Morgunblaðið - 07.01.1994, Síða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. JANÚAR 1994
Minning
Hilmar Þór Hálf-
dánarson læknir
Fæddur 29. desember 1947
Dáinn 22. desember 1993
Mig langar að setja á blað þessar
línur, nú þegar við kveðjum Hilmar
bróður minn, langt um aldur fram.
Þegar ég frétti veikindi Hilmars
kveið ég aldrei úrslitum, ég vissi
að hann mundi lifa. Líka þegar
hann var skorinn upp, þegar hann
átti aðeins viku ólifaða, þá vissi ég
að við þurftum ekkert að óttast.
Hilmar hafði áður háð harða orustu
þegar hann var 16 ára gamall og
haft sigur þótt hann væri í stöð-
ugri lífshættu vikum saman. Þá
meiddist hann mikið í bflslysi og
þeir prófessor Snorri Hallgrímsson,
Hannes Finnbogason og Ámi
Bjömsson skáru hann upp og gerðu
sannkallað kraftaverk. Núna tæp-
um þrjátíu áram síðar treysti ég
tækninni til að standa sig ekki síð-
ur. Kannski treystu allir of mikið á
hana í þetta sinn, allir.
Hilmar ólst upp á fjölmennu
heimili. Þegar flest var hygg ég að
16 manns hafi búið heima í Nökkva-
voginum.
Á sumrin fór hann í sveit að
Þemunesi við Reyðarfjörð. Veran
þar hafði holl áhrif á hann, það
veit ég af eigin reynslu. Hann var
mikill námsmaður og sótti mála-
deild Menntaskólans í Reylq'avík.
Hilmar gerði sér vonir um háa
ágætiseinkunn á stúdentsprófi en
fékk lága einkunn í ritgerð þannig
að þær vonir bragðust. Áform hans
um að leggja stund á klassísk fræði
í erlendum háskóla á skólastyrk
gengu því ekki eftir. Því venti hann
sínu kvæði í kross og innritaði sig
í læknisfræði við Háskóla íslands,
enda kominn með konu og bam.
Námið í læknisfræðinni sóttist hon-
um mjög vel. Á þeim tíma stundaði
hann námið frá morgni fram á nótt
virka daga en þeir félagamir og
konur þeirra sem giftir vora
skemmtu sér títt um helgar.
Árið 1977 fluttust þau hjónin
Hilmar og Ella tii Svíþjóðar, þá
komin með þijá syni. Þar bættust
tveir við. Þau vöndust öðram lífs:
stíl í Svíþjóð en hér heima. Allar
frístundir helgaði hann fjölskyld-
unni, fylgdist með strákunum í
íþróttum og var heima þegar hann
gat. Áhyggjuleysi námsáranna á
Islandi var að baki, en Hilmari þótti
þó kostur að geta haft bjór við
höndina í nýju Iandi. Að því leyti
var hann Skandinavi.
Hilmar var bæði frændrækinn
og vinrækinn og kappkostaði að
hitta sem flesta þegar hann kom
heim í heimsókn. Það var einn af
hans stóra kostum hve létt honum
veittist að sýna hug sinn og sýna
þeim blíðu sem honum þótti vænt
um. Það hafa synimir líka lært af
þeim Hilmari og Ellu.
í pólitík sýndi hann enga hálf-
velgju fremur en í öðra og var eins
og við öll fjölskyldan eindreginn
sjálfstæðismaður. í Svíþjóð átti
hann því erfitt með að þola hræsn-
arana sem þá vora við völd, sænsku
kratana.
Starfið átti hug hans að öðra
leyti og reyndi sjálfsagt mikið á
þrek hans. Hann vann á spítalanum
virka daga og læknastofunni um
helgar. Hilmar sýndi mér eitt sinn
skýrslu sem hann þurfti sem yfir-
ERFIDRYKKJUR
HÖTEL ESJA
sími 689509
V J
maður bæklunarskurðdeildar spít-
aians að fylla út um afköst deildar-
innar. Mér fannst þau ótrúlega
mikil. Á þeim bar hann ábyrgð og
jafnframt að deildin stæði sig fjár-
hagslega. Vinnan var honum þó
síður en svo kvöð. Hilmar fylgdist
með og stundaði rannsóknir og
lagði sig eftir nýjungum. Síðasta
árið eða svo fór hann þannig til Los
Angeles (og notaði tækifærið að
heimsækja móðursystur okkar í
Oklahoma um leið), Austurríkis,
Rómar með samstarfsmönnum í
rannsóknarhópi og var í Þýskalandi
á ráðstefnu þegar hann veiktist.
