Morgunblaðið - 20.10.1993, Page 28
28
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 1993
Morgunblaðið/Ólafur Bernódusson
Marmarinn skoðaður
KRAKKARNIR um borð í Ólafi Magnússyni HU við borgarísjakann skammt frá Skagaströnd í síðustu viku
Skólakrakkar í skoðunarferð
Skagaströnd.
RISAVAXINN borgarísjaki hefur lónað fram af Skagaströnd und-
anfarna daga. Frá landi líkist hann einna helst stóru flugmóð-
urskipi, rennisléttur að ofan fyrir utan háan ísturn sem stendur
upp úr honum á einni hliðinni. Smátt og smátt hefur verið að
molna úr ísjakanum þannig að í kringum hann er dálítið íshröngl
og að minnsta kosti einn jaki nokkur stór.
Sameining-
armálin í
Mosfellsbæ
BÆJARSTJÓRN Mosfellsbæjar
hefur boðað til borgarafundar í
Hlégarði í kvöld, miðvikudaginn
20. október, kl. 20.30, um samein-
ingarmálin.
Frummælendur á fundinum verða
Bragi Guðbrandsson, aðstoðarmaður
félagsmálaráðherra, Sveinn Andri
Sveinsson, formaður umdæmanefnd-
ar höfuðborgarsvæðisins, og Róbert
A. Agnarsson, bæjarstjóri Mosfells-
bæjar. Á eftir framsögu verða al-
mennar umræður og fyrirspurnir.
Það er bæjarstjóm Mosfellsbæjar
^sem boðar til fundarins en bæjar-
stjórnarmenn sátu nýverið fund með
umdæmanefndinni þar sem tillögur
hennar voru ræddar.
-----»■■■♦.♦-
Sundskálavík
- Nauthólsvík
HAFN ARGÖN GUHÓPURINN fer
í kvöld, miðvikudaginn 20. októ-
ber, kl. 20, í gönguferð frá Hafn-
arhúsinu.
Gengið verður með Tjörninni um
Háskólahverfið, suður í Sundskála-
vík, síðan með ströndinni inn í Naut-
.Jhólsvík. Þaðan um skógargötur í
Öskjuhlið og til baka um Vatnsmýr-
ina og Hljómskálagarðinn. Áð verður
á skemmtilegum stað við Skeijafjörð
og nestið tekið upp. Val er um að
taka SVR til baka við birgðastöð
Skeljungs, við Loftleiðahótelið eða
ganga alla leiðina.
Á fimmtudagskvöldið kl. 20 verður
rabbfundur og myndakvöld hjá Hafn-
argönguhópnum í Hafnarhúsinu að
vestanverðu. Boðið verður upp á
kaffísopa og skonrok í hléi og tekið
lagið. Ollum sem gengið hafa með
•Hafnargönguhópnum er boðið að
koma og hafa gjama með sér mynd-
ir úr göngu.
-----»-»-»---
Hjálpræðisherinn
Konukvöld
í VETUR mun Hjálpræðisherinn
brydda upp á þeirri nýbreytni í
starfsemi sinni að efna til konu-
kvölda. Eins og nafnið gefur til
kynna eru þessi kvöld eingöngu
ætluð konum og verða málefni
kvenna, andlegar og líkamlegar
þarfir þeirra og ýmis fróðleikur
ofarlega á baugi.
Meðal efnis á konukvöldum má
nefna kennslu í konfektgerð, heim-
sókn förðunarfræðings, gerbakstur,
heimsókn sálfræðings o.fl.
Á fyrsta konukvöldi vetrarins sem
verður í kvöld, miðvikudaginn 20.
október, kl. 20.30 kennir Sigurður
Sigurðsson, blómaskreytingamaður,
gerð blóma- og þurrskreytinga. Boð-
ið verður upp á osta og ostakökur
og hressileg tónlistaratriði.
