Morgunblaðið - 20.10.1993, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 20.10.1993, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 1993 Palestínu- maður lát- inn laus ÍSRAELAR létu í gær lausan einn leiðtoga Paiestínumanna úr fangelsi þar sem hann hef- ur setið í 23 ár. Sögðust ísrael- ar með þessu vilja þakka Pa- lestínumönnum minna ofbeldi frá undirritun friðarsáttmála þjóðanna í september. Mögu- legt er að fleiri Palestínumenn verði látnir lausir í kjölfarið. Rússar vinna á í Eistlandi RÚSSNESKI minnihlutinn í Eistlandi styrkti verulega stöðu sína í sveitastjómar- kosningum í landinu um helg- ina. Samkvæmt bráðabirgða- niðurstöðum .kosninganna verður flokkur Rússa stærstur m.a. í höfuðborginni Tallinn, en flokkurinn hlaut 27 af 64 fulltrúum. Kosningaþáttaka Rússa var um 80% en aðeins um helmingur Eistlendinga á kjörskrá neyttu atkvæðisrétt- ar síns. Mafíutengsl dómara rann- sökuð FIMM háttsettir dómarar á Sikiley sæta nú rannsókn vegna meintra mafíutengsla. Einn dómaranna var í forsæti dómstóls sem sýknaði 80 meinta glæpamenn við fjölda- réttarhöld árið 1989. Fellini næst ekki úr dái EKKI er búist við því að ít- alski kvikmyndaleikstjórinn Federico Fellini komist úr dá- inu sem hann hefur verið í frá því á sunnudag, að sögn lækna í Róm í gær. Fellini varð fyrir heilaskaða eftir hjartaáfall sem hann fékk á sunnudag. Fornhvalur fundinn í PERÚ hafa fundist stein- gervingar af fornri hvalateg- und, sem var uppi fyrir um fímm milljónum ára. Dýrið hafði skögultönn og flatt nef, líkt og fjarskyldur _ ættingi þess, rostungurinn. I breska vísindaritinu Nature segir að steingervðar leifamar sýni fram á að hvalurinn hafi bæði líkst rostungi og etið á svipað- an hátt og hann. Fangaskipti í Bosníu HUNDRUÐ múslimskra fanga voru látnir lausir úr króatískum fangabúðum í gær. Markaði lausn þeirra upphafíð að miklum fanga- skiptum Króata og Bosníu- manna. Létu Króatar um 700 fanga lausa en samkvæmt samningi þeirra við Bosníu- menn eiga þeir enn eftir að láta um 1.000 manns lausa. Bosníumenn láta 300 króa- tíska fanga í skiptum. Sérsveitir frá Sómalíu BILL Clinton, Bandaríkjafor- seti samþykkti í gær að kalla sérsveitir landhersins heim frá Sómalíu. Er það liður í endur- skipulagningu friðargæslu- sveita Sameinuðu þjóðanna í landinu. Bhutto kjörin forsætisráðherra BENAZIR Bhutto var kjörin forsætisráðherra Pakistans á þingi landsins í gær. Flokkur hennar, Þjóðarflokkur Pakistans, varð sá stærsti í þingkosningum fyrr í mánuðinum en náði þó ekki meirihluta á þinginu. 36 þingmenn úr öðrum flokkum greiddu henni atkvæði sitt í gær og hún hyggst mynda samsteypustjórn. Bhutto hrökklaðist frá völdum fyrir þremur árum og átti _yfir höfði sér ákærur fyrir spillingu og óstjórn en verður nú áttundi for- sætisráðherra landsins á átta árum. A myndinni óskar helsti keppinautur Bhutto, Nawaz Sharif, fyrrverandi forsætisráðherra, henni til hamingju með sigurinn eftir atkvæðagreiðsluna. Þýskaland Uimiðfyrir félagslegn bótunum? Bonn. Reuter. STJÓRN Helmuts Kohls kanslara í Þýskalandi áformar að gera þá kröfu tii einstaklinga, er þiggja félagslega aðstoð, að þeir vinni fyrir henni að hluta. Samkvæmt heimildum