Morgunblaðið - 07.10.1993, Page 36
T86
>; ('MD RQ U N BIiA Ð IÐí [FIM/MT tl D A'CCJR' 77 (T0KT 0 BBB (11393
Þórdís S. Friðriks-
dóttir — Minning
Fædd 3. mars 1953
Dáin 28. september 1993
Þau ljós sem skærast lýsa
þau ljós sem skína glaðast
þau bera mesta birtu
en brenna líka hraðast.
Og fyrr en okkur uggir
fer um þau harður bylur
er dauðans dómur fellur og
dóm þann enginn skilur.
En. skinið loga skæra
sem skamma stund oss gladdi
það kveikti ást og yndi
með öllum sem það kvaddi.
Þótt burt úr heimi hörðum
nú hverfi ljósið bjarta
þá situr eftir ylur
í okkar mædda hjarta. ._ .. .
(F.G.Þ.)
Ástkær systir, mágkona og
frænka, Þórdís Soffía Friðriksdóttir,
lést í Landspítalanum 28. september
sl. eftir mikil veikindi. Það sýndi sig
best hversu viijasterk og dugleg kona
hún var, í þessari baráttu. Hún var
ákveðin að gefast ekki upp, sem hún
þó varð að lokum að gera.
Þórdís var fædd 3. mars 1953 og
var næst elst af fímm bömum hjón-
anna Friðriks Sófussonar og Ingunn-
ar Hlínar Björgvinsdóttur. Hinn 7.
febrúar 1974 gekk hún í hjónaband
með Kareli Kristjánssyni og eignuð-
ust þau tvö böm, Friðrik Inga, 17
ára, og Þórdísi, 11 ára. Fjölskyldan
var henni allt og bar hún hag bam-
anna sinna mjög fyrir bijósti og var
óþreytandi að fylgja þeim eftir, hvort
sem var í starfí eða Ieik. Kærleikur
og djúp vinátta einkenndi samband
Dísu og Kalla og kom það best fram
í veikindum hennar, en hann studdi
hana á allan hátt. Missirinn er mik-
ill og ótímabær, en minningin um
góða eiginkonu og móður verður ljós-
ið í myrkrinu.
Margar góðar minningar eigum
við um Dísu og hæst ber hversu
skapgóð og jákvæð hún var. Það var
alltaf gaman að hittast og spjalla
um allt milli himins og jarðar, hvort
sem það voru áhugamálin eða hvað
annað sem á góma bar. Að leiðarlok-
um viljum við þakka Dísu allar góðar
og skemmtilegar stundir sem við
áttum saman og biðjum Guð að
styrkja alla ástvini hennar.
Björgvin, Adda,
Andrea og Karen.
Haustið er búið að vera gott við
okkur, hlýir vindar og logn. Þegar
veðrið er gott er auðveldara að tak-
ast á við vetur konung sem kemur
hægt og sígandi. Það er ekki ein-
göngu veturinn sem getur verið erfið-
ur heldur tilveran öll þegar náin vin-
kona í blóma lífsins hverfur svo
snögglega frá okkur. Hún Dísa vin-
kona, eins og við kölluðum hana allt-
af, er farin. Hvemig má það vera?
Við viljum svo gjaman að lífíð haldi
áfram eins og það var sem best.
Minningarnar eru svo margar sem
koma fram í hugann. Við vorum
búnar að vera vinkonur frá því við
vorum sjö ára. Það byijaði vorið
1961, þegar sjö íjölskyldur fluttust
í blokkina á Grensásvegi 52. Það
voru um það bil 25 börn sem fylgdu
með í þessum flutningum. Hvílík
böm og hvílíkur atgangur. í þessum
hópi vomm við þijár stelpur á svipuð-
um aldri: Dísa, Gunna og Sigrún.
Seinna bættust Steinunn, Ella og
Una í hópinn. Þarna mynduðust sterk
vinatengsl sem aldrei hafa rofnað
þrátt fyrir íjarlægðir og annir sem
því fylgja þegar fóik eignast sína
eigin fjölskyldu.
Dísa vinkona var alveg einstaklega
lifandi persóna. Það var aldrei nein
lognmolla í kringum hana Dísu. Hún
sagði alltaf meiningu sína þó að það
kæmi henni oft og tíðum í stökustu
vandræði. Við dáðumst oft að henni
fyrir kjarkinn þó að öðrum þætti hún
standa uppi í hárinu á fólki. Dísa
vildi láta ævintýrin gerast og ef þau
komu ekki þá bjó hún þau til. Okkur
er minnisstætt hvemig við bjuggum
til okkar eigin ævintýri eftir að hafa
farið á þijúbíó á sunnudögum. Þá
fómm við í þykjustuleiki, endursömd-
um handritið og þóttumst tala ensku
og létum peysurnar öfugar á hausinn
svo að við væmm með sitt hár.
