Morgunblaðið - 21.10.1993, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 1993
35
Guðrún Helgadóttir
Ustrup — Minning
í dag kveðjum við kæra vinkonu
okkar, Kristínu Bjarnadóttur. Krist-
ín var dóttir hjónanna Guðrúnar
Guðmundsdóttur og Bjarna Tómas-
sonar, uppalin í Hveragerði.
Árið 1982 fluttist hún á Selfoss
og lést þar á heimili sínu, Árvegi
8,15. október sl. eftir erfið veikindi.
Það sem kemur upp í huga okkar
er hversu þægileg persóna hún var,
traust og umhyggjusöm. Það lýsir
hennar innri manni best hve börn
hændust að henni.
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur hið sama,
en orðstír,
deyr aldregi,
hveim er sér góðan getur.
(Úr Hávamálum.)
Með þessum fáu orðum viljum
við þakka henni samfylgdina. Móð-
ur og aðstandendum vottum við
samúð okkar allra. Blessuð sé minn-
ing hennar.
Hildur, Jón, Haraldur, Þórhallur,
Steinunn, Sigurbjörg, Anna, Helga,
Katrín, Asta, Inga Dóra, Hrafnhild-
ur, Sigríður, Ólavía, og Jensey.
í dag kveðjum við systur okkar
og mágkonu, Kristínu Bjarnadótt-
ur, sem lést á heimili sínu 15. þessa
mánaðar eftir erfið veikindi síðustu
mánuði. •
Kristín fæddist 29. júní 1943 á
Blesastöðum á Skeiðum, dóttir
hjónanna Bjarna Tómassonar og
Guðrúnar Guðmundsdóttur. Var
nún ijórða í röð ellefu systkina.
Þegar hún var á fyrsta ári fluttist
hún með foreldrum sínum í Hvera-
gerði og þar bjó hún hjá þeim til
ársins 1978. Þá fluttist hún til
Reykjavíkur þar sem hún bjó á sam-
býli þroskaheftra í Sigluvogi í írjög-
ur ár. Árið 1982 fluttist hún aftur
austur fýrir ijall, að þessu sinni að
Árvegi 8 á Selfossi. Þar hafði þá
verið stofnað sambýli og eignaðist
hún þar heimili ásamt Hildi systur
sinni. Á Árveginum bjó hún til
dauðadags og .stundaði vinnu á
Selfossi á meðan kraftar og heilsa
entust.
Það er margt sem kemur upp í
hugann þegar við minnumst Stínu
á þessari stundu. Má þar nefna alla
þá miklu þolinmæði og blíðu sem
hún sýndi systkinum sínum, og alla
þá hjálp sem hún lagði af mörkum
við heimilishaldið á Breiðumörk-
inni. Og ekki var lítil sú hjálp sem
fólst í umönnun yngri systkina
sinna, og margar voru bænirnar og
vísurnar sem hún kenndi þeim.
Stína hafði mjög gaman af söng,
og margan sönginn raulaði hún með
systkinum sínum.
En ekki munum við síst minnast
Stínu fyrir dugnað henanr og vinnu-
semi alla tíð. Þrátt fyrir að hún
hafi aldrei gengið heil til skógar,
stundaði hún ávallt vinnu, og þau
eru ófá störfín sem hún hefur unn-
ið um ævina. Var sama á hveiju
gekk, aldrei heyrðist hún kvarta,
enda voru þolinmæði og samvisku-
semi ákaflega ríkir þættir í fari
hennar.
Mikið yndi hafði Stína af ferða-
lögum og á síðari árum fór hún
nokkrar ferðir til útlanda sér til
mikillar ánægju. Og þrátt fyrir veik-
indin fór hún á liðnu sumri í ferða-
lag norður til Akureyrar í heimsókn
til systur sinnar.
Við viljum að lokum færa öllum
sem starfað hafa á sambýlunum
þau ár sem Stína hefur búið þar
þakkir fyrir að hafa gert henni
mögulegt að búa sér þar heimili.
Sérstakar þakkir viljum við færa
þeim sem annast hafa hana í veik-
indum hennar undanfarna mánuði.
Um leið og við vottum móður
okkar og tengdamóður, Guðrúnu
Guðmundsdóttur, samúð okkar og
biðjum henni allrar blessunar, vilj-
um við kveðja Stínu með einum
þeirra sálma sem henni voru kæ-
rastir.
Nú legg ég augun aftur
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vöm í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka,
þinn engii, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjöm Egilsson)
Systkini, mágar og mágkona.