Ella fór með þegar unnt var. Ekki
fór hann þó í sumarfrí suður um
Evrópu. „Hvernig á ég að koma
fjölskyldunni í bílinn?" spurði hann.
„Læknir læknaðu sjálfan þig,“
gæti hafa verið hans mottó. Þegar
hann kenndi sér meins fór hann
aldrei til læknis, heldur fyrirskrifaði
hann sér sjálfur meðul. Núna þegar
hann veiktist var lagt hart að hon-
um í nokkra daga að láta leggja
sig inn. Hilmar var að lokum flutt-
ur á spítala meðvitundarlaus. Þá
rættist sú spá hans að hann yrði
aldrei gamall, en það hafði hann
sagt sínum nánustu fyrir löngu.
Hilmar var mér mikil fyrirmynd í
námi mínu. Ég fylgdist með honum
og hann var óspar á ráð. Og þótt
aldursmunurinn væri nokkur lét
hann það ekki koma í veg fyrir að
við yrðum góðir félagar. Og hann
ætti ekki síður að vera okkur öllum
fyrirmynd í því hversu annt hann
lét sér um fólk. Ekki aðeins fjöl-
skyldu sína, ættingja og vini, sem
aldrei virtust víkja úr huga hans,
heldur talaði hann af sannri samúð
um sjúklinga sína — gamalt fólk,
einstæðinga, já, jafnvel ófædd börn.
Og nú bið ég þig, Guð minn, að
taka hann bróður minn í faðm þinn
og vaka yfir konunni hans, sonum,
tengdadóttur, bamabami og föður
okkar og móður.
Fyrir fáum áram voram við Reg-
ína, konan mín, í Kaupmannahöfn
yfir helgi að vetrarlagi ásamt vinum
okkar. Hilmar og Ella komu yfir
til að hitta okkur. Þessi stutti tími.
gleymist okkur aldrei. Á föstudags-
kvöldinu góð kvöldstund í Geirþrúð-
arklaustri. Að ganga eftir Strikinu
í kuldanum í desember og hjýja
okkur á Hvids vinstue og hitta af
tilviljun kunningja þar, fara upp á
hótel og hittast þar öll aftur og
fara síðan á Hotel d’Angleterre.
Meira treysti Hilmar sér ekki til að
gera þegar við hin ákváðum að fara
að skemmta okkur. Þessi dagur var
lengi að líða. Morguninn eftir vakn-
aði hann fyrir allar aldir til að vekja
okkur í morgunmat. Mér þótti það
ekki góð uppástunga og bað hann
að koma tveimur tímum seinna, um
níuleytið. Við hittumst niðri og
Hilmar reykti einar fimm sígarettur
meðan hann borðaði beikonið. Ekk-
ert „filterdrasl", heldur sterkar filt-
erlausar sem vora orðnar þijátíu
að kvöldi hvers dags. Við kvödd-
umst upp á herbergi í síðasta sinn
sem við voram bara ein og horfðum
lengi á hann og Ellu ganga burt
frá hóteiinu, hönd í hönd í átt að
brautarstöðinni eftir einn skemmti-
legan dag, einn góðan dag og hafði
ekki í huga eiffs og ég átti að gera,
já hefði alltaf átt að gera, orðin
hans bróður míns um að hann yrði
aldrei fimmtugur.
Einar S. Hálfdánarson.
Okkur bræðurna langar að
kveðja pabba okkar með nokkram
orðum. Þegar pabbi var fluttur á
sjúkrahúsið í Borás og við fengum
að vita hversu alvarleg veikindi
hans voru trúðum við alltaf að hann
yrði frískur aftur.
Við sendum honum kveðju okkar
og þökkum honum fyrir allan þann
stuðning sem hann veitti okkur í
öllu sem við tókum okkur fyrir
hendur, hvort sem um var að ræða
tómstundagaman eða nám. Eitt
áhugamál allrar fjölskyldunnar var
fótbolti og vora þær margar ferðim-
ar um Svíþjóð sem þú fórst til að
fylgjast með okkur og hvetja.
