Morgunblaðið - 28.01.1994, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JANÚAR 1994
21
Þorsteinn
Jóhannesson
Örn
Torfason
Bjarndís
Friðriksdóttir
Björgvin Arnar
Björgvinsson
Björn
Helgason
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins á ísafirði um helgina
Sautján frambjóðendur
PRÓFKJÖR Sjálfstæðisflokksins á ísafirði vegna bæjarsljórnarkosn-
inganna í vor fer fram laugardaginn 29. janúar og sunnudaginn 30.
janúar næstkomandi. Kosið verður í Sjálfstæðishúsinu á ísafirði, Hafn-
arstræti 12, 2. hæð, frá kl. 10 til 19 á laugardag og frá kl. 13 til 19
á sunnudag.
Atkvæðisrétt í prófkjörinu hafa
allir fullgildir meðlimir sjálfstæðis-
félaganna á ísafirði, sextán ára og
eldri. Auk þess þeir stuðningsmenn
flokksins, sem hafa kosningarétt í
bæjarfélaginu í komandi sveitar-
stjórnarkosningum og undirritað
hafa stuðningsyfirlýsingu við flokk-
inn samhliða þátttöku í prófkjöri.
Kjósa skal ákveðinn mann í sæti á
framboðslistanum með því að tölu-
setja faman við nöfn manna á kjör-
seðlinum í þeirri röð, sem óskað er,
frá 1 til 5 og hvorki fleiri né færri
en 5.
Frambjóðendur eru:
Einar Axelsson, fæddur 13. apríl
1959. Hánn er kvæntur Ingibjörgu
Loftsdóttur, og eiga þau þrú börn.
Einar er læknir og útskrifaðist frá
læknadeild Háskóla íslands. Hann
hefur unnið í Svíþjóð en hóf síðan
störf sem yfirlæknir á Heilsugæslu-
stöð ísafjarðar.
Elízabeth Einarsdóttir, fædd
14. nóvember 1949. Hún er gift
Herði Högnasyni. Elízabeth er sjúkr-
aliði og starfar sem forstöðumaður
þjónustudeildar aldraðra, Hlíf,
Isafirði. Hún er gift Herði Högna-
syni.
Finnbogi Rútur Jóhannesson,
fæddur 22. nóvember 1962. Hann
er kvæntur Sigrúnu Huldu Sig-
mundsdóttur. Þau eiga tvö börn.
Finnbogi er rekstrarfræðingur og
starfar sem atvinnuráðgjafi.
Halldór Jónsson, fæddur 27.
september 1959. Hann býr með
Dagrúnu Dagbjartsdóttur og þremur
börnum hennar. Halldór er útgerðar-
tæknir og starfar sem útgerðarstjóri
hjá Rit hf. og er jafnframt formaður
Félags rækju- og hörpudisksfram-
leiðenda.
Jóhann Ólafsson, fæddur 11.
maí 1958. Hann er kvæntur Hall-
dóru Kolbrúnu- Benediktsdóttur. Þau
eiga þijú börn. Jóhann er vélfræð-
ingur og starfar sem umdæmisstjóri
hjá Vinnueftirliti ríkisins.
Kolbrún Halldórsdóttir, fædd
15. janúar 1953. Hún er gift Pétri
Jónassyni. Þau eiga þrjú börn. Hún
starfar sem fiskvinnslukona.
Kristján Kristjánsson, fæddur
24. október 1947. Hann er kvæntur
Helgu Sveinbjarnardóttur. Kristján
er umdæmisverkfragðingur hjá
Vegagerð ríkisins.
Marsellíus Sveinbjörnsson,
fæddur 4. febrúar 1959. Hann er
kvæntur Margréti Geirsdóttur, og
eiga þau þrjú börn. Marsellíus er
tré- og járnsmiður og er starfsmaður
Mjölvinnslunnar í Hnífsdal.
Pétur H. R. Sigurðsson, fæddur
15. janúar 1947. Hann er kvæntur
Guðrúnu Gunnarsdóttur og eiga þau
fjögur börn. Pétur er mjólkurfræð-
ingur og starfar sem_ mjólkurbús-
stjóri Mjólkursamlags ísfirðinga.
Ragnheiður Hákonardóttir,
fædd 18. mars 1954. Hún er gift
Guðbjarti Ásgeirssyni og eiga þau
sex börn. Ragnheiður er húsmóðir.
