Morgunblaðið - 21.10.1993, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 1993
Umdeilt atriði í
kvikmynd klippt
Los Angeles. Reuter.
WALT Disney-fyrirtækið til-
kynnti í gær, að það atriði kvik-
myndarinnar „The Program",
sem sýnir unga menn, leikmenn
í bandarísku fótboltaliði, liggja á
fjölfarinni hraðbraut, yrði klippt
burt. Er ástæðan sú, að ungur
maður lét lífið og tveir slösuðust
alvarlega þegar þeir voru að leika
eftir atriðið í myndinni.
Fá eða engin dæmi eru um
ákvörðun af þessu tagi í Bandaríkj-
unum en í tilkynningu Disney sagði,
að búið yrði að fjarlægja atriðið úr
myndinni á morgun, föstudag, en
verið er að sýna hana um öll Banda-
ríkin. Myndin segir annars frá há-
skólaliði í fótbolta og í einu atriðinu
leggjast ungu mennirnir flötum bein-
um á hraðbraut til að sýna hvað
þeir eru kaldir karlar.
Áherslan á ábyrgðarleysi
í yfirlýsingu frá Touchstone Pict-
ures, sem framleiddi myndina og er
í eigu Disney-samsteypunnar, sagði,
að í „The Program" væri raunar
lögð áhersla á ábyrgðarleysi ungu
mannanna en samt væri ekki hægt
að loka augunúm fyrir því, að ein-
hveijum dytti í hug að apa kjána-
skapinn eftir. Því hefði verið ákveðið
klippa burt atriðið.
Eins og fyrr segir er einn maður
látinn og tveir alvarlega slasaðir
eftir að hafa líkt eftir atriðinu og
þúsundir unglinga um öll Bandaríkin
hafa stundað þennan hættulega leik.
Sýnishorn úr söluskrá:
Bflar við allra hæfi
Toyota Landcruiser VX '81,
turbo diesel, rauðsans., ekinn 43
þ. km., sóllúga, álfelgur, sjálf-
skiptur, 7 manna. Verð 3800
þús. stgr., sk. á ód.
Daihatsu Applause 4x4 '81,
grásans, ekinn 41 þ. km.
Verð 1050 þús., sk. á 4-500 þús.
kr. bíl.
MMC Pajero, stuttur, V-6 '92,
rauður, ekinn 17 þ. km., upp-
haekkaður, 33“ dekk, álfelgur,
aukaljós. Verð 3 millj., sk. á ód.
Sálfræðingar, sem tjá sig um málið,
segja, að unglingum finnist gjama
sem þeim séu allir vegir færir auk
þess sem manneskjan sé aldrei jafn
varnarlaus fyrir múgsefjun og þrýst-
ingi frá hópnum og á unglingsárun-
um.
----» ♦ ♦---
Rússland
Hvatt til
samtarfs
flokka
Moskvu. Reuter.
VJATSJESLAV Volkov, háttsett-
ur samverkamaður Boris Jeltsíns
Rússlandsforseta, hvatti til þess
í fyrradag að pólitísk samtök,
sem hliðholl væru forsetanum og
ráðgerðu framboð við þingkosn-
ingamar í desember, tækju
höndum saman um að koma í veg
fyrir að flokkar fjandsamir for-
setanum næðu fótfestu á þingi.
Áskorun Volkovs þykir endur-
spegla ótta um að klofningur kunni
að skapast í röðum stuðningsmanna
forsetans, í fylkingar hófsamra og
frjálslyndra.
„Tveimur til þremur vikum fyrir
kosningarnar hyggjumst við stefna
leiðtogum flokka og fylkinga til
þess að stofna bandalag," sagði
Volkov en hann er áhrifamaður í
Rússneskum valkosti, helsta flokki
stuðningsmanna Jeltsíns. „Við
verðum að sameinast um að beina
ekki spjótum okkar hverir að öðrum
á lokasprettinum," sagði Volkov.
