Morgunblaðið - 07.10.1993, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 1993
47
Um veðurfregriir
Frá Páli Bergþórssyni:
Árni E. Valdimarsson skrifar
hugleiðingar um veðurstofu og veð-
urfregnir í Morgunblaðið 1. október
sl. Síðan höfum við Árni átt vinsam-
legt símtal um þetta efni og ég
hygg að eftir það hafi okkur borið
fátt í milli. En vegna annarra les-
enda tel ég nauðsynlegt að koma á
framfæri nokkrum athugasemdum.
1. Sá siður að leysa skeyti frá
veðurstöðvum á undan spá er ekki
nýr. Það er aldarfjórðungur síðan
farið var að lesa þessi skeyti klukk-
an 18.45 og síðan veðurspána rétt
á eftir. Ég minnist þess ekki að
yfir þessu væri kvartað fyrr en eft-
ir að sami háttur var tekinn upp á
öðrum veðurfregnatímum fyrir einu
ári. Þessi tilhögun er að því leyti
rökrétt að hún beinir athyglinni
fyrst að allra nýjustu fregnum, sem
eru þýðingarmiklar í öryggisskyni,
en í eðlilegu framhaldi af þeim kem-
ur spáin. Sú framför varð haustið
1992 að nýjustu veðurskeyti eru
nú lesin í öllum veðurfregnatímum,
en áður var það aðeins gert fjórum
sinnum á sólarhring. Þeirri viðbót
hafa hlustendur tekið mjög vel,
einkum sjómenn, enda eiga þeir
manna mest undir því að fá sem
oftast fréttir af nýjustu veðrabrigð-
um, ekki aðeins af spánni.
2. Það var alls ekki í fyrsta skipti
haustið 1992 sem veðurfregnir voru
færðar til í dagskránni. Fyrir 1968
var meðal annars óhjákvæmilegt
að færa flesta veðurfregnatíma til
tvisvar á ári vegna klukkubreytinga
haust og vor. Fólk kvartaði ekki
yfir þessu hringli því að það skildi
að þetta var gert til þess að veður-
fregnirnar yrðu í sem bestu sam-
ræmi við tíma veðurathugana, sem
til dæmis voru klukkan 2 að vetri
en 3 að sumri. Þess vegna voru
veðurfregnir alltaf kl. 3.30 á vet-
urna en 4.30 á sumrin, 90 mínútum
eftir athugun. Breytingin haustið
1992 var einmitt til þess .ætluð að
laga alla veðurfregnatíma eftir at-
hugunartímum samkvæmt þessari
reglu, þó að það tækist ekki að
fullu vegna afstöðu útvarpsins.
Gott er að heyra að Árna þykir
veðurfregnatíminn kl. 7.30 mjög
heppilegur. Þessa fyrstu aðalspá
sem fólk heyrir að deginum þarf
að undirbúa rækilega, enda hefur
veðurfræðingur til þess gott ráð-
rúm, og þá liggur oftast fyrir all-
mikið af nýjum veðurskeytum og
veðurtunglamyndum í kringum
landið, ólíkt því sem er fyrir næstu
aðalspá á undan, klukkan 4.30.
Fyrir aukatímann kl. 6.45 er ekki
fullnægjandi tími til að gera nema
smábreytingar á spánni og það í
flýti.
3. Lestur veðurstöðva í staðar-
falli (þágufalli) er í samræmi við
álit ýmissa fremstu kunnáttumanna
í íslensku máli, svo sem Helga
Hálfdanarsonar ljóðaþýðanda, Gísla
Jónssonar menntaskólakennara og
Baldurs Jónssonar prófessors og
forstöðumanns Islenskrar mál-
VELVAKANDI
MISSKILNINGUR
SELMU VEGNA
KVITTANA
JÓNA Guðmundsdóttir, for-
stöðumaður Félagsmiðstöðva
aldraðra, Lönguhlíð 3, hringdi
til Velvakanda vegna pistils
Selmu um gjaldtöku fyrir ýmsa
þjónustu á vegum Félagsmið-
stöðvanna. Hún vildi taka það
skýrt fram að allir fengju kvitt-
anir fyrir þeim greiðslum sem
fólk innti af hendi. Hún sagði
að það væri einnig rétt að fólk
tæki nú þátt í þeim kostnaði sem
af þessu starfi hlýst, en það
væru 300 krónur á mánuði fýrir
hvern einstakan þátt sem í boði
er og er þá fijáls mæting, þ.e.
fólk ræður hvort það mætir einu
sinni í viku eða einu sinni á
dag. Númeraðar kvittanir eru
gefnar fyrir allri þessari þjón-
ustu. Það á einnig við um hár-
greiðslu og fótaaðgerðir.
