Morgunblaðið - 20.10.1993, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 1993
39,
I
1
J
I
tf
í
fl
j
I
.
fl
I
fl
■£®|
«
4
Af toppnum
Frá Islenska fjallahjólaklúbbnum:
SÍÐASTLIÐINN þriðjudag birtist
frétt á Stöð 2 þess efnis að Gunnar
Guttormsson forstjóri Einkaleyfa-
skrifstofunnar notaði reiðhjól til
vinnu sinnr flesta daga ársins. Þetta
þótti félögum úr Islenska fjalla-
hjólaklúbbnum tíðindum sæta og
sýna svo gott fordæmi, að hann er
hér með orðinn fyrstur til að hljóta
nafnbótina „Heiðursfélagi ÍFHK“.
En þessi skrif koma ekki af góðu
einu saman. Einn er sá máttarstólpi
í þjóðfélaginu, sem mikill styrr hef-
ur staðið um undanfarna daga. Jón
er maður nefndur og er Sigurðsson,
bankastjóri að atvinnu og hefur
getið sér orð fyrir að vera bílstjóri
mikill og góður. Sú var og mikil
frétt að kaup á 5 millj. króna tor-
færutrölli stæði fyrir dyrum. Sá
hinn mikli farkostur átti að feija
títtnefndan bankastjóra í og úr
vinnu, sem mun vera rúmir 6 km.
aðra leið. Svo brá við að Jón karl-
inn afneitaði tækinu eftir mikið japl,
jaml og fuður. Viljum við óska hon-
um til hamingju með þessa ákvörð-
um
í ljósi þessara nýju tíðinda viljum
við hjá ÍFHK vekja athygli banka-
stjóra á kostum reiðhjólsins sem
samgöngutækis. Bæði er það að
reiðhjólið er vistvænn fararskjóti
sem og góð líkamleg þjálfun fýrir
kyrrsetufólk. Við í ÍFHK erum boð-
in og búin til að veita allar ráðlegg-
ingar um kaup og almenna notkun
á þessu samgöngutæki. Einnig get-
ur Jón snúið sér beint til kollega
síns hjá Einkaleyfaskrifstofunni um
það hvernig best er að haga ferðum
sínum á reiðhjóli heim og að heim-
an. Gunnar hefur sýnt okkur það
að til eru þeir menn í ábyrgðarstöð-
um sem láta ekki glepjast af bíla-
„menningu“ nútímans. Það má
benda okkar háttvirtu ráðherrum
og öðrum „toppum“ í opinbera geir-
anum á að lítill vandi er að stunda
hjólreiðar hér innanbæjar. Fyrir-
myndin er til staðar, hún fer til
vinnu sinnar í jakkafötum með
regngalla meðferðis. Til eru hlífðar-
föt sem hæfa hversdagslega klæddu
fólki hvort sem er í vetrarhörkum
eða vorhretum. Við viljum hvetja
alla til að ganga í lið með Gunn-
ari, bæta umhverfismál Stór-
Reykjavíkursvæðisins og stiga á
bak fáka sinna og hjóla í vinnuna,
ellegar skólann.
Ekki þarf að tíunda þá kosti sem
minni einkabílanotkun og aukin
hjólreiðanotkun hefur í för með
sér. Þá má benda á hreinna and-
rúmsloft og minni umferð í bænum,
aukið svigrúm fyrir gangandi veg-
farendur sem og almenningsvagna.
Jón Sigurðsson, við skorum á þig
að stíga skrefið til fulls á reiðhjóli.
Við getum veitt þér ráðgjöf og fyrir-
greiðslu við kaup á góðu banka-
stjórahjóli (langt, langt undir 5
milljónum). Jón minn, sýndu nú
hvers þú ert megnugur, vertu mað-
ur með mönnum og skelltu þér á
hjólfák. Að lokum mætti benda
umhverfis- og samgöngumálaráð-
herrum á að kynna sér notkun reið-
hjólsins til daglegra nota af augljós-
um ástæðum. Hvað varð um grænu
byltinguna?
F.h. íslenska fjallahjólaklúbbsins,
JÓN ÖRN BERGSSON,
Box 5193,
125 Reykjavík.
Otímabær ljósanotkun bifreiða
Frá Skúla Júlíussyni:
SIGURÐUR Helgason upplýsinga-
fulltrúi Umferðarráðs skrifar í
Morgunblaðið 10. október sl. um
ljósanotkun bifreiða. Hann segir að
Norðurlandaþjóðirnar hafi haft for-
göngu um framfarir í umferðarmál-
um. Það kann að vera rétt. Hemla-
ljós í afturgluggum bifreiða sem
sannarlega hafa minnkað aftaná-
keyrslur um 53% í Bandaríkjunum
eru ekki komin frá Norðurlöndum
og hafa ekki verið lögleidd á íslandi
því miður.
