Morgunblaðið - 20.10.1993, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 20.10.1993, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 1993 31 Áslaug Katrín Lín- dal — Minning Fædd 8. september 1913 Dáin 11. október 1993 Það verða kaflaskipti hjá stórri fjölskyldu, þegar ættmóðir fellur frá. Samheldin fjölskylda missir mikið. Samskipti og hefðir, sem hafa mótast á margra áratuga ferli, raskast og verða aldrei söm aftur. En góðri menningararfleifð hefur verið skilað til nýrra kynslóða og fjölskyldna í vexti. Þannig lít ég á þau tímamót sem verða við fráfall tengdamóður minnar, Áslaugar Líridal. Áslaug var fædd á Tvöreyri við Trongisvog á Suðurey i Færeyjum, dóttir hjónanna Jóhanns Antons Öster, skipstjóra, og konu hans Sunnevu Kathrine Öster, en þau voru bæði frá Suðurey, hann frá Froðba og hún frá Hove. Fullu nafni hét hún Kathrine Elisabet Áslaug, en notaði Áslaugar-nafnið eftir að hún fluttist til íslands. Hún var yngst af sjö systkinum, en þau voru í aldursröð: Povl, Jaspur, Sofus, Else Margrete, Karl Anton og Laur- its. Þau eru nú öll látin nema Laur- its. sem býr háaldraður á Tvöreyri. Áslaug ólst upp með foreldrum sínum og systkinum á Tvöreyri og lauk þar almennu skólanámi. Innan við tvítugt fór hún til náms í Kaup- mannahöfn við hinn virta Zahles- kennaraskóla. Á þessum árum kynntist hún mannsefni sínu, Jósa- fat J. Líndal, síðar sparisjóðsstjóra í Kópavogi, sem þá var við nám við verslunarháskólann í Kaupmanna- höfn. Varð það úr að Áslaug hætti námi til þess að flytjast til Islands og átti þá skammt eftir til kennara- prófs. Þau lögðu fýrst leið sína til Færeyja, þar sem þau gengu í hjónaband í kirkjunni á Tvöreyri hinn 17. júlí árið 1938. Fyrstu árin bjuggu þau á ýmsum stöðum á Reykjavíkursvæðinu, uns þau festu kaup á nýbyggðu húsi á Kópavogsbraut árið 1951. Kópa- vogur var þá ungur bær í mótun og tóku þau Áslaug og Jósafat bæði þátt í uppbyggingu hans með þátttöku í félagsstarfi. Áslaug var einn af stofnendum Sjálfstæðis- kvennafélagsins Eddu og Jósafat tók virkan þátt í bæjarpólitíkinni. Af öðrum félagsstörfum Áslaugar má nefna, að hún var einn af stofn- endum Færeyingafélagsins á ís- landi og starfaði í Oddfellow-stúk- unni Rebekku. Fljótlega eftir að þau fluttust í Kópavoginn tóku þau að sér rekstur Sjúkrasamlags Kópavogs undir sínu þaki. Áslaug annaðist lengi vel af- greiðslu fyrir sjúkrasamlagið á heimili sínu, og þar kynntist Áslaug fjölda Kópavogsbúa, sem þangað áttu erindi. Eftir að sjúkrasamlagið fluttist annað starfaði Áslaug þar áfram allt til ársins 1982 og var það hennar aðalstarf utan heimilis- ins. Áslaug og Jósafat eignuðust fjögur börn, þau eru: Erla Guð- ríður, hárgreiðslumeistari og síðar sjúkraliði, gift Gylfa Ásmundssyni sálfræðingi. Þau eiga fjögur börn. Jóhanna, rannsóknaritari, gift Tóm- asi Zoéga framkvæmdastjóra, þau eiga þtjú börn og þrjú barnabörn. Kristín, kennari, fráskilin. Hún á tvær dætur. Jónatan Ásgeir, kerfís- fræðingur, kvæntur Helgu Þor- bergsdóttir frá Prestsbakkakoti á Síðu, þau eiga þijú börn saman, auk þess sem Helga á þijú börn af fyrra hjónabandi. Nú eru liðin meira en þijátíu ár síðan fyrstu tengdasynirnir voru teknir inn í fjölskyldu þeirra Ás- laugar og Jósafats, hin tengdabörn- in nokkrum árum síðar, og á fáum árum var kominn álitlegur hógur barnabarna. Bæði Jósafat og Ás- laug nutu þess að eiga stóra fjöl- skyldu. Áslaug lét sér mjög umhug- að um barnabörnin og var mikil amma, en Jósafat var