inn- an stjórnarinnar er þetta liður í sparnaðartillögum vegna íjárlaga næsta árs, sem kynntar verða á föstudaginn. Alls er ætlunin að skera niður ríkisútgjöld um 21,2 milljarða marka á næsta ári og enn meira á komandi árum. í því skyni er m.a. ætlunin að krefjast þess af fullfrísku fólki, sem fær félagslega að- stoð, að það inni einhver störf af hendi, sem koma samfé- laginu til góða. Yiðskiptabann á Haítí tekur gildi Port-au-Prínce, Washington. Reuter. VIÐSKIPTABANN Sameinuðu þjóðanna á Haítí tók gildi í gær og níu bandarísk og kanadísk herskip voru við strönd landsins til að fylgjast með skipaferðum þangað. Bob Dole, leiðtogi repúblikana í öldungadeild Bandaríkjaþings, hugðist Ieggja fram frumvarp sem myndi takmarka möguleika Bills Clintons á að beita hervaldi á Haítí. Bannað verður að flytja inn vopn, hergögn, lögreglubúnað og olíu til Haítí. Oryggisráð Samein- uðu þjóðanna s.amþykkti í vikunni sem leið að setja bannið eftir að leiðtogar hersins í landinu höfðu brotið samkomulag sem náðst hafði fýrir tilstilli Sameinuðu þjóð- anna með því að neita að fara frá völdum svo Jean-Bertrand Aristide forseti, sem hefur verið í útlegð, gæti tekið við embætti sínu að nýju. Raoul Cedras, leiðtogi hersins, sagði í sjónvarpsviðtali að við- skiptabannið myndi hafa „hörmu- legar afleiðingar" fyrir Haítíbúa. Stjómarerindrekar í höfuðborg- inni, Port-au-Prince, sögðu hins vegar að bannið myndi hafa lítil efnahagsleg áhrif í bráð og síst á leiðtoga hersins og yfirstéttina. Bob Dole hugðist í gær leggja fram frumvarp sem kvæði á um að Bandaríkjaþing fengi að ráða meiru um það hvort hervaldi yrði beitt á Haítí. „Ég er í grundvallar- atriðum andvígur lagabreytingum sem takmarka um of vald mitt til að sinna stjórnarskrárbundinni skyldu minni,“ sagði í bréfi sem Bill Clinton sendi leiðtogum öld- ungadeildarinnar. Tilraunir til að bjarga lífi háhyrnings sem er sjúkur á sædýrasafni í Mexíkóborg Komum ekki með Keiko nema finna fyrst fjölskyldu hans „VIÐ MUNUM ekki sækja um Ieyfi til þess að flytja háhyrning- inn Keiko til íslands fyrr en væntanlegum rannsóknum við Is- landsstrendur er lokið. A grundvelli þeirra og þess hvort við finnum hjörðina sem hann tilheyrði verður ákveðið hvort reynt verður að flylja hann til fyrri heimkynna til hressingar,“ sagði Ken Balcomb, bandarískur sjávarlíffræðingur, í samtali við Morgunblaðið í gær. Hann freistar þess að bjarga háhyrningi í sædýrasafni í Mexíkóborg frá dauða og liður í því gæti verið að senda hann til hressingardvalar við íslandsstrendur. Hann á við húðsjúkdóm og lystarleysi að stríða og sagði Balcomb að hann ætti vart nema hálft annað ár eftir ólifað við óbreyttar aðstæður. Balcomb hefur stundað rann- sóknir á háhymingum í Puget- sundi við Seattle á vesturströnd Bandaríkjanna í 18 ár. Hann var hér á ferð fyrir nokkru og ræddi þá við Össur Skarphéðinsson umhverfisráðherra, við fulltrúa Hafrannsóknastofnunarinnar og þingmenn um hugsanlegt sam- starf um rannsóknir á háhyming- um hér við land. Megintilgangur þeirra er að reyna að finna „fjöl- skyldu“ Keiko sem fangaður var við suðurströnd íslands haustið 1981 og seldur í fyrstu til sæ- dýrasafns við