Morgunblaðið - 21.10.1993, Qupperneq 32
32
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. OKTOBER 1993
Ársþing Bridssambands íslands
Fleiri sveitir í úrslita-
keppni Islandsmótsins
Tíu svejtir munu keppa til úr-
slita um íslandsmeistaratitilinn í
brids sem fram fer í vor og 40
sveitir spila í undankeppninni.
Þessar breytingar á Islandsmótinu
voru samþykktar á ársþingi Brids-
sambandsins sem fram fór sl.
sunnudag.
Milli þrjátíu og fjörutíu manns
mættu á þingið víðs vegar að af land-
inu. Forseti Bridssambandsins, Helgi
Jóhannsson gerði grein fyrir starf-
semi sambandsins á sl. starfsári.
Helztu áherzluatriði í máli hans voru
árangur bridslandsliðanna á sl. ári,
hin gífurlega fjölgun félaga innan
sambandsins, en þeim hefur fjölgað
úr 42 frá árinu 1990 í 52. Þá sagði
Helgi breytinga að vænta í húsnæðis-
málum sambandsins mjög fljótlega.
Stjórn sambandsins var öll end-
urkosin ef frá er talið að Steingrímur
Gautur Kristjánsson gaf ekki kost á
sér og var Guðmundur Páll Arnarson
kosinn í hans stað en stjórn sam-
bandsins er annars þannig skipuð:
Morgunblaðið/V. Hansen
Strandamenn vilja fá að fjölga fé um 500 ærgildi. Nýlega var réttað
á Ströndum en sláturfé er nú flutt á Hólmavík til slátrunar.
Morgunblaðið/Arnór
Svipmynd frá Bridssambandsþinginu. Við háborðið frá vinstri: Ólaf-
ur Ólafsson Hvolsvelli fundarsljóri, Hjalti Elíasson fv. forseti Brids-
sambandsins í ræðustól, Helgi Jóhannsson forseti, Valgerður Krist-
jónsdóttir ritari og Krislján Hauksson, gjaldkeri.
Arneshreppur
Helgi Jóhannsson forseti, Guðmund-
ur Sv. Hermannsson varaforseti,
Kristján Hauksson er gjaldkeri, Val-
gerður Kristjónsdóttir er ritari en
meðstjórnendur eru auk Guðmundar
Páls, Brynjólfur Gestsson og Einar .
Guðmundsson.
Af öðrum málum sem skipta hinn
almenna spiiara nokkru máli má
nefna að kvöldgjald spilara til brids-
sambandsins var ákveðið 70 krónur
en var 60 krónur. Þá var kynnt
keppni sem sambandið er að hleypa
af stokkunum en það er kjördæma-
keppni sem spiluð verður í tveimur
deildum.
Húsavík
Foreldrar vinna við gerð æfingavaUar
Fundur um efl-
ingu atvinnu
Trékyllisvík
Á FUNDI sem haldinn var nýlega í samkomuhúsinu í Árneshreppi var
rætt um hvernig mætti efla atvinnu í hreppnum og tryggja áframhald-
andi byggð. Fundarmenn voru sammála um að bættar samgöngur
væru forgangsverkefni fyrir sveitina og að framhaldið byggðist að
miklu leyti á þróun þeirra.
Húsavík.
MIKILL knattspymuáhugi er og
hefur lengi verið á Húsavík, ekki
síst meðal þeirra yngstu og talið
er að í sumar hafi hátt í 200 ung-
menni stundað knattspyrnuæfing-
ar. Þó tveir fullkomnir vellir séu
í bænum hefur mjög skort á æf-
ingasvæði og þá sérstaklega fyrir
þá yngstu.
í haust fengu áhugasamir foreldr-
ar til umráða gamalt tún, um 7000
fm, á svonefndu Króklágaholti sem
er austan vegar, ofan við Haukamýr-
ina og hófu þar byggingu á 70 x 100
metra æfingavelli. Það þurfti fyrst
að rista túnið og jafna undirstöðu
og síðan þekja flötinn aftur. Þetta
var mikið verk en foreldrar sýndu
því mikinn áhuga og unnu af kappi
með ungmennunum.
Foreldrar tyrfa æfingavöllin í sjálfboðavinnu.
Morgunblaðið/Silli
Verkinu miðar vel
Tvö fyrirtæki studdu þessa fram-
kvæmd sérstaklega mikið með því
að lána tæki endurgjaldslaust. Bjöm
Sigurðsson lánaði ýtu til að slétta
völlinn og Skipaafgreiðsla Húsavíkur
lagði til lyftara og vörubíl.
