texti og ljósmyndir Agnes Bragadóttir
I JAPAN þykir hvalkjöt hið mesta lostæti og á ferð minni um
Japan fékk ég gjarnan spurningu sem þá hvort ég lumaði
nokkuð á eins og einu vænu stykki hvalkjöts. í japanska al-
þjóða viðskipta- og iðnaðarráðuneytinu (MITI), sjávarútvegs-
ráðuneytinu og fiskveiðideild japanska utanríkisráðuneytisins
mátti ráða af máli viðmælenda minna að ákjósanlegt væri að
strandríki og eyþjóðir fengju að nýta þær náttúrulegu auðlind-
ir sem í sjónum eru í landhelgi þeirra, að því marki að verndar-
sjónarmiða væri gætt og engir stofnar væru í útrýmingar-
hættu. En sá fyrirvari var hafður á, að ekki mætti taka nein-
ar þær ákvarðanir, svo sem um hvalveiðar, sem stofnað gætu
viðskiptasamböndum í hættu, kallað yfir þjóðir viðskiptaþving-
anir eða jafnvel viðskiptabann. Því gætti mikillar varfærni í
máli embættismanna og stjórnmálamanna sem um málið ræddu,
þótt í hjarta sínu væru þeir þess augljóslega hvefjandi að
smáþjóðir sem hafa haft atvinnu af hvalveiðum í gegnum ár-
in, þjóðir eins og Norðmenn, íslendingar og Færeyingar,
reyndu að ryðja þyrnum stráða braut í átt til hóflegra hvalveiða.
Framtíð hvalveiða er í
hugum Japana mjög
óljós og ljóst af máli
þeirra að þeir vilja
gjarnan að smáþjóðir
eins og Noregur og ís-
land ryðji brautina,
þannig að japanskir
hvalfangarar geti á ný
hafið hvalveiðar, án
þess að Japan eigi yfir
höfði sér viðskipta-
þvinganir Bandaríkja-
manna
Öðru máli gegndi hins vegar
um forsvarsmenn bæjarfélags í
Norður-Japan, Ayukawa í Miyagi-
sýslu, skammt norður af Sendai.
Umfangsmiklar hvalveiðar voru
stundaðar þaðan, þar til hvalveiði-
bannið var sett á. Þar á bæ eru
menn ómyrkir í máli gagnvart
Alþjóðahvalveiðiráðinu og segja
afstöðu þess gagnvart hvalveiðum
ekki byggða á vísindalegum niður-
stöðum rannsókna á stærð hvala-
stofna, heldur einungis á tilfinn-
ingalegri afstöðu. Þeir eru enn
harðari í afstöðu sinni gagnvart
samtökum eins og Grænfriðung-
um og segja slík samtök ekki hafa
nokkurn rétt til að eyðileggja af-
komumöguleika heilu byggðarlag-
anna, með rökum sem öll séu til-
finningalegs eðlis, en ekki vísinda-
legs. Ibúatala Ayukawa hefur fall-
ið úr rúmlega 13 þúsund íbúum
niður í um 7 þúsund íbúa frá því
að hvalveiðibann tók gildi og
meðalaldur þeirra sem eftir eru
Yojiro Toba, forstjóri Toba-hvalveiðistöðvarinnar í Ayukawa, er
þess hvetjandi að Islendingar hefji hvalveiðar á nýjan leik.
í Ayukawa hefur myndarlegu
minjasafni verið komið upp um
þróunarsögu hvalsins, og er hún
rakin í máli, myndum og líkönum
allt aftur til risaeðla. Safnið ber
nafnið Hvalaland og þessi mynd
sýnir eina veggskreytingu þaðan.
er afar hár. Hvalveiðistöðvarnar í
Ayukawa, sem áður voru, eru nú
ýmist auðar eða með lítilsháttar
starfsemi, svo sem netaviðgerðir
og þess háttar. íbúarnir sem eftir
eru hafa hafið tilraunaeldi, bæði
á silfurlaxi í kvíum úti á firðinum,
á ostru og á ál, en bæjarstjórinn,
Shigehiko Azumi, segir að at-
vinnulíf sé ekki svipur hjá sjón
miðað við það sem áður var, auk
þess sem það sé skelfilegt fyrir
ekki stærra bæjarfélag en Ay-
ukawa, hversu mikið af hinum
ungu, dugmiklu mönnum, sem
áður höfðu atvinnu sína af hval-
veiðum og vinnslu, hafi nú flust á
brott ásamt fjölskyldum sínum, í
leit að betri afkomumöguleikum
en bæjarfélagið geti nú boðið upp
á.
