Morgunblaðið - 21.10.1993, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 21.10.1993, Blaðsíða 1
72 SIÐURB/C STOFNAÐ 1913 239. tbl. 81.árg. FIMMTUDAGUR 21. OKTOBER1993 Prentsmiðja Morgunblaðsins Varnarmálaráðherra Bandaríkianna Vill enga fjölgun aðildamkja í bráð Travemiinde. Reuter. LES Aspin, varnarraálaráðherra Bandaríkjanna, sagði á fundi varaar- málaráðherra Atlantshafsbandalagsins (NATO), sem hófst í Þýska- landi í gær, að Bandaríkjastjórn væri andvíg því að Austur-Evrópu- ríki fengju aðild að bandalaginu í bráð. Hann lagði ennfremur til að NATO semdi hernaðaráætlun um hvernig bregðast ætti við „nýju kjarn- orkuvánni", þ.e. hættunni á útbreiðslu kjarnorkuvopna í kjölfar hruns Sovétríkjanna. Aspin lagði til að NATO gerði samninga um samvinnu í varnarmái- um við fyrrverandi kommúnistaríki Austur-Evrópu. Hann sagði við blaðamenn að tillögunni hefði verið vel tekið og hún yrði líklega rædd á leiðtogafundi NATO í Brussel í janúar. Hann sagði að þau lönd sem vildu slíkan samning yrðu að fallast á að taka þátt í heræfingum NATO Breyt- ingar hjá Lloyd’s London. Rcuter. BRESKA tryggingafélagið Lloyd’s samþykkti í gær að leyfa hópfjárfestingar að fyrirtækinu. Til þessa hafa fjárfestar eða sk. „nöfn“ tekið á sig algjöra sjálf- skuldarábyrgð á tryggingum. Þessi breyting var samþykkt með miklum meirihluta atkvæða sem lið- ur í allsheijar uppstokkun á fyrir- tækinu. Greiddu rúmlega tólf þús- und „nöfn“ atkvæði með breyting- unni en tæplega 750 voru á móti. Lloyd’s hefur á undanförnum þremur árum tapað um sex hundruð milljörðum íslenskra króna. Eiga mörg „nöfn“ yfir höfði sér persónu- legt gjaldþrot vegna þessa. Hinir nýju fjárfestar munu ekki þurfa að taka á sig ábyrgð vegna eldri krafna og takmarkaða ábyrgð vegna nýrra krafna. og hugsanlegri friðargæslu á vegum bandalagsins, gera útgjöld sín til varnarmála opinber og setja heri sína undir borgaralega stjórn. Aspin vildi ekki skýra blaðamönn- um frá hugmyndum sínum um að- gerðir gegn „nýju kjarnorkuvánni“ í smáatriðum. „Þetta er gjörbreyttur heimur," sagði varnarmálaráðherr- ann og lagði áherslu á að Evrópu gæti bráðlega stafað hætta af út- breiðslu kjarnavopna, sem gætu komist í hendur hryðjuverkamanna eða óvinveittra ríkja. Bandarískir embættismenn sögðu hins vegar að bandaríska varnarmálaráðuneytið væri að vinna að viðamikilli áætlun, sem fæli meðal annars í sér bættar varnir gegn eldflaugum og betri njósnastarfsemi. „Við vonumst til að koma með eitthvað sem leiðtoga- fundur NATO getur samþykkt í jan- úar,“ sagði Aspin. Reuter Öngþveiti á Orly MIKLAR truflanir urðu á flugumferð um báða helstu flugvelli Parísar, Orly og Charles de Gaulle, vegna verkfalla starfsfólks í gær. Um þúsund starfsmenn réðust til dæmis inn á Orly-flugvöll, veltu farangur- skerrum og kveiktu elda á flugbrautum. Vilja starfs- mennirnir mótmæla þeim áformum flugfélagsins Air France að fækka starfsfólki um fjögur þúsund. Sagði Bernard Attali, forstjóri félagsins, að ekki kæmi til greina að hvika frá þessari ákvörðun. Nauðsynlegt væri að fækka starfsmönnum ætti Air France að lifa af. Bernard Bosson samgönguráðherra sagði óhugs- andi að endurskoða þessi áform og að ríkisstjórnin væri reiðubúin að beita valdi til að koma í veg fyrir að verkföllin trufluðu fiug eriendra flugfélaga. Kozyrev útilokar hernaðarafskipti Rússa af átökunum í Georgíu Stjómarherinn nær bænum Poti á sitt vald í gagnsókn Tbilisi. Reuter. GEORGÍSKI sljórnarherinn hóf í gær gagnsókn gegn uppreisnar- mönnum og stuðningsmönnum Zviads Gamsakhurdia, fyrrverandi forseta, og náði aftur á sitt vald þremur bæjum, þar á meðal Poti á Svartahafsströnd. Þá hratt herinn árás uppreisnarmanna á Kutaisi, næststærstu borg í Georgíu, og einnig á bæinn Tskhaltubo skammt þar frá. Dómsmálaráðherra Bandaríkjanna hótar sjónvarpsstöðvunum Dregið verði úr ofbeldi í sjónvarpinu