Morgunblaðið - 28.01.1994, Page 10
1
MÖPvGUNB'LAÐIÐ FöBTUDAGUR 2Bí - JAlvUAR -1904-
UM HELGINA
Myndlist
Ein af teikningum Kristínar
Kristín sýnir
teikningar í Gail
erí Úmbru
Kristín Arngrímsdóttir opnar sýn-
ingu á teikningum í Gallerí Úmbru á
Bemhöftstorfu, á morgun laugardag-
inn 29. janúar kl. 16. Þetta er þriðja
einkasýning Kristínar, en hún hefur
einnig tekið þátt í nokkmm samsýning-
um.
Teikningamar eru unnar með pensli,
tússi og vatnslitum. Hluti hvers verks
er gerður úr lituðum pappír þar sem
form og myndir eru klipptar með skær-
um.
Sýningin stendur frá 29. janúar til
16. febrúar og er galleríið opið þriðju-
daga til laugardaga frá kl. 13-18 og
sunnudaga kl. 14-18.
Inga Rósa sýnir í
Stöðlakoti
Inga Rósa Loftsdóttir opnar mál-
verkasýningu í Stöðlakoti, Bókhlöðu-
stíg 6, laugardaginn 29. janúar.
Sýningin stendurtil sunnudagsis 13.
febrúar nk. Opið er daglega frá kl.
14-18, nema mánudaga þá er lokað.
Þetta er önnur einkasýning Rósu.
Nýlistasafnið
í Nýlistasafninu verða opnaðar tvær
sýningar á morg-
un laugardag 29.
janúar kl. 16, það
em þau Anna
Líndal og Gunnar
Amason sem
sýna.
Gunnar sýnjr
10 lágmyndir
unnar í ál og
magnolíu og við-
fangsefni Önnu
er „Konan sem-
viðgerðarmaður"
verk hennar em unnin með blandaðri
tækni.
Sýningarnar verða opnar alla daga
kl. 14-18 og standa til 13. febrúar.
Jón Ólafsson sýnir í
Ásmundarsal
Jón Ólafsson opnar málverkasýn-
ingu á morgun laugardaginn 29. jan-
úar kl. 14 í Ásmundarsal við Freyju-
götu. Þetta er önnur sýning Jóns í
Ásmundarsal, en sú fyrri var 1973. Jón
sýnir vatnsiita- og akrílmyndir. Sýn-
ingin er opin til 14. febrúar frá kl.
14-18.
Graf ík á
Leikhúsloftinu
Á Leikhúslofti Þjóðleikhússins
stendur þessar vikur yfir sýning á verk-
um litháíska myndlistarmannsins Vy-
tautas Narbutas.
Dvaldi listamðurinn hérlendis sl.
haust, ásamt tveimur löndum sínum,
þegar þeir störfuðu við uppfærsluna á
Mávinum eftir Tsjekhof á Stóra sviði
Þjóðleikhússins. Sá Vytautas Narbutas
um leikmynda- og búningagerð í verk-
inu og hanga búningateikningar hans
til sýnis í Leikhúskjallaranum.
Narbutas stundaði myndlistamám
við Listaskólann í Kaunas og Listaaka-
demíunni í Vilníus. Hann er leikmynda-
teiknari Litla leikhússins í Vilnius og
kennari við Listaskólann í Vilnius auk
þess sem hann starfar sjálfstætt sem
myndlistarmaður.
Á Leikhúsloftinu eru til sýnis grafík-
verk listamannsins, sem sum voru unn-
in meðan á íslandsdvöl hans stóð.
Verk hans verða til sýnis eitthvað fram
eftir vetri og eru þau til sölu. Leikhús-
loftið er opið leikhúsgestum Þjóðléik-
hússins, meðan sýningar standa yfir á
Stóra sviði.
Tónlist
Tannháuser
í Óperuklúbbnum
Óperan Tannháuser eftir Richard
Wagner verður sýnd í Óperuklúbbnum
næsta sunnudag kl. 14. Um er að
ræða fræga uppfærslu leikstjórans
Götz Friedrichs, sem fyrst var sett upp
á Wagner hátíðinni í Bayreuth árið
1972.
