Morgunblaðið - 20.10.1993, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 1993
5
Tveggja kílómetra vegarkafli milli Jaðarsels og Elliðavatnsvegar
Ný brú yfir
EUiðaái’ vígð
NÝR vegur, Breiðholtsbrauí milli Rauðavatns og Breiðholts,
og ný brú yfir Elliðaár voru formlega opnuð í gær. Helgi
Hallgrímsson vegamálastjóri gerði grein fyrir mannvirkjunum
og Halldór Blöndal samgönguráðherra talaði m.a. í stuttu
máli um framkvæmdir við þjóðvegi í þéttbýli á höfuðborgar-
svæðinu. Að því loknu klippti hann á borða og opnaði brúna.
Vegurinn auðveldar akstur milli syðri hluta höfuðborgarsvæð-
isins og Suðurlands og styttir leiðina um 3 km. Hann auðveld-
ar einnig íbúum Seláss leið að Reykjanesbraut. Þá léttir hann
nokkuð á umferð um gatnamót Vesturlandsvegar og Höfða-
bakka og einnig gatnamót Bæjarháls og Höfðabakka.
Sá kafli Breiðholtsbrautar sem
nú var formlega vígður er tveir
kílómetrar að lengd, liggur á milli
Jaðarsels og Elliðavatnsvegar og
er vegurinn að hluta til sprengdur
niður í Vatnsendahæð. A gatna-
mótum við Jaðarsel eru umferðar-
ljós og rétt austan við Jaðarsel eru
undirgöng sem nýtast t.d. fyrir
börn sem leið eiga í skíðabrekku
sunnan Breiðholtsbrautar. Á milli
Suðurfells og Breiðholtsbrautar er
hljóðmön. Gert er ráð fyrir að til
að byija með verði umferð á þess-
um vegarkafla um 4.000 bílar á
dag að meðaltali ailt árið.
Lagnir inni í stálkápum
Nýja brúin er 69,6 metrar að
lengd og 14,7 metrar að breidd.
Þar af er akbraut 8 metrar, steypt-
ar bríkur með akriði 1,35 metrar
hver o g þar fyrir utan tvær tveggja
metra breiðar stálkápur. Inni í þeim
eru lagnir Rafmagnsveitu, Hita-
veitu og Vatnsveitu Reykjavíkur
og Pósts & síma. Þetta var gert
til að hylja lagnirnar og einnig til
að lágmarka hæð brúarinnar. Brúin
er í þremur höfum og eru millistöpl-
ar grannar stálsúlur sem steypt er
í. Sitthvoru megin árinnar eru
göngu- og reiðstígar undir brúnni.
Kostnaður 260 milljónir
Linuhönnun hf. var aðalhönnuð-
ur mannvirkja og hafði eftirlit með
brúarframkvæmdum. Eftirlit með
byggingu vegarins hafði Verk-
fræðistofa Björns Ólafssonar. SH-
verktakar hófu brúarsmíði en urðu
gjaldþrota snemma í verkinu. Verk-
ið var þá boðið út að nýju og samdi
Vegagerð ríkisins þá við Istak hf.
sem lauk verkinu. JVJ hf. var verk-
taki vegarlagningar. Verkið hófst
um miðjan nóvember á síðasta ári
og lýkur heildarfrágangi nú um
miðjan nóvember. Heildarkostnað-
ur við verkið er um 260 milljónir
króna og þar af kostar brúin um
90 milljónir.
Morgunblaðið/Þorkell
Klippt á borða
HALLDÓR Blöndal samgönguráðherra klipplr á borða þegar nýja
brúin yfir Elliðaár var vígð í gær. Helgi Hallgrímsson vegamála-
stjóri aðstoðar ráðherrann. Að því loknu var umferð hleypt yfir
brúna.
- 0
<
| við Suðurlandsveg
Bakkar Hólar
BREIÐHOLT
Skógar
Selás
<Þ
S e
2 km
Berg
Fell
—JJndirgðng
<^'SBRAUT~~)fm
Ný brú--------'
£ Rauðavatn
C»
3J
x
A
Reiðhöliin
, Elliðavatn
Launavísitala hækk-
ar um 0,1%
Obreytt
byggjng-
arvísitala
VÍSITALA byggingarkostnaðar
fyrir nóvember er óbreytt frá
fyrra mánuði samkvæmt útreikn-
ingum Hagstofu Islands eftir
verðlagi um miðjan október. Þá
hefur Hagstofan reiknað út
launavísitölu fyrir október miðað
við meðallaun í september sl. og
er vístalan 131,5 stig, eða 0,1%
hærri en í fyrra mánuði.
Síðastliðna tólf mánuði hefur
byggingarvísitalan hækkað um
3,5%, en undanfarna þtjá mánuði
hefur vísitalan hækkað um 1,7%,
sem jafngildir 6,8% hækkun á ári.
Launavístala sem gildir við út-
reikning greiðslumarks fasteigna-
veðlána tekur einnig 0,1% hækkun,
og er hún því 2.875 stig í nóvem-
ber 1993.
----».♦- ♦-
Borgarráð
Nýr bygg-
mgarfulltrúi
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
að ráða Magnús Sædal Svavars-
son í starf byggingarf ulltrúa
Reykjavíkurborgar. Þrettán um-
sóknir bárust um starfið.
Jafnframt var samþykkt að Þor-
móður Sveinsson arkitekt verði ráð-
inn yfirarkitekt hjá embættinu og
jafnframt staðgengill byggingar-
fulltrúa.
slitlag
á umferdarþung stigahús
Þar sem umferðarþunginn er mestur duga aðeins varan-
legar lausnir. Við bjóðum mikið úrvai af níðsterkum og
fallegum stigahúsateppum sem endast.
QMánaðartilboð
Nokkrar gerðir á einstöku sértilboði í einn mánuð.
o 50% afsláttur
Dreglar og mottur vegna sameignar á hálfvirði.
QTeppahreinsivél
Ávísun á teppahreinsivél ásamt hreinsiefni í einn dag fylgir
með í kaupunum.
o Ókeypis
Skoðið úrvalið,
sannfærist um gæðin og
Ókeypis blettahreinsiefni fylgir. fáið tilboð ykkur að
kostnaðarlausu - það
kemur ánægjulega á óvart!
Umboðsmenn um land allt.
/'PJ'N PfrtSfl Visa raðgreiðslur, allt að 18 mánuðir. Engin útborgun.
vBy l-al* 'vi| Euro Kredit, allt að 11 mánuðir. Engin útborgun.
tp
T&ppaland
Parketgólf
Grensásvegi 13, sími 813577 og 671717.