Morgunblaðið - 21.10.1993, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 21.10.1993, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 1993 Verkefnið „Norræn æska - norræn list“ Ustamenn vinna með grunnskólanemum NYHAFIÐ er við Eyjafjörð samnorrænt verkefni sem kallast „Norræn æska - norræn list,“ en um er að ræða verkefni sem byggist á því að listamenn frá Norðurlöndunum heimsækja og vinna með börnum og unglingum á aldrinum 10 til 16 ára. Þetta er tilraunaverkefni sem stofnað er til og að mestu kostað af norrænu ráðherranefndinni og sjóðum á hennar vegum. Eyjafjarðarsvæðið er eina svæðið hér á landi sem tekur þátt í verkefninu að þessu sinni. Verkefnið skiptist á tvö tímabil, annars vegar koma 5 listamenn nú í haust og síðan 5-8 listamenn á tíma- bilinu frá febrúar til mars á næsta ári. Sálarrannsókn- arfélagið 40 ára Sálarrannsóknarfélagið á Ak- ureyri verður 40 ára í næstu viku, eða miðvikudaginn 27. október. Af því tilefni verður opið hús hjá félaginu næstkomandi laugardag, 23. október, frá kl. 14 til 18 í húsa- kynnum félagsins á Strandgötu 37b og er félögum boðið að koma og kynna sér starfsemina um leið og boðið verður upp á afmæliskaffí. Næstu viðburðir hjá félaginu eru skyggnilýsingarfundur í Lóni við Hrísalund með Þórhalli Guðmunds- syni miðli næsta sunnudag, 24. október, og hefst hann kl. 20.30 og þá mun Ruby Gray miðill verða með skyggnilýsingarfund á Strand- götu 37b sunnudaginn 31. október kl. 20.30. Kristiina Hurmerinta frá Wasa í Finnlandi hefur verið að vinna með nemendum i Oddeyrarskóla og Lund- arskóla á Akureyri við að skapa dág- skrár fyrir brúðuleikhús að undan- fömu, en síðan tekur Greta Hassel- berg Klemetsen frá Horten í Noregi við og vinnur með unglingum í fé- lagsmiðstöðinni í Glerárskóla og nemendum Gagnfræðaskóla Akur- eyrar við svonefnda „raku“-leir- brennslu. Olli Kortekangas frá Helsinki í Finnlandi kemur á næstunni og vinn- ur með börnum og unglingum í Tón- listarskólanum á Akureyri og Tón- listarskóla Eyjafjarðar við að setja saman eigin tónlist. Leikmyndagerð í nóvember kemur Edward Fuglo frá Klakksvík í Færeyjum og mun hann vinna með nemendur í Þela- merkurskóla, Valsárskóla og Greni- víkurskóla að gerð leikmynda og við myndsköpun. Þá mun Björn Asle Tollan frá Þrándheimi í Noregi verða í Þelamerkurskóla, Barnaskóla Akur- eyrar og Gagnfræðaskóla Akureyrar og vinna með nemendum við upp- setningu leikrita. Morgunblaðið/Rúnar Þór * A markinu FÓTBOLTI í frímínútunum er eflaust í efsta sæti vinsældalista unga fólks- ins og eins og vant er fóru strákarnir í Barnaskóla Akureyrar í einn leik í frímínútum gærdagsins, en stöllurnar Björg, íris og Helena klifu upp á markið og hvöttu óspart. Hótel Norðurland Til sölu er fasteignin nr. 7 við Geislagötu á Akur- eyri (Hótel Norðurland). Um er að ræða húseign á 3 hæðum, steinsteypta ásamt lóðarleiguréttindum og auk þess innbú. í fasteigninni eru 28 2ja manna herbergi, lítill fundarsalur og veitingasalur f. 60 manns ásamt bar. Óskað er tilboðs í eignir þessar þar sem komi fram sundurliðun miðað við fasteign annars vegar og innbú hins vegar. Eignir þessar eru til sýnis í samráði við undirritað- an í síma 96-11543 eða hótelstjóra í síma 96-22600. Tilboðum óskast skilað fyrir kl. 12.00 föstudaginn 29. október nk. til -undirritaðs á skrifstofu hans í GránufélagsgÖtu 4, Akureyri, eða í pósthólf 53, 602 Akureyri. Hreinn Pálsson hrl., skiptastjóri. Jón o g Baidur hafa gert út þrjá báta um ævina Morgunblaðið/Rúnar Þór matínn Fugl og fiskur í FÉLAGARNIR Jón Hauksson og Baldur Þorsteinsson hafa í sam- einingu gert út þrjá báta um ævina og þá hafa þeir