Unglingsárin vom spennandi fyrir
okkur allar, ekki síst Dísu sem var
full af ævintýraþrá. Hún var leitandi
og fór víða í þeirri leit, en alltaf kom
hún til baka til okkar. Við vinkonurn-
ar höfðum alltaf mikla þörf fyrir að
tala saman og það gerðum við svo
sannarlega, oftar en ekki heima hjá
Dísu. Þar máttum við alltaf vera
þótt þröng væri á þingi. Dísa var svo
heppin að heima hjá henni var stór
grammófónn og það sem best var
að hann var inni í herberginu henn-
ar. Þarna var setið og hlustað á Led
Zeppelin og Deep Purple og sungið
með. Dísa var mjög umhyggjusöm
og hlý manneskja og kom það vel í
starfí hennar sem sjúkraliða. Sér-
staklega líkaði henni vel að vinna
með gamla fólkinu í Hafnarborg.
Dísa var innan við tvítugt þegar
hún kynntist Kalla. Okkar fannst það
dálítið skrýtið að Dísa væri komin
með alvöru kærasta en ekki við. Það
rættist nú úr því með tímanum og
allar höfum við eignast fjölskyldur.
Við héldum áfram að hittast í bama-
afmælum, saumaklúbbum og öðrum
skemmtunum. Þar áttum við
ánægjulegar stundir saman.
Dísa og Kalli eignuðust tvö börn;
Friðrik Inga og Þórdísi. Samband
Dísu og Kalla einkenndist af sam-
heldni og virðingu. Þau stóðu þétt
saman í gleði og sorg.
Elsku Kalli, Friðrik Ingi, Þórdís
og fjölskylda, við biðjum góðan Guð
að styrkja ykkur í sorg ykkar og
söknuði.
Við vinkonurnar þökkum Dísu fyr-
ir vináttu hennar og geymum minn-
ingu hennar í hjarta okkar.
Guðrún, Sigrún, Steinunn,
Elín og Una.
í dag, fímmtudag 7. október, verð-
ur borin til moldar mágkona mín,
Þórdís' S. Friðriksdóttir, fertug að
aldri.
Það var fyrir rétt rúmum 22 árum
að Kalli bróðir minn kynnti Dísu,
eins og hún var ætíð kölluð, fyrir
fjölskyldu sinni. I huga bamsins var
þessi samkeppni um hylli bróðurins
ekki vel þegin og í byijun var þetta
samband litið hornauga, en það átti
eftir að breytast þegar mér auðnað-
ist þroski til að meta þá mannkosti
sem hún hafði að geyma.
Dísa var fædd 3. mars 1953 í
Reykjavík. Foreldrar hennar eru
Friðrik Sófusson sendibílstjóri í
Reykjavík og Ingunn Björgvinsdóttir
sjúkraliði. Hún var næstelst af fímm
systkinum og em systkini hennar
Björgvin, Marinó, Guðný og Frið-
gerður. Dísa gekk að eiga eftirlif-
andi maka sinn Karel Kristjánsson
setjara hinn 7. febrúar 1974. Þeim
varð tveggja bama auðið. Þau eru
Friðrik Ingi, fæddur 30. október
1975, nemi í Menntaskólanum við
Sund og Þórdís, fædd 9. mars 1982,
nemi í Langholtsskóla, sem nú sjá á
eftir ástríkri og umhyggjusamri móð-
ur.
Það sem stendur upp úr í minning-
unni um Dísu er hversu gífurlegum
krafti og dugnaði hún virtist búa
yfir. Ef eitthvað þurfti að gera þá
var það gert samstundis og án nokk-
urra málalenginga. Allt sem hún tók
sér fyrir hendur var gert af mikilli
ástríðu og alúð. Þau Kalli lögðu stund
á dansnám í nokkur ár og var metn-
aður hennar mikill í að ná leikni á
dansgólfinu. Einnig hafði hún mikinn
áhuga á að spila brids og hjálpaði
það henni í erfíðum veikindum áð
gleyma sér í spilamennsku. Hún tók
þátt í áhugamálum bama sinna af
lífí og sál og taldi aldrei eftir sér
nein aukaspor í því sambandi. Frið-
rik sonur hennar lagði fyrir sig dans-
nám og ég held að engin móðir hefði
getað verið hreyknari en hún þegar
hann vann til verðlauna í tengslum
við það.