Við þökkum þér fyrir árin sem
við áttum saman og minning þín
mun lifa í hjörtum okkar að eilífu.
Þú ert vor stoð og einkahlíf,
svo engu þurfum kvíða,
vor huggun, athvarf ljós og líf.
Æ, Ijúft er því að striða.
I hveiju, sem að höndum ber,
og hvað sem bágt oss mætir,
þín hjálp oss nálæg ætíð er
og allar raunir bætir.
Þín fóðumáð, æ fersk og ný,
oss föðurgæðum seður.
(P.J.)
Elsku pabbi, við bræðumir kveðj-
um þig með miklum söknuði.
Sverrir Þór, Hálfdán Þór,
Hilmar Þór, Halldór Þór og
Erlendur Þór.
Hinn 21. desember lá ég andvaka
því ég var að hugsa um Hilmar
frænda, eða Hilla eins og hann var
oft kallaður, því hann lá fárveikur
á gjörgæsludeild í Borás í Svíþjóð.
Þar var hann búinn að liggja í tæp-
Iega mánuð og engar batahorfur
fyrirsjáanlegar. Að lokum þegar ég
var búin að biðja fyrir honum náði
ég að festa svefn í þeirri von að
hann myndi hafa þetta af því Hilm-
ar var sterkbyggður maður. Morg-
uninn eftir frétti ég að mamma og
pabbi hefðu einnig verið andvaka
og verið að hugsa til hans. Við fór-
um því lítið sofin í vinnuna um
morguninn. Það var svo um 14.30
að síminn hringdi í Fossnesti og
beðið var um mig í símann. Á lín-
unni var Hrefna. Fréttirnar sem hún
hafði fram að færa vora ömurlegar
— Hilmar var dáinn. Ég trúði þessu
ekki. Af hveiju hann? Hann sem
var svo ungur og yndislegur. Hann
hafði dáið um 8.30 um morguninn
og atvikaðist það þannig að enginn
vissi hvernig átti að segja pabba
fréttimar því hann hafði nýlega
fengið kransæðastíflu sem hann
hefur ekki náð fullum bata af, og
verður því að segja honum svona
fréttir varlega. Guðrún frænka átti
því að koma og segja honum þetta
en í sjokkinu keyrði hún beina leið
til Reykjavíkur. Það vora því örlög-
in sem gripu í taumana því mamma
og pabbi fóra til Reykjavíkur ásamt
Hrafnhildi Yr um tvöleytið og var
það því í mínum verkahring að segja
þeim þetta, en sem betur fer sleit
mamma bílasímann úr sambandi
þegar ég hafði sagt halló. Þegar
þau komu í hús í Reykjavík hringdu
þau og þá sagði ég mömmu fréttirn-
ar. Þetta var of mikið fyrir pabba.
Hann fékk vægt tilfelli og var flutt-
ur beint á spítala. Það var líka afar
erfitt að hringja til Frakklands og
segja Ingibjörgu systur frá þessu
en hún var að koma heim í stutt
og óvænt jólafrí hinn 23. desember.
Hilmar hafði verið búsettur í
Svíþjóð ásamt fjölskyldu sinni í 16
ár. Hann var giftur Elínu Sverris-
dóttur og áttu þau fimm yndislega
stráka, þá Sverri Þór, Hilmar Þór,
Hálfdán Þór, Halldór Þór og Erlend
Þór. Sverrir Þór hefur búið á Ís-
landi í nokkur ár og hefur hann
stundað nám í læknisfræði.
Því miður hittumst við Hilmar
ekki oft en þó alltaf þegar hann
kom hingað til íslands og tvisvar
fór ég með mömmu, pabba og Ingi-
björgu til Svíþjóðar þegar ég var
yngri. Það var alltaf tilhlökkunar-
efni að hitta Hilmar frænda því
hann var alltaf svo góður við mig
og það faðmaði mann enginn jafn
innilega og hann. Það voru því
mörg ósögð orð sem fylgdu hveiju
faðmlagi. Hilmar var alveg einstak-
ur maður með stórt og gott hjarta
og ég elskaði hann og dáði. Það
var hann sem kom með Halldór
bróður í tjaldið til okkar Ingibjargar
þegar við voram í útilegu á Þingvöll-
um fyrir mörgum áram. Þar hitti
ég Halldór í fyrsta skipti. Það var
svo í byijun nóvember að við syst-
urnar og mamma hittum Halldór
Amar almennilega í fyrsta skipti í
Glasgow. Elsku Hilmar, ég hefði
viljað segja þér frá þessari dásam-
legu tilfinningu. Hann er alveg
rosalega líkur pabba. Auk þess var
svo margt í fari hans sem minnti
mig á þig.