í helstu hlutverkum eru Spas Wen-
kof, sem syngur titilhlutverkið, Gwy-
neth Jones syngur Venus og Elísabetu,
Bemd Weikl syngur Wolfram og Hans
Sotin syngur landgreifann. Stjórnandi
er Sir Colin Davis. Sýnt verður af
mynddiskum með enskum skjátextum.
Sýningin fer fram að Vesturgötu 36b
og er aðgangur ókeypis og öllum heim-
ill.
Bernardel kvartettinn
Tónleikar í
Borgarnesi
Bernardel kvartettinn heldur tón-
leika í Borgameskirkju sunnudaginn
30. janúar kl. 17. Kvartettinn skipa
þau Zbigniev Dubik fiðla, Gréta Guðna-
dóttir fiðla, Guðmundur Kristmunds-
son viola og Guðrún Sigurðardóttir
selló.
Á efnisskránni eru eftirtaldir
strengjakvartettar: Nr. 2. eftir A.
Borodin, Nr. 1. eftir L. Janácek „Kre-
utzer sónatan" og loks „Dauðinn og
stúlkan“ eftir F. Schubert.
Leikstjórinn og nokkrir leikaranna í Stútungasögu
Kristinn H. Árnason
Gítarleikur
í Norræna húsinu
Gítarleikarinn Kristinn H. Árnason
endurtekur tónleika sína frá því um
síðustu helgi í kvöld föstudaginn 28.
janúar í Norræna húsinu og hefjast
þeir kl. 20.30.
Á efnisskránni em verk eftir Narva-
ez, Tárrega, Bach, Brouwer, Granados
og Barrios. Kristinn lauk burtfarar-
prófí frá Tónskóla Sigursveins D.
Kristinssonar árið 1983. Hann lauk
BM-prófi frá Manhattan School of
Music árið 1987. Einnig stundaði fram-
haldsnám á Spáni og í Englandi. Með-
al kennara hans vom Nicolas Goluses,
Gordon Crosskey og Jose Tomas. Árið
1987 var hann valinn úr hópi fjölda
umsækjenda til að taka þátt í síðasta
námskeiðinu sem Andres Segovia hélt.
Kristinn hefur komið fram á tónleik-
um á íslandi, í Bandaríkjunum og á
Ítalíu, auk þess sem hann hefur leikið
i útvarpi og í sjónvarpi.
Orgeltónleikar Pavels
Manasek í Hallgríms-
kirkju
Tékkneski organistinn Pavel Mana-
sek heldur á sunnudaginn tónleika í
Hallgrímskirkju. Þeir heíjast klukkan
17 með prelúdíu og fúgu eftir Bach.
Þá kemur fantasía eftir Mozart, kórall
eftir César Franck, fantasía og fúga
Max Regers og lokaþáttur orgelsinfó-
níu eftir Vierne.
Manasek lauk einleikaraprófi frá
Tónlistarháskólanum í Prag 1991 og
hefur síðan verið búsettur hérlendis.
Hann var organisti á Djúpavogi fram
á síðasta haust þegar hann flutti sig
í Háteigskirkju í Reykjavík. Meðan á
námi stóð vann hann til verðlauna í
ýmsum orgelkeppnum heima og heim-
an.
Þessir þriðju tónleikar Listvinafélags
Hallgrímskirkju á starfsárinu marka
upphaf tónleikahalds á síðasta sunnu-
degi hvers mánaðar, fyrstu fjóra mán-
uði ársins. Framundan eru að auki
barokktónleikar og heimsókn orgel-
snillingsins Louis Thiry í mars.
Strengjasveit
í Bústaðakirkju
Strengjasveit sem er að mestu skip-
uð hljóðfæraleikurum úr Sinfóníu-
hljómsveitinni heldur tónleika í Bú-
staðakirkju á morgun laugardaginn 29.
janúar kl. 17.