Hann sagðist allt eins eiga von á
því að ýmsir flokkar frjálslyndra
tækju ekki þátt í bandalagi af þessu
tagi vegna persónulegs metnaðar
foringja þeirra. Ljóst þykir að litið
yrði á það sem sviksemi við forset-
ann að neita taka þátt í kosninga-
bandalagi. í húfí er að ná yfirhönd-
inni á þingj. Eftir áhættuna sem
Jeltsín tók með því að leysa upp
fulltrúaþingið má hann ekki við því
að missa tökin á nýju löggjafarsam-
kundunni.
Háttsettir rússneskir embættis-
menn telja að stjómarandstæðing-
ar, samtök sem setja kommúnisma
á oddinn, njóti 10-30% fylgis, og
vígi þeirra sé sterkast í dreifbýli.
MMC L-300 4 x 4 bus '91, grár,
ekinn 41 þ. km. V. 1900 þús.,
sk. á ód.
MMC Lancer GLXi 4x4 '91,
hlaðbakur hvítur, ekinn 49 þ. km.
Verð 1150 þús. stgr.
Nú er rétti tíminn til
að kaupa eða selja
- vantar allar
gerðir bifreiða á
skrá og á staðinn
Rannsókn á nauðlendingu SAS-þotu í Svíþjóð árið 1991
BILASALAN
BÍLOSHÖFDA 3
S. 670333
Nauðlendingin
ÞAÐ þótti ganga kraftaverki næst að enginn skyldi láta lífið í nauðlendingu SAS-vélar við Arlanda-flug-
völl fyrir tveimur árum. Efri myndin var tekin á slysstaðnum og neðri myndin er af flugmanninum, en
talið er að hann kunni að hafa gert mistök.
Urðu flughetj-
urnii á mistök?
í niðurstöðum rannsóknar Bandarísku umferðaröryggisstofn-
unarinnar (NTSB) á nauðlendingu SAS-þotu við Arlanda-flugvöll
í desember 1991 er fullyrt að flugmenn þotunnar hefðu átt að
getað komið í veg fyrir óhappið. A sínum tíma var talað um að
flugstjórinn, Stefan Rasmussen, hefði drýgt hetjudáð þar sem
allir farþegar komust lífs af úr nauðlendingunni.
í danska blaðinu Berlinske tid-
ende segir að þotan, sem er af teg-
undinni McDonnell Douglas MD-80
sé útbúin sjálfvirkum miðlunarbún-
aði fyrir eldsneyti, sem taki mið
af þyngd, loftmótstöðu og hita.
Þegar þotan hóf sig til flugs frá
Arlanda-flugvelli, 27. desember
1991, losnaði ísing af vængjunum
og sogaðist inn í hreyfilinn. Við
það ofhitnuðu hreyflarnir og gang-
truflanir heyrðust áður en drapst
á þeim. í skýrslunni segir að flug-
mennirnir hefðu átt að aftengja
miðlunarútbúnaðinn um leið og
þeir urðu varir við að hreyflarnir
ofhitnuðu og koma þar með í veg
fyrir að það dræpist á þeim. Hins
vegar hrósa þeir sem að rannsókn-
inni stóðu, flugmönnunum fyrir
sjálfa nauðlendinguna, sem allir
farþegarnir, 129 að tölu lifðu af.
Aðstoðarflugmaður Rasmussens
segir ekki við þá að sakast, þar sem
þeir hafi ekki vitað að aftengja
ætti sjálfvirka miðlunarútbúnaðinn
í neyðartilvikum. Hefur sænska
blaðið Aftonbladet eftir yfirmanni
flugdeildar SAS að félagið hafi
heldur ekki haft vitneskju um að
þessi búnaður væri í þotunum, ekki
hefði verið óskað eftir honum, og
flugmenn því ekki verið þjálfaðir í
notkun hans við neyðaraðstæður.
Sænska flugslysanefndin lýsti
þvi yfir í gær að hún tæki ekki
undir ásakanir bandarísku rann-
sóknaraðilana um að flugmönnun-
um væri um að kenna. Meginorsök
slyssins væri ísing og að SAS hefði
ekki séð um að afísing véla flugfé-
lagsins væri i fullkomnu lagi.
Bruðlar Bamahjálp SÞ
á meðan bömín svelta?
