Morgunblaðið - 28.01.1994, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JANÚAR 1994
Það blasir við
eftir Jónínu
Michaelsdóttur
Það blasir við, að framboðslisti
Sjálfstæðisflokksins í kosningunum
í vor verður mun sigurstranglegri
en ella ef Inga Jóna Þórðardóttir
viðskiptafræðingur skipar þar ann-
að sæti listans og menn geta átt
von á að sjálfstæðiskona verði for-
seti borgarstjómar.
Það blasir við, að baráttan um
Reykjavík verður á annan veg og
erfíðari fyrir okkur sjálfstæðismenn
en oftast áður. Skoðanakannanir
tala sínu máii um hveiju við getum
átt von á ef ekki er brugðist við
með samstöðu, þrótti og nútímaleg-
um hugsunarhætti. Vinstri öflin
ætla að sameina kraftana og meta
sigurstranglegast að treysta konum
til forystu. Ef marka má kannanir
er almenningur sömu skoðunar.
Sjálfstæðismenn í Reykjavík eiga
kost á að velja til forystu vel mennt-
aðar, hæfar og reyndar konur.
Ágæti þeirra býr ekki í kynferðinu
heldur hæfíleikum, sem em síst
minni en hjá þeim karlframbjóðend-
um sem í boði em. Ef ekki sitja
konur í að minnsta kosti tveimur
af fímm efstu sætum listans, talar
það sínu máli og er skilaboð til
nútímafólks sem búast má við að
verði svarað í kjörkössunum í vor.
Þetta er sá raunvemleiki sem við
blasir, hvort sem menn kjósa að
leiða það hjá sér eða horfast í augu
við það.
Það blasir við, ef litast er um í
þjóðfélaginu, að hæfíleiki til stjórn-
unar og forystu er fágætari en
ætla mætti. Stundum er villst á
vilja eða hneigð til að vera áber-
andi og ráða yfír öðrum og því að
hafa hæfíleika til stjórnunar. Fólk
getur verið hæfileikaríkt, fjöl-
menntað og afkastamikið án þess
að geta með góðu móti axlað ábyrgð
og haft mannaforráð. Það dregur
ekkert úr ágæti þess fremur en ef
það hefði ekki góða söngrödd, en
til forystustarfa á að velja fólk sem
hefur hæfileika til þess.
Inga Jóna Þórðardóttir er í eðli
sínu forystumaður. Hún gengur
fumlaust til verka og eyðir ekki
tíma í tilgangslausar vangaveltur.
í samstarfi hlustar hún á öll sjónar-
mið og hefur lag á að ná samstöðu
um mál á þann veg að flestum þyki
þeir hafa lagt eitthvað af mörkum.
Hún styður sjónarmið sín jafnan
gildum rökum og leitar eftir því
sama í málflutningi annarra. Mér
hefur þótt þetta einkenna störf
hennar frá því við kynntumst fyrir
tuttugu árum, en þá var hún for-
maður Þórs, félags ungra sjálfstæð-
ismanna á Ákranesi, en ég formað-
ur í öðru sjálfstæðisfélagi í sama
kjördæmi. Síðan höfum við unnið
saman í SUS og í fjölmörgum
nefndum,. setið saman í miðstjórn
Sjálfstæðisflokksins og fram-
kvæmdastjórn. Sem framkvæmda-
stjóri flokksins og síðar formaður
framkvæmdastjórnar sýndi hún oft
stjórnvisku og lagni og þegar hún
mætti fyrir hönd Ragnhildar Helga-
dóttur á fundum og samkomum
innanlands og utan, meðan hún var
aðstoðarmaður ráðherra, kom hún
fram af myndugleik sem eftir var
tekið og tók á málum af ábyrgð
og þekkingu. Sama má segja um
formennsku hennar í útvarpsráði
og Kvenréttindafélagi íslands. Hún
er skaprík og hrifnæm, en fyrir
stjórnmálamann er það kostur. Þess
utan er hún ein mesta hugsjóna-
manneskja sem ég hef kynnst.
Það blasir við, að í prófkjöri er
barist um áhrif og völd. Frambjóð-
endur og stuðningsmenn þeirra
knýja á um umboð frá kjósendum
eftir öllum leiðum sem þeim hug-
kvæmast. Það er af hinu góða að
frambjóðendur kynni sig og sjálf-
stæðisfólk skoði með velvilja þá
kosti sem í boði eru. En þegar til
alvörunnar kemur, hlýtur hver og
einn að gera upp hug sinn út frá
því hvemig hann vill að borginni
sé stjórnað og af hverjum, fremur
en af hinu, að vinur vinar hans
hringdi og bað um afnot af atkvæð-
1
Inga Jóna Þórðardóttir
„Það er sannfæring mín
að það geti haft úrslita-
þýðingu um fylgi
flokksins í kosningun-
um að í forystunni sé
sterk kona með póli-
tískt innsæi. Kona sem
getur, vill ogþorir.“
inu hans um stund. Kosningarétt
ættum við að umgangast með virð-
ingu. Hann á hvorki að vera versl-
unarvara eða vinargreiði.