Veðurblíðan í haust hefur orðið til
þess að verki þessu hefur miðað vel
áfram og útlit er fyrir að völlurinn
verði tilbúinn til æfinga í vor. Fram-
tak þetta sýndi að margt er hægt
að gera ef menn hafa áhuga á að
standa saman.
- Fréttaiitari
Hreppsnefnd Árneshrepps hefur
formlega óskað eftir að Kaupfélag
Steingrímsfjarðar reki áfram verslun
í Norðurfírði. Fundarmenn voru sam-
mála um að aukning. fullvirðisréttar
um 500 ærgildi kæmi sér vel fyrir
sveitina. Rætt var um að sækja um
stuðning til Framleiðnisjóðs til kvóta-
kaupa. Einnig þarf að bæta aðstöðu
til saltfískverkunar í Norðurfírði og
á Djúpuvík.
Rekaviður og ferðamenn
Þá var rætt um aukna vinnslu úr
rekaviði þar sem slíkt er mögulegt.
Það kom fram að einn bóndi í sveit-
inni hefur góðan markað fyrir unninn
reka. Hugsanlega mætti nýta þann
markað betur með aukinni samvinnu
rekabænda. Fundarmenn voru sam-
mála um að auka mætti ferðaþjón-
ustu ef samgöngumál kæmust í við-
unandi horf. í framhaldi af því var
rætt um að þörf væri á átaki í um-
FERÐATILBOÐ í VIKU # FERÐATILBOÐ í VIKU # FERÐATILBOÐ í VIKU • FERÐATILBOÐ í VIKU
Taktu flu
3 gerðir dömukaðlapeysur,
5 litir með og án
rúllukraga.
Verðáðurkr. 2.295,-
2
Ferðatilboð
Herragallabuxur.
Verð áður kr.Tr995,-
Stærðir »2-128.
Vexð-ááur-krHi29S,-
Ferðatilboð
ism
Ferðatilboð
Moonboots barna.
YeriLáðue-kr.-hí 9 5
Ferðatilboð
m
'
Rúllukragapeysur barna.
Stærðir 128-164.
Verðjðufckn-t?«*5,-
Ferðatilboð
Nú færðu ofangreindar vörur á einstöku ferðatilboði f viku,2l.-27 okt.
Lyftu þér nú upp og nýttu þér ferðatilboð í verslunum Hagkaups
í vikunni. Ef Hagkaup er ekki f byggðarlaginu þá er
hægt að notfæra sér þjónustu Póstverslunar
Hagkaups.grænt sfmanúmer 99 66 80.
Tilboðið gildir á meðan birgðir endast.
HAGKAUP
hverfísmálum, bæði hjá einstakling-
um og sveitarfélaginu. Einnig var
hugur í mönnum að setja upp skilti
þar sem fram kæmi fræðsla um
merka staði og ömefni í sveitinni.
Verkefnisstjóri er Karl Sigurgeirsson.
V. Hansen.
Útivist í
fjallaferð um
veturnætur
ÚTIVIST efnir til ferðar í Jökulg-
il, Landmannalaugar og Land-
mannahelli þar sem gist verður í
vistlegum skála næstu helgi
22.-24. október.
Töfrar Jökulgils felast ekki hvað
síst í hinni miklu litadýrð sem gilið
býr yfír. Fjöllin sem mynda umgjörð
gilsins eru úr súru bergi, lípariti, sem
víða eru soðin í sundur af brenni-
steinsgufum en Jökulgil tileyrir hinni
svonefndu Torfajökulsmegineldstöð
sem afmarkast af útbreiðslu súra
bergsins á þessu svæði. í miðri meg-
ineldstöðinni er talin vera askja allt
að 15 km í þvermál og þar með sú
stærsta á landinu og innan hennar
eitt mesta háhitasvæði landsins.
Litadýrðin verður þess valdandi að
alltaf virðist vera sól í Jökulgili þrátt
fyrir dimmviðri allt í kring, segir í
fréttatilkynningu frá Útivist.
ERFIDRYKKJUR
Verð frá kr. 850-
P E R L A N sími 620200
Ertidrykkjur
Glæsileg kíilli-
hlaðborð fallegir
síilir og mjög
gtkl þjðmista.
lipjilýsingar
ísíma22322
FLUGLEIDIR
HÍTEL LIFTLEIIIt