TAPAÐ/FUNDIÐ
Jakki tapaðist
ULLARJAKKI með húslyklum
tapaðist í miðbænum um helg-
ina. Finnandi vinsamlega hringi
í síma 10697.
Orðsending frá Hagrögnum
LEÐURJAKKI: Hingað hringdi
nýlega stúlka vegna leðuijakka
og biðjum við hana vinsamlega
að hringja í okkur aftur. Einnig
viljum við vekja athygli fólks á
því að hér á Melabraut 18 höfum
við ógrynni hluta af ýmsu tagi
sem fundist hafa í strætisvögn-
um og biðskýlum. Vekjum at-
hygli á: Úlpum, húfum, treflum,
lúffum, handklæðum, leikfimi-
fötum, töskum, gleraugum,
tölvuleikjum og ýmsu fleiru. Það
getur borgað sig að hafa sam-
band við okkur því það liggja
verðmæti í þessum hlutum.
Hagvagnar hf.,
Melabraut 18,
Hafnarfirði,
sími 654566.
Hálsmen tapaðist
HÁLSMEN með steini, svoköll-
uðum blóðsteini, á silfurkeðju
tapaðist, líklega á leiðinni frá
Búðagerði 5 að strætisvagna-
skýli á Bústaðavegi fímmtudag-
inn 30. september sl. Finnandi
vinsamlega hringi í síma 14441.
Gullúr tapaðist
GULLÚR tapaðist í Fífuseli,
Fljótaseli, Flúðaseli eða við póst-
húsið í Mjódd sl. föstudag.
Finnandi vinsamlega hringi í
síma 73197 á kvöldin.
Gleraugu fundust
GLERAUGU í brúnni umgjörð
fundust að morgni fímmtudags-
ins 30. september á gangstéttinni
milli Suðurvers og Menntaskól-
ans við Hamrahlíð. Þetta eru fjar-
sýnisgleraugu. Upplýsingar í
síma 691323 á milli kl. 10 og
12 og 14 og 16.
Týnt hjól
GRÁTT tólf gíra Murrey-reiðhjól
með gylltu frambretti en svörtu
afturbretti hvarf frá Basrmahlíð
42 aðfaranótt sl. sunnudags.
Hafí einhver orðið hjólsins var
er hann vinsamlega beðinri að
hringja í síma 627987.
GÆLUDÝR
Ponsa er týnd
GULBRÖNDÓTT læða týndist í
Hafnarfirði sl. miðvikudag.
Mögulegt er að hún sé á leið í
Garðabæinn, en þar á hún heima.
Hafi einhver orðið ferða hennar
var er hann vinsamlega beðinn
að láta vita í síma 657790.
Kettlingar
TVEIR yndislegir kettlingar,
fress og læða, fást gefins. Upp-
lýsingar í síma 811289.
Kettlingur
ÞRIGGJA mánaða gömul læða,
grábröndótt, óskar eftir að kom-
ast á gott heimili. Upplýsingar í
síma 46289.
stöðvar. Baldur telur að þessi til-
högun í lestri veðurfregna kunni
meira að segja að stuðla að því að
varðveita ævaforna notkun staðar-
fallsins, til dæmis í utanáskriftum
og undirritun bréfa. Ekki er ástæða
til að láta í þessu efni ráða smekk
útlendinga, sem stöku sinnum
kunna að leggja eyru við íslenskum
veðurfregnum. - Stöðvarnafnið
Breiðavík er eins í nefnifalli og
þágufalli eftir héraðsvenju. -
Ammasalik er þannig ritað á nýj-
ustu kortum sem hafa verið gefín
út af Grænlandi.
