Morgunblaðið - 20.10.1993, Síða 1
56 SIÐURB/C
238. tbl. 81.árg.
MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 1993
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Fornleifafundur aldarinnar í Danmörku
Bronsaldarsverð
í kartöflug'arði
Kaupmannahöfn. Frá Sigrúnu Davíðsdóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
MERKAR fornleifar fundust á Djurslandi í Danmörku í fyrradag,
sjö sverð frá bronsöld, 1600-1500 f.Kr. Er talað um fundinn sem
fornleifafund aldarinnar en finnandinn er ellefu ára gamall strák-
ur, sem var að hjálpa fjölskyldu sinni við að taka upp kartöflur.
Diuga að senda samveld-
isher til hjálpar Georgíu
Rússar þvertaka fyrir einhliða afskipti af borgarastyrj öldinni í landinu
Porí í Finnlandi, Tbilisi. Reuter.
PAVEL Gratsjov, varnarmálaráðherra Rússlands, sagði í gær
að Rússar gætu ekki gripið til hernaðaraðgerða í Georgíu
þar sem hægt væri að túlka slíkt sem íhlutun í innanríkismál
annars ríkis. Hann sagði hins vegar að rússneskir, azerskir,
armenskir og georgískir hermenn kynnu að verða sendir til
Tbilisi, höfuðborgar Georgíu, að beiðni Edúards She-
vardnadze, leiðtoga Georgíu, til að tryggja að matvæli og lyf
bærust til landsins.
Torben var við kartöflutínsluna
þegar hann sá eitthvað standa upp
úr plógfarinu. Stakk hann því á sig
og þegar heim kom um kvöldið sýndi
hann mömmu sinni hvað hann hefði
fundið. Var þá óðara hringt í minja-
safnið á Djurslandi og fornleifafræð-
ingar þaðan sáu strax, að um var
að ræða hjöltu og hluta af sverðs-
blaði. Með málmleitartækjum tókst
síðan fljótt að finna sjö sverð í kart-
öflugarðinum.
Bandaríkin
Hættulegt
æði meðal
unglinga
New York. The Daily Telegraph.
KVIKMYND um skólahetju í
bandarískum fótbolta, sem
sýnir fram á karlmennsku
sína með því að leggjast flat-
ur á fjölfarna hraðbraut,
virðist vera að valda hættu-
legu æði meðal sumra ungl-
inga í Bandaríkjunum. Er
einn látinn og tveir alvarlega
slasaðir eftir að hafa leikið
„hetjudáðina" eftir.
Hundruð unglinga hafa apað
eftir atriðið í myndinni, sem
heitir „The Program", og til
dæmis er haft eftir lögreglu-
stjóra í Pennsylvaníu, að á
hveijum tíma megi gera ráð
fyrir, að fjórir drengir liggi ein-
hvers staðar á hraðbrautunum
í ríkinu. Á Long Island söfnuð-
ust saman meira en hundrað
skólakrakkar til að verða vitni
að þessum karlmennskutilburð-
um strákanna.
Michael Shingledecker, 18
ára gamall, fær þó ekki fleiri
tækifæri til að sanna sjálfan
sig með þessum hætti því hann
lést strax þegar ekið var yfir
hann og vinur hans, Dean Bart-
lett, liggur enn á milli heims
og helju.
Óslitin og egghvöss
Þrjú sverðanna eru alveg heil og
hefur ekki einu sinni kvarnast úr
egginni í öll þessi árþúsund. Þau eru
beitt og óslitin og virðast ekkert hafa
verið notuð. Talið er hugsanlegt, að
þeim hafi verið komið fyrir þama til
geymslu í því augnamiði að selja síð-
ar. Fornleifafræðingum fínnst líkleg-
ast, að sverðin hafi upphaflega kom-
ið frá Dónárlöndum.
Ekki verða teknar upp fleiri kart-
öflur í garðinum þar sem hann hefur
nú verið afhentur fornleifafræðing-
unum til rannsóknar. Fjölskyldan fær
þó nokkrar bætur þar sem fundur
af þessu tagi telst Danafé. Það þýð-
ir, að finnandi fái ekki að halda fund-
inum, heldur skuli hann fá greiðslu
fyrir hann í hlutfalli við verðmæti.