ættarhöfðing- inn, sem hafði vakandi auga fyrir ytri velferð fjölskyldunnar og hafði gaman af að stofna til fjölskyldu- boða. Það er varla tilviljun, að öll börn þeirra kusu að eiga heimili sitt í Kópavogi og atvikin hafa hag- að því svo til að þau eru öll í stuttu göngufæri frá Áslaugu og Jósafat. Þetta hefur eflaust stuðlað að enn nánari samskiptum, ekki síst barna- barnanna við afa og ömmu og hvert viðannað. Áslaug var fremur dul kona og jafnvel börn hennar voru að upp- götva á seinni árum merkilega þætti úr æsku hennar og hæfileika sem hún hafði ekki haldið á lofti. Eyrir nokkrum árum grófum við upp teiknimöppu frá skólaárum hennar í Kaupmannahöfn. Með mikilli undrun skoðuðum við teikn- ingar og litkrítarmyndir, sem báru vott um ótvíræða myndlistarhæfí- leika. Urval þessara mynda prýða nú veggi hjá okkur. Fyrir stuttu heyrðum við svo í fyrsta sinn að Áslaug hefði leikið á fíðlu á þessum árum. Hvorugan þessara hæfíleika ræktaði hún á fullorðinsárum og er mikil eftirsjá að því. Hins vegar mátti öllum vera ljóst að hún bjó yfír listrænum hæfileikum. Heimili þeirra Jósafats, fyrst á Kópavogs- braut og síðar á Sunnubraut, bar vott um óvenju mikla smekkvísi og næmt fegurðarskyn húsmóðurinn- ar. Hún var mikil blómakona, sem sjá mátti bæði utan og innan dyra. Blómaskálinn á Kópavogsbraut var skart heimilisins og vakti athygli þeirra sem þar bar að garði meðan slíkir skálar voru ekki eins algengir og nú er orðið Fyrir nokkrum árum gerðum við hjónin okkur ferð til Færeyja, ég í fyrsta skipti. Mér er þessi ferð ákaf- lega minnisstæð og margt kom mér þar ánægjulega á óvart. Nátt- úrufegurð er mikil í Færeyjum, en fólkið og lífshættir þess þótti mér ekki síður áhugavert. Þorpin og bæirnir búa yfír sérstökum þokka og mér fannst Færeyingar vera ein- staklega gott fólk. Við komum til Tvöreyrar, þar sem Áslaug ólst upp, og heimsóttum ættingja henn- ar. Bernskuheimili hennar stóð þar lítið breytt frá því hún var þar lítil stúlka. Eg hafði á tilfínningunni að hinn rólegi taktur mannlífsins væri hinn sami og fyrrum. Þessi ferð vakti mikinn áhuga minn á Færeyj- um og ég spurði hana margs. Eg fann þá að tengsl hennar við bemskuslóðimar voru sterkari en mig hafði grunað. Mér fannst ég þekkja Áslaugu tengdamóður mína betur eftir þessa ferð en áður. Við fjölskyldan kveðjum móður, tengdamóður og ömmu með sökn- uði og þökkum henni fyrir langa og góða samfylgd, sem mun geym- ast í minningunni. Blessuð sé minn- ing hennar. Gylfi Ásmundsson. Amma Kópó eins og við barna- börnin kölluðum hana lést eftir skamma sjúkralegu aðeins mánuði eftir að við höfðum öll hist á afmæl- inu hennar og fagnað þessum stóra degi með henni. Nú þegar við kveðjum ömmu kemur ýmislegt upp í hugann. Við barnabörnin vorum tíðir gestir á heimili ömmu og afa Kópó þar sem við bjuggum öll í næsta nágrenni við þau. Súkkulaðikex og trópíkana var alltaf til reiðu fyrir svanga og þyrsta krakka eftir leiki dagsins. Skúffan sem geymdi súkkulaðikex- ið hefur enn vissan ljóma í okkar augum. Amma Kópó var alltaf afar góð við okkur krakkana og var alltaf að gefa okkur eitthvað. Afmælis- gjafir, jólagjafir og páskaegg voru fastir liðir fyrir allan skarann en einnig t.d. smápeningur fyrir bíó- ferð eða öðru. Ef eitthvert okkar var á leið til útlanda var sá kallað- ur til og gaukað að honum gjald- eyri sem amma lumaði á eftir ein- hveija utanlandsferðina. Ömmu þótti gaman að ferðast og hafði ferðast víða um ævina. Að amma væri