Morgunblaðið - 21.10.1993, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 21.10.1993, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 1993 jKristín Bjama- dóttir - Minning Fædd 29. júní 1943 Dáin 15. október 1993 Legg ég nú bæði líf og önd, ljúfí Jesús, í þína hönd. Síðast þegar ég sofna fer sitji Guðs englar yfír mér. (Hallgrimur Pétursson.) í dag kveð ég með söknuði mína ástkæru frænku og æskuvinkonu, Kristínu Bjarnadóttur, sem verður jarðsungin frá Hveragerðiskirkju í dag. Hún var fædd 29. júní 1943 en lést 15. október sl. Hún var dótt- ir hjónanna Guðrúnar Guðmunds- dóttur og Bjarna Tómassonar er lést 26. ágúst sl. Stína var fjórða elst af ellefu systkina hóp. Það koma í huga mér svo margar æskuminningar okkar frá því við vorum í Hveragerði. Þær voru ljúfar stundimar er við áttum sáman er við vorum að leik með brúðurnar okkar og í ævintýraleikj- um. Þar voru ávallt birta og gleði. Elsku Stína, þú varst ein af þeim sem betrumbæta lífið. Þú varst allt- af svo blíð og góð og þú hafðir svo margt að gefa, en aldrei kvartaðir þú, þótt þú hefðir átt við vanheilsu að stríða. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Elsku Gunna frænka og kæru frændsystkini. Þótt sorgin sé mikil og sárin grói seint þá getum við huggað okkur við það að nú er hún Stína okkar komin þangað sem engar þjáningar eru til og eilíf birta ríkir. Minningin um góða dóttur, systur og frænku lifir og fyllir hjörtu okkar þakklæti. Ég votta ykkur mína dýpstu samúð á þessum erfiðu tímamótum. Megi Guð styrkja ykkur í sorg ykkar. Bryndís Jónsdóttir. Á hverri sekúndu fæðist manns- sál í heiminn. Nýtt ljós er tendr- að, stjarna, sem ef til vill mun tindra óvenju skært og hefur að minnsta kosti sitt eigið litróf, sem aldrei hefir áður verið augum lit- ið. Ný vera, sem ef til vill á eftir að dreifa um sig hugviti eða feg- urð, kyssir jörðina. Enginn maður er endurtekning annars manns né verður heldur nokkurntíma sjálfur endurtekinn. Hver ný vera líkist þeim halastjörnum, sem aðeins einu sinni um alla eilífð snerta braut jarðarinnar og fara á einni örskotsstund yfir hana eftir björtum vegi sínum — leift- ur, sem bregður snöggvast fyrir milli tveggja eilífða af myrkri. (Úr bókinni Ditta mannsbarn eftir Martin Andersen Nexö í þýðingu Einars Braga.) Lífsgöngu mannsbarns er lokið. Myndgerð sögunnar um Dittu mannsbarn var á dagskrá Sjón- varps kvöldið sem Kristín Bjarna- dóttir dó. Það var við hæfi, því sögupersónan Ditta og hún Stína mín áttu sitthvað sameiginlegt; hreinleika hjartans, einlægni, greiðvikni og barnslegt sakleysi. Við föllum í stafi gagnvart hrekkleysi og einlægni barnsins — öll þjóðin horfír full aðdáunar á börnin tína út úr sér spekina í þátt- um Hemma Gunn. Því veldur að nokkru eftirsjá vegna þess sem var. Við vitum hve undurfljótt bernskan molnar utan af okkur — við lærum að tileinka okkur lögmál þau og leikreglur sem gilda í heimi fullorðinna; að leyna innra manni, gæta hagsmuna okkar, að skara eld að eigin köku — og vera því hæfílega tortryggin í garð annarra. Við nefnum þetta gjarnan heil- brigða skynsemi. En til eru þeir sem vaxa aldrei fullkomlega upp úr heimi