Morgunblaðið - 21.10.1993, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 21.10.1993, Qupperneq 28
28 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 1993 Ég þakka öllum þeim mörgu, sem sýndu mér hlýju og vinsemd á 90 ára afmceli mínu 11. október síðastliðinn og gerðu mér daginn ógleymanlegan. Guð blessi ykkur öll. Viggó Nathanaelsson. Áttir þú erfitt með að vakna í morgun? Prófaðu Rautt Eðal Ginseng og árangurinn lætur ekki á sér standa. Royal súkkulaðibúðingur - eftirlæti barnanna Royak Villibráðarhlaðborá okkar um síðustu belgi vakti mikla hrifningu og við þökkum frábærar viðtökur. Nú endurtökum við leikinn! Gestgjafí veráur Rúnar Guðmundsson matreiðslumeistari. Halldór Gunnarsson (Þokkabót) leikur á píanóið föstudags- og laugardagskvöld. Njótið lílsins yfir úrvalsréttum úr íslenskrí náttúru. . Veitingahúsið Naust Borðapantanir í síma 17759 .i/irdr/r mrr) iáf Morgunblaðið/ÚIfar Ágústsson HÖFUNDUR slagorðsins, Hjálmar Björnsson, tekur við verðlaunum úr hendi Orkubússtjóra, Kristjáns Haraldssonar. Orkubúið beisl- aðnáttúruafl ísafirði. f TENGSLUM við opið hús hjá Orkubúi Vestfjarða víðsvegar í kjör- dæminu í ágúst sl. var fólki boðið upp á að taka þátt í slagorðasam- keppni fyrir Orkubúið. 40.000 króna fyrstu verðlaunum var heitið og fjórum 10.000 króna viðurkenningum. Verðlaunin voru afhent í höfuðstöðvum fyrirtækisins á ísafirði í síðustu viku. Ólafur Helgi Kjartansson sýslumaður, talsmaður dómnefndar, sagði að yfir 300 tillögur hefðu borist, en nefndin hefði verið einhuga um að besta uppástungan að slagorði væri: Orkubúið beislað náttúruafl. Laxárdalshreppur Oánægja með tillögur um embætti sýslumanns Búðardal. Á NÝAFSTAÐNUM hrepps- nefndarfundi Laxárdalshrepps í Búðardal kom skýrt fram sú óánægja sem ríkir í Dölum út af ákvörðunum um að leggja niður sýslumannsembætti hér og hefur hreppsnefnd Laxárdalshrepps sent frá sér greinargerð til dóms- málaráðherra. í greinargerðinni mótmælir hreppsnefnd Laxárdalshrepps harð- lega tillögum að embætti sýslu- mannsins í Búðardal verði lagt nið- ur og lýsir yfir að hún geti undir engum kringumstæðum fallist á slíkar aðgerðir. Er skorað á ríkis- stjórn að falla frá þeirri skelfmgu í þjónustu ríkisins við íbúa Dala- sýslu sem óhjákvæmilega fylgir þessari ákvörðun. Telur hreppsnefndin framkomn- ar tilllögur um niðurlagningu sýslu- mannsembættisins í Búðardal vera algjörlega úr takt við þá umræðu sem fór fram við endurskoðun sýsluumdæma fyrir skömmu og ennfremur að þær stangist á við hugmyndir um dreifingu verkefna, valds og þjónustu sem tengdar eru áformum um sameiningu sveitarfé- laga og breyttar áherslur í byggðar- málum. Þá telur hreppsnefnd Laxárdals- hrepps að sá litli sparnaður sem ef til vill má reikna með eftir niður- lagningu embættis sýslumannsins í Búðardal muni kosta þjóðarbúið meira en sem honum nemur þegar frá líður. Hreppsnefndin hefur áður bent á hagræði og væntanlega sparnað við að þjóna Reykhóla- hreppi frá Búðardal. - Kristjana Það kom síðan í ljós að höfundur þess var einn af starfsmönnum Orkubúsins, Hjálmar