Bróðir minn hefur átt við mikil
veikindi að stríða. í hans veikindum
stóð hún við hlið hans sterk sem
klettur og seinna í sínum eigin veik-
indum lét hún aldrei neinn bilbug á
sér fínna og hvarflaði ekki annað að
henni en að henni tækist að sigrast
á þeim. Sýndi hún mikinn styrk og
æðruleysi. Fram á dauðastund voru
hennar hugsanir helgaðar velferð
bamanna og heimilisins.
Dísa var sjúkraliði og starfaði
lengst af í Hafnarbúðum. í starfí
sínu var hún vel liðin og fær í starfí.
Henni var mikið kappsmál að aldrað-
ir nytu þeirrar virðingar sem þeim
bæri og fengju að halda sinni reisn
til _síðustu stundar.
í huga mér og minnar fjölskyldu
er eftirsjá að því að hafa aldrei þakk-
að Dísu allt það sem hún hefur gert
fyrir okkur og þá sérstaklega hvað
hún reyndist Kalla vel alla tíð. Ein-
hvem veginn er það svo að maður
heldur að það sé nægur tími til alls
slíks.
Elsku Kalli, Friðrik og Þórdís, guð
gefí ykkur styrk í sorg ykkar. Dísa
mín, þín verður sárt saknað en við
eigum allar góðu minningamar til
að ylja okkur við. „Hinir dánu eru
ekki horfnir að fullu. Þeir em aðeins
komnir á undan (Cypríanus).“ Bless-
uð sé minning þín og þakka þér fyr-
ir allt.
Hlédís Þorbjörnsdóttir.
Þau vom þung og erfíð sporin,
þriðjudaginn 28. september síðastlið-
inn, er við fómm upp á Landspítala
til þess að kveðja elsku Dísu okkar
í síðasta sinn. Þann dag varð hún
að lúta í lægra haldi fyrir þessum
geigvænlega sjúkdómi sem sigraði
að lokum. Okkur fínnst það ósann-
gjamt, að ung kona í blóma lífsins
sé hrifín á brott, frá eiginmanni og
bömum. Hver er tilgangurinn?
Dísa fæddist hinn 3. mars 1953,
dóttir hjónanna Ingunnar Hlínar
Björgvinsdóttur og Friðriks Sófus-
sonar. Hún var önnur í röðinni af
fímm systkinum, en þau era: Björg-
vin Steinar, Friðrik Marinó, Guðný
Hlín og Friðgerður María.
Dísa giftist eftirlifandi manni sín-
um, Karel Kristjánssyni, hinn 7. febr-
úar 1974. Þau eignuðust tvö mann-
vænleg böm, Friðrik Inga, 17 ára,
og Þórdísi, 11 ára, og em þau bæði
nemar og búa í foreldrahúsi. Dísa
var sjúkraliði að mennt og starfaði
hún síðustu ár í Hafnarbúðum og
hlúði þar að öldruðum og sjúkum.
Eitt af hennar stærstu áhugamál-
um var brids. Hún gleymdi bæði
stund og stað yfír spilum. Hún var
búin að fara í Bridsskólann til þess
að læra. Hún var ákveðin í að fara
í áframhald í Bridsskólanum eftir
áramót; það sannar áhugann. Þær
voru góðar stundirnar sem setið var
yfír spilum hvort sem það var hjá
okkur, Dísu og Kalla, eða í Sólheim-
um hjá tengdaforeldmm Dísu.
Dísa var yndisleg manneskja, bæði
hlý og mannleg. Margar góðar stund-
ir áttum við saman. Þeim fjölgaði
þegar Dísa _og Kalli festu kaup á
íbúð sinni í Álfheimum 9, því að það
var aðeins eitt hús sem skildi okkur
að. Það var ósköp þægilegt að
skreppa yfír í morgunkaffí og spjall.
Það er búinn að vera erfiður tími
frá því að Dísa greindist með krabba-
mein og fór í aðgerð fyrir rúmlega
einu ári. Eftir það urðum við vongóð
og trúðum á að allt yrði í góðu lagi.
Það gekk allt vel um tíma, en þá kom
áfallið. Sjúkdómurinn hafði tekið sig
upp aftur. Dísa var baráttukona og
barðist til hinstu stundar. Nú eru
allar þjáningar á bak og burt og nú
líður henni vel.
Fari hún í friði og friður guðs sé
með henni.
Elsku Kalli, Friðrik Ingi, Þórdís,
Inga, Frissi, Þórdís og Lúlli, algóður
guð styrki ykkur og styðji í þessari
þungbæm sorg. Okkur langar að
þakka starfsfólki krabbameinsdeild-
ar Landspítalans fyrir alla hlýju og
hjálp við Dísu og okkur aðstandend-
ur hennar.