Jónína Michaelsdóttir
Það blasirvið, að baráttan verður
hörð, ekki síst um efstu sætin, en
hér eru samheijar að keppa og í
allra þágu að sátt verði um niður-
stöðuna þegar hún liggur fyrir,
hver sem hún verður.
Það er sannfæring mín að það
geti haft úrslitaþýðingu um fylgi
flokksins í kosningunum að í foryst-
unni sé sterk kona með pólitískt
innsæi. Kona sem getur, vill og
þorir. í mínum augum er það við-
blasandi að Inga Jóna Þórðardóttir
er þessi kona.
Höfundur er rithöfundur og
sUirfitr að markaðsmálum.
Tryggjum Markúsi Emi Antons-
syni afgerandi sigur í 1. sætið
eftir Magnús L.
Sveinsson
Sjálfstæðismenn í Reykjavík
velja sér frambjóðendur til borgar-
stjórnar með prófkjöri um næstu
helgi. Það er mikilvægt að sem
flestir taki þátt í prófkjörinu, svo
að það gefi sem besta mynd af vilja
manna um hvemig þeir vilja að listi
flokksins verði skipaður í kosning-
unum í vor. Það er einnig mikil-
vægt, að niðurstaða prófkjörsins
sýni ótvíræðan stuðning við borgar-
stjóraefni Sjálfstæðisflokksins,
Markús Öm Antonsson, núverandi
borgarstjóra, í 1. sætið. Það er
styrkur fyrir alla frambjóðendur á
listanum, að borgarstjóraefni
flokksins fái afgerandi kosningu í
1. sætið. Það sýnir ótvíræðan styrk
flokksins í komandi kosningum.
Þegar Markús Öm Antonsson
var kjörinn borgarstjóri, er Davíð
Oddsson varð forsætisráðherra á
miðju ári 1992, var um það algjör
samstaða í borgarstjórnarflokki
sjálfstæðismanna. Síðan hefur
Markús Örn verið ótvíræður leiðtogi
sjálfstæðismanna í borgarstjórn og
verið mjög farsæll í hinu vandasama
starfi borgarstjóra og hefur notið
fulls trausts allra í borgarstjórnar-
flokki sjálfstæðismanna.
Þegar Markús tók við starfi borg-
arstjóra, var hann gjörkunnugur
málefnum borgarinnar frá því að
hann var borgarfulltrúi, enda hafði
hann á þeim tíma setið í borgarráði
og verið forseti borgarstjórnar.
HUGBÚNAÐUR
FYRIR WINDOWS
g] KERFISÞRÓUN HF.
FÁKAFEN111 - SÍMI 688055
Málefnastaða sjálfstæðismanna í
borgarstjórn er mjög sterk. Staðið
hefur verið við kosningaloforðin
fyrir síðustu kosningar. Fram-
kvæmdir hafa verið mjög miklar í
öllum málaflokkum á þessu kjör-
tímabili. Borgin hefur varið miklum
fjármunum til að draga úr hinu al-
varlega atvinnuleysi. Lögð hefur
verið síaukin áhersla á umhverfís-
málin. Má í því sambandi nefna hið
mikla og fjárfreka átak við sam-
tengingu allra útrása holræsa í
borginni, opnun Fjölskyldugarðsins
í Laugardal, fegrun umhverfís
Tjörnina, gerð Ingólfstorgs, opnun
Geirsgötu, aðstöðu fyrir skemmti-
ferðaskip í gömlu höfninni og end-
urbætur á Arnarhóli svo nokkuð sé
nefnt. Gamli miðbærinn hefur tekið
miklum stakkaskiptum, sem hefur
eftir Júlíus
Hafstein
Sigurður Guðmundsson málari
var á mörgum sviðum langt á und-
an sinnL samtíð. í hyllingum fram-
tíðar sá hann fyrir sér Laugardalinn
sem ýtivistar- og íþróttasvæði fyrir
Reykvíkinga. Við skulum minnast
þess, að hugljómun sína setti Sig-
urður málari fram fyrir rúmlega
120 árum, og síðan líður rúmjhálf
öld þar til byijað er á að hrinda
þessum hugmyndum málarans og
hugsjónamannsins í framkvæmd.