Björnsson há- spennuvirki. Uppástungurnar sem hlutu viðurkenningur voru: Orkubú Vestfjarða - afl í heimabyggð, höf- undur Ástvaldur Bjömson, Fjár- sjóður í fallvötnum - Orkubú Vest- fjarða og Auðlind í almannaþágu - Orkubú Vestfjarða, höfundur Pétur Bjarnason fræðslustjóri og Orku- búið - ljóslifandi, höfundur Vigdís Jakobsdóttir og Jakob Falur Garð- arsson. I greinargerð dómnefndar segir um verðlaunatillöguna: „Slagorðið er einfalt og grípandi, vísar til þess að hlutverk Orkubúsins er að beisla náttúruauðlindir Vestfjarða, íbúum héraðsins til farsældar. Tilvísunin er margræð og má m.a. benda á frægustu galdramenn landsins. Það er göldrum líkast að beisla áður óhamin vatnsföll þannig að menn njóti þeirra heima í stofu.“ Ekki er ólíklegt að þessi hug- mynd standi Hjálmari nærri því að þegar aðrir Vestfirðingar hanga bölvandi heima í stofu við kertaljós og kulda í bandvitlausu vetrar- veðri, gæti hann verið sitjandi á þverslá háspennustaurs við að koma beisluðu náttúruaflinu inn á heimil- in laminn af náttúruöflunum sem ekki verða beisluð. En hann og sam- starfsmenn hans eru þekktir fyrir ótrúlega þrautseigju og áræði við viðgerðir á háspennulínum á fjöllum uppi í stormum og stórhríðum. - Úlfar HJÁ ANDRÉSI Skólavörðustíg 22A - sími 18250 - póstkröfuþjónusta. Nýsending af jakkafötum...Verð kr. 14.900 Ný sending af fauelsbuxum .Verð kr. 1.790-5.600 Yfirhafnir og peysur í úrvali. Stakar buxur í úrvali.Verð frá kr. 1.000-5.600 Heilnæm og náttúruleg húsakynni! McÉumJkméí 100% náttúruleg málning og yfirborðsefni. Fyrir arkitekta, málara, byggingamenn og allt áhugafólk! Hjónin Rosi B. og Freddy Carlsen halda námskeið um heilnæm húsakynni og eiginleika náttúruefna frá livos, laug- ardaginn 23. okt. að Hótel Loftleiðum kl. 11 til 17. Livos -fyrirtækið var stofhað fyrir 20 ár- um undir áhrifum ffá mannspeki Innifalið: gögn, hádegisverðarhlað- borð og miðdegiskaffi. Verð: kr 4.500,- Skráning hiá: Hrímgull í síma: 628484 Laugavegi 84,3ja hæð, fax: 628414 Náttúrulegt Jyrir nýja tíma! Morgunblaðið/Alfons Snjófell leggur geim- verum lið Tryggvi Konráðsson hjá ferða- þjónustunni Snjófelli á Arnarstapa er tilbúinn að ljá ferðamönnum og geimverum þjónustu sína en þeirra er vænst á Snæfellsjökul þann 5. nóvember. Hefur Tryggvi átta snjósleða til umráða svo flestir sem ætla að nota þá þjónustu ættu að koma á jökulinn í tæka tíð svo þeir missi ekki af mesta stórviðburði aldarinnar er geimverurnar koma í heimsókn. Eins og sjá má á myndinni hefur Tryggvi látið útbúa spjald á bifreið sína til að minna fólk á þann viðburð sem er í vændum. Fyrirlestur með Gurudev Heimsvitund - Hvernig getur sjálfsvitund einstaklTngsins stuðlað að bættu heimsástandi ? Fyrirlesturinn verður í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði, föstudaginn 22. október, kl. 19:45 - 22:00. lóeastöðin HEIMSUOS Skeifunni 19, 2. hæð, sími: 91-679181. Verð: 1.000 kr. Aðgöngumiðasala í Jógastöðinni Heimsljósi alla virka daga frá ki. 17:00 - 19:00 og við innganginn frá kl. 18:30.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.