líka átt sam- an skúr sem þeir hafa notað vegna útgerðarinnar niður við slipp. Jón og Baldur byggðu sér skúr við smábátahöfnina niður við slipp á sínum tíma og þar hafa þeir haft miðstöð útgerðarinnar, en þeim finnst miður hvernig skúram- ir á staðnum hafa verið að drabb- ast niður. „Það hefur verið talað um að rífa þessa skúra í mörg ár, þannig að enginn hefur gert neitt í því að halda þeim við,“ sögðu þeir og bentu á að margir vildu gjaman hafa þama aðstöðu áfram. Fugl og fiskur Bátur Jóns Haukssonar og Baldurs Þorsteinssonar er í landi þessa stundina, þeir eru að gera hann kláran. Síðan er ætlunin að fara út og ná sér bæði í fugl og fisk í matinn, renna fyrir þorsk og skjóta svartfugl. Fyrirhuguð bygging við Amtsbókasafnið á Akureyri Ráðgert að fresta fram- kvæmdunum um eitt ár MENNINGARMÁLANEFND Akureyrar bókaði á fundi sín- um fyrir skömmu að hún harm- aði að nú er ráðgert að seinka framkvæmdum við viðbygg- ingu við Amtsbókasafnið á Ak- ureyri. Fram kemur í bókun nefndarinnar að safnið, sem er elsta stofnun bæjarins, búi við óviðunandi aðstæður, allri starfsemi þess til mikils baga og treystir nefndin því að sam- staða ríki meðal bæjarfulltrúa um að framkvæmdir tefjist ekki meira en nú hafi verið ákveðið. Lárus Zophaníasson amtsbóka- vörður sagðist ekki hafa fengið óyggjandi staðfest að fyrirhuguðum framkvæmdum yrði frestað, en vissulega hefði hann heyrt af slíkum áformum og væri þá rætt um að fresta framkvæmdum um eitt ár. Við gerð þriggja ára áætlunar um rekstur og framkvæmdir á vegum bæjarins, sem samþykkt var fyrir nokkru, var gert ráð fyrir að á næsta ári yrði varið 45 milljónum til þessa verks og á árinu 1995 færu 55 milljónir króna til verksins. Bækur í tonnavís fluttar Amtsbókasafnið á Akureyri hef- ur búið við þröng húsakynni síðustu ár og var svo komið að gólf á efri hæð sliguðust undan þunga bóka og blaða. Þegar hafa nokkur tonn af bókum og blöðum verið flutt í geymslu í húsakynnum aldraðra við Víðilund, um 500 kassar voru flutt- ir þangað síðasta vetur og nú ný- lega á milli 200 og 300 kassar. Tveir staifsmenn, sem fengið hafa vinnu við atvinnuátak sem Akur- eyrarbær hefur staðið að, hafa ver- ið við það að pakka bókum í kassa og flytja í geymslu til að létta á gólfum safnsins. Guðmundur Jónsson arkitekt hefur teiknað viðbótarbyggingu við Amtsbókasafnið og sagði Lárus að starfsmenn safnsins hefðu verið FJALLAÐ var um ýmis mál sem snúa að skólastjórnun á nám- stefnu sem Skólastjóra- og skóla- meistarafélag íslands efndi til á Akureyri fyrir skömmu. Þekktir og eftirsóttir norrænir fyrirlesarar á þessu sviði fluttu er- indi á námstefnunni, Henning Jo- hansson, prófessor við Högskolan í Luleá fjallaði um hlutverk skóla- stjórnenda og Bert Stalhammar, dr. phil. rektor við Skolledarhögskolan i Örebro ræddi um breyttar áherslur við skólastjórnun. ósköp ánægðir þegar ákveðið hefði verið að gera eitthvað í málum safnsins, en eins og útlit væri fyr- ir nú væri hann smeykur um að framkvæmdum yrði frestað enn um sinn. Þá ijallaði Steinunn H. Lárus- dóttir, skólastjóri, um skilvirkni og stjómun, dr. Börkur Hansen dósent við Kennaraháskóla íslands og Ólafur H. Jóhannsson M.ed. endur- menntunarstjóri við sama skóla fjölluðu um rannsókn sem gerð var á störfum íslenskra skólastjóra og 'Haukur Viggósson M.ed. skýrði frá nokkrum niðurstöðum úr saman- burðarrannsókn sem gerð var á störfum skólastjóra annars vegar í Lundi í Svíþjóð og hins vegar í Reykjavík, en rannsóknin er liður í doktorsnámi Hauks. Skólastjórar á fundi. Fjallað um málefni skóla- stjórnunar á námstefnu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.