Morgunblaðið - 20.10.1993, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 20.10.1993, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 1993 17 AF INNLENDUM VETTVANGI ÓMAR FRIÐRIKSSON Skattabreytingar í tíð núverandi ríkisstjórnar Hækkuðu skatta að raunffildi um tæpa 1,5 milljarða króna Tekjur ríkissjóðs hafa minnkað um 7-8 milljarða vegna efnahagssamdráttar SKATTABREYTINGAR í TB NÚVERANDIRÍKISSTJÚRNAR I. Fjárlög 1992 Tekjuáhrif m.v. heilt ár í millj. kr. á verðlagi 1994 600 6P 1. Tekjuskattur einstaklinga (bamabætur, sjómannaafsláttur) 2. Tekjuskattur fyrirtækja - fækkun undanþága (flárfestingarfánasjóðir) 725 155 i 3. Innflutningsgjöld - Lækkun jöfnunargjalds - Hækkun á innflutningsgjaldi bifreiða o.fl. II. Fjáriög 1993 -260 -415 135 2.075 1. Tekjuskattur einstaklinga, nettó 400 - Hækkun skatthlutfalls um 1,5%, 5% hátekjusk., lækkun persónuafsl. - Framlög til sveitarfélaga á móti niðurfellingu aðstöðugjalds - Breytingar á vaxtabótakerfinu - kemur til framkvæmda 1994 4.000 -4.000 400 2. Tekjuskatturfyrirtækja - Lækkun skatthlutfalls úr 45% í 39% árið 1993 og í 33% árið 1994 - Breikkun stofns (niðurfelling framlags i fjárfestingarsjóði, afnám aðstööogj.) -400 -800 400 \4T ' 3. Sérstakt bensíngjald (4,50krónuráiítra) 825 4. Breytingar á vörugjöldum (afnám vörugjalds á ýmsum byggingarvörum, lækkun a bílum) -300 5. Uækkun á gjaldeyrissköttum - kemur til framkvæmda í þremur áföngum (1993-1995) -300 6. Virðisaukaskattur, fækkun undanþága 2.100 -14% VSK á húshitun, afnotagjöld, bækur, blöö og tímarit 1.550 -14% á ferðaþjónustu frá og meö 1. janúar 1994 550 7. Lækkun tryggingagjalds á ferðaþjónustu 1. janúar 1994 * III. Frumvarp 1994 -250 -1.190 1. Breytingar á tekjustofnum rikis og sveitarfélaga vegna afnáms aðstöðugjalds 100 - Lækkun tekjuskatts um 1,5% -3.400 - Afnám skatts á skrifstofu- og verslunarhúsnæði -470 - Niðurfelling á framlagi ríkis til sveitarfélaga vegna niðurfellingar aðstöðugj. 4.000 - Hækkun bensíngjalds á móti niðurfellingu landsútvars á olíufélög 145 - Viðbótarhagnaður ÁTVR vegna niðurfellingar landsútsvars 325 - Viðbótarríkisframl. í Jöfnunarsjóð sveitarf. í móti niðurfellingu landsútvars -500 EES 2. Innflutnings- og vörugjöld - EES-áhrif -100 vsk 3.14% virðisaukaskattur á matvæli -3.100 'M 4. Tryggingagjald - Hækkun tryggingagjalds um 0,35% á aWinnurekendur 1.410 560 - 0,5% atvinnutryggingagjald á launþega 1.000 - Hækkun barnabótaauka -150 % 5. Fjármagnstekjuskattur ** 500 I 6. Ábyrgðargjald 0 | - 0,2% ábyrðgargjald 400 - Framlag I Ábyrgðarsjóð launa vegna gjaldþrota -400 Tímabilið 1992-1994 1.485 milljónir kr. * Pess má geta aö tryggingagjald á útflutningsgreinar var fellt niöur tímabundiö á árinu 1993 og er sú ráðstöfun talin kosta ríkissjóó tæplega milljarð króna. " Áætlun um tekjur af fjdrmagnstekjuskatti er óviss. Gert er ráð fyrir að tekjur á énnu 1994 verði óverulegar og að hámarki 150 m.kr. Miðað við fyrirliggjandi hugmyndir um útfærslu má ætla að tekjur á heilu ári geti numið nálægt 500 m.kr. _____________________________________________________Hoimild: FJARMÁLARAÐUNEYTIÐ, Efnahagsskrilstola ÞÆR skattabreyting-ar sem orðið hafa í tíð núverandi ríkisstjórn- ar, það er frá árinu 1991, hafa leitt til þess að skattar, beinir og óbeinir, hafa hækkað að raun- gildi um 1.485 milljónir króna að meðtöldum þeim breytingum sem ákveðnar hafa