Gagnrýna Grænfriðunga
Raunar virtist mér sem japansk-
ir embættis- og stjórnmálamenn
sem ræddu um hvalveiðar og hval-
veiðibann við mig, vildu að nokkru
leyti kenna ijölmiðlaumfjöllun um
hversu almenningsálitið víða í
heiminum og þá sérstaklega í
Bandaríkjunum væri gegn hval-
veiðum. Til dæmis sagði Satoshi
ft HARÐVKJARVAL HARÐ1 KRÓKHÁL /IÐARVAL HF. Sl 4 R. SÍMI 671010
Kolaportsdagar
til jóla!
_____________Brids__________________
Umsjón Arnór G. Ragnarsson
Bridsfélag Akureyrar
Nú er haftð Bautamót Bridsfélags
Akureyrar. Mótið er þriggja kvölda
tvímenningsmót með þátttöku 26
para. Að loknu fyrsta kvöldi er staða
efstu para sem hér segir:
PállPálsson-ÞórarinnB.Jónsson 376
Jónas Róbertsson - Sveinbjörn Jónsson 364
Skúli Skúlason - Stefán Stefánsson 364
Reynir Helgason - Sigurbjöm Haraldsson 360
Hermann Tómasson - Ásgeir Stefánsson 351
Meðalskor er 312.
Bridsfélagið gengst einnig fyrir
spilakvöldum í starfsmannasal KEA í
Sunnuhlíð á sunnudagskvöldum.
Fyrsta spilakvöldið var síðastliðinn
sunnudag og var þátttaka fremur
dræm. Hún á þó örugglega eftir að
glæðast. Röð efstu para varð sem hér
segir:
Anton Haraldsson - Magnús Magnússon 109
Reynir Helgason - Sigurbjöm Haraldsson 93
Skúli Skúlason - Sigurbjöm Þorgeirsson 92
Með spilakvöldum á sunnudögum
gefst spilurum tækifæri til þess að
koma og grípa í spil kvöld og kvöld
en eru ekki bundnir af löngum mótum.
Spilarar sem litla sem enga reynslu
hafa af keppnisbrids eru hvattir til að
koma og taka þátt í eins kvölds keppni.
íslandsmótið í einmenningi
9.-10. okt.
íslandsmótið í einmenningi verður
haldið í Sigtúni 9, helgina 9.-10. okt.
Skráningu lauk mánudaginn 5. okt.
og skráðu sig 96 manns og verður
spilað í sex sextán manna riðlum.
Spilaðar verða þrjár þrjátíu spila lotur
og er spilatími frá kl. 11.00 á laugar-
dag til 15.16, hlé til 16.00 og seinni
lotan á laugardag endar 20.15. Byijað
verður aftur kl. 11.00 á sunnudag og
spilað til 15.15 en þá lýkur mótinu
með verðlaunaafhendingu. Núverandi
íslandsmeistari í einmenningi er
Magnús Magnússon frá Akureyri og
er hann meðal keppenda og mun vafa-
laust reyna að veija titilinn. Keppnis-
stjóri verður Kristján Hauksson.
Bridsfélag Sauðárkróks
Vetrarstarf Bridsfélags Sauðár-
króks er nú hafið. Fjórða október sl.
var sj+ilaður tvímenningur með forg-
jöf. Urslit urðu þannig:
Sigurgeir Angantýsson - Bjami Brynjólfsson 51
Haukur Haraldsson - Erla Guðjónsdóttir 48
ÞórdísÞormóðsdóttir-ElísabetKemp 44
I vetur verður spilað í félagsheimil-
inu Bifröst vikulega á mánudagskvöld-
um kl. 19.45.
Firmakeppni Bridssambands
Islands 1993
Firmakeppni Bridssambanda ís-
lands er á dagskrá helgina 23.-24.
október nk. Skráning e_r hafín á skrif-
stofu Bridssambands íslands í síma
91-619360. Spiluð verður sveítakeppni
með Monrad-sniði, 7 umferðir. í
Monrad-kerfi mætast alltaf sveitir
Helgarnámskeið með Gurudev
Máttur sjálfsvitundar
Námskeiðið verður haldið í íþróttahúsinu
við Strandgötu í Hafnarfirði, dagana 22. október - 24 október.
tóeaslöðin _
HElMSUOS
Skeifunni 19, 2. hæð, sími: 91-679181.
Innritun og miðasala í Jógastöðinni Heimsljósi alla virka daga
frákl. 17.00- 19.00.
Verð: 9.800 kr. fyrir einstaklinga, 18.600 kr. fyrir hjón, 7.000 kr. fyrir námsmenn,
1.000 kr. fyrir föstudag, 6.000 kr. íyrir laugardag, 3.500 kr. fyrir sunnudag.
Gurudev (Yogi Amrit Desai)
upphafsmaður Kripalujóga