Morgunblaðið - 20.10.1993, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 20.10.1993, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 1993 „égbýst L/iS aé þú \Atir þaé, dð Alam/yia haliarþig :, spóa-tót ‘'þe^ar þu heyrir ekhL btL. " Ast er... Með morgunkaffinu 8-2. að sameinast um eina regnhlíf TM Reg. U.S Pat Off.—all rlghts reservod ® 1993 Los Angetes Times Syndicate / cot o, Þið getið fengið hann þegar ég i hef lokið mér af. HÖGNI HREKKVÍSI // PyfcJAPLLÍONUe SÆLL. . EINHVEJSAJ Ti/V\ANN V6RJEJUR AO L*RA." BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 691329 Eyðum ekki um efni fram Frá Margréti Sæmundsdóttur: AÐ GEFNU tilefni vegna ummæla Júlíusar Hafstein í morgunþætti Rásar tvö 15. október sl. um að hagkvæmt sé að byggja Korpúlfs- staði á næstu 15 árum, vil ég koma eftirfarandi athugasemd á framfæri. Korpúlfsstaðanefnd leggur nú til að sögn Júlíusar Hafstein að listamiðstöð sem á að rísa á Korp- úlfsstöðum verði byggð á 15 árum, 100 milljónir eiga að fara til bygg- ingarinnar á ári eða samtals 1500 milljónir. Þetta þýðir að árið 2008 á byggingin að vera fullbúin. Að byggja á svo löngum tíma er eitt- hvað það óskynsamlegasta sem hægt er að gera. Sorglegt dæmi er bygging þjóðarbókhlöðu sem hefur staðið yfír í 16 ár og enn sér ekki fyrir endann á. Vaxta- kostnaður við þjóðarbókhlöðu skiptir hundruðum milljóna. Gefum okkuru að raunvextir séu 7% á ári. Vaxtakostnaður á byggingatíma er þá rúmlega 800 milljónir króna til viðbótar áætluð- um byggingakostnaði upp á fimmtán hundruð milljónir. Hækk- un byggingarkostnaðar er því um 50% vegna vaxta á byggingatí- manum, heildarbyggingarkostn- aður verður þá tvö þúsund og þijú hundruð milljónir (fyrir utan hús- búnað). Vilja skattborgarar borga 800 milljónir í vexti vegna Korp- úlfsstaða? Hefur borgarsjóður ekki eitthvað annað og þarfara við pen- ingana að gera? Við Kvennalista- konur getum ekki samþykkt aðra eins óráðsíu og mótmælum svona vitleysu. Ef ekki er hægt að byggja á stuttum tíma á að fresta bygg- ingu Korpúlfsstaða og hefjast ekki handa fyrr en efnahagur borgar- innar leyfir það. Það er kreppa í þjóðfélaginu öllu, líka hjá Reykja- víkurborg. Staða borgarsjóðs hef- ur versnað mikið á síðustu árum. Skuldir hafa tvöfaldast á þremur árum og eru nú 72.000 kr. á hvern borgarbúa en voru 36.000 kr. árið 1989. Þessi erfiða staða krefst aðhalds og varfæmi í fjárfesting- um á næstunni. Reykjavíkurborg keypti Morgunblaðshúsið fyrir borgar- bókasafn og endurbygging Iðnó stendur nú yfir. Þessar tvær bygg- ingar eru ærin verkefni í menning- armálum fyrir borgarsjóð á næstu árum. Allar ákvarðanir í kringum Korpúlfsstaði virðast teknar í fljót- fæmi og umræðan ber þess merki að menn hafa ekki reiknað dæmið til enda. Listamenn halda því fram að tilviljanakenndar og duttlunga- fullar framkvæmdiri á menningar- sviðinu beri því oft vitni að illa og Frá Ásgeiri R. Helgasyni: FYRIR hönd fræðslunefndar nor- rænu krabbameinsfélaganna (NCU) vil ég koma á framfæri þökkum til Guðmundar Árna Stef- ánssonar heilbrigðisráðherra fyrir stuðning hans við baráttu samtak- anna fyrir rétti barna til að alast upp í reyklausu umhverfi. Á ráð- stefnu tóbaksvarnarfólks á vegum norrænu krabbameinsfélaganna í Osló 11. október síðastliðinn lýsti hann yfir stuðningi við þessa bar- áttu samtakanna með nærveru sinni og ræðu. Slíkur stuðningur yfirmanna heilbrigðismála er krabbameinsfélögunum ómetan- legur stuðningurí erfiðri baráttu þar sem tóbaksiðnaðurinn beitir öllum brögðum til að vinna gegn hvers konar löggjöf um takmark- anir reykinga. Megin niðurstaða ófagmannlega sé að verki staðið og ákvörðunarréttur og umsagnir listamanna séu fyrir borð bornar. Listamenn fá ekki að sitja í Korp- úlfsstaðanefnd og heldur ekki í nefnd um uppbyggingu Iðnó. Það er ekki verið að tala um neina smáaura þegar Korpúlfs- staðir eru annars vegar, skuld- binding upp á tvö þúsund og þijú hundruð milljónir er ekkert smá mál. Á meðan slík lægð er í efna- hag landsins er ófært að