Sigurður Helagason skrifaði í
D.V. í desember 1988, og segir þar
frá tilrauntim með ljósanotkun allan
sólarhringin í Texas og hafi slysum
fækkað svo um munaði. Nú segir
Sigurður Helgason frá samskonar
rannsóknum í Bandaríkjunum og
Kanada gerðum 5 árum seinna og
séu niðurstöður einróma hvað, sem
það táknar.
Staðreyndin er sú að þessar stóru
þjóðir hafa ekki tekið upp ljósanotk-
un bifreiða í dagsbirtu. Dagljósa-
notkun í Þýskalandi er ekki talin
æskileg, hvað sem síðar verður.
Dagljósanotkun kostar 360-400
milljónir kr. hér -á landi. í sænskri
rannsókn, sem Sigurður Helgason
vitnar í, sé ég engin rök, svo sem
samanburð milli ára og gef því lítið
fyrir hana.
Ég er sammála Sigurði Helgasyni
um að ljósabúnaði bifreiða sé víða
ábótavant, og mætti löggæslan gefa
því gaum fyrir veturinn. Ég hefi
ekki séð nein haldbær rök fyrir því
að ljósanotkun í björtu auki öryggi
í akstri. Tilkoma ökuferilsskrár, sem
fylgt væri eftir af fullri hörku, ásamt
stórbættri ökukennslu, er líklegri til
að fækka slysum en ökuljós í björtu,
að því ber að stefna, ég veit að Sig-
urður Helgason er mér sammála í
þeim efnum. Hann er allur af vilja
gerður, en ljósin hafa blindað hann
eins og fleiri góða menn.
SKÚLI JÚLÍUSSON,
Grenigrund 16,
Reykjavík.
LEIÐRÉTTIN G AR
Jóhann Jónsson
og Finnbogi
Björnsson
í frásögn fréttaritara í Garðinum
í blaðinu í gær af opnun íþróttamið-
stöðvar sl. laugardag urðu slys við
setningu og frágang fréttarinnar.
Heimsmeistarinn í frjálsum íþróttum,
Jóhann Jónsson, og oddvitinn, Finn-
bogi Björnsson, voru gerðir að einum
og sama manninum.
Setningin sem klúðraðist átti að
hljóða svona: Vígsluhátíðin hófst með
því að íþróttafólk gekk í skrúðgöngu
frá íþróttahúsi Víðis og gekk heims-
meistarinn Jóhann Jónsson í broddi
fylkingar sem fánaberi. Oddviti
Gerðahrepps, Finnbogi Bjömsson,
setti hátíðina, en Sigurður Ingvars-
son, formaður byggingarnefndar,
lýsti framgangi byggingarinnar ...
o.s.frv.
Þá fór allt úrskeiðis í fréttinni þar
sem sagt var frá helztu verktökum.
Nesprýði hf. sá um hellulagnir, Þor-
geir Valdimarsson um dúklagnir og
Verkþjónustan um þakefnalagnir.
Hlutaðeigandi eru beðnir velvirð-
ingar á þessari handvömm.
Nafn féll niður
í frétt Morgunblaðsins á laugardag
um prófkjör Sjálfstæðisflokksins í
Mosfellsbæ, féll niður nafn eins fram-
bjóðandans, Svans M. Gestssonar,
verzlunarmanns, en hann er 45 ára.
Beðizt er velvirðingar á mistökunum
Kirkjubygging
á Þórshöfn
í frétt af kirkjubyggingu á Þórshöfn
í blaðinu í gær var sagt að Bjarni
Konráðsson væri arkitekt að kirkj-
unni. Þar sem hann er bygginga-
tæknifræðingur er réttara að segja
að hann hafí teiknað bygginguna.
Prentvillur í
„Mat og matgerð“
í þættinum „Matur og matgerð“
10. okt. sl. var uppskrift af slátri,
en tvær slæmar prentvillur voru þar.
Blóðið í blóðmörnum átti að vera 2'A
en ekki 'A lítri og í lifrarpylsuna vant-
aði 150 g af haframjöli. Vonandi
hafa lesendur áttað sig á að þetta
gat ekki staðist. Er beðið velvirðingar
á þessum mistökum.
Kristín Gestsdóttir.
VELVAKANDI
ALLIR UNDIR
SAMAHATTIÍ
ÁFENGISMEÐFERÐ
ÉG VIL mótmæla þeirri stað-
hæfingu sem fram kemur í
grein þeirra geðlækna, dr. med.