barnsins. Þeir varðveita alla tíð dýrmæta eðliskosti og læra aldrei að sýnast. Þeir sem umgangast slíkt fólk geta hins vegar margt af því lært. Kristín Bjarnadóttir, sem nú er kvödd, var til dæmis heill skóli í nægjusemi — eiginleika sem þjóð- ina, eins og hún leggur sig, skortir sáran. Efnisleg gæði skiptu hana litlu, hún var gjörsamlega laus við löngun til þess að eiga ei'tthvað. Hún krafðist lítils sjálfri sér til handa, en hafði þeim mun meiri ánægju af því að víkja einhveiju að öðrum. Stína ólst upp í Hveragerði, í húsinu á Breiðumörk 5, sem alltaf var „heima“. Fjölskyldan var stór, systkinin mörg og þar sem Stína var elst systranna, kom í hennar hlut að líta eftir þeim yrigri, eftir því sem geta hennar leyfði. Því hlutverki sinnti hún af trúmennsku, enda var það henni létt, þar sem hún var bæði barngóð og þolinmóð. Yngri systur hennar guldu henni fóstrið ríkulega þegar hún fluttist síðar á ævinni í sambýli fyrir þroskahefta ásamt Hildi systur sinní. Systurnar hafa heimsótt Stínu og Hildi eins oft og því varð við komið og gerðu þeim kleift að heimsækja aldraða foreldra sína í Hveragerði og vera heima nætur- sakir. Stína var með afbrigðum ættrækin og bar hag foreldra sinna og systkina mjög fyrir brjósti. Hún vildi allt fyrir sína nánustu gera, og raunar ekki bara þá, því að leit- un var að greiðviknari og ósporlat- ari manneskju. Það sem í hennar valdi stóð að gera, það gerði hún þegjandi og hljóðalaust og áður en við varð litið. Henni var þetta eng- in fóm, heldur sjálfsagt mál. Stína var þó síður en svo nein meinlæta- manneskja. Hún kunni að njóta lífs- ins. Hún var afar lagleg og fíngerð og hafði gaman af því að vera fal- lega klædd. Hún naut þess að ferð- ast, að syngja, að sauma út, að slaka á í heita pottinum, að borða góðan1 mat, og hún elskaði birtu og sól. Fyrir þremur árum fórum við Stína og Björk systir hennar í skemmtilega og eftirminnilega sól- arlandaferð. Það er gott að hugsa til þess nú, að sú ferð varð að veru- leika, meðan Stína hafði enn heilsu til að njóta þess. En heilsu hennar fór síðan hrakandi og fyrir rúmu ári greindist hjá henni beinkrabba- mein. Þetta ár var henni erfítt, barátta við sjúkdóminn og nú föðurmissir fyrir skömmu. Síðasti spölurinn var þrautaganga. En líf- slöngunin var sterk þó að kraftam- ir væru á þrotum og inn á milli komu bjartari dagar. Elsku Stína mín lifði það að halda upp á fimm- tugsafmælið sitt. Þann dag ljómaði hún af gleði. Hún sat svo fín og brosandi í stól og tók á móti gestum í sól og sumri. Og þó að af henni væri dregið gat hún með hjálp fjöl- skyldunnar ferðast m.a. til Akur- eyrar í sumar. Heimahlynning Krabbameinsfélagsins gerði það svo mögulegt að Stína þurfti aldrei að yfírgefa heimili sitt. Hún dó umkringd sambýlisfólki sínu, systr- um og starfsfólki og það er ómetan- legt, ekki aðeins fyrir hana, heldur þá sem eftir lifa. Þó að leiðir okkar Stínu hafi skilið síðastliðið vor, hafði ég spurnir af heilsufari hennar þessa mánuði sem hún átti ólifaða. Ég er fegin að hafa farið að hugboði, ekið austur á Selfoss tveim dögum áður en hún skildi við þetta líf og kvatt hana. Fyrir það er ég þakk- lát