Hinn fyrsti vísir að útivistarað-
stöðu er baðlaug, „suður af Laugar-
nesi“, svo sem getið er um í Ferða-
bók Eggerts og Bjarna, og er þessi
umrædda baðlaug forveri gömlu
sundiauganna sem reistar voru
1908, og þjónuðu Reykvíkingum
dyggilega og við miklar vinsældir
sem aðalútisundlaug þeirra þar til
Laugardalslaugin leysir þær af
hólmi um 1965.
í dag er þessi einstaki og fagri
dalur orðinn aðalútivistarsvæði
„Það er því mikilvægt
að breið samstaða tak-
ist um skipan listans og
afgerandi stuðningur
verði við Markús Orn
Antonsson í 1. sætið.“
orðið honum lyftistöng til aukins
og bætts mannlífs í borginni.
í hinum mikla samdrætti, sem
orðið hefur hjá íslensku þjóðinni að
undanfömu, hafa tekjur borgarinn-
ar dregist saman í samræmi við
minni tekjur borgaranna. Engu að
siður hefur verið hægt að halda
uppi miklum framkvæmdum, án
borgarbúa. Gífurleg uppbygging
glæsilegra mannvirkja á vegum
Reykjavíkurborgar, ætluð til hinna
ýmsu íþróttaiðkana, hafa risið í
Laugardalnum, þar sem saman
hafa farið mikil smekkvísi og stór
hugur til þess að gera sem best,
svo að sem flestir fái notið sín í
„fjölskyldudalnum" okkar Reykvik-
inga.
Á þessu afmarkaða svæði gefur
að líta öll stærstu og glæsilegustu
íþróttamannvirki landsmanna,
tjaldsvæði með þjónustumiðstöð,
grasagarð, húsdýragarð og nýjasta
svæðið, fjölskyldugarðinn, sem opn-
aður var sl. sumar, en hann nýtur
mikilla vinsælda meðal borgarbúa.
Þegar litið er yfír Laugardalinn
sést, að vel hefur tekist til með allt
útlit hans, því ávallt hefur það ver-
ið haft að leiðarljósi að fegra dalinn
samhliða uppbyggingu hans, gera
hann umhverfisvænan og þá um
leið eftirsóknarverðan til útivistar.
í gegnum tíðina hefur Laugar-
dalurinn ávallt verið samtvinnaður
lífí og störfum fólksins. Þarna
þess að hækka skatta á borgarbúa-
eða stofna fjármálum borgarinnar
í nokkra hættu. Nettóskuldir borg-
arinnar eru nú sambærilegar við
það, að maður sem á 10 milljóna
króna íbúð, myndi skulda um 600
þúsund krónur. Það er nú allt og
sumt.
En þó að málefnastaða okkar sé
mjög góð, er framundan hörð og
tvísýn barátta við andstæðinga okk-
ar fyrir kosningarnar í vor. Það er
því mikilvægt að breið samstaða
takist um skipan listans og afger-
andi stuðningur verði við Markús
Örn Antonsson í 1. sætið. Um leið
og það er ótvíræður stuðningur við
hann, sem borgarstjóraefni sjálf-
stæðismanna, sýnir það styrkleika
og breiða samstöðu sjálfstæðis-
manna, þegar þeir ganga fram til
„Þegar litið er yfir
Laugardalinn sést, að
vel hefur tekist til með
allt útlit hans.“
þvoðu konur þvotta sína, oft við
mjög erfiðar aðstæður, þarna hefur
búskapur verið stundaður allt fram
á þennan dag, en er nú að hverfa
fyrir öðru notkunargildi, sem er
útivist við bestu aðstæður.
Árið 1993 hlaut Reykjavíkurborg
viðurkenningu Alþjóðlegu Ólympíu-
nefndarinnar fyrir frábært starf að
uppbyggingu íþróttamannvirkja og
umhverfis þeirra í Laugardal. Við-
urkenning þessi er veitt þeim aðil-
um sem unnið hafa markvert starf
í umhverfísvernd sem tengd er
íþróttum. Viðurkenning nefndar-
innar verður án nokkurs vafa afl-
gjafi enn frekari uppbyggingar í
dalnum, en borgarbúar hafa svo
sannarlega sýnt, að þeir kunna vel
að meta það athvarf og aðstöðu sem
Fj ölskyldudalurinn
Magnús L. Sveinsson
baráttu fyrir áframhaldandi sam-
hentri stjórn Reykjavíkurborgar.
Höfundur er forseti
borgarstjórnar.
Júlíus Hafstein
þeir eiga í Laugardal, fjölskyldudal
okkar Reykvíkinga.
Höfundur er borgarfulltrúi fyrir
Sjálfstæðisflokkinn, og formaður
umhverfismálar&ðs og íþrótta- og
tómstundaráðs.