Morgunblaðið - 21.10.1993, Side 31
Morgunblaðið/Jón H. Sigurmundsson
FÉLAGAR í Norræna félaginu í Þorlákshöfn við bálköstínn í Selvogs-
fjöru.
Norræna félagið
í Þorlákshöfn
Þorlákshöfn.
NORRÆNA félagið í Þorlákshöfn er ekki nema þriggja ára gamalt
en samt sem áður er starfsemi þess í miklum blóma. I félaginu eru
yfir 50 félagar.
Síðastliðið starfsár hófst með
bókmenntakynningu sem haldin var
í tengslum við Norræna bók-
menntadagskrá í Reykjavík. Þar
komu fram norrænir höfundar sem
lásu úr verkum sínum og spjölluðu
um þau. Þetta voru þau Ann-Cath
Westley frá Noregi, Carl Jóhann
Jenssen frá Færeyjum og Thorgny
Lindgren frá Svíþjóð. Heimir Páls-
son, bókmenntafræðingur var með
í för og flutti hann stuttan inngang
að kynningunni. Nokkuð vel var
mætt í sal Grunnskólans og góður
rómur gerður að þessari notalegu
stund.
Árleg jólakvöldvaka var haldin í
desember. Þar voru á borðum nor-
rænir jólaréttir og flutt voru
skemmtiatriði tengd hverju Norður-
landanna. Tókst þetta í alla staði
mjög vel og í ár verður kvöldvaka
haldin á svipuðum tíma og væntan-
lega með sama sniði.
Aðalfundur ársins 1993 var hald-
inn að Strönd í Selvogi þann 23.
júní í tengslum við Jónsmessuhátíð
félagsins". Þar bar ýmis mál á góma
auk venjulegra aðalfundarstarfa.
Að loknum aðalfundinum var farið
út í vorblíðuna og grillað í fjör-
unni. Kveikt var í bálkesti sem
unglingadeildin hlóð meðan á aðal-
fundinum stóð, sungið við bálið og
farið í leiki þar sem allir tóku þátt,
ungir sem aldnir.
Hér eru ótaldir stjórnarfundir og
óformlegir rabbfundir félagsmanna
en af þessari upptalningu má sjá
að starfíð er bæði blómlegt og
skemmtilegt.
- J.H.S.
morgunuiauiu/neiga junasuouir
I áheitagöngu
KRAKKARNIR söfnuðu 150 þús. kr. í áheitagöngu sem farin var
frá Tálknafirði til Patreksfjarðar.
Félagsmiðstöð opn-
uð á Tálknafirði
^ Tálknafirði.
Á NÆSTUNNI mun verða opnuð
félagsmiðstöð á Tálknafirði en
Tálknafjarðarhreppur hefur tek-
ið á leigu 115 fm húsnæði hjá
Eyrasparisjóði undir miðstöðina.
Á undanförnum árum hefur
æskulýðs- og íþróttanefnd leitað að
hentugu húsnæði undir starfsemina
en ekki orðið ágengt fýrr en núna.
Nemendur í elstu bekkjum
Grunnskóla Tálknaíjarðar hafa
undanfarið unnið við að standsetja
húsnæðið. Helgina 8.-9. október
var hrundið af stað fjáröflun til
kaupa m.a. á hljómtækjum og ýmsu
af því sem þarf til að koma hús-
næðinu í stand. Foreldrafélag
grunnskólans hélt kökubasar á
laugardeginum og gekk hann mjög
vel. Á sunnudeginum gengu nem-
endur áheitagöngu en hún fólst í
því að ganga frá Tálknafirði til
Patreksfjarðar með mann í sjúkra-
börum. Gengan var skipulögð þann-
ig að sex gengu í einu og héldu á
börunum og skiptust nemendur á
að liggja í þeim. Skipt var um hópa
á klukkutíma fresti og hvíldu nem-
endur í bifreiðum sem fylgdu
göngunni eftir. Alls söfnuðustu um
150 þús. krónur. Ennfremur hafa
foreldrar og fyrirtæki gefíð málri-
ingu til miðstöðvarinnar.
Mikill og góður félagsandi er
meðal grunnskólanema á Tálkna-
firði og verður tilkoma miðstöðvar-
innar sá hlekkur sem vantaði í þeirri
starfsemi sem haldið er uppi fyrir
börn og unglinga, bæði á vegum
grunnskólans og einnig á vegum
Ungmennafélags Tálknafjarðar.
- Helga.
RAFTÆKNIVERSLUN FÁLKANS • RAFTÆKNIVERSLUN FALKANS • RAFTÆKNIVERSLUN FALKANS •
Qnoveimco
ÞáKVIFTIJR OG HnTABLÁSARAR
Staðlaðar einingar hitablásara frá Novenco til loftræsingar
og lofthitunar í íbúðarhús, skemmur, bílskúra,
veitingahús og verkstæði. Höfum einnig
þakblásara og þakhettur fyrir skemmur,
skrifstofubyggingar, verkstæði o.fl.
Novenco er dönsk gæðavara.
Veitum tæknilega ráðgjöf við val
á loftræsibúnaði og hitablásurum.
RAFVÉLAVERKSTÆÐI FÁLKANS
HÖFÐABAKKA 9 • SlMI: 91-685518
Mótorvindingar, dæluviðgerðir
og allar almennar ratvélaviðgerðir.
Pekking Reynsla Pjónusta
FÁLKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8-108 REYKJAVÍK
SÍMI: 91-81 46 70 • FAX: 91-68 51 74
• RAFTÆKNIVERSLUN FALKANS • RAFTÆKNIVERSLUN FALKANS • RAFTÆKNIVERSLUN FALKANS • RAFTÆKNIVERSLUN FALKANS •