færeysk var nokk- uð sem við áttuðum okkur ekki á fyrr en_ tiltölulega seint á okkar uppvaxtarárum. Hún talaði íslensku alveg lýtalaust og aðeins einstöku sinnum heyrðist hún tala færeysku. Sem ung stúlka var amma við nám i Danmörku og til að halda tengsl- unum við Danmörku var hún áskrif- andi að dönsku blöðunum sem hún las reglulega. Dönsku blöðin eiga eflaust alltaf eftir að minna okkur á hana ömmu. Stundum raulaði hún einnig dönsk lög sem okkur krökk- unum þóttu skrýtin. Kettir sáust iðulega sniglast í kringum hús ömmu og afa því að amma setti oft fisk í skál út fyrir greyin sem alltaf voru sársvöng. Það voru því fleiri en krakkarnir sem nutu góðvildar ömmu og sóttu í að heimsækja hana. Þegar amma og afi bjuggu á Kópavogsbrautinni var amma með mikið af blómum og vel ræktaðan garð. Á Sunnu- brautinni var ekki hægt að hafa lifandi blóm í húsinu því kyndingin hentaði þeim illa. Það var því mikil gleði þegar sólstofan var sett upp við húsið og hægt var að hefja blómarækt á ný. Hún amma var engin já-mann- eskja. Hún hafði afar ákveðnar skoðanir á stjórnmálum og kven- réttindamálum og lét þær óspart í ljós ef umræðuefnið var á þeim nótum. Þjóðviljinn sem hún kallaði Illvilja kom ekki inn fyrir dyr á hennar heimili og réttur kvenna var henni hugleikinn. Vegna nálægðarinnar hefur heimili afa og ömmu verið nokkurs konar félagsheimili fyrir börnin, barnabörnin og barnabarnabörnin. Þetta er stór hópur sem hefur litið á heimili þeirra sem sitt annað heimili og safnast þar saman við hin ýmsu tilefni. Nú þegar amma er dáin og afi orðinn einn er mikil- vægt að halda þessu áfram þó að það verði aldrei alveg eins og var. Við þökkum fyrir alla samveru- stundirnar og kveðjum ömmu með söknuði. Barnabörnin. Minning Guðmundur Vignir Jósefsson fyrrv. gjaldheimtustjóri Fæddur 24. febrúar 1921 Dáinn 12. október 1993 Það er skrýtið hvað tilveran get- ur verið einkennileg eða er það al- mættið, sem ræður ferðinni? Með tveggja daga millibili hafa látist menn, sem báðir hafa verið nánir starfsmenn mínir. Annar þessara manna var Jónas Gústavsson, fyrr- um borgarfógeti og seinna héraðs- dómari, sem lést aðfaranótt hins 10. október sl. Hinn var Guðmund- ur Vignir Jósefsson, fyrrverandi gjaldheimtustjóri, er lést 12. sama mánaðar. Báðir þessir menn eru mér hug- leiknir og hverfa af sjónarsviðinu nánast á sama tíma. Mikill sjónar- sviptir og eftirsjá er að þeim enda höfðu þeir hvor um sig sinn sterka persónuleika, hvor á sinn hátt. Guðmundur Vignir Jósefsson var húsbóndi minn í u.þ.b. sjö ár, þar sem ég vann við stofnun hans, Gjaldheimtuna í Reykjavík, frá 1981 til 1982 og síðan frá 1986. Vignir, eins og hann kallaði sig stundum sjálfan, kom mér strax fyrir sem hæglátur maður með stillt fas en samt einbeittan vilja til að ná sínu fram. Hann var einarður og staðfastur í svörum og gat brugðið snöggt skapi, en var þá jafnan fljótur að taka upp jafnaðar- geð sitt á ný. Sumir kunnu ekki að meta svör hans, er þeir leituðu til hans bónarveg í Gjaldheimtuna. Að sjálfsögðu var það eðlilegt að viðskiptavinir þessarar stofnunar gengju stundum bónleiðir til búðar, ella hefði Guðmundur Vignir brugð- ist trausti húsbænda sinna. Starf Guðmundar Vignis var vissulega erfítt og lýjandi og að margra mati lítt eftirsóknarvert. Því taldi hann það afar nauðsynlegt að sýns réttsýni og sanngirni þann- ig að allir yrðu jafn settir hvaðan sem þeir komu og hveijir sem þeir voru. Guðmundur Vignir var gædd- ur mörgum