Signý Rósantsdóttir, fædd 12.
imvember 1945. Hún er gift Sigurði
Finnbogasyni, og eiga þau þrjú börn.
Signý er starfsmaður Landsbankans
á Isafirði.
Sævar Gestsson, fæddur 6. des-
ember 1947. Hann er kvæntur
Rögnu Arnaldsdóttur og eiga þau
tvö börn. Sævar starfar sem land-
formaður á Orra ÍS 20.
Þorsteinn Jóhannesson, fæddur
11. maí 1951. Hann er kvæntur
Friðnýju Jóhannesdóttur og eiga þau
eitt barn. Þorsteinn er dr. med. og
sérfræðingur í skurðlækningum.
Hann starfar sem yfirlæknir Fjórð-
ungssjúkrahússins á ísafirði.
Orn Torfason, fæddur 4. júlí
1970. Unnusta hans er Ingibjörg
María Guðmundsdóttir og á hún eina
dóttur. Örn er verslunarmaður, en
nemur sjóntækjafræði (optik).
Bjarndís Friðriksdóttir, fædd
27. maí 1954. Hún á einn son.
Bjarndís er málarameistari.
Björgvin Arnar Björgvinsson,
fæddur 27. júní 1972. Hann er í
sambúð með Guðrúnu Sverrisdóttur.
Björgvin starfar sem afgreiðslustjóri
hjá Flugleiðum hf. á ísafirði.
Björn Helgason, fæddur 24.
september 1935. Hann er kvæntur
Maríu Gísladóttur. Þau eiga fimm
börn. Fyrir hjónaband átti hann dótt-
ur. Björn er málarameistari og starf-
ar sem íþrótta- og æskulýðsfulltrúi
ísafj arðarkaupstaðar.
Bann við loðnuveiðum frystitogara
Togveiðar og fryst-
ing slæmt fordæmi
„TVÖ atriði réðu úrslitum um að sjávarútvegsráðuneytið sypjaði þess-
um togurum um leyfi til loðnuveiða ög frystingar um borð. I fyrsta
lagi hefðum við þurft að heimila togveiðar á slóðum sem lögð hefur
verið áhersla á að vernda gegn slíkum veiðum og í öðru lagi hefðu
togararnir aðeins nýtt hluta aflans, en orðið að kasta megninu útbyrð-
is. Það samræmist ekki því átaki sem gert hefur verið til að fá menn
til að koma með allan nýtanlegan afla að Iandi,“ sagði Jón B. Jónas-
son, skrifstofusljóri í sjávarútvegsráðuneytinu.
Eins og skýrt hefur verið frá í áhyggjur af áhrifum þessara veiða.“
Morgunblaðinu sóttu fjórir aðilar um Jón sagði að skylt væri að koma
leyfi til loðnuveiða í flotvörpu og troll með allan nýtanlegan afla að landi.
með frystingu um borð í huga og „Hér áður fyrr vildi brenna við að
munu fleiri hafa haft hug á slíkum
veiðum.
„Almennar togveiðar hafa verið
bannaðar á ákveðnum svæðum og
alveg innan þriggja mílna mark-
anna,“ sagði Jón B. Jónasson þegar
hann var spurður hvers vegna ráðu-
neytið hefði hafnað umsóknunum.
„Það þótti því óeðlilegt að veita tog-
urum leyfi til að veiða á þessum
svæðum með smáum möskvum, en
það hefðu þeir þurft að gera til að
ná loðnunni. Utgerðarmenn og sjó-
menn nótaveiðiskipa höfðu einnig
loðnan sem veiddist var ekki öll hirt,
en undanfarin ár hefur verið unnið
að því að breyta þessu hugarfari.
Ef frystiskip fengju heimild til loðnu-
veiða þá yrðu þau að losa sig við
allt að 70-80% aflans aftur í hafið,
þar sem hann nýtist ekki til frysting-
ar. Þeir ættu ekki kost á að hirða
hann, þar sem ekki eru tankar eða
lestir til þess. í leyfisveitingu hefði
því falist grundvallarstefnubreyting,
sem hefði verið fordæmi þess að far-
ið yrði að flokka aflann um borð
nótaskipunum."
s\A -j i: u
faf þér
Hinn 5. febrúar 1994 hefst nýstárlegt fræðslu- og
þjálfunarnámskeið sem stendur í 12 vikur.