Niagara-fossana en þaðan var hvalurinn seldur til Mexíkóborgar. „Ég fékk ef til vill ekki mjög jákvæðar undirtektir en er þó bjartsýnn því ég verð var við að íslendingar hafa mikinn áhuga á hvalarannsóknum. Ég var beðinn um að gera nánari grein fyrir hugmyndum mínum um útfærslu og fyrirkomulag rannsóknanna, sem ég geri ráð fyrir að geti tek- ið tvö til þrjú ár, og mun skila skriflegum tillögum þar að lút- andi í næstu viku,“ sagði Balcomb í samtalinu við Morgun- blaðið. - Nú hefur óskum um að flytja háhyrninga til landsins til heilsu- bótardvalar verið hafnað til þessa. Ef þú biður um leyfi til að koma með Keiko hingað ótt- astu ekki sömu niðurstöðu? „Ég þykist vita að fyrri um- sóknir hafi verið fljótfæmislega grundaðar og ekki studdar við- hlítandi rökum. Ég mun ekki biðja um að fá að koma hingað með Keiko nema að undangengn- um rannsóknum til að fmna út hvort það er yfírleitt skynsamlegt að flytja dýrið alla þessa leið. Og það er algjör forsenda að finna fjölskyldu hans.“ - Færi svo að allar forsendur verði fyrir hendi til að sækja um leyfi til að koma hingað með dýrið og erindi þar að lútandi yrði synjað, hvernig tækirðu því? „Ef sú staða kæmi upp og góð rök yrðu færð fyrir slíkri synjun yrði að taka því.“ Kvikmyndasijarnan ATRIÐI úr myndinni „Frelsum Villa“ sem gerði hvalinn Keiko frægan. Ungur vinur hans hvetur hann hér til að stökkva yfir brimgarð út I frelsið. í þessu atriði var raunar notað líkan af hvalnum. Kemst Keiko í talsamband við hvalaþjarðir við ísland? - Þú ráðgerir að spila fyrir háhyrninginn upptökur af hljóð- um háhyrninga úr norðurhöfum svo hann geti lært „mállýsku“ þeirra? „Það hefur verið gert og við- brögð hans eru athyglisverð. Ætlunin er að koma honum í beint „talsamband" við háhyrn- inga við íslandsstrendur. Það er tiltölulega auðvelt að leysa það tæknilega með því að setja hátal- ara og hljóðnema í laugina og koma honum þannig með sendi- búnaði í samband við háhyminga hér við land. Þetta er ekki flókn- ara en að koma á símasambandi milli þín og mín. Finnum við íjöl- skyldu hans munum við kanna með þessum hætti hvort sam- skipti takast með honum og frændum hans. Höfum við þegar fengið góðar undirtektir um að- stoð frá fyrirtæki sem framleiðir búnað af þessu tagi.“ - Er ekki nærtækast að bjarga dýrinu með því að setja öflugan kæli- og hreinsibúnað í laugina sem því er haldið í? „Það er einn valkosturinn og verður reyndar okkar fyrsta við- fangsefni. En eina varanlega lausnin er að koma dýrinu í venjulegan sjó. Laugin sem það dvelst í er of lítil og í henni er heimatilbúinn gervisjór. Hún er auk þess í 7.000 feta hæð yfir sjávarmáli," sagði Balcomb. Fær ferska síld frá íslandi Meðal þess sem reynt verður til að glæða matarlyst Keikos er að gefa honum ferska síld af ís- landsmiðum. „Islenskt fískmeti er besta fóðrið sem völ er á. Það eru tvær 28 kílóa sendingar á leið til Mexíkó frá Höfn í Horna- firði og Eskifirði. Sýni hann síld- inni mikinn áhuga og verði engar skorður reistar við innflutningi hennar geri ég ráð fyrir að við munum láta senda um eitt tonn af síld í viku hverri til Mexíkó,“ sagði Balcomb að lokum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.