Á efnisskrá verða konsert fyrir 2
fíðlur eftir Bach, Hughreysting eftir
Jón Leifs, rondó eftir Schubert og ser-
enaða eftir Tjækovskíj.
Einleikarar verða Zheng Rong Wang
og Sigrún Eðvaldsdóttir, en stjórnandi
á tónleikunum verður Lan Shui.
Miðar verða seldir við innganginn.
Sænsk teiknimynd í
Norræna húsinu
Sænsk teiknimynd um Einar Áskel ’
eða Alfons Áberg eins og hann heitir
á sænsku verður sýnd í Norræna hús-
inu, sunnudaginn 30. janúar kl. 14.
Sögumar um Einar Áskel þarf vart
að kynna fyrir íslenskum börnum. 1
þessari teiknimynd fáum við m.a. að
kynnast því þegar jólin eru búin og
Einari Áskeli leiðist, allt gamanið búið
og einnig þegar hann er að bíða eftir
fyrsta skóladeginum. Þetta eru fjórar
sögur sem eru settar saman í þessari
kvikmynd.
Kvikmyndin er ætluð yngri börnum
og er tæplega ein klst. að lengd með
sænsku tali.
Allir eru velkomnir og er aðgangur
ókeypis.
Leiklist
Tvær aukasýningar
á Jósef
Nemendur Tónlistarskólans í Kefla-
vík fluttu um síðustu helgi söngleikinn
„Jósef og litskrúðugi draumafrakkinn
hans stórkostlegi" eftir Andrew Lloyd
Webber i þýðingu Þorsteins Eggerts-
sonar.
Þar sem uppselt var á sýningarnar
hafa verið ákveðnar tvær aukasýning-
ar nk. sunnudag, kl. 15 og kl. 20.30.
Þær fara fram í Félagsbíói í Keflavík
og opnar miðasalan kl. 13.
Stútungasaga sýnd
að Ýdölum
Leikfélagið Búkolla í Aðaldal S-
Þing. frumsýndi sl. laugardagskvöld
sjónleikinn Stútungasögu eftir Ármann
Guðmundsson, Hjördísi Heiðrúnu
Hjartardóttur, Sævar Sigurgeirsson og
Þorgeir Tryggvason. Leikur þess var
sýndur í Reykjavík sl. vetur. Leikstjóri
er Einar Þorbergsson, söngstjóri Rób-
ert Faulkner og sýningarstjóri Hulda
Ragnheiður Árnadóttir. Hljóðfæraleik-
ara eru Juliet Faulkner, Sigrún Vé-
steinsdóttir og Stella Stefánsdóttir.
Með aðalhlutverk fara Vilhelmína
Ingimundardóttir, Böðvar Baldursson,
Sigurður Haraldsson, Elín Kjartans-^
dóttir, Baldur Kristjánsson, Ásdís Þórs-
dóttir, Halldór Skarphéðinsson, Ing-
veldur Guðmundsdóttir, Heiðbjörg 01-
afsdóttir, Erla Alfreðsdóttir, Benedikt
Arnbjömsson og Sigurður Haraldsson.
Alls eru hlutverkin 30 og átti Bú-
kolla ekki möguleika á því að manna
svo mannmargt stykki, nema með því
að fá áhugafólk úr næstu sveitarfélög-
um.
Kvikmyndir
SELJAKIRKJA: Fyrirbæna-
stund í kirkjunni í dag kl. 18.
Fyrirbænaefnum veitt mót-
taka á skrifstofu safnaðarins.
SELTJARNARNES-
KIRKJA: Kl. 17-18 er opið
hús til kyrrðar og íhugunar
við kertaljós.
SELJAKIRKJA: Fyrirbæna-
stund í kirkjunni í dag kl. 18.
Öllum opið.
VÍÐISTAÐAKIRKJA: Á
morgun laugardag kl. 10 flyt-
ur dr. Siguijón Arni Eyjólfs-
son fyrra erindi sitt um Jesú-
myndir í nútímanum. Umræð-
ur og kaffiveitingar.