Hilmar var glaðlyndur og alltaf
var stutt í hláturinn og grínið hjá
honum. Hann hafði oft orð á því
hvað ég væri með stutt hár og ég
ætti frekar að hafa sítt hár. Ég
skaut á móti að ég væri nú að verða
stærri en hann.
Hann var mjög fær skurðlæknir,
hann var jafnframt mjög góður við
sjúklinga sína og gaf sér tíma til
að tala við þá. Það sýnir sig í því
hvað hann átti auðvelt með að
umgangast fólk af öllum toga, það
skipti ekki máli hvort menn vora
feitir eða mjóir, með háskólapróf
eða ekki. Það sem skipti Hilmar
máli var hvemig persónan var en
ekki eitthvert útlit eða gáfur. Hann
var mikill félagi og vinur allra og
þá sérstaklega strákanna sinna
jafnframt því að vera faðir þeirra.
Álit manna á sér var eitt af því sem
Hilmar lét sem vind um eyra þjóta.
Ef hann langaði að gera eitthvað
eða segja eitthvað þá framkvæmdi
hann það. Hann hafði mikinn áhuga
á fótbolta og fór hann' oft á völlinn
að horfa á strákana sína spila. Einn-
ig hafði hann gaman af tónlist og
fór hann oft á hljómleika með strák-
unum. Það verður því erfitt fyrir
strákana að fara á völlinn án þess
að hafa pabba sinn með, en, strák-
ar mínir, tíminn læknar öll sár.
Það var eitt sem pabbi átti um-
fram Hilmar, það voru stelpur.
Hilmar langaði alltaf til að eignast
stelpur og þegar ég var lítil spurði
hann mig oft að því hvort hann
mætti eiga mig og pabbi fengi einn
strákinn, en þetta var auðvitað sagt
í gríni. Það var svo fyrir rúmlega
ári að draumur hans varð að vera-
leika því Hálfdán og Ann Gustavson
eignuðust alveg yndislega stúlku
að nafni Elín Jennifer. Hún átti hug
og hjarta Hilmars enda engin furða
því stelpan er alveg yndisleg. Hann
mun fylgjast með henni og okkur
öllum úr fjarlægð þar sem hann er
og við munum minnast hans eins
og hann var og allar góðu stundirn-
ar sem okkur hlotnuðust með hon-
um. Þið megið vera viss um að
honum líður vel þar sem hann er,
og er hann í mjög góðum höndum.
Elsku Ella, Sverrir Þór, Hálfdán
Þór, Hilmar Þór, Halldór Þór, Er-
lendur Þór, Elín, Ann, amma og
afi og allir þeir sem eiga um sárt
að binda um þessar stundir, megi
guð gefa ykkur aukinn styrk og
munið að sagt er að þeir sem guð-
irnir elska deyi ungir.
Þín frænka,
Halldóra Erlendsdóttir.
Undirbúningur jólanna er að
hefjast, það er 26. nóvember en það
er svo erfitt að hafa hugann við
jólin. Hann Hilmar Þór, bróðurson-
ur minn og frændi okkar, er svo
mikið veikur úti í Svíþjóð. En við
höldum í vonina, hann er svo ungur
og sterkur, honum hlýtur að batna.
En dagarnir líða og ekki batnar
Hilmari og 12. desember kemur
hringing. Það er verið að skera
hann upp og reyna að lækna hann.
Aðgerðin gefur okkur vonina aftur,
en útlitið er svart.
Miðvikudaginn 22. desember
kemur svo hringingin, hann Hilmar
er dáinn. Þetta getur bara ekki
verið, þetta er eins og ljótur draum-
ur, en þetta er víst staðreynd.
Hilmar Þór fæddist 29. desember
1947. Þriðji sonur hjónanna Ingi-
bjargar Erlendsdóttur og Hálfdáns
Einarssonar.
