Morgunblaðið - 20.10.1993, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 1993
Sláturtíð lokið hjá sláturhúsi KEA
Lítíl sala á dilkakjöti
o g minni slátursala
FREMUR lítil sala var á dilkakjöti í sláturtíðinni hjá sláturhúsi KEA
á Akureyri sem lauk í byijun vikunnar og segir sláturhússtjóri að
söluátak á lambakjöti skömmu fyrir sláturtíð sé helsta skýring þar á.
Sláturtíð lauk síðasta mánudag
og var slátrað tæplega 34.500 fjár,
sem er um 500 minna en sláturfjár-
loforð hljóðuðu uppá. Óvenjuhá
meðalvigt, eða 16 kíló skýrir þann
mun. „Sláturtíðin gekk eins og best
var á kosið og ég held jafnvel að
hún hafí aldrei gengið betur,“ sagði
Kyrrðarstund
Kyrrðarstund verður í hádeginu í
dag, miðvikudaginn 20. október, í
Glerárkirkju og stendur hún frá kl.
12 til 13. Orgelleikur, helgistund,
altarisganga og sameiginlegur máls-
verður.
Á morgun, fímmtudaginn 21.
október, kl. 18.15 verður fyrirbæna-
stund í kirkjunni.
Óli Valdimarsson sláturhússtjóri.
Peningaspursmál
Slátursala var nokkru minni en
verið hefur siðustu tvö ár og þá var
sala á dilkakjöti í sláturtíðinni lítil.
Óli taldi að vinsældir þessara afurða
færu ekki dvínandi eins og ætla
mætti miðað við sölusamdráttinn.
„Þetta er peningaspursmál, það er
verið að selja mikið magn af kjöti
á útsölu ofan í sláturtíðina og fólk
er búið að byija sig upp, þessu kjöti
er sullað inn á markaðinn með lát-
um og selt á einum mánuði rétt
áður en aðalsölumánuðurinn ætti
að heíjast," sagði Óli, en að hans
mati væri farsælla að selja útsölu-
kjöt á lengri tíma og byrja slíkt
átak í upphafí sumars.
Hár- og snyrtistofa opnuð á Dalvík
HÁRSNYRTI-, snyrti- og nuddstofan Frá toppi til táar, Svarfaðarbraut
23, var opnuð fyrir skömmu á Dalvík. Eigendur eru Auður Helgadóttir,
hárgreiðsludama og Sigrún V. Heimisdóttir, snyrtifræðingur. Stofan býð-
ur upp á alla almenna hársnyrti-, snyrti- og nuddþjónustu og er hún opin
frá kJ. 9-17 mánudaga til fímmtudaga, 9-19 föstudaga og frá kl. 10-14
laugardaga. Á myndinni eru eigendur stofunnar, Auður Helgadóttir og
Sigrún V. Heimisdóttir.
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands
Fyrstu tónleikarn-
ir um næstu helgi
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT Norðurlands sem er arftaki Kammerhljóm-
sveitar Akureyrar leikur á sínum fyrstu tónleikum um næstu helgi,
en með þessum tónleikum hefst nýr þáttur í hljómsveitarmálum á
Norðurlandi. Á þessum tímamótum verður Áhugamannafélag um
rekstur Kammerhljómsveitarinnar sameinað Tónlistarfélagi Akur-
eyrar undir nafni þess síðarnefndar, en það er 50 ára um þessar
mundir.
Samningur milli ríkis, bæjar og
forráðamanna hljómsveitarinnar
um árlegan rekstrarstyrk til Sinfón-
íuhljómsveitar Norðurlands er um
það bil að líta dagsins ljós, en með
þeim samningi verður dregið mjög
úr þeirri fjárhagslegu óvissu sem
oft tefldi starfí Kammerhljómsveit-
ar Akureyrar í tvísýnu og háði henni
á ýmsa lund. Jón Hlöðver Áskels-
son, framkvæmdastjóri hljómsveit-
arinnar, sagði það stóran áfanga
að koma sveitinni í þetta horf,
hljómsveitin hafi ekki búið við
rekstraröryggi áður.
Tónlistarfélag Akureyrar verður
rekstrarfélag hljómsveitarinnar,
auk þess að gangast fyrir fjöl-
breyttu tónleikahaldi eins og það
hefur gert allt frá stofnárið árið
1942.
Þijú verk á fyrstu tónleikunum
Á fyrstu tónleikun Sinfóníu-
hljómsveitar Norðurlands verða
flutt þijú verk, forleikur að Töfra-
flautunni og flautukonsert nr. 1 í
G dúr eftir W. A.Mozart ásamt
fyrstu sinfóníu Beethovens. Einleik-
ari á flautu verður Martial Narde-
au, en hann hlaut fyrir leik sinn
margskonar verðlaun og viðurkenn-
ingar í fæðingarlandi sínu, Frakk-
landi. Árið 1983 flutti hann til ís-
lands og hefur stundað flautuleik
og flautukennslu hér á landi. Hann
hefur komið fram sem einleikari
með Sinfóníuhljómsveit íslands og
haldið fjölda tónleika í mörgum
löndum, m.a. Rússlandi, Þýska-
landi, Frakklandi og Finnlandi.