Fædd 25. september 1903
Dáin 15. október 1993
Guðrún var fædd á Geirmundar-
hóli í Hrollleifsdal í Skagafjarðar-
sýslu. Voru foreldrar hennar þau
Helgi Pétursson og Margrét Sigurð-
ardóttir. Ólst Guðrún þar upp og
síðar á Siglufirði. Systkinin voru
átta talsins og komust sex til full-
orðinsára. Vegna veikinda móður
ólst hún upp hjá læknishjónunum á
Siglufirði, þeim Camillu Hallgríms-
son og Guðmundi Hallgrímssyni,
þar sem henni fæddist dóttirin Cam-
illa Pétursdóttir. Pétur faðir hennar
var síðan læknir á Akureyri um
áratugaskeið. Fluttist Guðrún til
Reykjavíkur með dóttur sína unga,
þar sem hún kynntist síðar manni
sínum, Lárusi Ustrup, dönskum
bátasmið. Fluttust þau til Vejle í
Danmörku skömmu fyrir stríð og
urðu þar innlyksa á stríðsárunum.
Var Camilla þá í fóstri hjá föð-
urömmu sinni og föðursystur á ís-
landi.
Að stríði loknu komu þau hjón
aftur til íslands og bjuggu þau
lengst af á Laugavegi 37 og var
Guðrún þar heimilisföst allt til 1972
að hún fluttist að Norðurbrún 1.
Tókst mikil vinátta með þeim hjón-
um og heimilisfólki á Laugavegi 37
og 39, þeim hjónum Árna Jónssyni
og Lilju og síðar Kristjönu dóttur
þeirra og afkomendum hennar. Lár-
us lést 1962 langt um aldur fram
og var hann hinn mesti smiður og
það er erftt að trúa að Sonni
skuli vera farinn fyrir fullt og allt.
Þú varst einn af þeim örfáu sem
maður hleypir inn í innsta hring
hjartans vegna þinnar fágætu til-
finningadýptar og næmni. í gegn-
um tíðina leið stundum langur tími
milli þess að við hittumst, en það
breytti engu, það var alltaf jafn
gott að hitta þig aftur.
Mér finnst þú hafa verið vel gerð-
ur maður og ég er stoltur af að
hafa átt þig sem vin. Ég vona sann-
arlega að ég geti hitt þig i öðrum
heimi. Það síðasta sem þú gafst
mér er djúp hugleiðing um dauðann
og tilgang lífsins og það að djúp
og einlæg tengsl við aðra mann-
eskju er hið raunverulega gull í
þessum heimi, takk, elsku vinur.
Ég votta eiginkonu, systur og
mági og öðrum aðstandendum alla
mína samúð.
Guðmundur Haraldsson.
Sonny er dáinn! Ég trúði ekki
mínum augum þegar ég las minn-
ingargrein um hann sl. fimmtudag,
ég átti svo bágt með að trúa því
að ég gæti aldrei talað við hann
aftur, aldrei hlegið með honum eða
séð hann.
Mér fannst þetta svo hræðilega
óréttlátt og einhvern veginn fannst
vandvirkur með eindæmum. Lárus
reyndist Camillu dóttur Guðrúnar
sem hinn besti faðir og síðar börn-
um hennar sem afi. Hún er gift
Ásgrími Stefáni Björnssyni, stýri-
manni og fyrrverandi erindreka
Slysavarnafélagsins. Þeirra börn
eru þijú, en einn drengur lést 8 ára
og voru því alls 4.
Guðrún var með eindæmum
barnelsk og hændust börn að henni.
Hafði hún hina mestu ánægju af
að víkja góðu að börnum og gleðja
aðra. Barnabarnabörnin eru nú alls
10 og sakna þau langömmu sinnar
sáran og þakka henni fyrir allar
ánægjustundirnar á liðnum árum.
Guðrún var hress og ern allt fram
til síðustu stundar, en sjónin farin
að gefa sig hin síðustu ár. Hafði
hún hina mestu ánægju af öllum
mannfögnuði og var matargerð og
veisluhöld það sem hún hafði hvað
mesta ánægju af. Eru ógleymanleg-
ar allar góðgerðimar sem hún töfr-
aði fram þegar gesti bar að garði
og þá einkum fyrir hina yngri.
Sjúkdómslega hennar var ekki
löng, en hún var þó rúmföst á Land-
spítalanum á níræðisafmælisdag-
inn, en fór þó heim að nokkrum
dögum liðnum. Var hún lögð aftur
inn á hjartadeild Landspítalans, þar
sem hún lést nokkrum dögum
seinna. Við afkomendur hennar
þökkum henni fyrir ailar gleði-
stundirnar á liðnum árum. Megi
minning hennar lifa um ókomin ár.
Agnar og fjölskylda.
mér Guð hefði tekið hann alltof
snemma frá okkur og ég varð reið
yfir að fá ekki að segja honum allt
sem ég átti eftir að segja honum,
en það vill oft verða þannig að
maður bíður of lengi og einn daginn
er það um seinan. Guð hefur ætlað
honum eitthvað annað, tíminn hans
var kominn og ég veit að hann er
kominn á betri stað.
Ég og Sonny umgengumst mikið
á okkar unglingsárum og tengd-
umst sterkum vináttuböndum. Arið
1982 fluttist ég frá Sviþjóð til ís-
lands og hittumt við ekki aftur fyrr
en árið 1988-1989. Þá var ég flutt
vestur og eitt kvöldið var bankað
hjá mér. Ég fer til dyra og þar
stendur enginn annar en Sonny.