Önnur börn þeirra eru: Erlendur,
f. 16. október 1942, Kjartan, f. 23.
marz 1946, Guðrún Vilborg, f. 10.
desember 1952, og Einar Sveinn,
f. 13. marz 1954.
Fjölskyldur okkar vora og era
mjög nánar. Hálfdán, Ingibjörg og
bömin bjuggu í Nökkvavogi 13,
Reykjavík, í mörg ár og á efri hæð-
inni bjuggu foreldrar mínir, amma
og afi okkar, svo ferðimar vora
kannski tíðari fyrir bragðið, og
fínnst dætram mínum þessi böm
frekar eins og systkini þeirra frem-
ur en frændfólk. Eldri dóttir mín
Guðbjörg var reyndar alin upp hjá
ömmu sinni og afa til fjórtán ára
aldurs. En hún er á svipuðum aldri
og Erlendur, en svo fæddist yngri
dóttir mín Birna og eldri dóttirin
fluttist heim til okkar árið 1954.
En ferðirnar í Nökkvavoginn
héldu áfram og þar sem Birna dótt-
ir mín og Guðrún systir Hilmars
era fæddar með þriggja daga milli-
bili voru heimilin enn mjög náin.
Enda voru þær skírðar saman og
fermdar saman.
Jæja, það kom að því að Hilmar
Þór kynntist eftirlifandi eiginkonu
sinni, Elínu Sverrisdóttur, en þau
vora unglingar þegar þau kynntust
og eignuðust sinn fyrsta son átján
og tæplega nítján ára gömul. Hann
Sverri Þór, f. 21. ágúst 1965, sem
varð sólargeisli í lífí okkar allra og
enn frekari ástæða að kíkja i
Nökkvavoginn á þennan yndislega
litla dreng. Frænkurnar Guðrún og
Bima vora alltaf tilbúnar að passa
Sverri Þór og fylgjast með unga
parinu Ellu og Hilmari.
Hilmar og Ella giftu sig 11. nóv-
ember 1967 og Hilmar fór að læra
læknisfræði og lauk henni með
ágætum 1975, en á þeim tíma höfðu
þau eignast tvíburana Hálfdán Þór
og Hilmar Þór, f. 4. ágúst 1972.
Svo liðu árin og 1977 var farið í
frekara nám í læknisfræðinni til
Borás í Svíþjóð og þar stækkaði
barnahópurinn enn frekar. Þau
eignuðust tvo drengi í viðbót, Hall-
dór Þór, f. 16. ágúst 1979, og Er-
lend Þór, f. 23. nóvember 1980.
Þau vora orðin rik, búin að eign-
ast fímm mjög mannvænlega og
elskulega drengi og þau ílentust í
Borás þó hugurinn væri alltaf heima
á íslandi.
En ósköp fannst okkur þau vera
langt í burtu frá okkur. Það kom
best í ljós þegar Hilmar veiktist,
hvað fjarlægðin var í raun mikil.
Það er margs að minnast sem
ekki verður talið hér og margar
minningar sem koma upp í hugann,
en við viljum kveðja Hilmar Þór og
þakka honum samveruna hér.
Elsku Ella, Sverrir Þór, Hálfdán
Þór, Ann, Elín litla, Hilmar Þór,
Halldór Þór, Erlendur Þór, Ingi-
björg, Hálfdán og systkini Hilmars,
tengdamóðir og aðrir aðstandendur,
sorgin er mikil og missirinn mikill.
Við vottum ykkur innilega samúð
og megi góður guð styrkja ykkur
í ykkar miklu sorg, en minningin
um góðan dreng mun lifa í hjörtum
okkar um ókomin ár.
Því þó að fundum fækki
er fortíð ekki gleymd.
I mínum huga og hjarta
þín minning verður geymd.
Héma i húsi þínu
sig hvíldi sálin mín.
Eg kem nú, kæri vinur,
með kveðjuorð til þín.
Guð varðveiti ykkur öll.
Lára Einarsdóttir, Guðbjörg
og Sigurbirna Oliversdætur
og fjölskyldur þeirra.
Fleiri minningargreinar um
Hilnmr Þór Hálfdánarson bíða
birtingar og munu birtast
næstu daga.