verið í fjár- lagafrumvarpi næsta árs, sam- kvæmt yfirliti sem fékkst hjá efmahagsskrifstofu fjármála- ráðuneytisins. Eru fjárhæðimar framreiknaðar til verðlags eins og það er áætlað á árinu 1994. Meðfylgjandi yfirlit sýnir allar breytingar sem orðið hafa á skatta- löggjöfinni, til hækkunar og lækk- unar í tíð ríkisstjórnarinnar en hins vegar er ekki tekið tillit til áhrifa efnahagssamdráttar á hefðbundna tekjustofna ríkissjóðs, en talið er að þau nemi samanlagt 7-8 milljörðum króna til lækkunar -á þessu tímabili. Heildarskattbyrði, þ.e. skatttekjur ríkissjóðs sem hlutfall af landsfram- leiðslu, hækkaði nokkuð árið 1992 eða um 0,8% en hefur aftur farið lækkandi og eru áætlaðar 24,5% á næsta ári. Rétt er að taka fram að yfirlitið sýnir áætluð tekjuáhrif af einstökum breytingum miðað við heilt ár, en það sýnir ekki hvernig þau falla til á hvert almanaksár. Sem dæmi má taka áformaða lækkun virðisauka- skatts á matvælum sem talin er . skerða tekjur ríkissjóðs um rúmlega 3 milljarða króna á heilu ári. Áhrifín á afkomu ríkissjóðs á næsta ári, mgtin á greiðslugrunni í samræmi við uppgjörsaðferðir fjárlaga, eru hins vegar nokkru minni, eða kring- um 2,5 milljarðar króna. Þetta skýr- ist af því að virðisaukaskattur er innheimtur með tveggja mánaða töf, þannig að lækkunin hefur aðeins áhrif á tíu mánuði af tólf á næsta ári. Afgangurinn, rúmlega 500 millj. kr., kemur fram í lægri tekjum og þar með lakari afkomu á árinu 1995. Einnig er rétt að benda á að miðað við fyrirliggjandi hugmyndir um út- færslu fjármagnstekjuskatts er talið að hann skili 500 millj. kr. á heilu ári en þar sem ekki er gert ráð fyrir að hann öðlist gildi fyrr en um mitt næsta ári muni hann í raun ekki skila nema 150 millj. króna í ríkis- sjóð á næsta ári. Stefnt að lækkun skatta 1994 Þær breytingar sem áformað er að hrinda í framkvæmd samkvæmt fjárlagafrumvarpi næsta árs fela í • sér að skattar eiga að lækka um tæplega 1,2 milljarða kr. að raun- gildi. Þó verður einnig að taka tillit til ýmissa skattbreytinga, sem vega þar á móti, sem samþykktar voru á Alþingi síðastliðinn vetur, en koma ekki að fullu fram fyrr en á næsta ári. Þar á meðal má nefna lækkun vaxtabóta um 400 millj. kr. og 14% virðisaukaskatt á ferðaþjónustu frá og með 1. janúar 1994, sem er talin skila 550 millj. kr. á heilu ári. Á yfirstandandi ári hækkaði tekju- skattshlutfall einstaklinga um 1,5% tímabundið til að bæta sveitarfélög- um upp tekjumissi vegna niðurfell- ingar aðstöðugjalds. Gengur sú hækkun til baka um áramótin. Þá var ákveðið að leggja á sérstakan 5% hátekjuskatt sem kemur að fullu til framkvæmda á næsta ári en stærsta einstaka breytingin sem fól í sér auknar skattálögur á yfírstand- andi ári var ákvörðun um að 14% virðisskatt á ýmsa neysluþætti, sem áður voru undanþegnir skattheimt- unni og hafa þegar tekið gildi hvað varðar húshitun, afnotagjöld, bækur, blöð og tímarit. Á næsta ári verða verulegar breyt- ingar og tilfærslur í skattamálum, fyrst og frenist vegna breytinga á tekjustofnum ríkis og sveitarfélaga vegna afnáms aðstöðugjalds. Tekju- skattur fyrirtækja verður lækkaður ennfrekar og ýmsar tilfærslur eru á milli skattstofna vegna gildistöku EES-samningsins. Hvað sveitarfélög varðar er annars vegar gert ráð fyr- ir að útsvar sveitarfélaga hækki að meðaltali um 1,5% þegar tekjuskatt- ur ríkisins lækkar um sama hlutfall. Hins