Námskeiðið fræðir okkur um samspil hreyfingar,
mataræðis, heilsu og vellíðunar. Aukin þekking
leggur grunn að nýjum lífsstíl sem bætir heilsu og
eykur vellíðan. Njótið lífsins og verið í góðu formi,
án þess að hlaða upp aukakílóum. Námskeiðið er
fyrir konur og karla á öllum aldri. Tilhögun æfinga
miðast við getu hvers og eins.
A. Fæðsluhlutinn er m.a. sem hér segir:
Fyrirlestrar með umræðum og fyrirspumum á eftir:
Dr. Gísli Einarsson, læknir:
Áhrif hreyfingar á vöðva og heilbrigði líkamans.
Endurhæfing og uppbygging þreks og þols.
Guðrún Þóra Hjaltadóttir, næringarráðgjafi:
Skynsamlegt mataræði.
Gunnar Páll Jóakimsson, MA í íþróttafræðum:
Þjálfun, skokk og ganga.
Gunnar Sigurðsson yfirlæknir:
Áhrif líkamsræktar/kyrrsetu á hjarta- og æðasjúkdóma.
Ingólfur Sveinsson, geðlæknir:
Líkamsrækt og andleg líðan.
Ragnar Tómasson:
Heilsurækt sem þáttur í nýjum lífsstíl.
Sigurður Björnsson, læknir:
Samspil mataræðis, hreyfingar og krabbameins.
Fjölmörg önnur umræðuefni tekin fyrir og rædd, svo
sem um klæðnað, meiðsli, skyndihjálp, matarupp-
skriftir, teygjuæfingar o.fl.
Farið yfir lesefni í bókinni „Hristu af þér slenið".
Fyrirlestrar verða á laugardögum og sunnudögum
kl. 10-12 og 13-15 í Gerðubergi, Reykjavík, þrjár
helgar í röð, í fyrsta sinn laugardaginn 5. febrúar
1994. (hádegi á milli fyrirlestra verður boðið upp á létt-
an og hollan mat.
B. Verklegi hlutlnn, undir umsjón íþróttaþjálfara, er sem
hér segir: ( byrjun eru þátttakendur vigtaðir,
fitumældir, blóðþrýstingur tekinn, kólesteról-magn í
blóði mælt og gengist undir þolpróf.
Þrek- og þolæfingar eru þrisvar í viku eru þrisvar í
viku í líkamsræktarstöðinni World Class, Skeifunni 19,
Reykjavík. Æfingar gerðar svk. töflum sem útbúnar eru
fyrir hvern þátttakanda. Æft þá daga og þann tíma
dagsins sem þátttakendum hentar best. Byggt er á ein-
földum grunnæfingum sem miðast við að þátttakendur
geti haldið áfram þjálfun á eigin vegum, óháðir æfin-
gastöðvum. Engar harðar eða erfiðar æfingar sem fóik
þarf að kvíða. Það er aðeins tekið á að því marki sem
hver og einn ræður vel við.
C. Símaráðgjöf - einkavlðtöl.
Læknir, næringafræðingur og þjálfari, auk stjómanda
veita persónubundna ráðgjöf á námskeiðstímanum.
D. Kynntar áhugaverðar gönguleiðir í Reykjavík og
nágrenni i fylgd leiðsögumanna. Sætagjald ef farið er út
úr borginni með hópferðabifreið.
Námskeiðsgjald er kr. 28.000 og má greiða með rað-
greiðslum (Dreifist á 3-6 mánuði. Veittur er 10% stað-
greiðsluafsláttur og 5% afsláttur með greiðslukorti.)
Innifalið í námskeiðsgjaldi er, auk þess sem áður er
nefnt:
Aðgangskort að World Class í þrjá mánuði.
Dagbók til að færa inn æfingar, vigt o.fl.
Heilsuræktarbókin „Hristu af þér slenið“.
Afsiáttarskírteini við kaup á sportvörum.
Athugið:
Hægt er að kaupa aðgang að fyrirlestrunum einum
(sbr. lið A) fyrir kr. 18.000.
Stjómandi námskeiðanna verður Ragnar Tómasson
höfundur bókarinnar Hristu af þér slenið.
Skráningar í World Class í símum 30000 og 35000 og hjá
Ragnari kl. 11-14 virka daga í síma 682500 og í síma
672621 kvöld og helgar.
Fjölda þátttakenda getur þurft að takmarka.