4. Það er gömul venja á Veður-
stofunni að tilgreina staði lægða
og hæða með íjarlægð í kílómetrum
frá kennileitum á landi og nú hefur
sá háttur líka verið tekinn upp til
að skýra frá stöðu skipa,_sem senda
veðurskeyti. Eins og Árni tekur
fram munu flestir aðrir en sjómenn
vilja nota kílómetra fremur en sjó-
mílur í þessu skyni og gera sér
ekki grein fyrir hvar skip er, ef
hnattstaðan er tilgreind með breidd
og lengd eins og áður var gert. En
sjómönnum og sérstaklega skip-
stjórnarmönnum er líka hægur eft-
irleikurinn að breyta kílómetrum í
sjómílur, en til þess er í þessum
tilfelllum oftast fullnægjandi ná-
kvæmni að deila í kílómetratöluna
með tveimur.
5. Það er góð hugmynd Árna að
þulir veðurfregna kynni sig. Reynd-
ar væri enn meiri ástæða til þess
að sagt væri hvaða veðurfræðingur
hefði s_amið spána.
6. Árið 1983 hætti þáverandi
þjóðgarðsvörður að gera veðurat-
huganir á Þingvöllum. Síðan var
veðurskeytastöðin að Heiðarbæ til
1990, en eftir það hefur ekki tekist
að fá athuganir gerðar á því svæði.
7. Það barst í tal milli okkar
Árna að frá því í fyrrahaust eru
stormviðvaranir og stuttar veður-
fregnir, eða veðurfregnir í fullri
lengd, alltaf fluttar á Rás 2 á
þriggja tíma fresti þegar þess er
kostur. Fyrir bragðið eru hlustendur
veðurfregna stórum fleiri en áður.
Útvarpsráð samþykkti sumarið
1992 að stuttar spár yrðu með frétt-
um kl. 12.20 og 19.00 eins og kl.
8.00, en því hefur ekki fengist fram-
gengt. Það væri þó til mikilla þæg-
inda fyrir þá mörgu hlustendur sem
hentar þessi framsetning veður-
fregna. Þó eru stormviðvaranir
lesnar í þessum fréttatímum.
8. Við Árni teljum báðir að við-
varanir um illviðri beri að lesa í
útvarp á milli reglulegra veður-
fregnatíma, ef sérstök ástæða er
til, eins og til dæmis var 17. mars
í vor þegar mannskaði varð við
Akranes. Vonandi tekst að koma
þvi til leiðar innan skamms, enda
fer nú vetur í hönd.
PÁLL BERGÞÓRSSON,
veðurstofustjóri.
Pennavinir
Svissneskur póstkortasafpari vill
skiptast á kortum:
Frank Stettler,
Haupstrasse 83,
CH-8264 Eschenz TG,
Switzerland.
Frá Ghana skrifar 22 ára stúlka
með áhuga á tónlist:
Nana Mensah,
P.O. Box 987,
Oguaa,
Ghana.
Fimmtugur- bandarískur karl-
maður sem getur ekki áhugamála
annarra en að eignast íslenska
pennavini:
Bob Weick,
2740 Cropsey Ave,
Brooklyn,
N.Y. 11214,
U.S.A.
LEIÐRÉTTIN G AR
Föðurnafn
brenglaðist
í minningargréin Bryndísar
Svavarsdóttur um Vilhjálm Ingólfs-
son málarameistara í Morgunblað-
inu í gær brenglaðist föðurnafn
ömmu hins látna, móður síra Ing-
ólfs Þorvaldssonar. Hún hét Jónat-
anía Sólveig Kristinsdóttir. Hlutað-
eigendur eru beðnir afsökunar á
þessum mistökum.
| KARAMELLPOJKARNA1
Beiskur brjóstsykur - einnig án sykurs
Laufld
Glœsilegurfatnaður d góðu verði.
, Iðnaðarhúsinu, s. 11845.
Schiesser#
N Æ R F Ö T
Það besta næst pér!
maxFactor
INTE RNATIONAL
Nýja Max Factor naglalakkið er
demanthart og endingin ótrúleg