Ottars Guðmundssonar og Tóm-
asar Helgasonar prófessors, í
Morgunblaðinu 16. október sl.
Þeir fullyrða að hefðbundnum
aðferðum geðlæknisfræðinnar
sé beitt á áfengisdeild Land-
spítalans á Vífilsstöðum. Þetta
er fjarstæða. Þar er ekki reynt
að nálgast vandamál áfengis-
sjúklinga frá sem flestum hlið-
um. Það er af og frá. Ekkert
er farið í að kanna æsku við-
komandi eða uppeldisskilyrði.
Sjúklingur er nær eingöngu í
viðtölum hjá óvirkum alkóhó-
listum sem enga þekkingu hafa
á sálfræði og því síður geðræn-
um vandamálum. Aðeins þá
reynslu og þekkingu hvernig sé
hægt að halda sér frá áfengi.
Því er það að áfengissjúklingar
sem ná tökum á áfengisvanda
sínum sitja eftir sem áður með
sín sálrænu vandamál og þekki
ég þess mörg dæmi að margur
eiginmaðurinn sem náð hefur
tökum á áfengisfíkn sinni held-
ur áfram að berja konu sína.
Það er fullvissa mín að á þess-
ari stofnun séu allir settir undir
sama alkahattinn og sé því ekki
um neina einstaklingsmeðferð
að ræða.
Sigríður Gísladóttir.
GÆÐI
LAMBAKJÖTS
í GREIN í Morgunblaðinu 14.
október sl. fullyrðir „M. Þorv.“
að minnkandi neyslu lambakjöts
megi rekja til hnignandi gæða.
Þetta er sett fram án minnsta
rökstuðnings. Það er lágmarks-
krafa að höfundur fylgi eftir full-
yrðingu af þessu tagi með viðhlít-
andi rökum. Þess er hér með
óskað.
Sveinn Tyrfingsson,
Lækjartúni.
TAPAÐ/FUNDIÐ
Týnd snittvél
SNITT- , T
VÉLIN sem
nýby^ngu
ur árum. Hafi eintíver hugmynd
um hvar þessa vél er að finna
er hann vinsamlega beðinn að
hringja í síma 76600 á daginn
eða 43701 á kvöldin. Magnús.
GÆLUDÝR
Kettlingar
TVEIR þriggja mánaða, kassa-
vanir kettlingar fást á góð heim-
ili. Þeir eru hvítir með grá/brún-
um flekkjum. Upplýsingar í síma
621883.
Bílamarkadurinn
Smiðjuvegi 46E j
v/Reykjanesbraut. ^ J
Kopavogi, simi
671800
Opið:
Virka daga
kl. 9-19.
Laugardaga
kl. 10-17.
Sunnudaga
kl. 13-18.
Bíll fyrir vandláta
Mercedes Benz 260 SE '87, hvítur, sjálfsk.,
ek. 90 þ., leðurklæddur, rafm./hiti í sætum,
sóllúga, álflegur o.fl. V. 3,3 millj., sk. á ód.
Heimsókn til McDonald's
Morgunverðarfundur Félags viðskiptafræðinga
og hagfræðinga, fimmtudaginn 21. október nk.
kl. 8.00-9.30 í Fákafeni 9.
Forráðamenn Lystar hf., rétthafa McDonald’s
veitingahúsakeðjunnar á íslandi, kynna stefnu
fyrirtækisins og svara fyrirspurnum, út frá slag-
orðunum:
„Gæði, þjónusta, hreinlæti1'.
Á fundinum verður borinn fram léttur morgun-
verður.
Félagar FVH og aðrir áhugamenn um efnið eru
hvattir til að mæta.
FÉLAG VIÐSKIPTAFRÆÐINGA
OG HAGFRÆÐINGA
ÍÓnLflKflP
PflUÐ fiSKPIfTflPPÖÐ
Háskólabíói
fimmtudaginn 21. október, kl. 20.00
Hljómsveitarstjóri: Petri Sakari
Einleikari: Pascal Devoyon
1
Edward Grieg: Sigurður Jórsalafari
Pjotr Tsjajkofskíj: Píanókonsert nr. 2
Uuno Klami: Kalevala svíta
Miðasala er í Háskólabíói alla virka daga frá kl. 9 -17 og við
innganginn við upphaf tónleika. Kynnið ykkur áskriftar- og
afsláttarskírteini hljómsveitarinnar. Skólafólk og eldri
borgarar fá afslátt af miðaverði.
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS
Hljómsveit allra íslendinga