SKIPTAR skoðanir voru á sam-
■einingu sveitarfélaga á kynning-
arfundi umdæmanefndar um
sameiningu sveitarfélaga á Suð-
urnesjum í Vogum nýlega. Fjöldi
fólks sótti fundinn og sagði Krist-
ján Pálsson, formaður nefndar-
innar í fundarlok að líklega
hefðu nærri 10% íbúa sótt fund-
inn en á fyrsta kynningarfundinn
mættu 20% íbúa Hafnarhrepps.
Jóhanna Reynisdóttir, sveitar-
stjóri, mælti eindregið gegn samein-
ingu og sagði ekkert hafa komið
fram sem benti til að hreppurinn
gæti ekki tekið við auknum verk-
efnum og sagði að samkvæmt nýj-
um tillögum um tekjustofna sveitar-
félaga myndu tekjur hreppsins auk-
ast um 8%. Það kom fram á fund-
inum að fundarmenn höfðu áhyggj-
ur yfír að þjónusta myndi minnka
til dæmis varðandi grunnskóla.
Meðmælendur sameiningar gagn-
rýndu að í umdæmanefndinni væru
Skipstjórinn á Ólafí Magnússyni
HU 54, Stefán Jósefsson, bauð öll-
um krökkunum í eldri bekkjum
grunnskólans í skoðunarferð út að
jakanum ásamt kennurum. Jakinn
í áskorun til Alþingis um kynja-
kvóta á framboðslistum vísar Jafn-
réttisþing til 3. greinar laga um jafna
stöðu og jafnan rétt kvenna og karla
frá 1991 en þar segir að séraðgerðir
í þágu kvenna séu ekki brot á jafn-
réttislögum. í umræðum á þinginu
kom fram að árangursríkasta leiðin
menn sem ekki væru fylgjandi sam-
einingu og sagði Sigurður Bjama-
son, bæjarfulltrúi í Sandgerði, að í
nefndinni væru menn sem íbúarnir
treystu fyrir sínum málum.
var 6-7 mílur frá landi og vakti
mikla aðdáun hjá krökkunum sem
flestir hveijir voru að sjá borgar-
ísjaka í fyrsta sinn enda lítur hann
út fyrir að vera úr hvítum marm-
til aukinnar hlutdeildar kvenna í
forystu í stjórnmálum væri kynjak-
vóti og var vísað til Noregs í því
sambandi.
Siv Friðleifsdóttir bæjarfulltrúi
gerði kynjakvóta að umtalsefni í
erindi sem hún hélt fyrri dag þings-
ins. í máli hennar kom fram að
Þeir sem mæla með sameiningu
leggja ríka áherslu á að eitt stórt
og öflugt sveitarfélag geti veitt íbú-
um sínum meiri og betri þjónustu.
- E.G.
ara þegar nær er komið. Þrátt fyr-
ir að kalt væri í veðri skemmtu
krakkamir sér hið besta og sungu
sjómannalög á stíminu eins og vera
ber.
Krakkarnir í 9. bekk giskuðu á
að jakinn væri 150 metra langur
og 80 metra breiður. Dýpið hjá
honum var 100 metrar og út frá
því reiknuðu þau út að jakinn væri
um það bil ein milljón og áttatíu
þúsund tonn á þyngd. Síðan ætluðu
kvótareglum hafi að einhveiju leyti
verið beitt innan stjórnmálaflokka
hérlendis en aðeins innan stofnana
flokkanna, ekki á framboðslistum.
Þar hafi Alþýðubandalagið gengið
lengst en Sjálfstæðisflokkurinn
styst. Siv benti á að alþingiskonur
kæmu hlutfallslega flestar úr
Reykjavík og af Reykjanesi. Þetta
benti til þess að þar sem listar væru
langir ættu konur meiri möguleika
á að ná þingsæti. Með breyttri kjör-
dæmaskipan mætti auka hlut
kvenna á landsbyggðinni, t.d. með
því að gera landið allt að einu kjör-
dæmi eða kjósa helming þingmanna
af landslista og helming af hefð-
bundnum kjördæmalistum.
