Morgunblaðið - 20.10.1993, Síða 42
^2
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 1993
HANDKNATTLEIKUR
Fyrsti heimaleikur íslenska landsliðsins í Evrópukeppninni verður í Kaplakrika í kvöld
Króatía með eitt
besta lið heims
„Legg áherslu á varnarleikinn og mark-
vörsluna," sagði Þorbergur Aðalsteinsson
„ÉG GET fullyrt að Króatía er
með eitt besta landsiið heims
um þessar mundir,“ sagði Þor-
bergur Aðslsteinsson, lands-
líðsþjálfari íhandknattleik,
sem fylgdist með leik Hvít-
Rússa og Króatíu í Minsk í síð-
ustu viku sem endaði með jafn-
tefli, 23:23. Króatar komu til
landsins í gær og leika gegn
íslendingum í Kaplakrika í
kvöld kl. 20.30. Þetta er annar
leikur íslands í Evrópukeppn-
inni og sá fyrsti á heimavelii.
Þorbergnr sagði að Króatar væru
gríðarlega sterkir. „Það er
enginn veikur hlekkur í þessu liði.
Bestu menn liðsins eru Zlatko
Saracevic, sem er vinstri handar
skytta og Iztok Puc, sem er öflug
tveggja metra hægri handar skytta.
Við þurfum að hafa sérstakar gæt-
ur á þeim. Markverðir liðsins eru
mjög góðir og eins beita þeir snögg-
um hraðaupphlaupum. Þeir spila
3-2-1 vöm — koma vel út á móti,
og sú vamaraðferð hefur oft valdið
okkur höfuðverk, en við erum búnir
að kortleggja liðið og vitum að
hveiju við göngum," sagði Þorberg-
ur.
Hann sagðist ætla að halda sér
við 6-0 vömina eins og áður. „Við
reynum flötu vörnina til að byija
með og síðan verður bara að koma
í Ijós hvort hún gengur upp, annars
verðum við að reyna annað. Það
er ljóst að við verðum að vinna
heimaleikina í keppninni ætlum við
okkur að komast áfram. Þetta er
Zdravko Zovko, þjálfari Króatíu, til vinstri og Iztok Puc skömmu eftir kom-
una til Reykjavíkur í gær. Þjálfarinn ákvað að sleppa æfingu, þar sem liðið
kom seint til landsins, en hópurinn æfír einu sinni í dag fyrir leikinn.
mjög mikilvægur leikur og hann
verður ömgglega erfiður. í þessum
leik legg ég fyrst og fremst áherslu
á sterkan vamarleik og góða mark-
vörslu.“
Leikurinn hefst eins og áður seg-
ir kl. 20.30 í Kaplakrika. Stuðnings-
menn landsliðsins ætla að hittast á
Fjörakránni í Hafnarfirði fyrir leik,
kl. 19.00. Eins gefst áhorfendum
kostur á að láta mála sig í fánalitun-
um í Kaplakrika frá kl. 19.30 og
fram að leik.
Morgunblaðið/Þorkell
Lagt á ráðin
ÞORBERGUR Aðalsteinsson, landsliðsþjálfari, leggur á ráðin á æfingu í
gær. Þorbergur fylgdist með leik Hvít-Rússa og Króata í síðustu viku og segir
að Króatía tefli fram einu sterkasta liði heims.
Fjórar breytingar
Þorbergur Aðalsteinsson, landsliðsþjálfari í handknattleik, til-
kynnti 12 manna hópinn, sem mætir Króötum í kvöld, eftir æf-
ingu í gærkvöldi. Þorbergur gerði ijórar breytingar frá hópnum,
sem gerði jafntefli við Finna á dögunum; Geir Sveinsson, fyrirliði,
Júlíus Jónasson, Sigmar Þröstur Oskarsson og Ólafur Stefánsson
koma inn í staðinn fyrir Patrek Jóhannesson, sem er meiddur, Berg-
svein Bergsveinsson, sem gaf ekki kost á sér af persónulegum ástæð-
um, Magnús Sigurðsson og Hálfdán Þórðarson. Aðrir í hópnum eru
Guðmundur Hrafnkelsson, Konráð Olavson, Gunnar Beinteinsson,
Gústaf Bjarnason, Valdimar Grímsson, Héðinn Gilsson, Einar Gunn-
ar Sigurðsson og Dagur Sigurðsson.