hefja framkvæmdir við jafn dýra bygg- ingu og Listmiðstöðina á Korpúlfs- stöðum. MARGRÉT SÆMUNDSDÓTTIR, varaborgarfulltrúi Kvennalistans, Hvassaleiti 77, Reykjavík. Oslóarráðstefnunnar var að tób- aksreykur í umhverfinu væri börn- um ekki aðeins skaðlegur heldur væru börn sem alast upp við óbein- ar reykingar í mun meiri hættu að verða sjálf reykingamenn á unglingsárum en börn sem alast upp á reyklausum heimilum. Þetta var m.a. stutt með áralöngum rannsóknum á reykingavenjum ís- lenskra barna og unglinga og vakti erindi Sveins Magnússonar læknis um íslenska tóbaksvamarstarfið vemlega athygli. Það var og sam- dóma álit þátttakenda (að fulltrú- um tóbaksiðnaðarins undanskild- um) að bann við hvers konar aug- lýsingum á tóbaki væri nauðsynleg forsenda fyrir árangursríku tóbak- svarnarstarfi. ÁSGEIR R. HELGASON, Karolinska sjúkrahúsinu, Stokkhólmi, Svíþjóð. Þakkir til heil- brigðisráðherra Víkverji skrifar Sennilega er ákveðin hugarfars- breyting að eiga sér stað í ís- lensku þjóðfélagi um þessar mundir - hugarfarsbreyting sem lýsir sér í því að almenningur segir nú: Hing- að og ekki Iengra!, þegar honum er nóg boðið. Víkveiji telur sig hafa orðið varan við þessa afstöðu al- mennings, í tengslum við þjóðfé- lagsumræðu og fjölmiðlaumfjöllun um ákveðin mál, að undanfömu. Þar má nefna sjálfdæmi Hæstarétt- ar um eigin kjör í formi yfirvinnu, sem hann ákvað sjálfum sér. Al- menningur er hneykslaður á því að þessi virðulega stofnun, sem á að vera hafin yfir alla gagnrýni, skuli notfæra sér „glufu“ f Iögum, til þess að bæta eigin kjör á sama tíma og þjóðin öll verður að sætta sig, ekki bara við óbreytt kjör, heldur í mörgum tilvikum við lakari kjör en áður. xxx Sömu sögu er að segja af bif- reiðakaupum hins opinbera, handa ákveðnum toppum embættis- mannakerfisins. Almenningi ofbauð að keyptur skyldi fimm milljóna króna jeppi handa Jón Sigurðssyni, seðlabankastjóra til þess að hann kæmist til og frá vinnu. Enda varð niðurstaðan sú að Jón tók þá ákvörðun að láta kaupin ganga til baka. Sömuleiðis fínnst almenningi nóg um að Guðmundur Malmquist forstjóri Byggðastofnunar skuli þurfa fjögurra milljóna króna jeppa til samskonar brúks; og enn ofbýð- ur almenningi að forstjóri Þjóðhags- stofnunar, Þórður Friðjónsson, skuli þurfa þriggja milljóna króna jeppa til að flytja sig í og úr vinnu. xxx Fyrir nokkrum árum hefði varla heyrst hósti eða stuna út af svona meðferð á fjármunum hins opinbera. En í dag, í miðjum öldu- dal aflabrests og efnahagskreppu, er það óásættanlegt í hugum al- mennings, að þeir sem kynna svart- nættið fyrir landsmönnum, í formi sótsvartrar þjóðhagsspár, skulda- stöðu við útlönd, aflabrests, gengis- sigs og -fellinga þurfi á slíkum lúxusfákum að halda á kostnað skattborgaranna til þess eins að komast til vinnu. Það telst ekki lengur til gildra svara, í hugum almennra launþega þessa lands, þegar þeir sem fyrir jeppakaupum standa, eða hyggjast nýta torfæru- tröllin til þess eins að komast nokk- urra kílómetraleið til og frá vinnu, segja eitthvað á þá leið, að þetta séu bara þau kjör sem þeir hafi búið við, eða að þetta hafi nú ávallt verið svona, og því verði ekki breytt á einni nóttu. Það er fyrst og fremst sú mikla umræða sem farið hefur fram í landinu að undanförnu, sem er orsök þess að ráðamenn eru að taka við sér og ætla í það minnsta að endurskoða reglur um fríðindi „séra Jónanna“! xxx að sem ráðamenn þessa lands þurfa að átta sig á, er að al- menningur sættir sig ekki við taum- lausa sóun almannafjár, óheft ferðalög ráðamanna til útlanda, samanber sendinefndina mann- mörgu, sem endilega þurfti nú að sitja ársfund Alþjóðagjaldeyris- sjóðsins í Washington, „sællar minningar“ á sama tíma og þessir sömu ráðamenn boða aðhald, niður- skurð og spamað á öllum sviðum, vegna minnkandi þjóðartekna. Að- haldið verður einnig að ná til þeirra sjálfra, á borði, ekki bara í orði. Einungis þannig verður mark tak- andi á slíkum predikunum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.