Algóður guð blessi elsku Dísu okk-
ar.
Marinó og Gunnrún.
Fagurgræn lauf sumarsins em að
fölna um leið og fregnin um lát Þór-
dísar S. Friðriksdóttur berst mér.
Ég kynntist Þórdísi fyrir allmörg-
um ámm þegar hún kom með sex
ára son sinn í skóla til mín. Litii
sonurinn ljóshærði bar öll merki þess
að eiga umhyggjusama foreldra og
var glaður í bragði. Hann var i bekk
hjá mér í rúmlega fimm ár og aldrei
hafði Þórdís svo mikið að gera að
hún gæfi sér ekki tíma til að vinna
í foreldrafélagi bekkjarins við að
skipuleggja og taka þátt í bekkjar-
kvöldum, vettvangsferðum eða öðm
því er viðkom starfí sonarins í skólan-
um. Ef ég ætti að nefna dæmi um
hvemig samvinna heimilis og skóla
gæti best verið myndi starf Þórdísar
falla vel inn í það, en hjónin bæði
vom mjög samhent við að taka þátt
í öllum áhugamálum barna sinna og
stuðla að velferð þeirra.
Þórdís og Karel áttu tvö börn,
Friðrik Inga og Þórdísi, en eins og
áður hefur komið fram var Friðrik
Ingi nemandi minn fyrstu fimm og
hálfa árið í gmnnskóla. Friðrik Ingi
lék á trompet í Lúðrasveit Laugar-
nesskóla og Þórdís móðir hans starf-
aði í foreldrafélagi sveitarinnar af
miklum krafti eins og hennar var von
og vísa. En árin liðu og leiðir skildu
um tíma.
Næst hitti ég Þórdísi þar sem við
vomm í sama dansskólanum og að
sjálfsögðu var hún ekki bara þar
með eiginmanninum, heldur vom
bæði börnin þar líka. Fjölskyldan
hélt saman eins og ævinlega, áhuga-
mál eins í fjölskyldunni var áhuga-
mál allra.
Reyndar valdi svo dóttirin aðra
tómstundaiðju og aðstæður leyfðu
ekki að Þórdís og Karel sæktu dans-
skólann áfram, en Þórdís studdi son-
inn sinn við dansnámið, hjálpaði hon-
um að eignast smekklega búninga
til að keppa í og naut þess að sjá
framfarir hans á dansgólfinu eins
og hún hafði líka gert þegar hann
var að öðlast leikni í lestri í sex ára
bekk. Móðummhyggjan var alltaf sú
sama. Hún lét sig aldrei vanta þegar
Friðrik Ingi var að keppa í dansi þó
að heilsan væri ekki alltaf góð. Og
þrátt fyrir sjúkdóm starfaði hún í
t
Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma,
SIGURVEIG ÁSTGEIRSDÓTTIR,
Kvisthaga 8,
Reykjavík,
lést í Landspítalanum að morgni 5. október.
Jarðarförin auglýst síðar.
Þorsteinn Finnbogason,
börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
ERLA GUNNARSDÓTTIR,
Stóragerði 16,
er lést 28. september í Borgarspítalanum, verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju föstudaginn 8. október kl. 13.30.
Ragnheiður Jósúadóttir, Ingi Þ. Gunnarsson,
Y Borghildur Jósúadóttir, Sveinn Kristinsson,
Erla Ingvarsdóttir,
Ragnar Ingi Ingason,
Vésteinn Sveinsson,
Bergþóra Sveinsdóttir.
t
Móðir mín og systir okkar,
STEINUNN ÞORSTEINSDÓTTIR
frá Grund i Svfnadal,
Flókagötu 7,
Reykjavík,
andaðist að kvöldi 5. október.
Ásta Sigfúsdóttir,
Þóra Þorsteinsdóttir,
Guðmundur Þorsteinsson,
Þórður Þorsteinsson.
+
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
MARGRÉT RÖGNVALDSDÓTTIR
frá Hrólfsstöðum,
Skagafirði,
sem lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 22. september, verður jarðsung-
in frá Víðistaöakirkju, Hafnarfirði, föstudaginn 8. október kl. 15.00.
Marfa Þorsteinsdóttir,
Birna Þorsteinsdóttir,
Hinrik Albertsson
og barnabörn.
ERFIDRYKKJUR
Verð frá kr. 850-
Erfidrykkjur
Glæsileg kiiHi-
lilaölx>rö tallegir
salii* ot» mjög
góð þjónusta.
IJpplvsiiigíU’
í súna 2 23 22
FLUGLEIDIR
HtTU MIFTLEIHIK