nú þegar Washington. Reuter. JANET Reno, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, varaði bandarísk- ar sjónvarpsstöðvar við í gær og sagði, að annaðhvort skæru þær verulega niður ofbeldisfull atriði í dagskrá sinni eða ríkissljórnin neyddi þær til þess. Lýsti hún þessu yfir á fundi með viðskipta- nefnd öldungadeildar Bandaríkjaþings. Reno sagði, að best væri, að sjón- varpsstöðvarnar hefðu sjáifar frum- kvæði að því að draga úr ofbeldinu en tók af öll tvímæli um, að gerðu þær það ekki myndi stjórnin sker- ast í leikinn af hörku. Gangist við ábyrgðinni „Ég er orðin þreytt á undanfærsl- um og aðgerðaleysi. Ég fer ekki fram á annað en að skemmtanaiðn- aðurinn gangist við ábyrgð sinni ög vinni með okkur að lausn þessa vanda og byiji á því nú þegar,“ sagði Reno en viðskiptanefndin hef- ur í smíðum frumvarp til laga um bann við ofbeldi í myndum, sem börn hafa aðgang að. Þá er einnig fyrirhugað að skylda framleiðendur til að vara við ofbeldisfullum atrið- um áður en sýning hefst og meðan á henni stendur og kveðið verður á um opinbera könnun fjórum sinnum á ári á ofbeldi í sjónvarpi. Leitar aðstoðar auglýsenda Reno vísaði á bug þeirri gagn- rýni, að fyrirhuguð lög jafngiltu ritskoðun eða brytu í bága við mál- frelsisákvæði stjórnarskrárinnar. Reno rekur einnig áróður fyrir því, að auglýsendur neiti að styðja of- beldisfullt efni; að sjónvarpsmynd- um verði gefin ákveðin einkunn í hlutfalli við ofbeldið og ekki verði aðeins dregið úr ofbeldi á besta sýningartíma, heldur verði einnig framleiddar myndir, serh mæli gegn ofbeldi og byssunotkun. Talsmaður varnarmálaráðu- neytisins sagði, að stjórnarherinn hefði fyrst hrundið árásinni á Kutaisi en síðan fylgt sigrinum eftir með sókn inn á það svæði, sem liðsmenn Gamsakhurdia höfðu lagt undir sig. Hefði hann þá náð bæjunum Lanschkhuti og Khoni og hafnarbænum Poti. Er um mjög mikilvægan sigur að ræða ef rétt er því um Poti fara mestallir flutningar til Georgíu. Vopnaflutningar Rússa , Að sögn innanríkisráðuneytisins í Georgíu beittu herir beggja bryn- vörðum bifreiðum og stórskotaliði í átökunum í gær en mannfall var þó ekki mikið. Þá sagði rússneska fréttastofan Interfax og hafði eft- ir vitnum, að rússneskir hermenn, sem eru með bækistöð í Kutaisi, hefðu flutt þaðan mikið af þunga- vopnum. Ekki var þó vitað hvert þau voru flutt. Edúard Shevardnadze, leiðtogi Georgíu, sagði sl. mánudag, að stjórnarherinn, sem er samansett- ur af nokkrum mistrúum fylking- um, væri kominn að því að hrynja saman og skoraði á Rússa að koma til hjálpar. Þeir hafa hins vegar tekið því þunglega en útiloka ekki, að her frá nokkrum samveldisríkj- um taki að sér að veija mikilvæg- ustu samgönguleiðir í landinu. Talsmaður rússneska utanríkis- ráðuneytisins sagði í gær að Rúss- ar hefðu ákveðið að verða við því að veija samgönguleiðina frá Poti til nágrannaríkjanna Armeníu og Azerbajdzhan. Verða notaðar her- sveitir sem þegar eru staðsettar í Georgíu. Sagði talsmaðurinn þetta vera friðargæsluverkefni og í því fælist því ekki afskipti af innri málefnum Georgíu. Andrei Kozyrev, utanríkisráð- herra Rússlands, sagði hins vegar í París í gær að Rússar myndu ekki skipta sér af átökunum í Georgíu þrátt fyrir beiðni Shev- ardnadze. „Það er ekki okkar af skipta okkur einhveiju sem líkist helst borgarastyijöld. Það á georg- íska þjóðin að gera sjálf,“ sagði Kozyrev. Abkhözum boðin sjálfstjórn? Ítar-Tass fréttastofan rússn- eska sagði í gær, að háttsettur, georgískur embættismaður hefði hvatt til viðræðna við aðskilnaðar- sinna í Abkhazíu og lýst yfír, að Abkhazía ætti að hafa sjálfstjórn innan Georgíu. Sú var einmitt krafa Abkhaza áður en þeir hófu uppreisn gegn stjórninni í Tbilisi en ólíklegt er, að þeir láti sér það nægja nú. Þeir ráða öllu héraðinu og telja sig sjálfstætt ríki.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.