góðum mannkostum. Hann var prúður og orðvar. Fáa hefi ég hitt, og eru þó inargir ólast- aðir, sem sýndu jafnmikla vinnu- semi og jafnvel vinnuhörku við sjálfan sig eins og hann. Alltaf var hann mættur fyrstur á morgnana og þá jafnan klukkustund áður en venjulegur vinnutími hófst. Hann var maður vinnuseminnar, skyldu- rækninnar og festunnar. Þetta voru eðlisþættir, sem gerðu það að verk- um að hann krafðist meira af sjálf- um sér en öðrum. Þessir eiginleikar gerðu það einnig að verkum að hann var fljótur að átta sig á aðalat- riðum hvers máls og sneri laga- flækjum upp í einfaldar lausnir. Honum var annt um heiður stofn- unarinnar út á við og gerði kröfu um að fá vinnufrið, t.a.m. fyrir fjöl- miðlum og að starfsmenn fengju að vinna störf sín án afskipta utan- aðkomandi aðila. Margir starfs- menn geta vafalaust tekið undir það hversu Guðmundur Vignir var trúr undirmönnum sínum jafnvel þótt hann vissi e.t.v. að sitthvað mætti bæta í þeirra gerðum eða fari. Hann hafði einstakt lag á að koma boðum til skila án þess að stuða eða meiða í orðum. Það var mér alltaf undrunarefni hversu vel Guð- mundur Vignir fylgdist með allri starfsemi stofnunarinnar, jafnt smáatriðum sem öðru og það virtist ætíð vera án allrar fyrirhafnar. Guðmundur Vignir var vel að sér í bókmenntum og annálaður íslen- skumaður þannig að hann hafði gott vald á tal- og rítmáli. Það sást vel hvað honum var létt um mál við hin ýmsu tækifæri en þar stóðu margir honum að baki hvað snertir gamanmál og ræðusnilld. Guðmundur fór hins vegar var- lega með sinn hárfína húmor á vinnustað, beitti honum í hófi enda gaf eðli starfsins ekki alltaf tilefni til þess. Guðmundur var lágmæltur en skýr í tali, bar sig vel og var ætíð snyrtilegur með klæðaburð þannig að saman fór smekkvísi og stíll. Tungumál voru Guðmundi Vigni hugleikin. Honum reyndist afar auðvelt að tjá sig í rituðu og töluðu máli, þegar Norðurlandaþjóðirnar voru annars vegar. Guðmundur tók virkan þátt í störfum hinna ýmsu nefnda, félaga og samtaka og mun ég láta öðrum eftir að tíunda þau störf frekar. Ásamt starfí gjaldheimtustjóra gegndi hann starfi vararíkissátta- semjara, sem gat verið feikna eril- samt og erfítt á köflum. Það hef ég fyrir satt að hæfileikar hans hafi nýst vel sem maður sátta og samninga, en þar reyndi á allt aðr- ar áherslur en í Gjaldheimtunni. Hann hafði næmt auga fyrir þeim meðulum og smugum, sem dugðu til að fá menn að samningaborðinu. Segja má að það hefði verið sama á hvaða sviði lögfræðinnar Guð- mundur Vignir hefði borið niður, alls staðar hefði hann notið sín sem hæfíleikamaður. Ég tel það gæfu að hafa fengið að starfa með Guðmundi Vigni und- anfarin ár. Að fá að kynnast fag- mennsku á háu stigi í stjórnsýslu er eftirsóknarvert. Það er einnig þakkarvert að hafa fengið tækifæri til að starfa með embættismanni, sem var íhaldssamur á hin gömlu góðu gildi og lét ekki tískustrauma hafa áhrif á sig. Guðmundur Vignir var heil- steyptur persónuleiki, hélt sig við raunveruleikann og lét ætíð skyn- semina ráða. Hann sýndi óvenju- legan andlegan styrk í veikindum sínum og fádæma æðruleysi þrátt fyrir mikið andstreymi vegna missis eiginkonu sinnar á síðasta ári og nú síðast vegna hins erfíða sjúk- dóms, sem varð honum að aldurtila. Dætrum hans, tengdasonum, barnabörnum og öðrum aðstand- endum votta ég innilega samúð á þessari erfíðu stundu. Blessuð sé minning hans. Magnús Bryiyólfsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.