SKIPIN
RE YK J AVÍ KURHÖFN: í
gær var Mælifell væntanleg-
ur af strönd. í gær kom gas-
skipið Jakob Kosan og
Helgafell fór út.
HAFNARFJARÐARHÖFN:
í fyrrinótt komu til löndunar
grænlenski rækjutogarinn
Tunnilik og Óskar Hall-
dórsson. Þá er grænlenski
togarinn Regína C væntan-
legur til löndunar í dag.
Einsöngur
Tónlíst___________
Jón Ásgeirsson
Hrafnhildur Guðmundsdóttjr
mezzósópran og Guðrún St. Sig-
urðardóttir pianóleikari héldu tón-
leika á vegum styrktarfélags Is_-
lensku óperunnar, sl. þriðjudag. Á
efnisskránni voru íslensk og erlend
söngverk, sex íslensk þjóðlög, ia-
gaflokkurinn Frauenliebe und Le-
ben eftir Schumann, fjögur lög
eftir Granados, þijú eftir frönsku
tónskáldin Satie, Hahn og Gounod
og tvær „bravúra-aríur“ eftir Moz-
art.
Efnisskrá tónleikanna var afar
fjölbreytt og hófust þeir með
nokkrum íslenskum þjóðlögum,
sem flest eru heimagangar. Hrafn-
hildur og Guðríður fluttu þessi
ljúfu-en einföldu lög mjög vel,
sérstaklega fyrsta lagið, Guð gaf
mér eyra. í Frauénliebe und Leben
eftir Schumann, sem tók við af
þjóðlögunum, er fengist við þá
afstöðu konunnar til karlmannsins
og kvenskyldunnar, sem nútíminn
hefur af miklu leyti hafnað. Þrátt
fyrir það, gefur fegurð söngvanna
þessum tilfinningum gildi og voru
þau einum of hamin í flutningi
Hrafnhildar. Lögin um strákana
og stelpurnar eftir Granados eru
skemmtilega leikræn og sömuleið-
is „Dívan“ eftir Satie og Síðasti
valsinn eftir Hahn. Tónleikunum
lauk svo með tveimur aríum eftir
Mozart, þannig að efnisskráin
samanstóð af íslenskum heim-
göngum, þýskum ljóðum, spönsk-
um ástarlögum, franskri leikhús-
tónlist og óperuaríum eftir meist-
ara Mozart.
Hrafnhildur hefur fallega nátt-
úrurödd og söng af öryggi tónlist-
armannsins en þó oft án þess að
snerta við tilfinningalegum innvið-
um verkanna. Hljómgun raddar-
innar, t.d. í „Konuástum“ eftir
Schuman, var oft nokkuð opin og
lítt mótuð og túlkun laganna of
einlit. Bestur var söngur hennar
í lögunum eftir Granados, bæði i
„Dívunni" eftir Satie og Lokavals-
inn eftir Hahn, þar sem Hrafnhild-
ur sýndi skemmtileg leikræn til-
þrif.
Mozart aríurnar, Voi che sap-
ete, úr Brúðkaupinu og Parto,
parto, úr Titusi, voru söngverkin
sem reyndu mest á ’söngtækni
Hrafnhildar og skilaði hún þeim
vel, þó nokkuð vantaði á skýra
aðgreiningu tónanna í „bravúr-
akaflanum" í Parto, parto. Hvað
sem þessum aðfinnslum líður, sem
aðallega varðar túlkun og tónmót-
un raddarinnar, sýndi Hrafnhildur
að hún er vel kunnandi, hefur fal-
lega rödd og á því margt til að
leggja með sér sem söngvari. Guð-
rún St. Sigurðardóttir lék vel og
var leikur hennar í alla staði vand-
aður og vel samstilltur yfirvegaðri
mótun verkanna. Með þeim í seinni
aríunni lék Ármann Helgason
mjög vel á klarinettið sitt.