Átaksverkefni til að
auka hlut kvenna
Þá talaði Siv stuttlega um her-
ferðir fyrir kosningar í jafnréttis-
skyni sem hafa verið reyndar t.d. I
Noregi en þingið samþykkti áskorun
til Jafnréttisráðs þess efnis. Þingið
skorar á ráðið að hafa frumkvæði
að og sjá um framkvæmd á sérstöku
átaksverkefni sem hefur það að
markmiði að auka hlut kvenna í ör-
uggum sætum á framboðslistum
allra stjórnmálaflokka sem bjóða
fram til Alþingis árið 1995 með
markvissri kynningu og áróðri. í
umræðum á þinginu kom fram að
reynsla Norðurlandaþjóða sýndi að
markvissar aðgerðir sem þessar
hefðu skilað fleiri konum inn á þjóð-
þing þessara landa en hlutur kvenna
á Alþingi og í opinberum ráðum og
nefndum er enn lægstur miðað við
önnur Norðurlönd.
Launþegahreyfingar
saraþykki jafnréttisáætlanir
Þingið samþykkti einnig að beina
þau að reyna að finna út hve mik-
ið vatn væri í honum og bera það
saman við árlega vatnsnotkun á
Skagaströnd en þeim útreikningum
var ekki lokið þegar í land var
komið.
Töluverð umferð hefur verið
kringum jakann að undanfömu af
fólki sem farið hefur til að skoða
hann enda jakinn óvenju stór og
mjög óvenjulegt að borgarís sé hér
á þessum tíma árs. - Ó.B.
þeim tilmælum til samtaka laun-
þegahreyfingarinnar að þau sam-
þykki jafnréttisáætlanir í samræmi
við 5. grein jafnréttislaga frá 1991.
í umræðu á þinginu kom fram sú
skoðun að launþegahreyfingin þyrfti
að marka sér ákveðnari stefnu í jafn-
réttismálum. Þá var einnig lögð
áhersla á mikilvægi þess að laun-
þegahreyfingin legði áherslu á að
skapa þyrfti bæði konum og körlum
þannig aðstæður og bæði geti sinnt
launavinnum og fjölskyldum sínum.
Samþykkt var á þinginu að skora
á stjórnvöld að aðstoða markvisst
þær konur sem eru í fyrirtækja-
rekstri og þær sem hafa áhuga á
því að hrinda atvinnuskapandi hug-
myndum í framkvæmd. Skorað er á
þau að beita sér fyrir því að komið
verði upp upplýsingamiðstöð fyrir
konur þar sem hægt er að veita
upplýsingar, hvatningu og faglega
ráðgjöf í tengslum við smærri at-
vinnurekstur.
Erindi í Lang-
holtskirkju
HREINN Pálsson, heimspeking-
ur, mun verða gestur á Foreldra-
morgni í Langholtskirkju í dag,
miðvikudaginn 20. október.
Hreinn mun ræða um heimspeki
og siðfræði með börnum. Brúðu-
leikhús verður fyrir börnin.
Aftansöngur verður eins og alla
virka daga kl. 18 en í kjölfarið mun
Sverrir Guðjónsson ræða um Alex-
andertækni í ljósi heildstæðis mann-
skilnings kristninnar. Boðið verður
upp á súpu og brauð gegn vægu
verði.
Skiptar skoðanir um sameiningii
Vogum.
Morgunblaðið/Eyjólfur M. Guðmundsson
Rætt um sameiningu
KRISTJÁN Pálsson, formaður umdæmanefndar um sameiningu sveit-
arfélaga á Suðurnesjum, í ræðustól á kynningarfundi í Vogum.
Áskorun Jafnréttisþíngs til Alþingis um endurskoðun lagaákvæða
Kynjakvóti á framboðs-
listum verði tryggður
JAFNRÉTTISÞING skorar á Alþingi að endurskoða lagaákvæði er
varða kjördæmaskipan og kosningareglur með það að markmiði að
fjölga konum á Alþingi og í tengslum við þá endurskoðun verði
konum tryggður tímabundinn kvóti á framboðslistum. Jafnréttis-
þing, hið fyrsta á íslandi, stóð í tvo daga og lauk á Hótel Sögu á
föstudag.