Stjórnandi hljómsveitarinnar
verður Guðmundur Oli Gunnarsson.
Tónleikarnir verða í Akureyrar-
kirkju næstkomandi sunnudag, 24.
október, og hefjast þeir kl. 17. For-
sala aðgöngumiða verður í Bókabúð
Jónasar á Akureyri, en miðar verða
einnig seldir við inngangi klukku-
stund fyrir tónleika.
Morgunblaöið/Kúnar Pór
Pælirinn
NÝJA tækið, Pælir, hefur reynst vel um borð í Harðbak EA, en það mælir magn olíu í tönkum
af mikilli nákvæmni. Helgi Magnússon yfirvélsljóri skoðar tækið og Böðvar Eggertsson fylgist með.
Nýtt tæki í Harðbak frá Davíð Gíslasyni uppfinningamanni
Mælir magn olíu í tönk-
um af mikilli nákvæmni
PÆLIR, nýtt tæki sem Davíð Gíslason uppfinningamaður á Akur-
eyri hefur hannað, var notað um borð í síðustu veiðiferð Harðbaks
EA og reyndist afar vel. Tækið mælir magn vökva í geymum og
telja kunnugir að um byltingu sé að ræða frá því sem áður var.
Böðvar Eggertsson vélstjóri á
Harðbak sagði að tækið reiknaði
út með mikilli nákvæmni hversu
mikil oiía er í hveijum tanki skips-
ins. Nema er komið fyrir í botni
tanksins og vigtar hann olíuna og
tekur tillit m.a. til hitabreytinga
og fleiri atriða og síðan er yfírlit
yfír stöðu hvers tanks sent út til
vélstjóranna. Tækið hefur auk
þessa ýmsa fleiri eiginleika. Magn
olíu í tönkum hefur verið mælt
með loftþrýstingi, en að sögn Böð-
vars kom oft fram skekkja við slík-
ar mælingar.
Reyndist vel
„Við fengum þetta tæki um
borð í síðustu inniveru og fórum
með það í síðustu ferð og er
skemmst frá því að segja að tækið
reyndist afar vel við allar þær að-
stæður sem upp komu og engin
kvillar komu upp sem þó gjarnan
fylgja nýjum tækjum," sagði Böð-
var. „Helstu kostirnir eru hversu
nákvæmt tækið er og það eykur
mjög öryggi í meðferð ollu um
borð I fískiskipum. Nú vitum við
með vissu hversu mikið magn af
olíu við erum með á hveijum tíma,
en það þarf oft að færa hana til
í skipinu.
Davíð Gíslason hefur verið að
hanna og þróa þetta tæki í um
eitt ár, en lengra er síðan hann fór
að huga að því.
Harður árekstur
HARÐUR árekstur varð á gatnamótum Glerárgötu og Gránufélagsgötu
um hádegi I gær. Engin meiðsl urðu á fólki þegar tveir fólksbílar skullu
saman á gatnamótunum og skemmdust báðir mikið og voru dregnir burt
af slysstað með krana.
Miðstöð fólks í atvinnuleit
Læknir flytur erindi
MIÐSTÖÐ fyrir fólk í atvinnuleit
í Safnaðarheimili Akureyrar-
kirkju verður með opið hús í
dag, miðvikudaginn 20. október
milli kl. 15 og 18.
Gestur á þessari samverustund
verður Friðrik Vagn Guðjónsson
Iæknir. Hann spjallar við viðstadda
og mun koma víða við.
Ýmsar upplýsingar liggja frammi
og veitingar verða á borðum þátt-
takendum að köstnaðarlausu.
Allir sem misst hafa vinnu eða
standa frammi fyrir atvinnuleysi
eru hvattir til að mæta.
í miðstöðinni eru upplýsingar
gefnar í síma milli kl. 15 og 17 á
þriðjudögum og föstudögum.
Skipulagsnefnd
Land fyrir
hundaeig-
endur ekki
á lausu
SKIPULAGSNEFND Akur-
eyrar getur ekki orðið við er-
indi Svæðisfélags hundarækt-
arfélags Islands sem sótti um
land til nota fyrir hundaeig-
endur.
Svæðisfélag hundaræktarfé-
lags íslands sendi umhverfís-
nefnd erindi þar sem sótt var um
aðstöðu fyrir hundaeigendur og
var sótt um land sem væri að
minnsta kosti 10 hektarar að
stærð. Nota átti svæðið undir
félagsaðstöðu til námskeiðshalds
á vegum félagsinps og eins til
að viðra hunda félagsmanna.
Hundahald bannað
Umhverfísnefnd óskaði eftir
ábendingum skipulagsnefndar
um hugsanlega staðsetningu. I
bókun nefndarinnar segir að þar
sem hundahald sé bannað á Ák-
ureyri og ekki gert ráð fyrir
svæði fyrir umrædda starfsemi í
aðalskipulagi Akureyrar sem
gildir til ársins 2010 geti skipu-
lagsnefnd ekki orðið við erindi
félagsins.