Jón Hjaltalín Magnússon, fyrrverandi formaður HSÍ, átti stóran
þátt í að Evrópukeppni landsliða varð að veruleika með núverandi
sniði og verður hann heiðursgestur á þessum fyrsta leik íslands í
keppninni.
Aðstöðuleysi landsliðsins óþolandi segir þjálfarinn
Ætlaði að æfa
á Lækjartorgi
okkur
stig
- segir þjálfarí Króatíu
dravko Zovko, þjálfari Króatíu,
■■ var yfirvegaður og jarðbund-
inn skömmu eftir komuna til lands-
ins í gær. „Við höfum aðeins verið
saman sem landslið í tvö ár og
höfum hvorki keppt á Ólympíuleik-
um né í heimsmeistarakeppni svo
ég get ekki sagt hvar við stöndum
í samanburði við aðrar þjóðir,"
sagði hann við Morgunblaðið að-
spurður um hvort Króatía væri með
Íbesta lið heims. „En því er ekki að
neita að við erum með mjög sterkan
^Jjóp og öfluga einstaklinga," bætti
|* hann við.
Króatía hefur aðeins tapað einu
1 stigi í riðlinum, gerði 23:23 jafn-
tefli við Hvíta-Rússland á útivelli í
é síðustu viku. „Þegar tvær mínútur
voru eftir voram við tveimur mörk-
um yfir, en misstum leikinn niður
í jafntefli. Það var ekki nógu gott,
en samt er ég ánægður með að
hafa náð stigi í Hvíta-Rússlandi.“
Zovko sagði að baráttan í riðlin-
. um stæði á milli Króatíu, Hvíta-
Rússlands og íslands. „Leikurinn í
Jlafnarfirði skiptir íslendinga' mun
meira máli en okkur, en við leggjum
I allt kapp á heimasigur gegn þeim
og Króötum. íslendingar eru með
{ sterkt lið og ég á von á að það leiki
vel, en ég legg líka áherslu á að
mínir menn sýni góðan leik, því þá
má gera ráð fyrir hagstæðum úrslit-
um f kjölfarið. Þetta verður bar-
átta, en við ætlum að bæta stöðu
okkar, ætlum okkur stig.“
ÍSLENSKA landsliðið í hand-
knattleik hefur átt í hinu mesta
basli með að fá æfingaaðstöðu
fyrir leikinn gegn Króatfu, sem
fram fer i Kaplakrika f kvöld.
Þorbergur Aðalsteinsson
landsliðsþjálfari segir þetta
ástand óþolandi.
orbergur segir að landsliðið
hafi komið nær alls staðar að
lokuðum dyrum þvað varðar æf-
ingaaðstöðu. Félögin vilja yfirleitt
ekki gefa tíma sína eftir fyrir lands-
liðið. „Við höfum yfirleitt átt greið-
an aðgang að Laugardalshöll fyrir
velvilja íþrótta- og tómstundaráðs,
en þar sem landsfundur Sjálfstæðis-
flokksins verður þar í næstu viku
er hún upptekin við undirbúning
fyrir fundinn," sagði Þorbergur.
Landsliðið kom saman á mánu-
daginn. Ekki var ljóst fyrr en eftir
hádegi þann dag að liðið fengi
æfingu í Valsheimilinu þá um
kvöldið og var það fyrir velvilja
Þorbjörns Jenssonar, þjálfara Vals,
sem gaf eftir tíma meistaraflokks.
