Morgunblaðið - 20.10.1993, Síða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 1993
Verðlaunaafhendingin.
KEPPNI
Til mikils að vinna
Barnablaðið ABC og Flugleiðir
efndu fyrir skömmu til teikni-
samkeppni undir yfírskriftinni
„Flug og flugvélar". Verðlaunin
GÓLFHIRÐULÍNAN
W
-fyrir parket
ÍSLENSKAR
LEIÐBEININGAR
voru nokkurra daga ferð til Disney-
lands í Flórída. Þeim sem lentu í
þremur efstu sætunum var boðið
út, en allmargir fengu aukavinn-
inga, bókagjafír frá útgáfufélaginu
Fróða, sem gefur ABC út. Mikil
þátttaka var í keppninni, 150
myndir bárust og var valið úr þeim.
Myndin sem þessum línum fylgir
er frá verðlaunaafhendingunni. Frá
vinstri talið eru Pétur Omar Ág-
ústsson frá Flugleiðum, Amdís
Gísladóttir, aðstoðarritstjóri ABC,
Brynjar Ýmir sem sigraði, Jóhann-
es Gabríel sem varð annar, Hjördís
Ósk sem varð þriðja og loks Hildur
Gísladóttir sem ritstýrir barnablað-
inu ABC.
COSPER
Ég þvæ upp, amma mín. Lísa þurrkar og Gunna litla tínir
upp brotin.
SKOT
Ryan lét Stone
heyra það
Meg Ryan er löngu viður-
kennd sem úrvalsleik-
kona í kvikmyndaborginni
Hollywood, en hún þykir vera
að gera það alveg sérstaklega
gott í nýjustu mynd sinni,
„Sleepless in Seattle", þar
sem hún leikur á móti Tom
Hanks. Yfirleitt hefur hún
þótt réttu megin við línuna
hvað hógværð snertir, enda
er hún afar vinsæl jafnt
meðal almennings svo og
starfsbræðra og -systra.
Ekki er þó alveg víst að
leikkonan Sharon Stone
sé nú í hópi þeirra sem
telja Meg Ryan flest
til tekna. Ekki eftir
ummæli sem Ryan lét
nýlega falla um Stone í
blaðaviðtali!
Ryan nefndi að vísu ekki
nafn Stone, en þegar málið
er skoðað, er ljóst að nöfn
voru óþörf. Skotið varð ekki
misskilið. Ryan var að fjalla um
að leiðin á toppinn væri oft grýtt
og þyrnum stráð og margar
ágætar leikkonur næðu þangað
aldrei þrátt fyrir mikla verð- og
hæfíleika. Dæmin væru mý-
mörg að þær nytu ekki sann-
mælis og væru jafnvel misnot-
aðar og kastað síðan til hliðar
eins og hveiju öðru sorpi. Á
sama tíma hlytu aðrar heims-
frægð fyrir það eitt að kross-
leggja fótleggi nærbuxnalausar
á hvíta tjaldinu! Og hún vildi
taka það sérstaklega fram, að
hún bæri ekki virðingu fyrir
þannig fenginni frægð.
Meg Ryan lét sverfa
til stáls!
Frá sýningunni „Heilsu og heilbrigði". Það eru heilbrigðisráðherra,
Guðmundur Árni Stefánsson, fjær og markaðsstjórinn, Stefán Á.
Magnússon, nær, sem fá blóðþrýstinginn mældan af stúlkum á vegum
Landssamtaka hjartíisjúklinga.
SYNINGAR
Mannfjöldi í Perlunni
Fyrir skömmu lauk í Perlunni sýningunni „Heilsa og heilbrigði", þar
sem tugir fyrirtækja og félagasamtaka sýndu og kynntu framlög
sín til umræddra mála. Áð sögn Stefáns Á. Magnússonar, markaðsstjóra
Perlunnar, telst Perlumönnum til að um 17.500 manns hafi komið í Perl-
una að skoða sýninguna þá níu daga sem hún stóð yfir.
„Við byijuðum með þessar sýningar síðasta vetur, kölluðum þær mess-
ur, og þ’etta heppnaðist í alla staði vel. Nú höldum við áfram á sömu
braut og næst á dagskrá er sýningin „Hugspil, leikföng og tómstundir“,
sem hefst í húsinu 27. október og stendur til 31. sama mánaðar. Húsið er
að fyllast hjá okkur, margir af stærstu aðilunum verða með, félög, skól-
ar, spilaumboð, verslanir og leikfangaumboð. Þetta verður ævintýraveröld
fyrir börn á öllum aldri,“ sagði Stefán.