Morgunblaðið - 20.10.1993, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 20.10.1993, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 1993 STJÖRNUSPÁ eftir Frances Drake Hrútur (21. mars - 19. apríl) Vinnufélagi er eitthvað mið- ur sín í dag og veldur töfum á afgreiðslu áríðandi verk- efna sem þarfnast skjótrar lausnar. Naut (20. apríl - 20. maí) Sitt sýnist hverjum um hvemig leysa beri viðfangs- efni í vinnunni og þú þarft að kanna vel staðreyndir áður en þú tekur ákvörðun. Tvíburar (21. maí - 20. júní) Það er vænlegasttil vinnings að fara að öllu með gát í fjármálum í dag og íhuga kosti og galla tilboðs sem þú færð. Krabbi (21. júní - 22. júlí) >"16 Þú hefur tilhneigingu til að gera of mikið úr smáatriðum og getur það spillt annars góðum samskiptum ástvina í dag. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) Ef þú einblínir á aukaatriðin verður þér lítt ágengt. Láttu ekki sérvitringa og skrif- finnsku tefja framgang mála. Meyja (23. ágúst - 22. septembcr) Það þarf ekki mikið til að þú farir út af sporinu í dag. Reyndu að gera ekki úlfalda úr mýflugu í samskiptum við ástvin. (23. sept. - 22. október) Mundu að taka minnisblaðið með þegar þú ferð í innkaup- in í dag. Annars gætir þú keypt eitthvað sem þú hefur enga þörf fyrir. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóvember) Þú býrð yfir góðri dóm- greind en í dag gætir þú mistúlkað orð vinar og tekið þau sem móðgun þótt þau séu vet meint. Bogmaöur (22. nóv. - 21. desember) m Þér hættir til að eyða of miklu í dag án þess að gera þér grein fyrir í hvað pening- amir fara. Frestaðu öllum innkaupum. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þú þarft að sýna lipurð til að ná samkomulagi við mis- lyndan vinnufélaga í dag og fá frið til að ljúka verkefni. Vatnsberi (20. janúar - 18. febrúar) Þú færð ekki þann frið og ró sem þú þarfnast ef þú ert að eltast við aukaatriðin. Einbeittu þér að því sem máli skiptir. Fiskar (19. febrúar - 20. mars) ’Sí Vertu ekki að áforma vina- fund í kvöld því margt kem- ur upp sem breytir þeim áformum. Farðu sparlega með peninga þína. Stjörnuspána á aó lesa sem dægradvöl. Sþár af þessu tagi byggjast ekki á traustum grunni visindalegra sta&reynda. DYRAGLENS TOMMI OG JENNI UOSKA FERDINAND SMAFOLK I THINK ILL IMPRE55 THATLITTLE rep-hairep 6IRL BY JI/MPIN6 OFF THE MI6H BOARP... _ OR. MAYBE ILLIMPRES5 HER BYJU5T JUMPIN6 OFF THE LOU) BOARP... y OR MAYBE ILL JU5T JUMP IN FROM THE 5IPE OFTHE POOL.. OR MAYBE l'LL JU5T IMPRE55 HER BY HOLU MANY H0T P065 I CAN EAT.. Ég held að ég geti vakið aðdáun litlu rauðhærðu stelpunnar með því að stökkva ofan af háa brett- inu. Eða kannski mér takist það með því að stökkva bara ofan af lága brett- inu... Eða 'kannski stekk ég bara af sundlaugarbakk- anum... Éða kannski hríf ég hana bara með því hve margar pylsur ég get etið... BRIDS Umsjón Guðm. Páll Arnarson Suður á fallega skiptingu og 10 punkta, en þegar austur tekur upp á því að opna á lengsta litnum hans, virðist engin ástæða til að skipta sér af sögnum, a.m.k. ekki strax: Austur gefur; allir á hættu. Suður ♦ K862 V K9763 ♦ Á964 *- Vestur Norður Austur Suður — — 1 hjarta* Pass 1 grand Pass 2 iauf Pass 2 grönd* Pass 3 lauf ? * canapé, það er fjórlitur í hjarta og lengra lauf. ** áskorun í 3Gr. byggð á laufsam- legu. Er lesandinn sammála þögn suð- urs fram að þessu? En hvað á hann að gera núna? Aavo Heinlo frá Eistlandi notar þetta dæmi sem rökstuðning fyrir BOLS-heilræði sínu, sem hljóðar svo; „Látið andstæðingana segja söguna.“ Hugmyndin er þessi: stundum er skynsamlegt að biða með að blanda sér í sagjiir og láta mótheijana finna fyrir sig tromplit- inn. Heinlo hélt sjálfur á spilum suð- urs í tvímenningskeppni og sagði 4 spaða við 3 laufum!! Vestur doblaði og spilaði út laufi: Vestur * DGIO ¥ Á2 * D5 * D98765 Norður ♦ Á754 ¥ 52 ♦ K10872 ^ 52 Austur llllll ’s®103 + ÁKG103 Suður ♦ K862 ¥ K9763 ♦ Á964 *- Heinlo trompaði, tók tvisvar spaða, trompaði lauf og spilaði síðan tígli. Vestur missti þolinmæðina, trompaði og lagði niður hjartaás. 11 slagir og 990. Sagnir AV voru upplýsandi. Svar vesturs á grandi neitaði spaðalit og það var ósennilegt að austur ætti spaðalengd. Þar með voru sterkar líkur á því að norður ætti a.m.k. fjór- lit. Hins vegar virtust AV eiga fyrir- stöðu í spaða (2Gr. vesturs), en samt vildu þeir ekki reyna 3Gr. Kannski voru þeir hræddir við tígulinn. Heinlo sá því fyrir sér samlegu í báðum lit- um og fylgdi sannfæringunni eftir. Skemmtileg hugmynd, en nokkuð ungæðisleg. SKAK Umsjón Margeir Pétursson Á Haustmóti Taflfélags Reykjavíkur sem lýkur t kvöld, kom þessi staða upp í skák þeirra Andra Áss Grétarssonar (2.240), sem hafði hvítt og átti leik, og Ólafs B. Þórssonar (2.135) 18. Kf6+! - gxf6, 19. exf6 - Dd8 (19. — Bd6 er svarað með 20. Bh3! - Bxf4, 21. Bxf5 og svartur er óverjandi mát) 20. Bh3! - Bxf6, 21. Bxf5 - Bg7, 22. Hxe6! - Bf6 (Eða 22. - fxe6, 23. Dg6!) 23. Dxh6 og svartur gafst upp. Myljandi kóngssókn hvíts í þessari skák byggist á fyrir- myd úr frægri skák Bobby Fisch- ers við Mongólann Mjagmasuren ’ á millisvæðamótinu í Túnis 1967. Fyrir síðustu umferðina er Andri Áss efstur í A flokki með 8 v. en Sævar Bjarnason er næstur með 7‘/2 v. Þeir mætast í kvöld í hreinni úrslitaskák. Guðmundur Gíslason hefur 7 v. og Halldór G. Einarsson 6*/2 v. í B flokki er Kristján Eð- varðsson efstur með 7'á v. og Arinbjörn Gunnarsson næstur með 7 v. Ingvar Þ. Jóhannesson og Hlíðar Þór Hreinsson hafa for- ystu í C flokki með 7 v. og Oddur Ingimarsson í D með 8 v.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.