í gær voru sömu vandræði: „Ég
var ákveðinn í því að ef ég fengi
ekki inni fyrir landsliðið ætlaði ég
að hafa æfingu á Lækjartorgi til
að vekja athygli á aðstöðuleysi
okkar. Allir ætlast til að liðið standi
sig vel en svo er ekki hægt að út-
vega æfingaaðstöðu þegar á þarf
að halda,“ sagði Þorbergur.
Málið leystist rétt fyrir hádegi í
gær þannig að landsliðsmennirnir
sluppu við að æfa undir berum
himni á Lækjartorgi. Liðið æfði í
Valsheimilinu í hádeginu og í
Kaplakrika kl. 17. Jóhann Ingi
Gunnarsson, þjálfari Hauka, gaf
landsliðinu eftir æfingatíma meist-
araflokks félagsins í Kaplakrika,
en FH-ingar neituðu að víkja fyrir
landsliðinu.
Á hádegi í gær hafði HSÍ aðeins
tekist að útvega einn æfingatíma
fyrir landslið Króatíu, það var kl.
21.30 í gærkvöldi í Kaplakrika.
Króatar voru ekki ánægðir með það
og fengu inni í íþróttahúsinu í Graf-
arvogi kl. 18. Þegar til kom vildu
þeir svo ekki æfa þar sem þeir
voru þreyttir eftir ferðalagið til
landsins. Þeir æfa fyrir hádegi í
dag í Kaplakrika.
■ ZLATKO Saracevic, annar
tveggja bestu manna landsliðs Kró-
atíu — mjög öflug örvhent skytta
— kom ekki til landsins í gær.
Hann býr og leikur í Marseille í
Frakklandi, en vegna verkfalls
flugmanna þar í landi komst hann
hvergi frá París, og snéri aftur
heim til Marseille.
■ SARACEVIC átti að leggja af
stað að heiman eldsnemma í dag
og von er á honum til landsins síð-
ari hluta dags, þannig að hann verð-
ur væntanlega með gegn íslandi í
kvöld.
■ MARKVÖRÐURINN snjalli úr
FH, Bergsveinn Bergsveinsson,
gefur ekki kost á sér í landsleikinn
gegn Króatíu í kvöld. Ástæðan er
sú að hann fékk ekki frí úr vinnu
til að æfa með liðinu fyrir leikinn.
Sigmar Þröstur Óskarsson,
markvörður KA, tekur stöðu hans
í liðinu.
■ PATREKUR Jóhannesson,
leikmaður Stjörnunnar, leikur ekki
með íslenska landsliðinu í kvöld
vegna /neiðsla.
H HÉÐINN Gilsson, kom til
landsins frá Þýskalandi í gær og
beint á æfinguna í Kaplakrika sem
hófst kl. 17.
■ LANDSLEIKURINN í kvöld
verður sýnt beint á Stöð 2 í læstri
dagskrá.
■ NJÁLL Eiðsson, sem þjálfaði
2. deildar lið KA í knattspyrnu sl.
sumar, hefur verið endurráðinn
þjálfari Akureyrarfélagsins.
■ INGIBJÖRG Arnardóttir,
margfaldur íslandsmeistari í sundi,
er orðinn þjálfari hjá Ægi. Hún
hefur því ákveðið að hætta keppni.
Heimaleikur Vals í Garði
Einn af leikjum 1. deildar karla
í handknattleik verður spil-
aður í nýja íþróttahúsinu í
Garðinum, en hús þetta var form-
lega tekið í notkun
Frá Arnóri sl. laugardag.
Ragnarssyni Leikurinn, sem
' Gar6i fram fer míðviku-
daginn 27. október, er milli ís-
landsmeistara Vals og Aftureld-
ingar úr Mosfellsbæ og er leikinn
að undirlagi HSÍ í tilefni opnunar
íþróttamiðstöðvarinnar í Garði.
Garðmenn fagna þessari
ákvörðun sem gefur þeim mögu-
leika á að kynna hið nýja hús
og munu taka vel á móti gestun-
um. Handbolti hefur ekki verið
stundaður í Garðinum vegna að-
stöðuleysis, en nú sjá heimamenn
fram á bjartari tíma í inniíþrótt-
unum.