Mikið var ég glöð að sjá hann aftur.
Svo þegar hann fékk vinnu á
ísafirði eitt sumar, þá kom hann
oft og heimsótti mig og höfðum við
mikið að tala um. Þótt það liðu
mörg ár á milli án þess að við hefð-
um nokkurt samband, þá var alltaf
eins og við hefðum hist í gær. Ég
get sagt að vin eins og Sonny eign-
ast maður ekki oft á lífsleiðinni,
sannur vinur sem myndi gera allt
fyrir mann ef hann gæti. Eg á eft-
ir að sakna hans sárt.
Ég vil votta foreldrum, systkin-
um, syni hans og öllum ástvinum
samúð mína. Guð geymi þig, elsku
Sonny minn. Við eigum eftir að
hittast á ný, það veit ég.
Þín María.
t
Konan mín, móðir okkar, amma, dóttir
og systir,
HALLDÓRA LINDA
INGÓLFSDÓTTIR,
verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í
Hafnarfirði föstudaginn 22. október
kl. 15.00.
Blóm vinsamlega afþökkuð, en þeim,
sem vildu minnast hinnar látnu, er bent
á Heilavemd.
GuSmundur Kristmannsson,
Margrét, Bryndís, Rúnar, Hafsteinn,
barnabarn,
Þóra Þorsteinsdóttir, Sigþór Hallgrimsson,
og systkini.
Sigurður Markús Sig-
urðsson - Minning
Fæddur 22. júlí 1961
Dáinn 3. október 1993
+
Móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma,
GUÐRÚN HELGADÓTTIR USTRUP,
verður jarðsungin frá Fossvogskapellu í dag, fimmtudaginn
21. október, kl. 15.00.
Camilla Pétursdóttir, Ásgrimur St. Björnsson,
Þorbjörg Ásgrímsdóttir, Helgi Gunnarsson,
Agnar G.L. Asgrímsson, Edda Guðbjörnsdóttir,
Ásgrfmur L. Ásgrfmsson, Sigurður Hjaltested
og barnabarnabörn.
t
Eiginkona mín,
ÁRNHEIÐUR MAGNÚSDÓTTIR
frá Garðbæ,
Kirkjubraut 17,
Innri-Njarðvfk,
sem lést 18. október sl., verður jarðsungin frá Innri-Njarðvfkur-
kirkju föstudaginn 22. október kl. 15.00.
Þeim, sem vilja minnast hinnar látnu, er bent á Innri-Njarðvíkur-
kirkju.
Árni Sigurðsson.
+
Eiginkona mín,
ÁSTA FRIÐRIKSDÓTTIR HANSEN
fyrrum húsfreyja á
Svaðastöðum, Skagafirði,
til heimili á Hólavegi 25,
Sauðárkróki,
verður jarðsungin frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn 23. október
kl. 14.00.
Fyrir hönd barna, tengdadóttur, barnabarna og barnabarnabarns,
Friðrik Pálmason.
+
Elskulegur sonur okkar og bróðir,
ÞÓR SÆVARSSON
garðyrkjufræðingur,
Heiðmörk,
Biskupstungum,
verður jarðsunginn frá Selfosskirkju
föstudaginn 22. október kl. 13.30.
Karitas Óskarsdóttir, Sævar Magnússon,
Ómar Sævarsson, Reynir Sævarsson,
Jóna Dfsa Sævarsdóttir.
+
Móðir mín,
ÞÓRDÍS G.BRIDDE,
sem lést í Borgarspítalanum 11. þ.m.,
verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í
Reykjavík, föstudaginn 22. október,
kl. 13.30.
Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim,
sem vildu minnast hennar, er bent á
Slysavarnafélag íslands.
Hermann Bridde,
Anna G. Ármannsdóttir,
Hafdís J. Bridde,
Ólafur Ólafsson,
börn og barnabörn.
+
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð, vinsemd og virðingu vegna
andláts og útfarar eiginmanns míns,
RICHARDT RYEL,
Sölleröd Park121-17,
2840 Holte,
Danmörku.
Helga Ryel.
+
Þökkum innilega samúð og vinarhug við andlát og útför
ODDS ÁGÚSTSSONAR
fyrrverandi útvegsbónda,
Ystabæ, Hrfsey,
sfðar kaupmanns á Akureyri.
Sérstakar þakkir til starfsfólks dvalarheimilisins Hlíðar.
Rannveig Magnúsdóttir,
Magna J. Oddsdóttir, Óskar Bernharðsson,
Gústaf R. Oddsson, Ute Stellý Oddsson,
Ágúst J. Oddsson, Helena Theresa Oddsson,
Gunnþórunn Oddsdóttir, Páll S. Jónsson,
Olga P. Oddsdóttir, Magnús Ásgeirsson.