Talið er líklegt, að hún verði ein-
hvers staðar á bilinu 100-500.000
íslenskar krónur.
„Georgía er sjálfstætt ríki sem
hefur ekki gert neinn samning við
Rúgsland um hernaðarsamvinnu.
Georgía er ekki í Samveldi sjálf-
stæðra ríkja og því ekki aðili að
samningum þess í öryggismálum,“
sagði Gratsjov. „Þess vegna getum
við ekki komið til hjálpar með hern-
aðaraðgerðum þar sem önnur ríki
gætu túlkað slíkt sem íhlutun í
innanríkismál annars ríkis.“
Mikilvæg samgönguleið varin
Andrej Kozyrev, utanríkisráð-
herra Rússlands, sagði að nokkur
aðildarríki Samveldis sjálfstæðra
Reuter
Uppgjöf
ÞESSI georgíski sljórnarher-
maður hefur farið að dæmi
margra félaga sinna og gefist
upp. Landið er að brotna upp í
fjögur eða fimm héruð eða smá-
ríki, sem eiga í stríði hvert við
annað, og eina von stjórnarinnar
í Tbilisi er að Rússar eða Sam-
veldið komi henni til hjálpar.
ríkja væru að íhuga sameiginlegar
aðgerðir til að aðstoða stjórnarher
Georgíu við að veija þjóðveg milli
Tbilisi og hafnarborgarinnar Poti
fyrir árásum uppreisnarmanna
Zviads Gamsakhurdia, fyrrverandi
forseta Georgíu. „Þessi vegur er
lífæð fyrir Tbilisi og rússneskar
hersveitir í Georgíu, sem og fyrir
Armeníu og Azerbajdzhan.“
Varað við hungursneyð
Uppreisnarmenn Gamsakhurdia
hafa náð stóru svæði í vesturhluta
landsins á sitt vald að undanförnu.
Shevardnadze, sem varð leiðtogi
landsins nokkrum mánuðum eftir
að herinn steypti Gamsakhurdia
af stóli í fyrra, sagði í fyrrakvöld
að sókn uppreisnarmannanna
skapaði mikla hættu fyrir ná-
grannalöndin. „Við stöndum nú
frammi fyrir hungursneyð, ekki
aðeins í Georgíu heldur líka í
Armeníu. Þetta kemur einnig hart
niður á Azerbajdzhan," sagði hann.
Stuðningsmenn Gamsakhurdia,
sem er þjóðernissinni og harður
andstæðingur Rússa, segja að
Shevardnadze hafi gerst sekur um
landráð með því að óska eftir hern-
aðaraðstoð Rússa. Ennfremur er
talið að beiðnin hafi orðið til þess
að draga úr stuðningi hófsamari
afla í Georgíu við Shevardnadze.
Kasparov hélt titlinum
London. Reuter.
GARRÍ Kasparov sigraði í einvíginu við Nigel Short en 19. skákinni
lauk í gær með jafntefli. Er Kasparov þá kominn með 12 vinninga
en Short 7, hefur aðeins unnið eina skák, en þeir ætla samt að ljúka
við að tefla allar skákirnar 24. Kasparov heldur því heimsmeistara-
titlinum þótt FIDE, Alþjóðaskáksambandið, sé að vísu á öðru máli.
Kasparov hefur borið höfuð og
herðar yfír aðra skákmenn síðan
hann vann heimsmeistaratitilinn
fyrst árið 1985 en þeir Short sögðu
fyrir nokkru skilið við FIDE og
stofnuðu sérstakt samband at-
vinnuskákmanna. Gengust þeir
sjálfír fyrir einvíginu í London en
FIDE svaraði með því að efna til
síns heimsmeistaraeinvígis milli
þeirra Anatólíjs Karpovs og Jans
Timmans. Þeir síðastnefndu viður-
kenna þó báðir, að FIDE-einvígið
sé miklu síðra einvígi þeirra Kasp-
arovs og Shorts.
Einvígið heldur áfram á morgun
og þarf Kasparov ekki nema hálfan
vinning í viðbót til að tryggja sér
fimm áttundu af verðlaunafénu,
sem er rúmlega 177 milljónir ísl.
kr., það mesta í skáksögunni.