vegar er skattur á skrifstofu- og verslunarhúsnæði felldur niður, sem lækkar tekjur ríkissjóðs að áætl- að er um 470 millj. en svigrúm sveit- arfélaga til frekari tekjuöflunar af fasteignasköttum verður aukið að sama skapi. Stærsta einstaka breytingin sem Tekjur ríkissjóðs 1988 til 1994 Á venölagi 1994 milljarðar kr. Hlutfall al landsframleiðslu veldur því að skattar eiga að lækka að raungildi á næsta ári er ákvörðun um að lækka virðisaukaskatt af matvælum úr 24,5% í 14% um ára- mótin. Á mðti kemur þó nýr skattur, atvinnutryggingagjaldið, sem áætlað er að skili 1.560 millj. á næsta ári. Til að koma til móts við barnafjöl- skyldur er barnabótaauki hækkaður á móti. um 150 millj. kr. Sértelyur hækkuðu um 1,5 milljarða Sértekjur og þjónustugjöld verða tæplega 6,6 milljarðar kr. á næsta ári skv. fjárlagafrumvarpinu sam- anborið við um fimm milljarða árið 1991 og hafa hækkað að raungildi um nálægt 1,5 milljarða kr. skv. upplýsingum sem fengust í fjármála- ráðuneytinu. Áætlun um hveiju þjón- ustugjöldin hafa skilað er þó tals- verðri óvissu háð, sérstaklega í heil- brigðiskerfinu þar sem þessi gjöld eru fyrirferðarmest og er nú unnið að athugun á hækkun þeirra í fjár- mála- og heilbrigðisráðuneytinu að beiðni fjárlaganefndar. Munurinn á sköttum og þjónustu- gjöldum er sá, að skattar eru lagðir á almenna skattstofna eins og tekj- ur, eignir, vörur og þjónustu. Þjón- ustugjöld eru hins vegar greiðslur þeirra sem nota tiltekna þjónustu. Hafa sértekjumar verið flokkaðar gjaldamegin í fjárlögum til lækkunar á útgjaldaliðum ráðuneyta og stofn- ana en koma ekki fram sem tekjur hjá ríkissjóði. Heilsukort 400 millj. kr. Hefur því verið haldið fram að heilsukort vegna sjúkratrygginga sem senda á til allra landsmanna, 16 ára og eldri eftir áramót, séu í raun auknar skattaálögur eða nef- skattur, þar sem greiðendur þeirra eru ekki eingöngu þeir sem njóta þjónustunnar. Eiga skírteinin að skila Tryggingastofnun ríkisins 400 millj. kr. á næsta ári. Tekjurnar eru hins vegar færðar gjaldamegin í fjár- lögum til lækkunar á útgjöldum og koma ekki fram sem auknar skatt- tekjur ríkisins. Hefur verið litið svo á að heilsu- kortin séu sértekjur Tryggingastofn- unar vegna þess að stofnunin á að sjá um innheimtu þeirra og fjármun- irnir að renna beint til hennar. Við- mælendur í fjármála- og heilbrigðis- ráðuneytinu voru sammála um að heilsukortin væru ekki skattur í venjubundnum skilningi vegna þess að þarna sé um vaifijálsa greiðslu að ræða. Einstaklingum er boðið að kaupa kortin á 2.000 krónur en eru ekki skyldugir til þess. BÍLAR til sölu Nissan Sunny, árg. '91, sjálfsk., 4 d., grár, ek. 27 þús. Verð 880 þús. MMC Lancer, árg. '89, sjálfsk., 4 d., blár, ek. 83 þús. Verð 680 þús. Mazda 323F, árg. '91, sjálfsk., 5 d„ grár, ek. 33 þús. Verð 1.050 þús. MMC Colt GLX, árg. '85,5 g„ 5 d„ rauður, ek. 86 þús. Verð 300 þús. MMC Laiicer, árg. '90,5 g„ 5 d„ grár, ek. 54 þús. Verð 860 þús. Hyundai Elantra, árg. '93,5 g„ 4 d„ hvítur, ek. 6 þús. Verð 1.150 þús. Daihatsu Charade, áig. '88,5 g„ 5 d„ rauður, ek. 51 þús. Verð 420 þús. Daihatsu Charade, árg. '90, sjálfsk., 4 d„ rauður, ek. 32 þús. Verð 680 þús.. MMC Colt, árg. '87,5 g„ 3 d„ hvítur, ek. 127 þús. Verð 320 þús. BIFREIDAR & LANDBÚNAÐARVÉLARHF. Suðuriandsbraut 14, sími 6312 00, beinn sími 814060

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.