Morgunblaðið - 07.01.1994, Síða 1
80 SIÐURB/C
4. tbl. 82. árg. FÖSTUDAGUR 7. JANÚAR 1994 Prentsmiðja Morgunblaðsins
EB-aðild Noregs
Geta feng-
ið tollfrelsi
strax við
inngöngu
Ósló. Frá Jan Gunnar Furuly, fréttaritara
Morjrunbladsins.
EVROPUBANDALAGIÐ (EB)
hefur boðið Norðmönnum toll-
frjálsan markaðsaðgang fyrir
fisk, frá og með þeim degi sem
Noregur gengui- í bandalagið,
samkvæmt upplýsingum norska
blaðsins Aftenposten.
EB-lönd fá ekki kröfur Norð-
manna í sjávarútvegsmálum fyrr
en í næstu viku. Engu að síður
er talið að samkomulag sé um
helstu kröfur Norðmanna á milli
stjórnar sjávarútvegsmála EB og
þeirrar nefndar sem fer með samn-
ingamál við Noreg, en hún er und-
ir stjórn Hans van den Broek, sem
fer með stjórn utanríkismála fyrir
bandalagið.
Samkvæmt upplýsingum Aften-
posten er þess krafist að gangi
Norðmenn í EB, verði þeir að
fylgja sameiginlegri stefnu EB í
sjávarútvegsmálum. Norðmönnum
verður því formlega neitað um að
fá að semja sjálfir við Rússa um
nýtingu sjávarafla í Barentshafi
og að hafa sjálfir stjórn með fisk-
veiðum fyrir norðan 62. breidd-
argráðu. Hins vegar verður sam-
þykkt sú krafa Norðmanna að fá
tollfijálsan aðgang fyrir fisk og
fiskafurðir um leið og landið geng-
ur í bandalagið.
Norska sjávarútvegsráðuneytið
og samninganefnd Norðmanna
leggja áherslu á að Norðmenn
þurfi ekki að óttast að láta samn-
inga við Rússa og stjórn fiskveiði
fyrir norðan 62. breiddargráðu í
hendur EB. Þegar EB semji við
þau lönd sem æski aðildar, sé að
sjálfsögðu tekið tillit til staðreynda
og staðreyndin sé sú að í Barents-
hafi eigi Norðmenn mestra hags-
muna að gæta.
Reuter
Jól hjá rétttrúnaðarkirkjunni
DIODOROS I, patríarki rétttrúnaðarkirkjunnar, í skrúðgöngu sem farin var í Betlehem í gær í tilefni jólanna sem
rétttrúnaðarmenn halda um þessar mundir. Þau eru haldin síðar en hjá öðrum kristnum mönnum vegna þess að
kirkjan heldur sig við júlíanska tímatalið er lagt var af á Vesturlöndum fyrir nokkrum öldum. Gangan var á leið
til Fæðingarkirkjunnar sem talin er vera reist þar sem Kristur fæddist í fjárhúsinu. Lengst til hægri sést Elias Freij
(með krossinn), borgarstjóri í Betlehem, en vinstra megin er landstjóri ísraela í borginni, Moshe Elad ofursti.
Gore segir öryggi Bandaríkjanna nátengt öryggi Mið-Evrópu
Friðarsamvinnan
dragi úr óttanum
Brussel, Milwaukee, Moskvu. Reuter.
HÁTTSETTIR embættismenn í höfuðstöðvum Atlantshafsbandalags-
ins (NATO) sögðu í gær að leiðtogafundur bandalagsins á mánudag
og þriðjudag myndi í aðalatriðum samþykkja að fyrrum austantjalds-
ríki fengju aðild að bandalaginu einhvern tímann í framtíðinni og
að ekkert ríki gæti fengið neitunarvald í þeim efnum. A1 Gore, vara-
forseti Bandaríkjanna, sagði að öryggi Bandaríkjanna væri nátengt
öryggi ríkja sem lægju á milli Rússlands og Vestur-Evrópu. Antonin
Baudys, varnarmálaráðherra Tékklands, sagði þó í gær, að hugsan-
lega myndu Tékkar fresta fyrirhuguðum niðurskurði í herafla sinum
og jafnvel efla hann vegna áforma Rússa um að fækka ekki frekar
í eigin heijum.
Barátta lækna gegn hjarta- og æðasjákdómum
Aspirin mun árangurs-
ríkara en talið hefur verið
London. The Daily Telegfraph, Reuter.
LITLIR skammtar af aspirin koma að góðu gagni gegn sjúkdóm-
um í æðakerfinu og draga úr myndun blóðtappa, segir í skýrslu
í breska blaðinu British Medical Journal um nýja könnun á áhrif-
um lyfsins. Notkun þess getur minnkað líkur á lyartaslagi um
fjórðung hjá þeim sem þegar hafa fengið vægari hjartaáföll. Um
140.000 manns tóku þátt í könnuninni.
Alls er talið að bjarga megi
100.000 mannslífum með því að
nota þetta gamla og algenga
verkjalyf gegn hjartasjúkdómum.