nú. Það hlýtur að vera þeim sem kveður nokkurs virði, og eftirlifend- um harmabót, að fara héðan af heimi vammlaus og í sátt við aðra. Það gerði Stína. Hún hélt sinni barnatrú allt til enda og ég trúi því einfaldlega að þeir sem það gera, gangi inn í sitt himnaríki. Þar á hún von góðrar heimkomu. Móður hennar og systkinum sendi ég einlægar samúðarkveðjur. Þau umvöfðu Stínu kærleika í erfiðri sjúkdómslegu, en á engan er hallað þegar Björk systir hennar er nefnd sérstaklega. Úmhyggja hennar alla tíð fyrir velferð systra sinna er ein- stök og hún var í bókstaflegri merkingu vakin og sofin yfir systur sinni síðasta spölinn. Mikil og erfíð breyting verður líka á högum Hild- ar minnar við þessi umskipti, og það er ósk mín að henni gefist styrkur til að taka því. Guðrún Ægisdóttir. t Elskulegur eiginmaður minn, THORBERQ PÁLL JÓNASSON, Dalbraut 20, lést þriðjudaginn 19. október í Borgarspítalanum. Ehsabet Karlsdóttir. t Elskulegur eiginmaður minn og fósturfaðir, GUNNAR GISSURARSON, Þórufelli 14, Reykjavfk, andaðist á hjartadeild Landspítalans 11. október. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Guðrún Guðjónsdóttir, Eggert Þór Bernharðsson. t Dóttir okkar og systir, DÖGG BJÖRNSDÓTTIR frá Luxembourg, verður jarðsungin frá Garðakirkju föstudaginn 22. október kl. 15.00. Sigriður Aradóttir, Björn Finnbjörnsson, Guðmundur Ari Björnsson, Finnbjörn Björnsson. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN HERMANNSSON, Furugrund 40, Kópavogi, lést þann 19. október. Elín Jónsdóttir, Elínbjört Jónsdóttir, Tryggvi Páll Friðriksson, Petra Jónsdóttir, Kristján Jón Karlsson, Arnþrúður Jónsdóttir, Sveinn Magnússon, Hermann Jónsson, Guðrún Einarsdóttir, barnabörn og barnabarnabarn. t Ástkœr eiginmaður minn, faðír okkar, tengdafaðir og afi, MARGEIR ÁSGEIRSSON frá Hnífsdal, lést í sjúkrahúsinu í Keflavík, miðviku- daginn 20. október. dagmn 20. október. Ásthildur Árnadóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. t Eiginmaður minn, ÓLAFUR STEINSSON frá Kirkjulæk, lést í Landspítalanum 19. október. Fyrir hönd aðstandenda, María Jónsdóttir. Móðir okkar. t VIKTORfA KETILSDÓTTIR frá Kaðlastöðum, Stokkseyri, andaðist í Ljósheimum, Selfossi, 19. október sl. Bjarnfríður Símonardóttir, Ketill Símonarson. t Móðurbróðir okkar, STEINGRÍMUR JÓHANNESSON, Svfnavatni, Austur-Húnavatnssýslu, verður jarðsunginn frá Svfnavatnskirkju laugardaginn 23. október kl. 14.00. Systkinabörn hins látna. Bróðir okkar, t ÁRNI ÞÓRARINN ÁRNASON frá Holti í Aðalvík, til heimilis á Hringbraut 136, Keflavik, verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju föstudaginn 22. október kl. 14.00. Kristján Árnason og systkini. t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÁSTHILDUR KRISTJÁNSDÓTTIR frá Ljósalandi, Seltjarnarnesi, sem lést á Hrafnistu, Reykjavík, 12. þ.m., verður jarðsungin frá Seltjarn- arneskirkju föstudaginn 22. október kl. 13.30. Halldór Ben Þorsteinsson, Sólveig Sigurðardóttir, Benedikt Þorsteinsson, Anna Albertsdóttir, Steinþór Þorsteinsson, Elísabet Brynjólfsdóttir, Jónína Þorsteinsdóttir, Erla Þorsteinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.