Lundúnum. The Daily Telegraph.
FORRÁÐAMÖNNUM Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, UNICEF,
tókst nýlega að afstýra því að höfuðstöðvar stofnunarinnar yrðu
fluttar frá Manhattan í úthverfí í New York. Flutningurinn hefði
sparað jafnvirði 18,7 mil(jarða króna. Á sama tíma halda sveltandi
börn áfram að lepja dauðann úr skel.
Starfsmenn UNICEF eru 6.288 sammála þeim sem hann tali við“.
og yfírmaður þeirra, James P.
Grant, sem er 71 árs og með 8,2
milljónir í árslaun, hefur stjórnað
stofnuninni frá árinu 1980. Jafnvel
þeir sem hafa gagnrýnt hann viður-
kenna að hann sé mikill fjárafla-
maður sem hafi gert UNICEF kleift
að tvöfalda tekjur sínar, en stofn-
unin fjármagnar rekstur sinn al-
gjöriega með fijálsum framlögum
ólíkt öðrum stofnunum Sameinuðu
þjóðanna.
Úr tengslum við
raunveruleikann
Þeir sem gagnrýna Grant segja
hann hins vegar hégómlegan og
veiklyndan mann sem sé „alltaf
Nú um stundir sé hann sammála
þröngum hópi manna með „réttar“
stjómmálaskoðanir og háskólapróf
í heilbrigðisfræðum sem hafi lagt
skrifstofur stofnunarinnar í New
York undir sig. Hvað hugmynda-
fræðina varðar sé þeim uppsigað
við stórfyrirtæki og þeir séu upp á
kant við iðnvæddu ríkin.
„Þeir sem stjóma starfínu í
þriðja heiminum standa sig í stykk-
inu en það er ekki nokkur leið að
tala við mennina í höfuðstöðvun-
um,“ sagði háttsettur maður í lyíja-
fyrirtæki. „Það er mikilvægara fyr-
ir þá að hafa réttar stjórnmálaskoð-
anir en að koma einhveiju í verk.
Flestir þeirra hafa aldrei kynnst
heiminum eins og hann er. Þeir em
andvígir fyrirtækjunum en hafa
ekki hugmynd um hvað eigi að
koma í stað þeirra. Stóra vanda-
málið við stofnunina er að hana
skortir leiðtoga.“
Talið er að hartnær þriðjungur
starfsmanna UNICEF hafí litla
þekkingu á viðfangi stofnunarinnar.
Fjölmiðlasýningar
Grant þykir mikið gefinn fyrir
aðgerðir sem komast á forsíður
dagblaðanna, svo sem viðamiklar
og dýrar bólusetningarherferðir, en
margir embættismenn WHO telja
að slíkar „fjölmiðlasýningar" beri
lítinn árangur þegar til langs tíma
sé litið. Grant átti meðal annars
frumkvæði að því að bílalest á veg-
um stofnunarinnar var send til
Sarajevo fyrr á árinu eftir að sam-
ið hafði verið um frið í eina viku.
Bílamir fluttu meðal annars fatnað
sem framleiddur var í Serbíu. Mú-
slimar í Bosníu neituðu að taka við
honum.
Grant birtir árlega skýrslu um
stöðu barna í heiminum, með yfir-
lýsingum sem vekja mikla eftir-
tekt, svo sem um að tvær milljónir
bama muni deyja í Afríku fyrir
aldamót af völdum alnæmis og að
eina von álfunnar felist í því að
9.000 milljarða skuldir hennar
verði afskrifaðar. Hann hefur einn-
ig sagt að Gobi-áætlunin, sem hann
telur eitt af helstu afreksverkum
sínum, bjargi hálfri milljón barna
frá dauða á ári. „Slíkar áætlanir
skapa mikinn fyrirgang en tölurnar
vekja grunsemdir,11 sagði heimild-
armaður í heilbrigðiskerfinu. „Hin
raunverulega lausn felst í fram-
kvæmdaáætlunum sem taka lang-
an tíma. Vandinn er hins vegar sá
að þær eru ekki til þess fallnar að
vekja eftirtekt."