Tekið er fram að fólki sem ekki
hafi kennt sér neins meins sé
ekki ráðlagt að taka hálfa aspirin
á dag til vonar og vara; í stöku
tilvikum geti lyfið valdið innri
blæðingum.
„Aspirin hefði verið kannað af
meiri alvöru fyrr ef það liefði ver-
ið hundrað sinnum dýrara", sagði
breskur hjartasérfræðingur, Rich-
ard Peto. „Það er ódýrt og þess
vegna hélt fólk að það væri gagns-
lítið. En ekkert slær því við.“
Talið er ljóst að lyfið virki jafnt
á karla sem konur, gamalt fólk
sem miðaldra og ekkert síður á
þá sem eru með of háan blóðþrýst-
ing eða sykursýki en aðra.
Annar sérfræðingur, Peter
Sandercock, sagði enn ekki ljóst
hvort gefa ætti fólki með hjarta-
áfall lyfið þegar í stað eða hinkra
við í nokkrar vikur. Ný könnun
verður gerð til að ganga úr
skugga um þetta og verða um
40.000 manns í Kína, Evrópulönd-
um og víðar þátttakendur í henni.
„Hið nýja NATO verður að taka
afstöðu til óska þeirra ríkja sem
liggja milli Rússlands og Vestur-
Evrópu,“ sagði Gore er hann flutti
erindi Bills Clintons forseta hjá al-
þjóðastofnun Wisconsin-háskóla í
Milwaukee en Clinton missti móður
sína í gær.
Varaforsetinn sagði að með „Frið-
arsamvinnu" við Mið-Evrópuríki,
sem Ciinton myndi leggja til á leið-
togafundinum að tekin yrði upp,
yrði mikilvægt skref stigið til að
stuðla að öryggi í Evrópu í kjölfar
kalda stríðsins. Sagði hann að það
ætti að draga úr ótta sem vaxið
hefði í þessum ríkjum eftir þingkosn-
ingarnar í Rússlandi fyrir tæpum
mánuði. Gore sagði að með Fríðar-
samvinnunni ættu fyrrum austan-
tjaldsríki að öðlast fullvissu um að
þau gætu samlagast vestrænum
ríkjum og þyrftu ekki að óttast hvað
gerðist austan við þau. Tillagan ger-
ir ráð fyrir því að ríkin geti tekið
þátt í sameiginlegum heræfingum
NATO-ríkjanna en öðlist ekki fulla
aðild fyrst um sinn.
Rússar hafa mótmælt áformum
um stækkun NATO og aldrei jafn
sterklega og í gær er Vjatsjeslav
Kostíkov, talsmaður Boris Jeltsíns
Rússlandsforseta, sagði að stækkun
bandalagsins til austurs gæti riðið
rússneskum umbótasinnum að fullu.
Stækkun myndi styrkja öfgamenn á
borð við Vladímír Zhírínovskíj, æsa
herinn upp og knýja Rússa til þess
að stofna eigið varnar- og stjórn-
málabandalag.
Sjá fréttir á bls. 22-23.
Frönsk sérsveit
*
Olöglegir
innflytjend-
ur eltir uppi
París. The Daily Telegraph, Reuter.
FRAKKAR ætla að koma á fót
sérstakri lögreglu til að fram-
fylgja nýjum og hertum lögum
og elta uppi ólöglega innflytj-
endur til að vísa þeim úr landi.
Charles Pasqua innanríkisráð-
herra sagði að Frakkar gætu
ekki bætt úr neyð allra jarð-
arbúa og færi svo að átök hæf-
ust í austurhluta Evrópu í kjöl-
far hruns kommúnismans
myndi „flóðbylgja" innflytjenda
skella á landinu.
Pasqua benti ennfremur á að
um aldamótin myndu búa alls um
160 milljónir manna í Norður-Afr-
íku, þar af nær 60 milljónir undir
tvítugu. Við flestum myndi blasa
örbirgð og sunnan við þá yrði
milljarður annarra Afríkumanna.
Ráðherrann sagði að hertar inn-
flytjendareglur myndu ekki í sjálfu
sér leysa vandann. Frakkar ættu
að hafa frumkvæði að átaki til að
bæta lífskjörin í þessum löndum í
von um að fólkið héldi sig fremur
heima.
Francois Mitterrand Frakk-
landsforseti sagðist í gær óttast
að borgarastyijöld gæti hafist í
Alsír þar sem bókstafstrúarmenn
múslima eiga í átökum við stjórn-
völd. Alain Juppé utanríkisráð-
herra sagði þessa hættu valda
stöðugri angist meðal franskra
ráðamanna.
Reuter
Ekki hundi út
sigandi
MIKIÐ vatnsveður var í Bretlandi
í gær og hér sést maður bera scháf-
er-hundinn sinn yfir veg í grennd
við East Lavant, skammt frá borg-
inni Chichester. Ekki er vitað hvort
hvutti þjáist af vatnshræðslu. Áin
Lavant flæddi um bæinn sem
kenndur er við hana og hafði það
ekki gerst í 50 ár. Ofsarok gerði í
gær á norðanverðu Miðjarðarhafi,
ölduhæð í höfnum við ffonsku Ríví-
eruna fór yfir tíu metra svo að
smábátar slitu víða landfestar.